Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 06.06.1981, Blaðsíða 8
vtsm Laugardagur 6. júni 1981 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Fétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sigfússon, Frlða Ástvaldsdótt- ir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristrn Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjóns- son, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaðurá Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. Iþrótt- ir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur Ö. Steinarsson Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. Utlitsteiknun: Magnús Olafsson, Þröstur Haraldsson. Safnvöröur: Eirikur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14, simi 86611, 7 linur. Augjýsingarog skrifstofur: Síðumúla8, símar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4, sími 86611. Askriftargjaldkr . 70 á mánuði innanlands og verð i Iausasölu4 krónur eintakið. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Síðumúla 14. Frystihús á núllpunkti Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var haldinn nú í vikunni. Það er með nokkurri forvitni.sem fylgst er með þeim skýrslum og ræðum.sem þar eru á dagskrá, enda tengist afkoma frystihúsanna mjög hagsmunum þjóðarheildarinnar. Otflutningur á frystum fiski, verðlag, markaður og gengi ís- lenskra frystihúsa skiptir sköp- um og engin ein atvinnugrein hefur jafn víðtæk áhrif hvað varðar atvinnu, tekjur og efna- hag landsmanna. Gengi íslensku krónunnar tek- ur mið af stöðu þessa umsvifa- mikla atvinnurekstrar og hvergi er verðbólgan jafn skaðleg og til- finnanleg. Hún hefur hrjáð frystihúsin og þrátt fyrir góða viðleitni hefur rekstur þeirra verið neikvæður. Á síðasta ári varð verðmætaaukning í útflutt- um af urðum um 43.5%.en á sama tíma var verðbólguþróunin 58%. Allt síðasta ár þurfti að berjast fyrir því að reka frystihúsin á svokölluðum núllpunkti. án þess þó að það tækist. Aðgerðir stjórn- valda voru bæði takmarkaðar og tilviljanakenndar og þrátt fyrir verðhækkanir á Bandaríkja- markaði eru húsin rekin með tapi. í ræðu sem Gunnar Guðjónsson formaður SH flutti á aðalfundin- um sagði hann um þetta atriði: „Vegna þeirra verðhækkana, sem nú eru að koma til fram- kvæmda á þorsk- og karfaf lökum í Bandaríkjunum, er afar mikil- vægt að menn skilji að þessar hækkanir koma frystihúsunum sjálfum að litlum notum. Þær gera lítið meira en að bæta stöðu Verðjöfnunarsjóðs miðað við skuldbindingar, sem hann tók á sig i ársbyrjun. Afkoma frysti- húsanna í heild er enn ekki það sterk, að þau geti tekið á sig f isk- verðshækkanir. Við gerum þær kröfur til stjórnvalda að þau sjái til þess að sérhverri vinnslugrein séu búnar rekstraraðstæður, sem leiða til jákvæðrar afkomu. Millifærslur á góðri afkomu einnar vinnslugreinar til að leið- rétta lélega afkomu annarrar eða útjöfnun, sem færir alla á núllpunktinn afkomulega séð, er hættuleg stefna, sem getur eyði- lagt jákvæða alhliða framþróun í íslenskum fiskiðnaði". Hvað er formaðurinn hér að segja? Einfaldlega það, að þrátt fyrir hærra markaðsverð og mikinn afla. sem hvorutveggja eykur verðmætin, hefur frysti- húsaiðnaðurinn ekkert svigrúm til að hækka fiskverð, hvað þá að komast upp fyrir núllpunktinn. Sú f iskverðshækkun, sem nú hef ur verið ákveðin mun leiða til þess