Morgunblaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 41
MEÐ MORGUNKAFFINU
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2004 41
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert listræn/n og hefur
mikla aðlögunarhæfni. Þú
hefur mikla þörf fyrir til-
breytingu og því líður þér
best þegar margt fólk er í
kringum þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ættir að geta aukið tekjur
þínar með einhverjum hætti í
dag. Þú munt hugsanlega fá
samþykki yfirvalda eða stórr-
ar stofnunar fyrir áætlunum
þínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert óvenju sjálfsörugg/ur í
dag og hreinlega neitar að
sætta þig við nokkurs konar
höfnun.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemur mjög vel fyrir í
samræðum við foreldra þína,
yfirmenn og aðra yfirboðara í
dag. Þú ert sannfærð/ur um
það sem þú ert að segja og átt
því auðvelt með að telja aðra á
þitt band.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur sjálfstraust og kraft
til að koma áætlunum þínum í
framkvæmd. Þetta á sér-
staklega við um áætlanir sem
tengjast ferðalögum og milli-
landasamskiptum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert sérlega kraftmikil/l og
ástríðufull/ur í dag. Þú hefur
ákveðnar skoðanir á hlutunum
og veist hvað þú vilt. Gættu
þess bara að vaða ekki yfir
maka þinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú getur lært heilmargt um
sjálfa/n þig af samræðum þín-
um við aðra í dag. Leggðu við
hlustirnar. Þú lærir ekkert
nýtt ef þú sérð alfarið um að
tala.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert mjög afkastamikil/l í
vinnunni í dag. Þú vilt að hlut-
irnir gangi fljótt og vel fyrir
sig og þú ert tilbúin/n að sjá til
þess að þeir geri það.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þig langar til að skemmta þér
og njóta lífsins í dag. Þú vilt
vera í stjörnuhlutverki í þínu
eigin lífi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samskipti þín við fjölskylduna
eru kraftmikil og skemmtileg.
Samræðurnar eru gefandi og
geta leitt til jákvæðra breyt-
inga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert svo heillandi og sann-
færandi þessa dagana að þú
getur selt næstum hverjum
sem er hvað sem er. Fólk
stenst hreinlega ekki töfra
þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert staðráðin/n í að nota
peningana þína til að gera já-
kvæðar breytingar á heimilinu
eða til hagsbóta fyrir fjöl-
skyldu þína.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert kraftmikil/l og nýtur
þess að vinna með öðrum í
dag. Þú munt líka njóta þess
að taka á í líkamsræktinni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VIÐBÚNAÐUR
Sláið fram úr í dag, því að heyskap er hætt.
Gefið hrífum og orfum sinn frið.
En í kringum mín hús verði hreinsað og bætt
vegna hennar, sem búizt er við.
Gerið laglega braut, hreinsið lausmöl og grjót,
svo að leiðin sé augunum þekk,
og hún steyti hér ekki við steini þann fót,
er um strætin í borginni gekk.
Gerið frítt, gerið breitt þetta heimreiðarhlið,
til þess hún fari brosleit þar inn.
Lagið grjótið í stéttunum gaflana við,
að hún gangi þar auðnuveg sinn.
- - -
Guðmundur Ingi Kristjánsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 17.
mars, er 60 ára Þóranna
Þórarinsdóttir, Vesturbrún
39. Reykjavík. Þóranna og
eiginmaður hennar, Krist-
ján Guðbjartsson, taka á
móti gestum í Safn-
aðarheimili Áskirkju við
Vesturbrún, laugardaginn
20. mars kl:13.00. Ætt-
ingjar, vinir og aðrir er vilja
gleðjast með afmæl-
isbarninu velkomnir.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 17.
mars, er sextugur Lúðvík
Kemp vélvirki. Hann og
eiginkona hans, Svava Egg-
ertsdóttir, eru stödd á Kan-
aríeyjum.
AÐEINS þrjú pör kom-
ust í alslemmu í tígli í
þessu spili Reykjavík-
urmótsins:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠--
♥ÁKD62
♦KG5
♣Á7653
Vestur Austur
♠D1053 ♠KG974
♥743 ♥G1098
♦10874 ♦2
♣DG ♣1082
Suður
♠Á862
♥5
♦ÁD963
♣K94
Spilið er tiltölulega auð-
leyst í sterku-lauf kerfi.
Þá vekur norður á einu
laufi og suður segir strax
tvo tígla. Framhaldið rek-
ur sig auðveldlega. En í
Standard getur spilið orð-
ið þungt viðureignar ef
suður svarar hjartaopnun
makkers með einum
spaða, frekar en tveimur
tíglum.
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 3 lauf Pass ?
Tígullinn er endanlega
týndur og flestir tóku
þann kostinn að stökkva í
sex grönd. Suður getur
varla fundið spaða út
gegn sex gröndum, en
jafnvel þótt hann fái vitr-
un og spili út smáum
spaða ætti sagnhafi að
hafa betur. Hann dúkkar
fyrsta slaginn og nær svo
að þvinga austur í hjarta
og laufi. (Í lokastöðunni á
blindur einn hund í hjarta
og Áx í laufi, en heima er
sagnhafi með Kxx í laufi.
Austur getur ekki bæði
haldið í hæsta hjarta og
10xx í laufi.)
Leiðin í sjö tígla í eðli-
legu kerfi er að svara
fyrst á tveimur tíglum.
Standard-pörin sem náðu
slemmunni byrjuðu þann-
ig:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 2 tíglar
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass 4 tíglar...
... og svo framvegis upp
í sjö tígla.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. Rf3 c5 2. c4 Rf6 3. Rc3 d5
4. cxd5 Rxd5 5. d4 cxd4 6.
Dxd4 Rxc3 7. Dxc3 Rc6 8.
e4 a6 9. Bc4 Bg4 10. O-O e6
11. Re5 Rxe5 12. Dxe5 Hc8
13. Bb3 Be2 14. He1 Bb5
Geysisterkt atskákmót
hefst í dag í Nasa á
Austurvelli í dag. Á
meðal keppenda eru
Garry Kasparov og
Anatoly Karpov en
fyrsta daginn verður
tefld hraðskák sem
ákvarða mun röðun
keppenda í at-
skákmótinu. Staðan
kom upp í Reykjavík-
urskákmótinu sem
lauk í gær. Kínverski
stórmeistarinn Xi-
angzhi Bu (2600)
hafði hvítt gegn
lettneska kollega sín-
um Normunds Miezis (2521).
15. Bxe6! fxe6 16. Dh5+! g6
16... Kd7 hefði ekki gengið
upp vegna 17. Hd1+ Bd6 18.
Bf4. 17. De5 Kf7 17... Hg8
hefði engu bjargað vegna 18.
Dxe6+. 18. Dxh8 Dh4 19.
He3 Ke7 20. Bd2 Kd7 21. a4
Bc4 22. Hh3 Dxe4 23.
Hxh7+ Kc6 24. Hh4 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostn-
aðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast
með tveggja daga
fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnu-
dagsblað.
Samþykki afmæl-
isbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Hvernig get ég verið þrem vikum á eftir? Ég byrjaði á
mánudaginn var!
SÍMI 530 1500
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
1
1
5
5
0
•
sia
.is
Flug
og m
ynd
á næ
stu le
igu
Skafmiði fylgir hverri mynd
100 stórborgarferðir!
100.000 vinningar!
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Frábært úrval af sundfatnaði
Síðumúla 3 - Sími 553 7355