Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 14
14
Ferðamálaráð útskrifar
40 leiðsögumenn:
Fá sérstök
skírteini
aö aflokn-
um prófum
„Námskeið Ferðamálaráðs
byrja i október og standa fram i
maf. Þeir sem standast munn-
leg og skrifieg próf, sem haldin
eru um áramót, halda síðan
áfram f siðari hlutann og þeir
sem standast próf um vorið fá
niína sklrteini sem leiðsögu-
menn ferðafólks”, sagði Birna
G. Bjarnleifsdóttir leiösögu-
maður I samtaii við ferða-
sfðuna.
Birna hefur stjórnað þessum
námskeiðum fyrir Ferðamála-
ráð sem ráöið hefur fyrir leið-
sögumenn. Fyrir fáum dögum
fór I fyrsta sinn fram afhending
skirteina Ferðamálaráðs til
leiðsögumanna, samkvæmt ný-
settri reglugerð samgönguráðu-
neytisins. Fram til þessa hafa
þau próf sem leiðsögumenn
hafa tekið ekki veitt önnur rétt-
indi en til inngöngu i Félag leið-
sögumanna sem stofnað var
áriö 1972.
Þeir sem standast próf á
námskeiðum Ferðamálaráðs fá
skirteini sem leiðsögumenn og
gilda þau fimm ár i senn. Þeir
sem hafa unnið að minnsta kosti
15 dagsverk á ári að jafnaði á
þessu timabili, fá skirteinin
endurnýjuð sjálfkrafa, en aðrir
þurfa að sækja endurhæfingar-
námskeið. Aðrir sem eiga rétt á
þessum skirteinum, eru núver-
andi meðlimir Félags leiðsögu-
manna sem hafa unniö að
jafnaði 15 dagsverk á ári við
leiðsögn siðustu fimm ár. Þeir
40 leiðsögumenn sem fengu
skirteini nd eru allir félagar i
Félagi leiðsögumanna og upp-
fylla ofangreind skilyrði.
Menntun leiðsögu-
manna
Leiðsögumenn innlendra sem
erlendra ferðamanna þurfa að
vera vel heima i mörgu, þvi f or-
vitni ferðalanga eru litil tak-
mörk sett. Birna sagði að i
reglugerð um starfsmenntun
leiðsögumanna væri greint frá
þeim undirstöðuatriðum sem
kenna ætti. Nefna mætti sögu
lands og þjóðmenningu, jarð-
fræði, náttdrufræði, bókmenntir
og listir.
Fræðsla væri um þau land-
svæði sem ferðamenn heim-
Ludvig Hjálmtýsson ferðamáiastjóri, afhenti leiðsögumönnunum skirteinin Ismáhófi sem haldið var af
þessu tilefni. (Visism. EÞS)
sæktu, þróun ferðaþjónustu,
skyndihjálp, skipulag ferða-
þjónustu og þannig mætti lengi
teija.
„Það eru haldnir fyrirlestrar
á kvöldin, tvisvar i viku i hinum
almenna fróðleik. Munnlegu
prófin eru á erlendum tungu-
málum. 1 sfðari hluta námskeið-
anna er byrjað á skyndihjálp og
siðan farið i svæðafræðslu. Þá
eru fengnir reyndir leiðsögu-
menn sem kynna alla helstu
ferðamannastaðina, byrjað á
Reykjavik og farið slðan rétt-
sælis umhverfis landiö og endað
á hálendinu”, sagði Birna enn-
fremur.
í spjallinu við Bimu kom
fram aö með þvi að afhenda
leiðsögum önnum sem st a&ist
hafa tilskilin próf, þessi
skírteini þá megi segja að það
sé löggildingu á leiösögumönn-
um.
Félag leiðsögumanna er
stéttarfélag sem á aðild að Al-
þýðusambandi Islands og hefur
gert samning við ferðaskrif-
stofur um kaup og kjör. Er sá
samningur jafnframt bindandi
fyrir alla aðra er ráða leiðsögu-
menn til starfa.
Leiðsögn erlendis
Félag leiðsögumanna var
stofnaö af bæöi leiðsögumönn-
um sem starfa hér innanlands
og fararstjórum sem starfa með
islenskum hópum erlendis. En
hvaða kröfur eru gerðar um
menntun þeirra er starfa «•-
lendis og sækja þeir þessi nám-
skeið, var Bima spurð:
„Ferðaskrifstofurnar segjast
þjálfa sina eigin fararstjóra til
starfa erlendis. Ég veit ekki
hvað þær gera mikið af þvi, en
ég man eftir þvi að Guðni i
Sunnu hélt ágætis námskeið
fyrir nokkrum árum. Það þarf
alveg örugglega að gera slikt og
gefa þessari hlið meiri gaum.
Stundum er ráðið ungt fólk til
starfa erlendis, jafnvel 18-19 ára
unglingar, sem ráða ekki við
starfið en eru látnir leysa
reynda fararstjóra af”.
1 Félagi leiðsögumanna eru
230 og af þeim eru um 150 starf-
andi á ferðamannatimabilinu á
sumrin. Skrifstofa félagsins er á
Skólavörðustíg 2 og þar er rekin
ráöningarmiðstöð. Núverandi
formaður félagsins er Júlia
Sveinbjarnardóttir.
Picasso ■
Louisiana
Listunnendur sem eiga leið
um Danmörku ættu ekki að láta
hjá liða að bregða sér á lista-
safnið Louisiana i Humlebæk.
Þar stendur yfir yfirgripsmikil
sýning á verkum eftir Picasso.