að frystihúsin verða áfram rekin með tapi. Með millifærsl- um á milli vinnslugreina, sem ríkisstjórnin hef ur beitt sér f yrir, og hækkandi tilkostnaði af völd- um verðbólgunnar, hrekkur sölu- verðshækkunin vart til þess að standa undir millifærslunum. Með þessu ráðslagi er verið að varpa byrðunum yfir á framtíð- ina og grafa undan heilbrigðum rekstri frystihúsanna. Ef húsin njóta ekki góðs af bættum mark- aði, slævist sá hvati, sem hann á , að vera á viðleitni þeirra til að bæta vöruna og auka framleiðsl- una. Sú staða, sem blasir við frysti- húsaiðnaðinum.er ískyggileg, svo ekki sé meira sagt. Gott árferði og hátt markaðsverð á auðvitað að vera stórkostleg búbót fyrir islenskt þjóðfélag, tryggja traustan rekstrargrundvöll og auka þjóðartekjur. ( staðinn verðum við að hlusta á aðvörunarorð frá Sölumiðstöð- inni, og sjáum fram á taprekstur og millifærslur. Hér er ekki við þá frystihúsa- menn að sakast, heldur stjórn- völd, sem hafa brugðist í glím- unni við verðbólguna. Jafnvel helmings verðmætaaukning í út- fluttum afurðum hefur ekki megnað að mæta þeim kostnað- arhækkunum, sem verðbólgan leiðir af sér. Fiskverðshækkunin er afleiðing verðbólgunnar, þeirrar verðbólgu sem kemur í veg fyrir bætt lífskjör á Islandi. Farinn vegur l dag er ekki langur. Að loknu morgunsund- inu og Teriunni, er ekki annað en biöa kvölds og leiksins sem á að 'vera á velli þeim hinum fræga sem við Akureyringar köllum Wembley. Hitastig er niöri undir frostmarki, og þessi leikur veröur aö vinnast. A ég að fara með K.A.-trefil- inn? Þessi spurning ásækir mig allan liðlangan daginn. K.A. hefur oft gengið illa ef ég hef verið meö hann. Bestu leikirnir hafa hins vegar verið, þegar ég er trefilslaus og Arni Ing. i laxi. Nú er óhugsandi aö Arni veröi i laxi. Ætli það muni þá nokkru um trefilinn? Ég ákveö að fara með hann. Mér er ævinlega kalt á vellin- um. Engu skiptir hversu gott veðrið er. Mér er bókstaflega ævinlega kalt á vellinum. Og nú er aö búa sig eftir föngum. Slð, norsk ullarbrók, tvennir grófir leistar, háfjallaskór frá Tékkó- slóvaklu, peysa, stakkur, hettu- ulpa vettlingar — og trefillinn, gulur og blár, sivafinn um háls- inn. Einar Pálmi birtist og keyrir okkur Nonna á völlinn. Leikur- inn leggst illa I okkur báða. Við þorum ekki að vera saman. Ég dreg mig á afvikinn staö, langt frá aöalkllkunni. Best að riða með björgum fram. Fyrstu 20 mlnúturnar stend ég eins og negldur, steinþegj- andi. K.A.-menn eru andskot- ann ekkert betri en hinir. Þeir reyna ekkert, þora ekkert, bara spila upp á öryggiö eöa hvaö. A að sætta sig við annað stigiö? Vita þeir ekki að sókn er besta vörnin? Ég á eftir að fá skýring- una seinna. Eftir tuttugu mlnútur fara þeir aö taka við sér. Þeir fara aö þora. Þeir fara að reyna. Sóknin þyngist. Hinir komast æ sjaldn- ar fram yfir miöju. Og svo hefst stakkasundið. Donni tekur horn frá hægri, og inn fer boltinn ein- Af Wembley hvern veginn. Sjálfsmark, segir einhver. Ég leyfi mér að llta upp. Hvar skyldi Arni Ing. vera? Hvar Mikki, hvar Henn- ing, hvar Nelli? Jú, ég heyri reyndar I honum. Hann hefur góöa og þrautseiga rödd. Guð blessi á honum munninn. En nú má ekkert af minum mönnum llta, guöi sé lof. Aftur horn frá hægri. Donni gefur fyrir, Gunni Gisla aftur út á Donna, sem ekki virðist I nokkru færi. Mér sýnist dómar- inn meira að