Tíminn - 05.12.1969, Qupperneq 2

Tíminn - 05.12.1969, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 5. desember 1969. Lengsta hóp- ferð sem boðin hefur veríð hér Sunna býður Japansför fyrir 88 þús. kr. OÓ-Reykjavík, fimmtudag. Fer'ðaskrifstofan Sunna mun á næsta ári efna til lengsta hópferða lags sem íslenzk ferðaskrifstofa hefur boðið viðskiptavinum sinum til þessa. f byrjun sept. n. k. verð- ur farið á vegum Sunnu til Japans, en þá stendur yfir heims sýningin, sem haldin verður í borginni Osaka. Komið verður við á mörgum stöðum á leiðinni og dvalið í nokkra daga í ýmsum lönd Blönduós í sjálfvirkt símasamband JS—Blönduósi, miðvikudag. Sjálfvirk símstöð var opnuð hér á Blönduósi klukks'i 17 í dag. Stöðin er gerð fyrir 200 númer, en nú eru 142 notendur tengdir við hana. Þetta er 52. sjálfvirka símstöðin á landinu og sú níunda sem tekin er í notkun á þessu ári. Símanúmer stöðvarinnar eru frá 4100—4299. Sveitasímar, 38 að tölu, sem tengdir eru beint við B'lönduós, verða enn um sinn háð ir handvirlkri afgreiðslu. Yfirum- sjón mieð uppsetningu stöðvarinn ar hafði Þorvarður Jónsson síma- verkfræðingur. Jón ísberg sýslu- maður tók stöðina formlega í notk un, með því að tala við Aðalstein Norberg ritsímastjóra. Sími kom til Blönduóss þegar á fyrsta ári símans hér á landi, eða 1906. Fyrsti stöðvarstjóri var Zophóní- as Hjálmsson. Núverandi stöðvar stjóri er Haraldur Jónsson. um í Asíu. Ferðakostnaður er ákveðinn 88 þúsund kr. fyrir mann inn og er þar innifalið öll flug fargjöld og hótelkostnaður. Mun ferðin standa yfir í 21 dag. Ekki munu nema 40 manns eiga kost á að taka þátt í þessari ferð frá ísiandi. Takmarkast fjöld- inn af hótelrými í Osaka og Tokyo meðan dvalið er þar. Þeg ar eru milli 10 og 20 manns húnir að láta skrá sig í ferð þessa. Þótt sumum kunni að vaxa í augum kostnaðurinn verður að telja þessa ferð mjög ódýra þar sem varla er hægt að fara í iengra ferða lag á þessari jörð, því um hálf- an hnöttinn er að fara. Geta má að venjulegur farseðill þessa leið kostar 130 þúsund kr. báðar leið ir og er þá gisti- og fæðiskostnað- ur ekki innifalinn. Þetta hagstæða verð í Asíuferð inni er að þakka samkomulagi sem tekizt hefur með Sunnu og flug félögunum SAS og Swissair og japanskri ferðaskrifstofu. Panti væntanlegir þátttakendur far fyrir áramótin, er hægt áð gneiða ferðalagið með 8 þús. krón um á mánuði með jöfnum afiborg unum. Meðal viðkomustaða sem dvalið verður á nokkra daga, ýrnist á leið til Japans eða á hakaleið, eru Kaupmannahöfn, Nýja Delhi, Ban kok í Thailandi, Hong Kong og Beiruth. Farið verður í skoðunar ferðir í héruð umhverfis borgirn ar og kostur gefst á að fljúga firá Nýju Delhi til Neapels, fyrir þá sem vilja. Lengst verður dvalið í Japan og ferðast þar um til nokk urra bonga og héraða. Hægt er að fá ítarlega ferða áætlun hjá Sunnu og ýmsar upp- lýsingar varðandi ferðina. Farar stjóri verður Guðni Þórðarson. LFV eru ótrúlega endingargóðar. Þær fást víða í tízkulit og þremur stærðum. Reynið þessar tegundir og þér munið komast að raun um framúrskar- andi vörugæði. 30 den LIV kosta kr. 136,00. HEILDSALA: ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F. Sími 18700. TIMINN Verzlunin Málmur í Hafnarfirði er var áður að Austurgötu 17, flutti starfsemi sína laugardaginn 29. nóv. s. 1. í nýtt og rúmgott húsnæði að Strandgötu 11. Verzlunin var stofnsett árið 1928 af Guðjóni Jónssyni, sem rak verzlunina þar tfl fyrir 6 árum að hann seldi hana Pétri Þor björnssyni, sem hefir nú filutt af gamla staðnum og í hið nýja verzl unarhúsnæði að Strandgötu 11. Innréttingar eru mjög smekkleg- ar og öllum vörum vel fyrir kom ið á eyjum og veggjum þannig að þær blasa við viðskiptavinum um leið og inn er komið. Gefur þessi nýja aðstaða eigandanum tækifæri til að hafa fleiri vörutegundir á boðstólum og veita viðskiptavin um betri þjónustu. Verzlunin Málm ur verzlar aðallega með: Málningu, ýmiss konar járnvörur, veggfóður, gólfdúka og flísar, rúðugler, verk færi af ýmsu tagi o.m.fl. (Myndina tók GE af Pétri Þor- björnssyni í verzluninni.) Leyfí fyrír brennum, jóla- skemmtunum, skoteldasölu OÓ-Reykjavík, mánudag. Strákar eru víða farnir að safna saman efni í áramóta- brennur, þótt mánuður sé til stefnu. Eins og undanfarin ár verður að fá leyfi lögreglu- stjóra fyrir hlaða bálkesti og kveikja í peim á gamlárs- kvöld. Eru þeir sem hyggjast hlaða