Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 5

Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 5
©• s 3 S 3 < m\ (/5 m* V I C/5 r © ©* Þátttakendur I umræöum á ritstjórn Visis um stööu stjórnmálanna i ljósi skoöannakannana blaösins. Taliö frá hægri: Kjartan Gunnarsson, Vilmundur Gylfason, Eirikur TómaSson og Siguröur Tómasson. Vfsism. Friöþjófur veröur aö skoðast i þvi ljósi aö fólk er nánast aö lýsa yfir fylgi viö eitthvað sem þaö veit ekki hvaö er. Ég vil einnig minnast á reynsluna frá alþingiskosning- unum 1979. Þá geröi Sjálfstæðis- flokkurinn tilraun til þess að setja fram stefnu sina. Hvað gerðist? Fylgiö hrundi af flokknum a skömmum tima. Sfðan segir Kjartan hér, að það sé stefna flokksins, sem færi honum þetta mikla fylgi i skoð- anakönnunum. Ég myndi segja, aö það væri stefnuleysi og rót- leysi flokksins, sem færir hon- um þetta mikla fylgi, sem er jafn skoðanalaust og rótlaust og flokkurinn sjálfur er. Kjartan: Það er þokkalegur dómur um islenska kjósendur að kalla þá stefnulausa og rót- lausa. Ég vil ekki taka undir það. Ég vil gera þrjár athuga- semdir við það sem Eirikur hefur sagt. I fyrsta lagi setti Sjálfstæðisflokkurinn ekki fram i fyrsta sinn stefnu i kosning- unum 1979 og heldur ekki I sið- asta skipti. SU stefna, sem þar var settfram, var reist á vand- aðri málefnalegri vinnu innan flokksins og forsendur þeirrar vinnu hafa ekki breyst. Það kann að vera, að nafngift stefn- unnar, sem andstæðingum flokksins tókst auðveldlega að snUa Ut Ur, hafi fælt kjósendur frá. Innihaldið var hins vegar rétt og skynsamlegt að minum dómi. NU, ég sit ekki fundi borgar- ráðs og veit því ekki hvernig andrUmsloft er þar innan dyra. Það er hins vegar ekkert nýtt, og geröist lika þegar Sjálf- stæðisflokkurinn haföi meiri- hluta f borgarstjórn, að ein- stakir borgarfulltrUar flokksins höfðu ekki nákvæmlega sömu afstöðu til einstakra mála. Vilmundur: Þetta hefur verið algjör glundroði! Kjartan: Það er augljóst að Sjálfstæöisflokkur mun bjóða fram einn lista til borgar- stjórnarkosninga og það er ekk- ert í dag sem bendir til annars. Vilmundur:Þaö má segja, að þaö hafi verið mistök þessa meirihluta að leggja of mikla áherslu á, að afsanna gamlar kenningar um glundroðann. Með öðrum orðum, látið Mogg- ann fjarstýra sér með þeim hætti. Hins vegar munu borgar- stjórnarkosningar hafa aðdrag- anda, og ég tel enga ástæðu til svartsýni. Sigurður: Ég held aö glund- roðakenningin, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur haldið fram, hafi aldrei komið sér jafn illa og núna fyrir flokkinn, þegar allt er vaðandi í glundroða og óein- ingu i flokknum sjálfum. Borgarstjórafyrirkomulagið, sem flokkurinn rak hér i Reykjavik, með borgarstjóra Ur flokknum á toppnum og með alla æðstu embættismenn borgarinnar valda eftir flokks- pólitiskum leiðum, var i raun og veru konungdæmi þar sem kóngurinn var valinn af flokkn- um. Flokkurinn hefur reynt að bUa til nýjan konung Ur Davið Oddssyni en það eru greinilega fleiri sem géra tilkall til kon- ungdæmisins. Skoöanakönnunin var gerð um 23. maí. Teljið þiö aö ein- hver sérstök mál sem hæst