segja vera fyrir honum. En skotið rfður af, og boltinn er inni. Og nú fara menn heldur betur að láta heyra i sér. Ég sé hvar Arni Ing. stendur. Mér finnst samt of snemmt að fara til hans. Mig rámar I leik, þar sem andstæðingarnir náðu jafntefli eftir að hafa verið þrjú mörk undir. En hvað er að ger- ast? Enn einu sinni er Donni kominn upp að hornfánanum hægra megin, Gunni Gfsla stekkur meira en hæð slna I öll- um herklæðum og skallaboltinn syngur I netinu. Nú hreyfi ég mig um set. Nú tek ég ofan hettuna. Nú læt ég bera sem mest á treflinum. Þrjú:núll I hálfleik. Það getur varla tapast. Ég fer fyrst til Arna Ing. Hann er I peysunni sem hann notar I laxinn, lof sé guði. Okkur liður ansi vel, en mikiö skelfing voru okkar menn daufir framan af, segjum viö hvor viö annan. Ég sé Dúdda Gisla álengdar. Ég næstum hleyp til hans og þakka honum undir vitni og með handabandi fýrir að hafa búið Donna til. 011 þrjú mörkin I hálfleiknum kom- Gisli Jóns- son skrifar in eftir hornspyrnur frá honum. Donni er farsæll I kvöld. Og þarna eru Fóstbræður, vinir minir. Ég geri mig breiðan, læt bera mikiö á K.A.-treflinum. Þetta er gott fyrir Akureyri, og ösin svo mikil viö kaffisöluna að ég kemst ekki að. Jafngott að vera ekki með neitt hangs. Mlnir menn ná boltanum strax á fyrstu minútu: Asbjörn á Gunna Glsla, Gunni beint á nafna sinn Blön- dal, hinir koma ekki viö boltann, allt á eldingarhraöa og ekkert verið aö hka eða tapa tima. Dúndurskot Gunnars Blöndal faömar stöngina og flýgur I net- iö. Svona yndi fær maöur ekki aö upplifa nema kannski á fimm ára fresti og fagnaðarlætin I há- marki. Orslitin eru ráðin. Nú fer ég alla leið til Nella. Nú er ekki þagað: Afram K.A.! Ekki gefa eftir! Spila strákar! Halda miðjunni! Fleiri mörk! Spila strákar! Og strákarnir spila. Sóknarloturnar rlöa yfir. Asi nikkar aftur fyrir sig og enn stekkur GunniGIsla upp, og þvl- llk uppstökk. Enn er boltinn inni. Hver hefði trúað þvi? Þrátt fyrir linnulaus hvatningaróp Nella sem ég bara klappa undir til að hlifa eigin raddbjálfa, slaka okkar menn aðeins á. Þaö er mannlegt, eins og á stendur, og lokatölurnar veröa 5:1. Ég næ I Erling og Elmar og blessa þá i bak og fyrir. Ég fæ lika skýringu á frammistöðunni fyrstu 20 minúturnar. Þaö eru fyrirmæli frá Alec. Reyna andstæðingana. Leika af öryggi. Taka ekki sjans ana strax. Ekki reyna aö brjóta þá niöur I upphafi. Þreifa fyrir sér. Láta þá finna til van- máttarkenndar, en skynja smám saman sina eigin yfir- burði. Og siðan hefst sóknin af fullum þunga og allt á að ganga upp. Ég er svo upphafinn I leikslok, aö ég gleymi dóttur minni, syni og tengdasyni, sem fór meö mig niður á Wembley, en kemst ein- hvern veginn heim, ég held með Jóni Stefáns. Og nú er ekkert verið aö hugsa um hvort ung- börn, gamalmenni og allt þar á milli hafi fengið sér hænublund. Sigurhróp timans, VA, gellur við fimm sinnum, um leið og komiö er inn I bakdyraganginn. Þá vita menn það. Ég tek af mér trefilinn gula og bláa og brýt hann mjúklega saman og læt hann með mikilli gætni niður I skúffu. Ég kveiki á útvarpinu og bið I ofvæni eftir fréttum. Ég vil ekki bara sjá, heldur heyra með öllum landsins lýö, að K.A. hafi unniö meö fimm mörkum gegn einu. Það er stundum gaman að vera til og sælt að fara aö sofa. 2.5.’8l G.J.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.