Vísir - 30.04.1981, Blaðsíða 32
síminn eröóóll
veðurspá
úagsins
Yfir Grænlandi er 1020 mb hæö
og hæðarhryggur suðsuð-
vestur yfir Grænlandshafi, við
vesturströnd Noregs er 978 mb
nærri kyrrstæð lægð og önnur
1007 mb djtip er um 700 km
suösuðvestur af Reykjanesi á
hreyfingu norðaustur. Frost-
laust verður um hádaginn á
Suöurlandi, en annars frost
um allt land.
Suðurland og Faxaflói: Norð-
austan og siðan austan gola
eða kaldi, léttskýjað fram
eftir degi, en þykknar þá
smám saman upp.
Breiöafjörður til Norður-
lands eystra: Breytileg att,
sumstaöar gola, léttskýjað að
mestu.
Austurland að Glettingi og
Austfirðir: Norðan gola til
landsins og skýjað á köflum.
Suðausturland: Austan og
norðaustan gola eða kaldi,
skýjað með köflum.
veöriO hér
og har
Klukkan sex.
Akureyri léttskýjaö -f-7,
Bergen léttskýjað 1, Helsinki
léttskýjað 2, Kaupmannahöfn
léttskýjað 8, Oslóléttskýjað 1,
Stokkhóimur rigning 4,
Reykjavik heiösklrt -r5, Þórs-
höfn skýjað 1.
Klukkan átján
Aþena skýjaö 16, Berlin
rigning7, Chicagoalskýjað 13,
Feneyjar léttskýjað 11,
Frankfurt rigning 7, Nuuk
slýdda 0, London skýjaö 15,
Luxemburg rigning 7 Las
Palmas skýjað 19, Mallorka
léttskýjað 15, Montreal al-
skýjað 9, New York skúr 16,
Paris alskýjað 12, Róm heið-
rikt 14, Malaga súld 13, Vin
skýjað 9, Winnipeg skýjað 16.
Lokl
seglr
Starfsfólk BÚR krafðist þess,
að staða forstjóra yrði aug-
lýst. Orðiö var við kröfunni, en
þá krefst fólkið þess, að skrif-
stofustjórinn fái stöðuna. Er
hér um tilviljun aö ræða?
REVHT TIL ÞRAUTAR
AB NA SANIAH í 0AG
- fðstrurnar með langarsókn úr nágrannabæium hðfuðborgarlnnar
Um 170 fóstrur úr Reykjavik,
Garðabæ og Hafnarfirði komu
saman til baráttufundar i gær-
kvöld, og rikti mikil samstaða
um að hopa ekki frá megin-
kröfum um bætt kjör. Ekki var
fundað með borgarfóstrum i
gær, en þá var haldinn fundur
með rikisfóstrum, aðeins til
þess að þreifa á málum. Er
reiknað með öðrum íundi i dag.
Borgarfóstrur hafa ekki verið
boðaðar á fund, en launamála-
nefnd Reykjavikurborgar mun
hafa sest á fund undir hádegið.
1 Reykjavik eru helstar
undantekningar frá upp-
sögnum, að um 20 fóstrur á dag-
vistum borgarinnar hafa ekki
sagt upp, þar af 14 forstöðu-
menn. Halda á skyndifund, ef
uppsagnir ganga i gildi, til þess
að kanna, hvort unnt verður að
reka einhver heimili.
Fóstrum i nágrannabæjum
Reykjavikur miðar bitandi. I
Kópavogi og á Seltjarnarnesi
hafa þær náð samningum, eins
og kunnugt er, og i gær féll hálft
vigi i Hafnarfirði. Samið var við
fóstrur á heimilum verka-
kvenna kaþólsku sytstranna um
laun skv. 12. flokki strax, 13.
eftir 2 ár og 14. eftir 7 ár, svo og
að nám verði metið sem ár i
starfi. Við bæjarfóstrur i
Hafnarfirði hefur á hinn bóginn
ekki verið talað. Samninga-
fundur i Garðabæ i gær bar ekki
árangur. Þó bauð bærinn 12.
flokk strax og 13. eftir 3 ár, en
fóstrur vildu i viðbót 14. eftir 9
ár og nám metið.
Fóstrur i Reykjavik fara fram
á laun skv. 12. flokki strax, 13.
eftirnokkurár (var ekki tiltekið
nákvæmlega) og 14. eftir 10 ár,
auk þess að nám verði metið
sem ár i starfi.
HERB
Evrópumethafinn sterki.Jón Páll Sigmarsson, sem hefur aö undanförnu sett hvert Evrópumetiö á
fætur ööru I kraftlyftingum, var í gærkvöldi kjörinn tþróttamaöur ársins hjá KR og fékk hann fyrstur
manna afhentann hinn glæsilega bikar, sem hinn gamalkunni KR-ingur Georg L. Sveinsson, gaf
Vesturbæjarfélaginu. Hérá myndinnisést Jón Páll taka viö hinum glæsilega grip, sem Sveinn Jónsson,
formaöur KR, afhenti honum.