bar um þær mundir gætu hafa haft áhrif á niðurstöður hennar? Eirikur: Það er einmitt undir þinglok, sem þessi könnun er gerð. Dægurmálin hljóta að hafaáhrifá afstöðu fólksi svona skoðanakönnunum. Orkumála- umræðan stóö sem hæst og þess vegna kemur mér ekkert á óvart að Alþýöubandalagið skuli sýna nokkuð lakari Ut- komu i þessari skoöanakönnun en skoöanakönnun Dagblaðsins. Mér finnst Utkoma Fram- sóknarflokksins i heildina litið vera mjög viðunandi miðað við þessa könnun. HUn kemur heim og saman við aðrar kannanir sem gerðar hafa verið þannig að ég tel að hægt sé að draga af henni vissa ályktun svo langt sem það nær, að fylgi flokksins standi nokkuð traustum fótum. Ég vil benda á það, sem er athyglisvert og mætti draga lærdóm af. Framsóknar- flokkurinn er bUinn aö vera i stjórn landsins næstum þvi 10 ár samfellt. Ég tel að þessi Utkoma sýni þaö að stefna flokksins og störf falli stórum hóp kjósenda vel í geð. Þetta er mjög athyglisverð niöurstaða varð- andi Framsóknarflokkinn. Ef ég tek dæmi um Alþýðuflokkinn hefur hann verið mest allan timann f stjórnarandstöðu en sýnir þó ekki betri Utkomu. Um Sjálfstæðisflokkinn má segja það að hann nýtur þess að vera bæði í stjórn og stjórnarand- stöðu. Vilmundur: Ég held að það sé rétt sem E irikur sagði að ef til vill vegur orkuumræðan þyngst á þessum dögum. Þess utan var umræðan mjög almenns eðlis og ekki um neitt sérstakt. Allan seinni hluta vetrar hefur verið stjórnmálaleg og félagsleg þreyta og það er náttUrulega einn lærdómur af þessari skoð- anakönnun að stór hópur kjós- enda er óákveðinn með einum eða öðrum hætti. Að þvi er tekur til Utkomu Alþýðuflokksins i þessum skoðanakönnunum að öllum fyrirvörum settum, — auðvitað er hún þrátt fyrir allt slik, að menn lita hana alvar- legum augum. Kjartan: Ég tel aö það hafi vafalaust haft áhrif á afstöðu kjósenda á þessum tima, að undir þinglokin kom i ljós hversu ótryggur meirihluti nU- verandi rilcisstjórnar er. St jórn- in varö að fara alls konar króka- leiðir og standa i sérkennilegu samningamakki viö einstaka stuðningsmenn sina til þess að fá mál sin fram á þingi. Þetta rýrir náttUrulega traust fólks á rikisstjóminni. Ég er ósammála þeirri fullyröingu, að Sjálf- stæðisflokkurinn njóti góðs af þvi að vera bæði i stjórn og stjórnarandstöðu. Ég held aö flokkurinn gjaldi frekar fyrir það. Sigurður: Ég get tekiö undir það, að orkumálin voru eitt af þeim dægurmálum, sem kunna að hafa haft áhrif þegar könnunin var gerö. Ég held að menn megi ekki gleyma þvi hins vegar aö Alþýðubandalagið er verkalýðsflokkur og stuönings- menn þess i verkalýðsfélög- unum gera eðlilega miklar kröf- ur til þess, að flokkurinn fái framgengt ýmsum kröfum i kjaramálum, þegar hann er i rikisstjórn. Og það veröur aö segjast eins og er, og ég er ekki að kenna flokknum um það, að þróun kjaramálanna undanfar- in tvö ár hefur veriö launþegum mjög óhagstæð. Og það er alveg vist að þolinmæði launþega i landinu hlýtur að bresta ein- hvern ti'ma. Ég heldað óánægj- an með Alþýðubandalagið, sem virðist koma fram i þessum skoðanakönnunum, stafi ekki sistaf þvi að launþegum þykir, að hlutur þeirra sé skarðari en ástæða sé til. Hver er skýringin á þvi að Al- þýðuflokkurinn virðist vera að tapa fyigi þrátt fyrir að vera f stjórnarandstöðu? Vilmundur: Ef þetta væru staðreyndirsem hér er verið að fjalla um geriég ráð fyrir þvi að ástæðan sé sú, aö málflutningur okkar hafi ekki skilað sér sem skyldi. Þegar flokkur er i stjórnar- andstöðu er það vinna 1 verka- lýösfélögum.