Vísir - 15.07.1981, Side 2

Vísir - 15.07.1981, Side 2
2 Miövikudagur 15. júll 1981 Hver er uppáhalds- maturinn þinn? Ola Haugbo, frá Noregi: Rækjur og hrisgrjón. Ólafur Kristjánsson, „alt mulig- mand”: Þetta er erfiö spurning, en mér hefur alltaf þótt hangikjötið sér- staklega gott. Ragnar Hilmarsson, vinnur i Svi- þjóö: Mér finnst allur matur jafn góö- ur. Anna Einarsdóttir, talsimavörö- ur: Humar. Asta Valsdóttir, atvinnulaus: Kjiiklingur meö frönskum og kokteilsósu. VÍSIR Helga Kress nýskipaður leklor I bókmenntum vlð Háskðlann: jrfítt fyrlr konur að komast á toppinn” Það er ekki hlaupið að þvi að komast á toppinn sem kennari við Háskóla Islands, ef svo óheppi- lega vill til að þú ert kvenmaður. Þetta er lýsing Helgu Kress, ný- róðins lektors i almennum bók- menntafræðum við Háskólann. „Þetta er svo augljóst ef teknar eru tölur um fjölda kvenna sem kenna við Háskólann. Af áttatiu og þremur prófessorum, er að- eins einn kvenmaður eða riímlega eitt prósent. Meðal hundrað og fjörutiu leiktora og dósenta eru ellefu konur og af þrjiíhundruð stundakennurum eru sextiu konur”, segir Helga. „Auðséð er, fyrir hverja þessi pýramida-upp- bygging er ætluð”. „Þaö er mjög erfitt fyrir konur aðkomast i góðar stöður hér. At- vinnuleysi meðal menntamanna er staðreynd og algjör undan- tekning ef auglýstar eru kennara- stöður við framhaldsskólana, þvi yfirleitt er biíið aö ráða i stöð- urnar fyrirfram. Maður þarf að vera kominn inn i kerfið til að komast i gott starf. Helga þekkirnokkuð tilþessara mála, þvi eftir að hún kom heim frá sex ára dvöl I Noregi, fannst ekkert starf við hennar hæfi í hálft ár. Að lokum bauöst henni stundakennsia við Háskólann, sem hún hefur sinnt siðan. Kandidatsprófi i islensku og þýsku lauk Helga frá H.I. 1969. Stuttusiðar var hún skipuð lektor i islensku fyrir erlenda náms- menn, en 1973 hélt hún til Bergen með sendikennarastöðu i islensku upp á vasann. Þar stundaði hún bókmenntarannsóknir samhliða kennslunni og einbeitti sér að kvenlýsingum i islenskum bók- maintum, allt frá Islendingasög- um til samtlmabókmennta og bókmenntum eftir konur. Niðurstöður úr þeim rannsókn- um er Helga nú að setja saman i islenskri kvenbókmenntasögu og vonast til að lektorsstaðan gefi henni tækifæri til að einbeita sér frekarað þvi verki. Lektorsstarf- inu er einmitt ætlað, eins og öðr- um föstum kennarastöðum við Háskólann, að byggjast að miklu leyti upp á rannsóknarstörfum. Enhvererstaða kvenna i islensk- um nútimabókmenntum? „Lýsingarnar hafa að sjálf- sögðu breystfrá þvi á þrettándu öld, en það er spurning hvort sú breyting er til batnaðar”, segir Helga. „Ég hef stundum lýst þessu þannig að staður konunnar hafi verið færður úr eldhúsinu i rúmið. Þeir karlmenn sem skrifa um konur i dag, telja það merki um kvenfrelsisstuðning að fara frjálslega með kynferðismál i sögum sinum. Mér finnst aftur á móti vera ruglað saman kven- Helga Kress frelsi og kynfrelsi, og mjög um- deilanlegt hvort þessar lýsingar bera vitni einhverju meira frelsi konunni til handa.” Helga kvaðst mundu leggja áherslu á að kenna bókmenntir eftir konur sem hingað til hafa verið vanræktar og svo aðferða- fræði og ritgerðasmið. „Það er hneyksli hversu erfitt nemendur eiga með að tjá sig á ritmáli. Þarna hefur skólakerfið algjör- lega brugðist, sérstaklega menntaskólarnir, sem eiga að undirbúa stúdenta fyrir háskóla- nám”, segir Helga. Viðvikjum frá skólamálum og öðru kvenfólki, en einbeitum okkur að Helgu Kress. Hún er að mestu uppalin við Tjörnina, nánar tiltekiö á Frikirkjuvegi. Móðir hennar er Kristin Thorodd- sen matreiðslukennari, en faðir- inn er þýskur, Bruno Kress að nafni. Hann var fluttur héðan i fangabúðir snemma á striðsár- unum, en hefur siðan lengst af starfað sem prófessor I norræn- um málum i Greifswald I þýska Alþýðulýðveldinu. Þvi er hér með komið á framfæri, fyrir þá sem vildu rifja upp gömul kynni við hann, aö prófessorinn er einmitt i heimsókn hér á landi núna. Sambýlismaður Helgu er Böðvar Guðmundsson og börn hennar eru tvö. Tuttugu og tveggja ára gamall sonur sem les sagnfræðii'Parisog tólf