Georg var kunnur frjálslþrótta- og knattspyrnumaður úr KR, sem fluttist til Bandarikjanna. Hann gaf
KR-ingum bikarinn á 70 ára afmæli félagsins. SOS-Visismynd:Friöþjófur.
MenntamálaráDberra um ákvörðun Einars Hákonarsonar:
„TEKIN AN
SAMRADS
„Þessi ákvöröun er tekin al-
gjörlega án samráös viö mig og
ráöuneytiö hefur á engan hátt
lagt blessun sfna yfir hana”,
sagöi Ingvar Gislason mennta-
málaráöherra, er Vlsir spuröi
hann I morgun um afstööu til
þeirrar ákvöröunar skólastjóra
Myndlista- og handiðaskólans
aö leggja nýlistadeild niöur.
Kvaðst ráðherra eiga eftir aö
kynna sér málið nánar áður en
til ákvaröanatöku kæmi.
umræða hefði einkum farið
fram innan veggja skólans, svo
og í blöðum.
NOKKURS
VHI MIG"
Einar hafi gengið þarna nokkuö
langt, og ég tel að það sé ekki
ávinningur fyrir skólann að
unnið sé að skipulagsbreyting-
um á þennan hátt.
Skólastjóri hefði þurft að ráð-
færa sig miklu meira við menn
og sannleikurinn er sá, að hann
hefur ekki rætt við mig um
þessa tilteknu hgumynd. Ég er
hvorki mjög ánægður með að-
ferðina, né trúaður á að þetta sé
skólanum til framdráttar”,
sagði Ingvar Gislason, mennta-
málaráðherra.
JSS
Hefur nemendum oröið tlð-
rætt um að skólastjóri hafi
sprengt máliö upp I fjölmiölum
og þvi er rétt aö þaö komi fram,
að Vi'sir hafði að fyrrabragði
samband við Einar Hákonarson
og spurði hann um framtið ný-
listadeildarinnar.
„Það er alveg ljóst aö skóla-
stjóri getur ekki breytt svona
til, án þess aö ráðfæra sig við
ráöuneytið”, sagði ráðherra i
morgun. . Ég hef ekkert á móti
þvl að geröar séu skipulags-
breytingar i þessum skóla né
öörum. Ég held hins vegar, að
VÍSIR
Visir kemur ekki út á morgun, 1.
mai, en Helgarblað Visis
kemur út á laugardaginn, 1. mai.
Smáauglýsingadeild blaðsins er
opin til klukkan 22 i kvöld, á
laugardag klukkan 10—14 og
sunnudag frá klukkan 18—22.
Simi 86611. Athygli skal vakin á
þvi, að aprilseðill áskrifenda-
getraunar Visis er birtur i siðasta
sinn i dag og er á blaðsiðu 31.
Um 100 erlendlr
skátar l heimsókn
Um 100 erlendir skátar eru nú
staddir i Reykjavik i tilefni af
Norðurlandaráðstefnu skáta, sem
hefst á Loftleiðahótelinu i kvöld.
Samtals taka um 130skátar þátt i
störfum ráðstefnunnar.
Undirbúningsnefnd hefur
starfað á vegum Bandalags
Islenskra skáta fyrir ráðstefnuna
og er Borghildur Fenger for-
maður hennar.
A morgun þiggja skátar heim-
boð forseta Islands, Vigdisar
Finnbogadóttur, til Bessastaða.
Ráðstefnunni lýkur með hófi að
Valhöll á Þingvöllum á
laugardagskvöldið.
Þess má geta, að færeyskir
skátar taka nú i fyrsta sinn þátt i
þessu samstarfi, en hafa hingað
til mátt sætta sig við að vera
taldir með Dönum.
—SG
Leltin að Rannveigu:
LEITARSVÆÐIÐ
STÆKKAÐ
Á MORGUN
Efn fréttist ekkert af ferðum
Rannveigar Jónsdóttur, sem
leitað hefur verið frá þvi á
laugardag. Viðtæk leit verður
ekki 1 dag, samæmt upplýsingum
lögreglunnar i Hafnarfirði, en á
morgun mun leitarsvæti ofan
Hafnarfjarðar verða útvikkað og
itarleg leit fara fram.
— AS
SNJÚR
í EYJUM
Eyjarbúar fengu sinn skammt
af fannferginu i vetur, þótt yfir-
leitt séu þeir lausir við snjókomu
og þau þægindi og óþægindi, sem
af henni hljótast. Siðdegis i gær
brá þó við, að snjóa tók i Eyjum
og féll snjódrifan fram á nótt. t
morgunvar þar um 10 sentimetra
jafnfallinn snjór.