Morgunblaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2004 39
STEINGRÍMUR Þormóðsson hrl.
hefur sent Morgunblaðinu yfirlýsingu
vegna fréttar sem birtist í Frétta-
blaðinu 16. mars sl. um gjaldþrot
Ferskra afurða efh. á Hvammstanga,
en hann var lögmaður fyrirtækisins.
„Undirritaður lögmaður telur að
sér vegið með fréttinni og krefst þess
að Kristinn Hallgrímsson hrl., fyrr-
verandi lögmaður Goða hf. og Kjöt-
umboðsins hf., verði krafinn skýring-
ar á, hvað hann á við með því að óskað
hafi verið eftir því af hans hálfu, að að-
ild undirritaðs að málinu á greiðslu-
stöðvunartíma verði sérstaklega
rannsökuð af lögreglu. Með þessari
fullyrðingu er Kristinn að saka und-
irritaðan lögmann um refsiverðan
verknað. Án þess að Kristinn skýri út
hvað hann á við eru þau orð sem eftir
honum eru höfð ósæmilegar og sak-
næmar dylgjur.
Tekið skal fram, að á þeim þremur
vikum, frá 23. september 2003 til 14.
október s. ár, sem greiðslustöðvun
var veitt, fór undirritaður lögmaður
eftir ákvæðum IV. kafla gjaldþrota-
skiptalaga og brýndi fyrir forráða-
mönnum Ferskra afurða ehf., hver
réttaráhrif greiðslustöðvunar væru
og að ljúka þyrfti við að færa bókhald
félagsins fram að fundi þeim sem
halda átti hinn 10. október í starfstöð
félagsins. Vinna lögmannsins á
greiðslustöðvunartíma fór eingöngu
fram á skrifstofu hans að Nethyl 2,
Reykjavík, þar sem unnið var að und-
irbúningi ofangreinds fundar, sem
kveðið er á um í 13. grein gjaldþrota-
skiptalaga. Senda þurfti öllum við-
skiptamönnum félagsins ca 300 tals-
ins, sem að stórum hluta voru bændur
á Norður- og Vesturlandi tilkynningu
um fundinn með sannanlegum hætti.
Einnig var unnið að því að athuga
hvaða fjárhagslegu aðgerðir væru fé-
laginu helst til bjargar, fengist fram-
lenging á greiðslustöðvunartíma.
Gerður hafði verðið samningur við
Dalalamb ehf. um yfirtöku rekstrar
félagsins í Búðardal og yfirtöku á
vinnusamningum við starfsfólk.
Haldnir voru fundir með fram-
kvæmdastjóra Bændasamtakanna og
lögmanni varðandi skuldir félagsins
við bændur og greiðslu hluta þeirra
með úreldingarsamningi sem sótt
hafði verið um. Þannig var þessi
þriggja vikna tími ákveðinn undir-
búningstími, sem fólst engan veginn í
því að undirritaður stæði vörð um
kjötbirgðir félagsins í Búðardal, held-
ur hafði ofangreind verkefni með
höndum. Það skal hins vegar tekið
fram, að þann 2. september 2003 var
lokað fyrir rafmagn á starfstöð fé-
lagsins í Búðardal og var svo þar til
ofangreindur yfirtökusamningur við
Dalalamb ehf. var gerður þann 12.
september 2003.
Þennan tíma var kjötflutningur frá
Búðardal því ekki mögulegur. Frá 12.
september 2003 voru því birgðir
Ferskra afurða ehf. í Búðardal í
vörslum Dalalambs ehf. Mér vitan-
lega hefur engin sala farið fram á
þessum birgðum Ferskra afurða ehf.
á greiðslustöðvunartíma, nema sú
sala sem getið er um í bókhaldi
Ferskra afurða ehf. Þá eru mjög óá-
reiðanlegar, nýlegar heimildir skipta-
stjóra félagsins um að birgðir hafi
verið fjarlægðar af starfsmönnum
Ferskra afurða ehf. Er um að ræða
bæði óglöggar og ósannaðar fullyrð-
ingar starfsmanna Dalalambs ehf.
sem fyrrum forráðamenn Ferskra af-
urða ehf. telja alrangar.“
Ósæmilegar og
saknæmar dylgjur
Yfirlýsing frá lögmanni Ferskra
afurða á Hvammstanga
Fyrirlestur um strauma og stefnur
í dönskum landslagsarkitektúr
Opin fyrirlestur verður í Norræna
húsinu kl. 17 á morgun, fimmtudag-
inn 18. mars. Annemarie Lund lands-
lagsarkitekt og ritstjóri tímaritsins
Landskab heldur fyrirlestur um
danskan landslagsarkitektúr frá
stríðslokum til okkar daga. Hún tek-
ur m.a. fyrir skipulags- og hönn-
unarverk eftir þekkta danska lands-
lagsarkitekta s.s. C.th. Sørensen,
Sven-Ingvar Andersson og Jeppe
Aagaard Andersen.