Hérerum aðræða hluta af safni
Picassos sem gengur undir
nafninu „Picassos Picassoer”,
en i' þvi' safni eru 37 verk sem
aldrei hafa verið til sölu og
verða aldrei.
Listamaðurinn óskaði sjálfur
eftirþvi að þessum verkum yrði
haldið saman um alla framtið
og erfingjar hans hafa ákveðið
að safnið verði i nýja Picasso-
safninu, sem opnað verður i
Paris á næsta ári.
A sýningunni I Louisiana eru
99 oliumálverk, 38 skulptúrar,
146 teikningar og 91 grafikverk.
A sýningin að spanna alla
starfsævi listamannsins og
verður opin fraxn til 21. júni.
Glæsihótel
rís i Osló
1 Osló er nú unnið af fullum
krafti við að fullgera
Holmenkollan Park Hotel og á
að opna hótelið gestum 2. janúar
1982. Þetta verður eina lúxus-
hótelið i Osló þar sem hægt
verður að iðka ýmsar Iþróttir og
ættu hótelgestir ekki að vera i
vandræðum með að finna eitt-
hverttrimm við sitt hæfi. Þarna
verður innanhússsundlaug,
heitur pottur með vatnsnuddi
sauna baðstofur, hlaupabraut
og tennisvöllur.
Þarna i Holmenkollen Park
Hotel verða 200 gistiherbergi
stór og rúmgóð með loftkælingu
og svalir með flestum herbergj-
um. Einnig verður litasjónvarp
á hverju herbergi auk kæliskáps
og vinbars.
Veitingasalir verða margir,
bæði fyrir vandláta sælkera og
svo þá sem kjósa einfalda rétti.
Einnig verður næturklúbbur I
hótelinu. Fullkomin aðstaða til
ráðstefnuhalds verður þarna, en
eigandi hótelsins er Hoeghs
Rederi.
Frakkar afnema ódyra matsedla
Air Canada fær TriStar
Flugfélagið Air Canada hefur
nýlega hafið ferðir með fyrstu
langfleygu þotunni af sex sem
notaðar verða á áætlunar-
leiðinni milli Vancouver og
London. Flugvélin er af gerðinni
Lockheed TriStar L-1011-500 og
rúmar 246 farþega. Hún hefur
9.650 km flugþol.
Með þessum flugvélakaupum
verður hægt að auka ferðatiðni
milli Kanada og Evrópu.
íslenskir veitinga-
menn bjóða nú sérstak-
an matseðil fyrir ferða-
menn þar sem hægt er
að fá góða rétti við til-
tölulega vægu verði.
En það er annað uppi á
teningnum suður i
Frans. Þar er verið að
leggja slika matseðla
af.
Undanfarin 12 ár hafa kaffi-
hús og matsölustaðir I Frakk-
landi verið skikkuð af hinu opin-
bera til að hafa sér matseöil á
lágu verði, sem kallaöist menu
Conseillé. Eitt af siðustu em-
bættisverkum Giscard
d’Estaings, fyrrverandi forseta
var hins vegar aö afnema þessa
skyldu og var það liður I ráð-
stöfunum til að auka frjálsræði I
efnahagsmálum og viðskiptum.
Verðlagseftirlit á veitinga-
húsum var innleittárið 1969 sem
liður i' að hemja verðbólguna og
draga úr henni. Svart kaffi,
petit noir, var einn af sex vin-
sælum drykkjum sem háður var
verðtakmörkunum. Einn slikur
kaffibolli kostaði 1,40 franka
fyrir utan þjórfé og þótti kaffi-
húsavertum blóöugt að 40%
gesta pöntuðu svart kaffi eða
annan drykk á lágu veröi.
Menu conseillé hefur verið
vinsæll hjá mörgum frans-
mönnum með góöa matarlyst.
Hins vegar beittu veitingamenn
þvi bragði að flagga litt þessum
matseðli svo ferðamönnum var
mörgum ókunnugt um hann.
ággngar
*
Afangar
tJt er komið annað tölublað af
timaritinu Afangar, timaritium
Island, útiveru og ferðalög. I
þessu tölublaði, sem er 80 siður
ermeðal efnis fjörlegt viðtal við
þann gamla ferðajaxl Úlfar
Jacobsen grein eftir Jón Gauta
Jónsson um vörðuleit I Ódáða-
hrauni grein um ljósmyndun og
margt fleira er i ritinu sem
prýtt er fjölda mynda og eru
sumar i litum. Ritstjóri Afanga
er Sigurður Sigurðarson.
Viðsem fljúgum
Út er komið nýtt hefti af tima-
ritinu Við sem fljúgum, sem
Flugleiðir gefa út i samvinnu
við Frjálst framtak og dreift er I
flugvélum félagsins i innan-
landsfluginu.
Markús öm Antonsson, rit-
stjóri, skrifar grein um Luxem-
borg og þá möguleika sem bjóð-
ast ferðamönnum þar Flugleiðir
bjóða nú einstaklega ódýrar
helgarferðir til Luxemborgar.
Farið er á laugardagsmorgun
og komið heim siðdegis á
þriðjudag. Búið er á fyrsta
flokks hóteli og kostar farið
báðarleiðir með gistingu i þrjár
nætur aðeins 1.690 krónur sem
er kostaboð.
Margt annað efni er i ritinu,
sem er liðlega 100 blaðsiður að
stærð.
Svona i lokin má geta þess, að I
Frakklandi voru 176.730 kaffi-
hús og 76 þúsund veitingahús
önnur, þegar talning fór siðast
fram.
Sæmundur
Guðvinsson
skrifar