Vísir - 30.04.1981, Blaðsíða 18

Vísir - 30.04.1981, Blaðsíða 18
'»11 Tilkynning 'icriDfcniLcxJi/ um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðum til öryrkja Ráöuneytiö ti Ikynni r hér meö vegna breytinga á lögum nr. 120 31. desember 1976/ um tollskrá o.fL aö frestur til að sækja um eftirgjöf aö- flutningsgjalda af bifreið til öryrkja skv. 27. tl. 3. gr. nefndra laga er framlengdur til 10. maí 1981. Athygli er vakin á því aö sækja skal um eftir- gjöf á sérstökum umsóknareyðublöðum og skulu umsóknir ásamt venjulegum fylgigögn- um hafa borist skrifstofu öryrkjabandalags íslands, Hátúni 10, Reykjavík, fyrir 10. maí 1981. Fjármálaráðuneytið, 28. apríl 1981. Auglýsing frá ríkisskattstjóra um framtalsfresti Ákveðið hefur verið að framlengja áður aug- lýstan frest einstaklinga, sem hafa með hönd- um atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, frá 30. apríltilog með25. maí 1981. Reykjavik 29. april 1981, Ríkisskattstjóri. t Maðurinn minn Árni Magnússon prentari, sem andaðist 23. april, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 2. maí kl. 14.00 Eja Magnússon. „I báðum tilvikunum var vélin dregin út úr skýlinu til þess að flytja Ragnar" vísm Flugmálastjórn hefur æöi oft á liðnum árum veriö gagnrýnd og halda sumir þvi fram að hún hafi oftar og meira þurft að verja geröir sinar, i fjölmiölum, en aör- ar stofnanir þjóöarinnar. Nú er enn einu sinni athyglis- vert mál á döfinni, sem varöar embættisrekstur hjá flugmála- stjórn og er þar átt viö fyrirvara- lausan brottrekstur deildarstjóra i stofnuninni, sem starfaöi þar i átta ár. Margt er i þvi máli öðru- visi en almenn siðferöis- og réttarvitund er sátt viö, t.d. aö stofnunin og viökomandi ráöu- neyti telur mannir.n lausráöinn, enda þótt sama ráðuneyti hafi fyrir átta árum gefið út heimildarbréf um fastráöningu hans. Annaö er ósætti deildar- stjórans viö nýráöinn starfsmann stofnunarinnar og telur deildar- stjórinn aö búiö hafi verið til starf framkvæmdastjóra flugvalla, og hinn nýráöni skipaöur i þaö, i þvi augnamiöi aö koma honum þ.e deildarstjóranum frá. Inn i þetta fléttast svo hvernig staöiö var aö ráöningu hins nýja manns, róg- skrif hans um menn og málefni, ágreiningur flugmálastjóra og flugráös og margt fleira. Visir sagði á sinum tima frá brottrekstri Hrafns Jóhannssonar úr starfi deildarstjóra flugvalla- deildar og nýlega birti Visir opið bréf frá honum til flugmála- stjóra. 1 viötalinu, sem hér fer á eftir segir Hrafn frá ýmsu þessu fengdu og er ómyrkur i máli um samfélagiö, sem viö búum i. Flokkurinn að koma sér upp nýjum flugmála- stjóra. —Hverja telur þú vera rétta ástæöu þess að þú varst rekinn úr starfi? ,,AÖ þetta bar aö á þessum tima var vegna þess aö Pétur Einars- son skrifaöi flugmálastjóra og samgönguráðherra bréf, þar sem hann kraföist þess aö ég yröi rek- inn samstundis, ella færi hann. Þaö er þó ekki þaö sem I raun liggur aö baki, ræturnar liggja miklu dýpra en það. Þaö er dálitiö sérkennilegt aö nota þessa ástæöu, þvi aö tilefniö er aö ég skrifa samstarfsmönnum minum úti á landi bréf, i þá veru aö bera hönd fyrir höfuö mér, vegna árása Péturs. Astæöurnar eru ágreiningur milli min og flugmálastjóra, sem ég hef gert grein fyrir fyrr i VIsi. Ég var mágur núverandi for- manns flugráös og kali Agnars i hans garö bitnar á mér. Hinsvegar tel ég aö pólitik blandist inni þetta á óheppilegan hátt. Pétur er starfandi fram- sóknarmaður og Steingrimur skipar hann I embætti, sem er ekki auglýst. Ég tel aö Steingrim- ur og Framsóknarflokkurinn séu aö koma sér upp nýjum flugmála- stjóra.” — A hvern hátt geta tengsl þin við formann flugráðs haft áhrif á samstarf ykkar Agnars Kofoed — Hansen! „Þaö er auövitaö erfitt fyrir ókunnuga að skilja. Agnar hefur ekki sætt sig viö aö vera settur út úr flugráöi. Hann litur vafalaust á núverandi formann, Leif Magnússon, sem einn af sinum höfuöféndum og vill engan mann hafa I sinni stofnun, sem er á ein- hvern hátt I tengslum viö hann.” Skripasamkomur flug- ráðs. —Þú nefndir bréf frá Pétri, hann virðist vera ófeiminn við að tjá hugsanir sinar bréflega. ,,Já hann skrifaöi mér bréf i nóvember, þar sem hann hellir yfir mig svivirðingum cg skömm- um og lýgur uppá mig. Þaö eru þær álygar, sem ég er að hreinsa mig af, þegar þeir reiöast svo, Pétur og Agnar, að ég er fyrir- varalaust rekinn. Þá skifar hann annaö bréf, þar sem hann krefst þess aö ég veröi rekinn. Þaö bréf sendir hann bæöi flugmálastjóra og samgönguráö- herra. 