Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 19

Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 19
19 Laugardagur 6. júnl 1981 vtsm ast friskleg atriöi. William Hurt leikur húsvöröinn sem fleira er til lista lagt en aö sópa gólf og tæma pappirskörfur og þaö er raunar fyrir þá sök, að húsvörö- urinn er fyndin og sérkennileg persóna, að „Vitniö” er meira en marflatur og hversdagslegur „þriller”. Kímnin I kvikmyndinni er oft á tiðum ansi lúnkinn, t.d. er harla fyndiö aö sjá þegar hús- vörðurinn og kærasta hans játa hvort fyrir öðru aö á milli þeirra sé ekkert sem kallast geti ást. Annar eins fögnuður hefur varla sést, jafnvel ekki þegar elsk- endur hafa náö saman eftir langt strið á hvita tjaldinu. „Vitnið” er ágætis sakamála- mynd þar sem hinn mannlegi þáttur fellur ekki algerlega i skuggann fyrir barsmiðum og byssubófalátum. hvad, hvar...? Fótbolta- fanta- brögð og húsvaröarhasar Braskari frá Viet Nam er myrtur i skrifstofubyggingu meðan húsvörðurinn sópar i kjallaranum. Alkunn skræfa er grunuð um morðið og áhugasöm fréttakona reynir að veiða upp- lýsingar upp úr húsverðinum. Auðvitað er hreint ekki allt sem sýnist og leit lögreglunnar að morðingjanum beinist að sjálf- sögðu í alranga átt. ...Gamla Bíó sýnir nú mynd- ina Famesem er án efa einhver ásjálegasta „dans og söngva- mynd” seinni ára. Myndin er látin gerast i listaskóla og þar meö er það ósköp eðlilegt að persónurnar bregði á leik og syngi og dansi. Irene Cara, Paul McCrane og Barry Miller eru öll hreint ágæt i hlutverkum upp- rennandi stjarna... A fimmtu- daginn tók Tónabió myndina Innrás likamsþjófanna til sýn- ingar. Þetta er „þriller” af betri tegundinni og greinir frá innrás geimvera i likama jarðarbúa. Smátt og smátt breytast Ibúar San Francisco i afstyrmi án sál- ar og Imyndunarafls og taka aö tilbiðja siði, venjur og stjórn- kerfi. „Innrás likamsþjófanna” er oft bæði spennandi og fynd- in.... Sylvia Kristel fer eins og sinubruni um svefnherbergin f mynd Laugarásbiós Táningur I einkatíma. Ef einhver hefur enn gaman af konu þessari, þá er Laugarásbió staðurinn.... Leik- hússtarf er nú niðurlagt um stund i Hafnarbiói en i staðinn er sýnd þar kvikmyndin Lyftiö Titanic Myndin er fremur litil- mótleg en bellibrögðin i henni ágætlega unnin... Regnboginn sýnir einar þrjár reyfaramynd- ir, 1 kröppum leik, Convoy og Sweeney. Af þessum þrem er auövelt að taka Sweeney langt fram yfir hinar tvær... Enn- fremur gefur að lita islensku myndina Punktur punktur komma strik i einum smásal Regnbogans. Sýningum hennar hlýtur senn að ljúka svo aö nú er ekki vert aö þeir sem enn eiga eftir að sjá þessa islensku ný- smið dragi bióferðina öllu leng- ur.... í Austurbæjarblói er á boðstólum kvikmyndin Brenni- merkturmeð Dustin Hoffman i hlutverki smáglæpamanns er hyggur á breikkun glæpabraut- ar sinnar. Hoffmann svikur engan en „Brennimerktur” er ekki meö betri myndum hans... Háskólabíó: Fantabrögö (North Dallas Forty) Leikstjóri: Ted Kotchoff Aðalleikari: Nick Nolte Bandarísk/ árgerð 1979 Handritið að „Fantabrögð- um” er byggt á metsölubók eftir Peter Gent og fjallar um þá hliö atvinnufótbolta I Bandarikjun- um sem ekki snýr að áhorfend- um, þar á meöal ofnotkun leik- manna á verkjastillandi lyfjum og dópi hverskonar. Myndin fjallar þó ekki einvörðungu um þaö hvernig bandariskir fót- boltamenn nota pillur heldur hvernig stjórnendur atvinnuliö- anna fara með leikmennina. Ef til vill verða margir sem sáu Nick Nolte I „Rich Man, Poor Man” hissa á að sjá aö hann getur i rauninni leikið eins og greinilega kemur i ljós i „Fantabrögðum”. Nolte virðist hafa tekist að losa sig við imynd ljóshærða kvennagullsins þegar hann kemur fram I hlutverki gallharðs fótboltagarps sem býður stjórnendum liðs sins Nick Nolte Nýja Bió: Vitnið (Eye- witness) Leikstjóri: Peter Yates Aðalleikarar: William Hurt, Sigourney Weaver og Christopher Plummer Bandarísk, árgerð 1981 Talsvert margt i söguþræði „Vitnisins” likist gamalkunn- um lummum en inn á milli birt- Sigourney Weaver Irene Cara byrginn og kemst upp á kant við