Morgunblaðið - 17.03.2004, Síða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
!
"#
$
%
&
&
'& # !
(
)#
*
+
)
,
+
--.
)
/&) & 0
Hólmavík | Strandagangan á skíð-
um fór fram í tíunda skipti á Stein-
grímsfjarðarheiði um síðustu helgi.
Gangan er hluti af Íslandsgöngunni
sem háð er árlega víða um land, og
samanstendur hún jafnan af þrem-
ur til sex gönguskíðamótum víðs-
vegar um landið. Í ár er þó aðeins
tveimur göngum lokið, Stranda-
göngunni og Fossavatnsgöngunni á
Ísafirði, en göngu sem fara átti
fram á Akureyri var frestað.
Það var Ísfirðingurinn Kristján
Óskar Ástvaldsson sem sigraði í
Strandagöngunni annað árið í röð
og gekk hann 20 km á tímanum
52:32. Þetta var jafnframt í annað
sinn sem Kristján hlaut Sigfús-
arbikarinn. Bikarinn gaf Heilbrigð-
istofnunin á Hólmavík til minn-
ingar um Sigfús A. Ólafsson
heilsugæslulækni sem lést á síðasta
ári. Sigfús var mikill skíða-
áhugamaður og ein aðaldriffjöðrin
í starfi Skíðafélags Strandamanna.
Svo skemmtilega vildi til að í ár fór
Strandagangan fram á fæðing-
ardegi Sigfúsar, en hann hefði orð-
ið 63 ára hi 13. mars.
Keppnin í 20 km göngunni var
nokkuð hörð en fast á hæla Krist-
jáni fylgdu Birgir Gunnarsson frá
Sauðárkróki, Einar Yngvason frá
Ísafirði og Magnús Eiríksson frá
Siglufirði, sem allir voru innan við
mínútu á eftir Kristjáni.
Keppendur í göngunni voru alls
63 og var þátttakan í meðallagi, að
sögn Þorsteins Sigfússonar göngu-
stjóra. Veður var með besta móti
framan af keppninni, norðaustan 9
metrar á sekúndu og bjart. Þeir
sem voru síðastir í mark lentu í úr-
komu og hvessti töluvert á meðan
gangan fór fram. Keppendur voru
á aldrinum fimm til sjtíu og tveggja
ára og luku allir keppni. Yngstu
krakkarnir fóru 1 km en boðið var
upp á 5, 10 og 20 km vegalengdir í
flokki karla og kvenna. Í 20 km
göngunni var keppt í þremur ald-
ursflokkum; 17–34 ára, 35–49 ára
og 50 ára og eldri. Mest var þátt-
takan í 10 km göngu karla og einn-
ig var fjölmennt í 5 km göngu
kvenna. Auk Hólmvíkinga komu
keppendur frá Ísafirði, Sauð-
árkróki, Siglufirði, Hafnarfirði og
Reykjavík. Eftir gönguna var boðið
til kaffisamsætis og verðlaunaaf-
hendingar í Félagsheimilinu á
Hólmavík. Veittir voru verðlauna-
gripir fyrir þrjú efstu sætin í hverj-
um flokki, auk þess sem allir fengu
þátttökupening. Öll verðlaunin gaf
Kaupfélag Steingrímsfjarðar.
Tíunda Strandagangan
Nýlega búið að ræsa keppendur í tíundu Strandagöngunni.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Ísfirðingurinn Kristján Óskar Ást-
valdsson hampar Sigfúsarbik-
arnum sem keppt var um í 2. sinn.
Borgarnes |Bæjarstjórn Borg-
arbyggðar samþykkti á síðasta fundi
sínum framkvæmdaáætlun fyrir
Staðardagskrá 21, en í henni eru sett
fram metnaðarfull markmið um það
hvernig megi stuðla að sjálfbærri
þróun í sveitarfélaginu. Sjálfbær
þróun snýr að lífsgæðum íbúanna
sem og umhverfisvernd.
Bæjarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á árinu 2001 að hefja vinnu
við Staðardagskrá 21 og var þá skip-
aður sérstakur vinnuhópur og verk-
efnisstjóri ráðinn til að sinna verk-
efninu. Almenningur, fyrirtæki og
félagasamtök tóku virkan þátt í
verkefninu og um 50 manns störfuðu
í tengslahópi sem fundaði reglulega.
Gerð var ítarleg úttekt á stöðu eft-
irfarandi málaflokka; holræsi og frá-
veitur, vatnsveitur, sorphreinsun og
sorpeyðing, menningarminjar og
náttúruvernd, umhverfismennt,
skipulagsmál, eyðing meindýra, at-
vinnumál, opinber innkaup, neyslu-
mynstur og lífsstíll, ræktun og úti-
vist. Þá var staða barna, unglinga og
eldri borgara skoðuð sérstaklega. Á
grundvelli þessarar úttektar var
unnin markmiðasetning og fram-
kvæmdaáætlun um það hvernig þróa
beri Borgarbyggð í átt til sjálf-
bærrar þróunar.