1 þvi bréfi stóð reyndar miklu meira, sem aldrei hefur komiö fram. Maöurinn er mikill oröhák- ur og sést ekki alltaf fyrir i þvi sem hann segir og gerir. i þessu bréfi tekur hann flugráð fyrir og sker þaö niöur viö trog, og þaö hefur eflaust veriö ljúfur söngur I eyrum flugmálastjóra. Hann biöst þar undan aö sitja fundi flugráös, þar sem flugráösmenn séu meö sviviröingar og aödrótt- anir i garö flugmálastjóra og em- bættis hans, og kallar fundi flug- ráös skripasamkomur. Or bréfi Péturs til f lugmálastjóra og samgönguráðherra .. þa mun ég ennfremur mælast eindregið undan þvi að taka frekari þátt I þeim skripaleik, sem fundir flug- ráðs eru. Með öllu er óþol- andi aö sitja fund eftir fund og hlusta á svivirðingar og aðdróttanir frá formanni og mörgum flugráösmönnum i garð flugmálastjóra, em- bættis hans og eintakra starfsmanna.” Or bökun Péturs i bæk- ur flugráðs, vegna of- anritaðra ummæla „Þaö sem segir um fiugráö og formann þess á fyrr- greindu blaði er ofmælt, og hefði betur ekki verið skrif- að, og hlýt ég að biðja hiut- aðeigendur velvirðingar á þvi að kveða svo fast aö oröi...” Þetta er auðvitaö meira en vesalings maöurinn gat staöið viö og hann varð siðar að éta þetta allt ofan I sig, eöa sanna þaö. Auövitaö átti aö vikja honum úr starfi fyrir svona skrif, þetta er varaflugmálastjóri, sem fer meö slik gifuryröi sem hvergi eiga staö. Um orðhák og embættis- glöp. Ég vil gjarnan minna á þaö hér, Fimmtudagur 30. april 1981 aö hann tók ekkert vægilegar til orða i bréfinu til min i nóvem- ber. En þegar ég er að verja mig af þeim óhróðri eru viöbrögöin þau aö ég er rekinn og flugmála- stjóri bakkar þennar oröhák upp.” — t opnu bréfi þinu til flug- málastjóra segir þú frá heimild ráöuneytisins til aö fastráöa þig. Hvernig má þaö vera aö sama ráöuneyti samþykkir núna aö reka þig á stundinni? Gat flug- málastjóri sannaö einhverjar sakir á þig? „Að sjálfsögöu ekki. Þetta eru einfaldlega embættisglöp, sem þeim i ráðuneytinu hafa orðiö á. Þetta mál mun ég reka fyrir dóm- stólum og hef fengið lögfræöing til þess. Það er túlkun þeirra, sem til þekkja að ég hafi óumdeilanlega verið fastráðinn og þá veröi allur prósess viö uppsögn aö vera ann- ar, samkvæmt lögum. Eftir stendur aö meö þessum hætti hafi lög verið brotin. Regluleg óregla Þaö er raunar ekkert nýtt aö flugmálastjóri virði lögin að vett- ugi. Við starfsmenn flugmála- stjórnar horföum uppá aö flug- málastjóri sniðgengur fjárlög æ ofan I æ. Þaö er min reynsla af honum, aö lög og reglur komi Steingrimur Hermannsson, sam- gönguráöherra. honum ekki viö, hann fór meö þaö eins og honum sýndist.” — Kanntu aö nefna dæmi um slikt? „Um það eru fjölmörg dæmi. Fé var oft flutt á milli flugvalla og ég fékk skammir fyrir. Reiöir þingmenn sneru sér oft fyrst aö mér, enda eðlilegt, ég var fram- kvæmdaaöilinn. Ég get nefnt aö byrjaö var á tækjageymslunni á Akureyri I algjöru heimildar- leysi, fjármagn var flutt frá flug- vellinum á Hornafirði og þaö má lengi telja. Þaö má nærri segja aö það hafi frekar veriö regla en undantekning, fannst mér, að meöferö fjárlaganna væri meö þessum hætti. Fjárflutningar að geð- þótta — Hvernig er þetta hægt, er ekkert eftirlit? „Svo lengi sem flugmálastjóri var formaður flugráös, haföi hann þetta I hendi sér og geröi þaö sem honum sýndist. Hinsveg- ar vakti þetta oft mikinn ágrein- ing milli hans og þingmanna, sem komust aö þvi þegar langt var liö- iö á framkvæmdaáriö aö ekkert haföi veriö gert i einhverjum Pétur Einarsson, varaflugmála- stjóri

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.