á vinnustööum og i málflutningi á opinberum vett- vangi sem skilar sér best. Að hluta til kann það að hafa veriö nokkuð vanmat hjá okkur að halda um of, að þingvinnan sem slik skilaði sér. Hver er þin skýring, Kjartan, á auknu fylgi Sjálfstæðisflokks- ins? Kjartan: Ég segi eins og Vil- mundur að það er erfitt að vera aö tala um þessar niðurstöður eins og staðreyndir. En sam- kvæmt skoöanakönnunum, hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins fariö vaxandi jafnt og þétt og virðist vera orðið nokkuð stöð- ugt i 45 til 46%. Ég þakka það auðvitað stefnu Sjálfstæöis- flokksins. NU er þessi sérkenni- lega staöa i Sjálfstæöisflokkn- um að nokkrir sjálfstæðismenn eiga aðild að núverandi rikis- stjórn og Sjálfstæöisflokkurinn leiðir stjórnarandstöðuna. Þessari stöðu má velta fyrir sér á margan hátt. En ef litiö er á það með hliðsjón af niðurstöð- um söm u kannana um stuðning við rikisstjórnina sýnist mér að draga megi þá ályktun að stefna Sjálfstæðisflokksins nái helst eyrum kjósenda. Eirikur: Það kemur mér i sjálfu sér ekki á óvart aö Sjálf- stæðisflokkurinn komi nokkuð sterkur Ut Ur þessari skoðana- könnun. Ég álit nú, aö hluti af þessu sé persónulegt fylgi við Gunnar Thoroddsen. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur ekkisýnt neina heillega stefnu Ut á við og þess vegna er mjög auðvelt að telja sig til flokksins. Þegar fer að draga úr kosningum, neyðist flokkurinn tilþess að setja fram einhverja stefnu, og þá held ég að fari svipaö og fyrir siðustu kosningar, ef hann býður fram i einu lagi sem ég er ekkert viss um að hann geri. Sigurður: Ég held að um stöðu Sjálfstæöisflokksins megi segja að hUn sé svipuð þvi sem gæti hafa komið upp hjá hægri mönnum í Frakklandi, ef þeir hefðu neitað að viðurkenna De Gaulle. Gunnar Thoroddsen er hetja fólksins en Sjálfstæöis- flokkurinn neitar aö viðurkenna hann. Vilmundur: Ég vil aðeins itreka það sem ég sagði áðan um stöðu ri'kisstjórnarinnar. Markmiö hennar er að halda i horfinu, verja status quo. HUn berst ekki fyrir breytingum á samfélagsgerðinni. Alþýöu- flokkurinn er hins vegar sá flokkur sem lagt hefur til mest frávik frá þeirri samfélagsgerö, sem við bUum við bæöi i efna- hagsmálum og félagsmálum. Þessi mál hafa ekki verið i um- ræðunni. Það kemur nýr póli- tiskur vetur eftir þennan vetur og ég spái því, að umræðufar- vegurinn eigi eftir að breytast. Hverjir koma til með að upp- skera rikulega af þvi læt ég liggja á milli hluta. —KS n Vísis — Skoóanakönnun Vísis — Skoðanakönnun Vísis Skoðanakönnun Vísis 3 fi) sr o= 3 3 3 3 < m\ & m» I (A 9T 0 Laugardagur 6. júní 1981 nun Visis Skoóanakönnun Vísis vtsm Skoðanakönnun Visis — Skoóanakönnun Visis

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.