Framkvæmdaáætl-
un fyrir Staðardag-
skrá 21 samþykkt
Hvolsvöllur | Í vetur hafa 12 konur
stundað myndlistarnám á Hvols-
velli. Það er Katrín Briem sem hef-
ur kennt konunum, en námskeiðið
var 78 stunda langt og haldið í
Hvolsskóla. Kristín Erna Leifs-
dóttir er ein kvennanna sem var á
námskeiðinu og sagði að mikil
ánægja hefði verið með námskeiðið.
„Við lærðum um form, myndbygg-
ingu og kynntumst notkun á mis-
munandi litum og málningu. Við
notuðum t.d. túss, kol, vatnsliti, ol-
íupastel og litblýanta svo eitthvað
sé nefnt. Það sem mér fannst einna
skemmtilegast var að læra að horfa
á umhverfið og hluti út frá nýju
sjónarhorni og að sjá þá í öðru sam-
hengi en maður er vanur að sjá.
Ótrúlegustu hlutir geta verið fal-
legir, það fer bara eftir því hvernig
maður horfir á þá.“
Afrakstur námskeiðsins var ótrú-
lega mikill og gerðu konurnar fjöl-
margar fallegar myndir sem eflaust
eiga eftir að prýða heimili þeirra í
framtíðinni. Kristín Erna sagði að
þátttakendur hefðu fullan hug á að
halda áfram að hittast og halda
áfram að mála. Þær hafa nú fengið
húsnæði til afnota og nokkrar
kvennanna hafa nú ákveðið að sýna
verk sín á mæðradaginn í Félags-
heimilinu Hvoli.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
12 konur læra
myndlist á Hvolsvelli
Borgarfjörður | Á dögunum héldu nemendur Kleppjárns-
reykjaskóla í Borgarfirði árshátíð sína sem í ár var reyndar
uppskeruhátíð þar sem þeir sýndu foreldrum og öðrum
gestum árangur 2ja vikna þemavinnu, tengda verkefninu
„Lesið í skóginn – með skólum.“ Mikil dagskrá var í boði og
margt að skoða eftir greinilega árangursríka vinnu kennara
og nemenda. Fyrir hádegi áðurnefnda daga unnu nemendur
að þematengdum verkefnum sínum og eftir hádegi á ýms-
um verkstæðum innan skólans og utan, tengdum skógi og
skógarnytjum.
Kleppjárnsreykjaskóli hefur markað sér þá stefnu að
nálgast skólaþróunarverkefnið Lesið í skóginn með hug-
myndafræði söguaðferðarinnar sem á rætur að rekja til
Skotlands. Skólinn skrifaði undir samninga um Lesið í skóg-
inn við hátíðlega athöfn á skólalóðinni þann 15. desember sl.
Þá afhentu rekstraraðilar skólans svokallað „Læknistún“ til
skógræktar. Túnið tilheyrði áður Kleppjárnsreykjalæknis-
héraði. Liggur það að skólalóðinni og þar mun skólinn nema
land, skipuleggja svæðið og planta skógi.
Nemendur 1.–4. bekkjar unnu með söguramma um tréð
og sýndu leikþáttinn „Hríslan hans Lenna litla“. Nemar
5.–7. bekkjar unnu með söguramma um landnámið, settu sig
í spor landnámsmanna í Noregi og fyrstu kynslóðir á Ís-
landi. Fræddu þeir viðstadda um sögutengd verkefni sín um
lifnaðarhætti forfeðranna, s.s. um mataræði, klæðnað, at-
vinnuhætti, skógarnytjar o.s.frv.
Ekki var síður áhugavert verkefni 8.–9. bekkjar nem-
enda, en þeir unnu tillögu að skipulagi skólalóðarinnar.
Beiðni hafði borist frá sveitarstjórn Borgarfjarðarsveitar
um hugmyndir nemenda um skipulag lóðarinnar.
Eftir nauðsynlega hugmyndavinnu, mælingar o.fl. gerðu
nemendur líkön af tillögum sínum sem þarna voru til sýnis.
Að lokum sýndu 10. bekkjar nemar leikna kvikmynd sem
þeir unnu upp úr Hellismannasögu. Við upptökur mynd-
bandsins fóru nemendur á hinar eiginlegu söguslóðir Hellis-
mannanna frammi í Hallmundarhrauni, í Surtshelli, að Gils-
bakka og víðar.
Var það rómur manna að frábærlega hefði til tekist og að
sjaldan hefðu nemendur lært eins mikið á stuttum tíma og
þessar tvær vikur sem „hefðbundnu“ skólabækurnar voru
lagðar til hliðar.
Uppskeruhátíð í
Kleppjárnsreykjaskóla
Morgunblaðið/Lára Kristín Gísladóttir
Jónas Hauksson, Höskuldur Kolbeinsson, Sveinn Vík-
ingur, Guðmundur Magnússon og Snorri Bjarnason
skoða líkan af hugmynd nemenda að skólalóðinni.