alla sem nokkru fá ráðið i at- vinnuknattspyrnu. Þó að „Fantabrögð” risti ekki djúpt sem ádeila er myndin i marga staði lipurlega úr garði gerð. Einkum er það frammi- staða Noltes sem gefur mynd- inni gildi en með leik sinum I „Fantabrögðum” hefur hann stigið til fulls skrefið út úr sjón- varpssápuóperunum inn i marktækar kvikmyndir. Sólveig K. Jónsdóttir. skrifar Nauðungaruppboð Að kröfu innheimtu rikissjóðs, innheimtu Hafnarfjarðar, innheimtu Garðakaupstaðar, Gjaldheimtunnar I Reykja- vik, ýmissa lögmanna og stofnana fer fram opinbert upp- boðá lausafjármunum, laugardaginn 13. júnl n.k. og hefst það við Ahaldahús Hafnarfjaröar v/Flatahraun I Hafnar- firði kl. 14.00 e.h. Krafist er sölu á: G-815, G-1046, G-1239, G-1350, G-1463, G-1529, G-1690, G- 2393, G-2839, G-4241, G-5106, G-5627, G-6824, G-7417, G-7873, G-8240, G-8565, G-8583, G-9002, G-10363, G-10861, G-11133, G-11465, G-11522, G-11599, G-12045, G-12131, G-12177, G- 12367, G-12518, G-12589, G-12815, G-13496, G-13537, G-13841, G-14855, G-15009, G-15089, G-15155, G-15362, G-15510, G- 15570, G-15592, R-37350, R-38895, R-39464, R-53306, R-55479, R-56603, R-63703, R-69373, Y-1537, M-1262, Atlas corpo loft- pressa, Yamaha hljómflutningstæki, Hitatchi og Nord- mende litasjónvarpstæki, Nordmende svart/hvitt sjón- varpstæki, Candy og Philco þvottavélar, Candy isskápur, Edwards vélklippur, sófasett, borðstofusett, prentvél, pappirsskuröarhnifur, kæliborð og peningakassi. Kl. 14.30 að Ránargrund 1, Garðakaupstaö, eftir kröfu Guðna Guðnasonar hdl. f.h. Þakpappaverksmiðjunnar h.f., verða siðan seldir 35 stálbitar fyrir loftundirslátt, taldir eign Ólafs Gunnarssonar, Miöbraut 17, Seltjarnar- nesi. Bæjarfógetinn I Hafnarfirði, Garðakaupstaö og Seltjarnar nesi og sýslumaðurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið á fasteigninni Austurgata 12 I Kcflavik, þinglýst eign Þorsteins Arnasonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Jóns Magnússonar hdl, föstudag- inn 12. júni 1981 kl. 15.00. Bæjarfógetinn I Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið I Lögbirtingarblaöinu á fasteign- inni Smáratún 19, miðhæð og ris I Keflavik, þinglýst eign Hreggviðs Hermannssonar fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl, föstudaginn 12. júni 1981 kl. 15.30. Bæjarfógetinn I Keflavik. Nauðungaruppboð annað og slðasta á fasteigninni Staðarvör 14 I Grindavik, þinglýst eign ólafs Arnabergs Þórðarsonar, fer fram að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl, Jóns Steinars Gunnlaugsonar hrl, Ingólfs Hjartarssonar hdl og Guö- mundar Jónssonar hdl. fimmtudaginn 11. júni 1981 kl. 16.00. Bæjarfógetinn íGrindavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 7„ 9. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni Móaflöt 39, Garðakaupstað, þingl. eign Hávarðs Emilssonar fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka tslands og Garöakaupstaðar á cigninni sjálfri miðvikudaginn 10. júnl 1981 kl.15.00. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 107., 111. og 114. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Hæðarbyggð 1, Garðakaupstað þingl. eign Jóns Kristinssonar fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- banka tslands, Axels Kristjánssonar hrl„ Innheimtu rikis- sjóðs, Sveins H. Valdimarssonar, hrl„ Garðakaupstaðar og Landsbanka tslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 10. júni 1981 kl.14.00. Bæjarfógetinn I Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1107., 111. og 114. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Aratún 24, Garðakaupstað.þingl. eign Ósk- ar Karlssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 10. júnl 1981 kl.13.30. Bæjarfógetinn I Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst vari 67., 111. og 114. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Noröurtún 11, Bessastaðahreppi þingl. eign Jóns Páls Þorbergssonar. fer fram eftir kröfu Innheimtu rikisjóðs, á eigninni sjálfri miðvikudaginn 10. júnl 1981 kl.14.30. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.