Vísir - 07.05.1981, Qupperneq 20
20
Fimmtudagur 7. mai 1981
Afram Arsenal!
Viö erum sammála, skrifa Ar-
senal-aðdáendur fyrir austan fjall
og halda siðan áfram:
Gaui skrifar i lesendadálka
Visis 28. april s.l. að hann sé sam-
mála þvi að stofna aðdáenda-
klúbb Arsenal.
Þetta er það sem koma þyrfti.
Arsenal er okkar lið og við værum
sko sammála þvi að stofna aðdá-
endaklúbb. Arsenal er eitt af betri
félagsliðum Evrópu. Einnig væri
mjög við hæfi að Arsenal-aðdá-
endur færu i heimsókn á High-
bury og horfðu á Arsenal keppa.
Arsenal aðdáendur fyrir austan
fjall.
A Highbury road. Frank Stapleton skallar að marki Wolverhampton
Wanderers.
Stomum Leeds-Kiúbb
Steini hringdi:
Leeds United aðdéndur hér á
landi eru efalaust margir og þvi
væri tilvalið að þeir sameinist i
Leeds-klúbb. Gætu þeir þá efnt til
ferða á leiki Leeds i Englandi á
næsta ári. Það væri gaman aö sjá
þetta langbesta lið Englands
leika.
Melri fjðlbreytni
í ipróttaDmtti
rikistjðlmiDlanna
r
aðalskipulag reykjavíkur
LANDNOTKUN Á AUSTURSVÆÐUM
1981 - 1998
MKV. í: 10.000
d HREIN ÍBÚOARBYGGD
ŒS ÍBÚÐARBYGGD. ATVINNULÖDIR
ALLT AD 20% SVÆOIS
■■ HREIN ATVINNUSVÆOI
1,1111 OPINBERAR BYGGINGAR
VERSLUNARKJARNAR
■n OPIN SVÆOI TIL SÉRSTAKRA NOTA
■J* UTIVISTAR- OG FRIÐLÝST SVÆDI
» ÓBYGGD SVÆOI
aff SVÆDI TIL SÍDARI AUKNINGAR
= STOFN8RAUTIR
— TENGIBRAUTIR
”6* TENGINGAR VIO STOFNBRAUTIR
=4= VEGBRÝR
í
J
s.
&rtT. ♦>? tíw
>*S»*w fjí.v .w
Sa*Íx.a*>. *.+**
A<yy>ys/t.Jt\.
OOttCiAftSKlÞUt A<i
SKIPULAGT STORSLYS
Fréttaþyrstur iþrótta-
unnandi skrifar:
„Ég hef lengi ætlað mér að
vekja athygli á þvi ófremdar-
ástandi sem mér finnst vera á
iþróttafréttum útvarpsins og
sjónvarpsins.
Otvarpið hefur lengi haft hvern
iþróttafréttamanninn öörum lif-
legri, en svo virðist sem enginn
raunverulegur staðgengill sé til
fyrir þá, þegar þeir fara i fri eða
t.d. i utanlandsferðir með
keppnisfólki héðan. Þá dettur all-
ur botn úr þessum vinsælu frétt-
um. Þaö er með öllu óþolandi.
Um iþróttafréttir I útvarpinu
vil ég annars segja að þrátt fyrir
liflegan fréttamann, þegar hann
er viðlátinn, mætti hann gjarnan
vera með fjölbreyttari fréttir
fyrir utan upptalningu fyrir og
eftir keppni og umfram allt fá
fasta frétta- og umræðutima i út-
varpinu.
Hvað sjónvarpsfréttirnar
snertir þýðir ef til vill litið að
biðja um betra, meðan sjónvarpið
hefur ekki efni á neinu. Og þó, og
þá finnst mér að mest væri um
vert aö iþróttaþættirnir fjölluðu
meira um annars vegar iþróttir
sem hér eru stundaðar að ein-
hverju ráöi.en hins vegar minna
um greinar sem hér þekkjast
varla eða ekkert, s.s. listdans á
skautum. Það mætti vera meiri
tilbreytni i innlendu iþróttafrétt-
unum t.d. umræður um aðstöðu
og félagslif iþróttafólks og þess
háttar.