Fyrirlesturinn er á vegum Félags ís-
lenskra landslagsarkitekta í sam-
vinnu við Arkitektafélag Íslands og
Norræna húsið.
Námskeið og æfing í viðbrögðum
við smitsjúkdómum í dýrum Dag-
ana 18.–20. mars verður haldið nám-
skeið og æfing, á vegum yf-
irdýralæknis–embættisins, í
viðbrögðum við smitsjúkdómum í
dýrum. Námskeiðið verður haldið í
húsakynnum PharmaNor, Hörgatúni
2 í Garðabæ, en verkleg æfing verður
á Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri og Fjárræktarbúinu Hesti á
laugardag. Guðni Ágústsson, land-
búnaðarráðherra, mun flytja ávarp í
upphafi námskeiðsins, sem hefst kl.
10, fimmtudaginn 18. mars.
Á námskeiðinu verður fjallað um flest
atriði sem reynir á og taka þarf
ákvarðanir um þegar upp kemur
grunur um alvarlegan smitsjúkdóm í
dýrum. Þar má nefna boðleiðir og að-
gerðir til varnar útbreiðslu smits,
sýnatökur, aðferðir við slátrun, förg-
un, þrif, sótthreinsun o.fl. Þrír er-
lendir sérfræðingar, með reynslu af
smitsjúkdómum, munu kenna á nám-
skeiðinu og íslenskir sérfræðingar
fjalla um íslenskar aðstæður.
Verklega æfingin er eingöngu fyrir
héraðsdýralækna og aðra starfsmenn
yfirdýralæknis og mun snúast um
grun um gin- og klaufaveiki á Hvann-
eyri og Hesti. Unnið verður eftir
áætlun yfirdýralæknisembættisins
um viðbrögð við smitsjúkdómum.
Starfshópur á vegum yfirdýralæknis
hefur skipulagt námskeiðið og æf-
inguna, með aðstoð sérfræðings frá
Danmörku.
Á MORGUN
Námskeið um öryggi upplýsinga
Staðlaráð Íslands heldur námskeið
24. og 25. mars undir heitinu Örugg
meðferð upplýsinga – Stjórnun upp-
lýsingaöryggis samkvæmt ISO
17799. Námskeiðið er ætlað stjórn-
endum sem bera ábyrgð á meðferð
upplýsinga og að innleiða stjórnkerfi
upplýsingaöryggis í fyrirtækjum,
starfsfólki sem tekur þátt í innleið-
ingu slíks stjórnkerfis, ásamt tækni-
fólki og ráðgjöfum á sviði upplýsinga-
öryggis.
Markmið námskeiðsins er að þátttak-
endur þekki staðlanna ISO 17799
Upplýsingatækni – Starfsvenjur fyrir
stjórnun upplýsingaöryggis og BS
7799-2 Stjórnkerfi upplýsingaöryggis
– Forskrift ásamt leiðbeiningum um
notkun, og þekki hvernig þeim er
beitt. Leiðbeinandi á námskeiðinu er
Svana Helen Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stika ehf.
Nána á vefnum www.stadlar.is
Jóganámskeið Á Félags og þjón-
ustumiðstöðinni að Aflagranda 40 eru
haldin jóganámskeið á þriðjudags og
fimmtudagsmorgnum og síðdegis á
mánudögum og miðvikudögum.
Námskeiðið er opið öllum en hentar
konum vel. Lögð er áhersla á slökun
og hugleiðslu. Leiðbeinandi er Hildur
B. Eydal jógakennari.
Skráning og nánari upplýsingar eru á
skrifsstofu á Aflagranda. Einnig er
hægt að senda tölvupóst á netfang:
hildur_bjorg@hotmail.com
Á NÆSTUNNI
Nýtt lyf gegn beinþynningu
Á myndunum sést samanburður á beinvef hjá einstaklingi með beinþynn-
ingu fyrir meðferð og eftir 21 mánaðar meðferð á Forsteo.
Stuðlar að
framleiðslu
nýs beinvefjar
Lyfið dregur umtalsvert úr sárs-
auka af völdum beinþynningar og
eykur þannig lífsgæði fólks, segir í
tilkynningunni.
Íslenskar konur taka þátt
í fjölþjóðlegri rannsókn
Forsteo (teriparatid) kom fyrst á
markað í Bandaríkjunum árið 2002.
Um 50 þúsund manns hafa þegar
verið meðhöndlaðir með lyfinu sem
gefið er í sprautuformi. Aukaverk-
anir vegna Forsteo eru yfirleitt
vægar en þær algengustu lýsa sér í
ógleði, höfuðverk, verkjum í útlim-
um og sinadrætti. Hámarksmeð-
ferðarlengd Forsteo er 18 mánuðir
en virkni lyfsins heldur áfram eftir
að meðferð lýkur.