kesti minntir á að sækja um leyfi áður en þeir hefjast handa um framkvæmdir. Á lögreglustöðinni eru til sér stök umsóknareyðublöð fyrir slíkar leyfisveitingar. Við hverja brennu verður að vera sérstakur ábyrgðarmaður, sem sækir um leyfið, og verður við komandi að kynna sér reglur um áramótabrennur, en þær eru afhentar um leið og leyfin eru veitt. Eins og í fyrra verð ur stærsta brennan í Reykja vík nálægt mótum Kringlumýr arbrautar og Miklubrautar og hafa borgaryfirvöld veg og vanda af þeirri brennu. Um jólatrésskemmtanir fyrir börn gilda sérstakar reglur og verða þeir aðilar sem fyrir slík um skemmtunum standa að fá fyrst leyfi hjá slökkviliðsstjóra til að skemmtanirnar megi faxa fram í tilteknum húsakynnum og einnig hjá lögreglustjóra. Slökkviliðsmaður verður við- staddur á hverri jólatrésskemmt un. Um sölu á flugeldum og skoteldum gflda sérstakar regi ur og ber öllum þeim sem selja slíkan varnig að fá til þess sér stakt leyfi hjá slökkviliðsstjóra hann ákveður einnig hvaða teg undir skotelda verður leyft að selja. Ef kaupmenn fá ekki tilskilin leyfi geta þeir búizt við að skoteldar þeir sem til sölu verða, verði gerðir upptæk ir. •^s i Á ÞINGPALLI Vilhjálmur Hjálmarss. fylgdi fyrirspurn Kristjáns Ingólfssonar um sjálfvirkt símakerfi á Austur landi úr hlaði í sameinuðu Al- þingi í fyrradag. Sagði hann, að víða væri símaþjónustan mjög lé- leg þar fyrir austan, og spurði, hvenær vænta mœtti sjálfvirkra símstöðva þar. ir Ingólfur Jónsson kvað vera farið eftir áætlun frá 1961, sem hefði að vísu seinkað nokkuð vegna skorts á tæknifólki og fé. Austurland hefði verið í síðasta áfanga áætlunarinnar vegna þess, að endurnýja hefði þurft allt kerf ið. Því væri nú að mestu lokið og yrði að líkindum komið á sjálf virkt símasamband við kauptúnin árið 1972—3. Þá mundi væntan lega hafizt handa við að koma á slíku kerfi við bæi í sveitum. ■fc Ásgeir Bjarnason sagði, að í Búðardal hefði sjálfvirkt sím- kerfi átt að vera komið árið 1967, en væri ekki enn komið. Spurði hann ráðherra hvenær það yrði. ■fr Ráðherra kvaðst ekki vita hve nær, en vonaði, að það yrði inn- an skamms. •fo Það kom fram í svari forsæt isráðherra í fyrradag við fyrir- spurn Þórarins Þórarinssonar, að bygging stjórnarráðshúss gæti hafizt hvenær sem væri. Væru þó nokkur atriði, sem atihuga þyrfti, áður en hafizt væri handa, svo sem staðsetning og fyrirkomulag í húsinu í smáatriðum. Þórarinn kvað það mundu verða mikla lyftistöng fyrir byggingar iðnaðinn, ef í byggingu slíks húss yrði ráðizt, auk þeirrar hagræðing ar, sem þá yrði við að hafa allar skrifstofurnar á sama stað, í eig- in húsnæði, sem sparaði húsaieigu fé. ■fr Þingmenn allra flokfca hafa lagt fram tillögu til þingsályktun ar um framkvæmd eignarnáms. Er gert ráð fyrir því, að löggjöf um það efni verði endursfcoðuð og nýtt frumvarp samið. ☆ Þingmenn Alþýðubandalagsins hafa lagt fram tfllögu til þings ályktunar um úrsögn fslands úr NATO og uppsögn varnarsamnings ins. if I gær voru fyrstu lög 90. löggjafarþings íslendinga afgreidd, ein frá hvorri deild. Frá neðri deild voru afgreidd lög um vernd barna og ungmenna, en frá efri deild lög um gjaldaviðauka. ★ Jóhann Hafstein mælti fyrir frumvarpi um Norðurlandasama- ing. ★ Eggert G. Þorsteinsson mælti fyrir frumvarpi um Bjargráðasjóð. ★ Bjöm Fr. Björnsson og Ás- geir Bjarnason leggja til, að ekki verði af sameiningu Loðmundar- fjanðarhrepps og Seyðisfjarðar- kaupstaðar að sinni, þar sem á- lyktun um málið frá sýslunefnd N.-Múlasýslu vantar. ir Einar Ágústsson og Sigurvin Einarsson hafa lagt fram tfllögu til þingsályktuinar um réttindi sambúðarfólks. Er þar gert ráð fyrir, að lífeyrissjóðslög verði endurskoðuð til samræmis við al- mannatryggingalög með réttindi sambúðarfólks fyrir augum, eftir því, sem við getur átt. Landbúnaðar- vörur hækka EJ—Reykjavík, þriðjudag. í dag varð nokkur hækkun á mjólk og mjólkruafurðum, og einnig á kindakjöti og kartöflum. Mjólkurlítrinn hækkaði um 10 aura en rjómalíter um 30 aura. Þessi hækkun stafar af launaupp- bót, sem starfsfólk mjólkursam- laga fékk um áramótin, og eins einnar krónu hækkun á smjör kílóinu og samsvamdi hækkanir á öðrum mjólkurafurðum. Kartöflur hækkuðu um 40 aura kílóið, en kindakjötið frá 2,50 upp í 3,30 krónur á kíló. Hækk- un þessi er vegna haakkunar á geymslu- og vaxtakostnaði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.