Annars með bestu kveðjum”.
Hesteigandi skrifar:
Mikið mega nú forkólfar vinstri
meirihlutans vera ánægðir með
sig núna að hafa fengið svokallað
aðalskipulag austursvæöa sam-
þykkt i borgarstjórn. Svo ég tali
nú ekki um þá borgarbúa sem
væntanlega munu búa ,,ofan snjó-
linu” i hliöunum upp af Rauða-
vatni, en núna i byrjun mai 6-7
vikum eftir aö snjóa leysti úr
Breiðholtinu eru ennþá stórir
skaflar þar i hliðinni.
Við upprisu byggðar þarna i
hliðinni myndast skjól sem mun
auövelda sköflunum að myndast I
mjög auknum mæli. Það veröur
gaman fyrir blessuö börnin i
Rauðavatnshverfi framtlðarinn-
ar að reisa sér snjóhús, sem geta
staðið fram eftir mai-mánuði. —
Slakkinn fyrir ofan Rauðavatn er
nefnilega snjókista. 1 hann skefur
snjóinn af Hólsheiðinni og Reyni-
vatnsheiðinni. Börnin þurfa þvi
ekki að kviöa snjóleysinu. Hest-
eigendur eru almennt furðu lostn-
ir á þessu skipulagi. Þrátt fyrir
fyrirheit um að fullt tillit verði
tekiö til þeirra.
Þeir skilja ekki nauðsyn þess að
ganga nú á það land sem hesta-
menn hafa notað til sinnar úti-
vistar þúsundir saman 6-7 mánuði
á hverju ári. Sérstaklega ekki
þegar það er haft I huga, að hags-
munirnir sem eiga aö rekast á
hagsmuni hestamanna eru i
meira lagi hæpnir. — Bygging
Breiðholtsins var mikið slys.
Byggð i kringum Rauðavatnið og
á austurhluta Selássins verður
miklu stærra slys, — ekki aðeins
fyrir hestamenn heldur ekki siður
fyrir þá vesalings borgarbúa sem
verða ginntir eða neyddir i gegn-
um félagslega byggingarstarf-
semi til að setjast þarna að.
Frábær
sðngur
Nú nýlega kom út plata með
söng Ellýar Vilhjálms. Þessi
söngur Ellýar vekur mann enn
einu sinni til umhugsunar um það
hvað þessi listamaður hefur lengi
verið vanmetinn. Ellý Vilhjálms
hefur auðvitað goldið þess að hafa
unniö I skemmtanaiönaðinum. En
meö allri virðingu fyrir þeim
Ellý Vilhjálms, sem bréfritari
telur meðal fremstu listamanna
okkar á sviði söngsins, var um
langt árabil ein vinsælasta
dægurlagasöngkona landsins.
Hún söng þá m.a. með hijómsveit
Svavars Gests og þá var þessi
mynd tekin.
iðnaði þá hefur Ellý aldrei átt þar
heima. Hún er með allra vönd-
uðustu söngvurum okkar og hefði
átt aö snúa sér að ljóðasöng, sem
hvarvegna er viðurkenndur sem
listform á hæsta plani.
Það er hrein unun að hlusta á
söng Ellýar. Þar fer saman frá-
bært músiknæmi og textameðferð
sem á liklega enga hliðstæðu,
nema ef vera skyldi hjá Einari
Kristjánssyni óperusöngvara.
Slikum efnivið má ekki kasta á
glæ. Þessvegna vona ég að Ellý
taki sig til og æfi upp söng-
lagaprógram á eina plötu eða svo
til að aödáendur hennar fái að
hlusta á hana og hin ,,háa lág-
menning” flytji sig þarna yfir i
hærri flokkinn.
H.S.