Tveggja ára fjölþjóðleg rannsókn
stendur nú yfir með þátttöku rúm-
lega 800 sjúklinga í ellefu Evrópu-
löndum. Fimmtán íslenskar konur
með alvarlega beinþynningu taka
þátt í rannsókninni sem framkvæmd
er undir stjórn læknanna Gunnars
Sigurðssonar prófessors og Björns
Guðbjörnssonar gigtarlæknis.
Á vefsíðu Beinverndar beinvernd-
.is segir að árlega hljóti um 1.300
manns hér á landi beinbrot sem
rekja megi til beinþynningar. Kostn-
aður þjóðfélagsins vegna þessa
skiptir hundruðum milljóna á ári
hverju, að ógleymdum þeim þján-
ingum og erfiðleikum sem sjúkdóm-
urinn veldur, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Lilly á Íslandi.
NÝTT lyf gegn beinþynningu er nú
komið á markað hér á landi. Lyfið,
sem nefnist Forsteo, er hið fyrsta í
nýjum flokki lyfja sem vinna gegn
beinþynningu og stuðlar að fram-
leiðslu nýs, heilbrigðs beinvefjar,
segir í fréttatilkynningu. Framleið-
andi lyfsins er lyfjafyrirtækið Eli
Lilly & Company sem er alþjóðlegt
fyrirtæki á sviði lyfjaþróunar og
lyfjaframleiðslu. Forsteo er fyrst og
fremst ætlað konum sem þjást af al-
varlegri beinþynningu eftir tíða-
hvörf og körlum eldri en 40 ára. Lyf-
ið er eingöngu fáanlegt gegn
lyfseðli.
Algengustu beinbrot af völdum
beinþynningar eru samfallsbrot á
hrygg, mjaðmabrot og framhand-
leggsbrot. Í fréttatilkynningu segir
að rannsóknir hafi leitt í ljós að með
því að auka beinþéttni dregur lyfið
úr hættu á að hryggjarliðir falli sam-
an um 65%. Það dregur ennfremur
úr hættu á minni háttar og alvar-
legum samfallsbrotum um 90%.
Ennfremur hefur verið sýnt fram á
að hætta á öðrum brotum dregst
saman um 53% við neyslu lyfsins.
ELSTA hrossaræktarfélag landsins,
Hrossaræktarfélag Austur-
Landeyja, er aldargamalt um þessar
mundir og af því tilefni mun félagið
efna til ráðstefnu um hrossarækt í
Gunnarshólma á föstudaginn, 19.
mars.
Fyrstu 50 árin átti félagið stóð-
hestana sem boðið var upp á. Á kyn-
bótasýningu 1940 sýndi félagið fimm
stóðhesta sem allir hlutu fyrstu
verðlaun. Árið 1960 gerðist félagið
aðili að Hrossaræktarsambandi Suð-
urlands og við þá breytingu hætti
það að eiga hesta en notaði þess í
stað hesta frá Sambandinu. Í seinni
tíð hefur félagið oftar en ekki notað
hesta í eigu einstaklinga.
Auk þess að sjá um stóðhestahald
hefur félagið boðið upp á ungfola-
skoðun, fræðsluferðir og verðlauna-
veitingar til félagsmanna fyrir hæst
dæmda kynbótahross hvers árs.
Á ráðstefnunni á föstudag flytja
erindi Kristinn Hugason, fyrrver-
andi landsráðunautur í hrossarækt,
um þróun dómsaðferða og dóms-
skala kynbótahrossa í gegnum tíð-
ina. Björn Kristjánsson, for-
stöðumaður Söguseturs um íslenska
hestinn, mun fjalla um sögu töltsins.
Þorvaldur Kristjánsson kynbóta-
dómari mun flytja erindi sem ber yf-
irskriftina Ættfeður íslenska hrossa-
stofnsins og Bergur Pálsson,
formaður félagsins, mun stikla um
sögu þess. Þá mun Ágúst Sigurðsson
hrossaræktarráðunautur flytja er-
indi sem ber nafnið Horft til fram-
tíðar. Einnig verður boðið upp á
myndbandssýningu þar sem stiklað
verður um kynbótassýningar lands-
móta gegnum tíðina. Ráðstefnan
hefst kl. 13.
Hrossa-
ræktarráð-
stefna á
aldarafmæli
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Sveinn, sími 695 9808.
VESTURBÆR - SÉRBÝLI
Ég hef verið beðinn um að útvega
fyrir fjársterkan aðila sérbýli/sérhæð
í Vesturbæ Reykjavíkur, verð allt að
30 millj. Um er að ræða trausta
kaupendur.
Áhugasamir vinsamlegast hafi
samband og ég mun fúslega veita
nánari upplýsingar.