ára dóttir sem dvelur við sveitastörf i Mý- vatnssveit um þessar mundir. JB sandkorn um þessar mundir. Álllnoer Hann Hjörleifur vinur vorku vera með hýrri brá þessa dagana, svo ekki sé minnst á stórvin vorn, Inga R. Helgason, fjár- málasnilling og James Bond rfkisstjórnarinnar. Þeir félagar eru drjúgir með sig þegar áisukkið ber á góma, passa sig á að segja ekki of mikið en gefa þeim mun rneira I skyn. Hins vegar fer þaö ekki milii mála, að nú skai Aifélagið Svik og Prettir h.f. snúið niður og Ragnar álskalla og co gert að skriða fyrir Hjör- leifi og M deildinni hans. Hafi svissneska ál- maskinan stolið af okkur stórfé ber aö sveifla vendinum svo undan sviði. En það er hins veg- ar hætta á, að þar verði Sæmundur Guövinsson skrifar ekki látið staðar numið, heldur verði þetta meinta svindl notað sem átylla til að hafna samstarfi og samvinnu við erlend fyr- irtæki um stóriðju hér. Takist það getum við sko farið að kaupa oliulampa og prímusa til heimiUs- nota áður en langt um lið- ur. Ingi J. Bond, eða er hann ' kannski enginn annar en sjálfur M, brosir Monu Lisu brosi og hristir ál- litað hárið. Komu ai fjöiium Þeir komu af fjöllum, borgarfulltrúarnir sem Mogginn ræddi við i gær um útitaflið I Lækjargötu, höfðu bara aldrei hugsað sér þetta svona og voru eiginlega steinhissa á þvi, að þarna ætti að koma stóreflis tafl. Þeir mundu ekki til aö hafa samþykkt slika framkvæmd. Helst var á þeim að skilja, að taflið kæmi þeim gjör- samlega á óvart. Einn var hins vegar svo boru- brattur, að hann sagði það ekkert mál að taka taflið í burtu ef menn yrðu óánægðir með það. Skitt með hundruð þús- unda sem búið er að eyða í taflið, bara moka því burt, skattgreiðendur borga. Kannski að nefndirnar og ráðin séu orðnar slikar ófreskjur I borgarkerfinu, að stjórnmálamenn sem kosnir eru af almenningi til að stjórna og taka ákvarðanir, hafi ekki hugmynd um hvaö fram fer, lesi bara i blöðum hvað eigi að framkvæma og hvar. Friðarmet . var slegið Kom múnistasamtökin virðast ekki par hrifin af „Friðargöngunni” svo- nefndu sem var gengin fyrir nokkrum vikum. t málgagni samtakanna, V erkalýðsblaðinu, er fjallað um gönguna og hefst greinin með þessum orðum: ,,t Keflavikurgöngunni (Friðargöngunni) laug- ard. 20. júni, var ekki slegið neitt met I þátt- töku, þátttökuleysi eða almennri b ará tt u- stemmningu. Hins vegar tókst að halda þar einar 9 ræður og ávörp án þess að þar kæmi fram bein gagnrýni á Sovétrikin. Það verður að teljast met.” Sandkorn telur hins vegar, að það hljóti að vera met, ef einhver hef- ur gagnrýnt Sovét, þótt ekki hafi það verið nema óbeint, I samtökum sem þessum. Allt UPP úr súru Nú er svo komið að maður verður bara að drekka kaffið svart, ekki nokkur vegur að treysta mjólkinni lengur. Það skiptir orðið engu hvað þeirstimpla þarna i sam- laginu, mjólkin er StJR. Sandkorn leggur til að gerðar verði nýjar um- búðir I stað þeirra er nú geyma svokallaða ný- mjólk. Þar sem ekki hefur verið farið út I framleiðslu á léttmjólk má selja þá mjólk sem nú á boðstólum I umbúðum merktar Léttsúrmjólk og stimpla svona fyrir mánuð i einu. Gömlu um- búðirnar mega halda sér utan um hina súrm jólkina en undanrennan fær að sjálfsögðu heitið súr- renna. Þegar þetta er komið til framkvæmda geta neytendur ekki lengur kvartað yf ir þvi að þeir kaupi köttinn I sekknum. úvænl happ Nonni niski kom heim eftir að hafa viðrað barnið. Konan horfði um stund á barnavagninn og saup siðan hveljur: „Hvað hefur þú gert máður? Þetta er ekki okkar vagn. Þú hefur tekið vitlausan vagn mcð öðru barni”. Nonni lét sér hvergi bregða en hvæsti: „Vertu ekki að þessu röfli, kelling. Sérðu ekki að þessi er nýr og á gúmmihjólum?” Laddi varö fyrir sífelldu ónæði og þá.. Með kveðju irá Ladda Nýtt hefti af Samúel barst inn á borð Sand- korns í gær og auðvitaö vorum við ekki lengi að stela einum brandara: „Laddi var að skemmta, en náungi i salnum var alltaf að kalla fram I fyrir honum, og hafa hátt. Laddi benti honum að koma til sin og sagði: Það er mér sönn ánægja að þú skulir vera meðal oss í kvöld. Leyfðu mér aö taka I hálsinn á þér.” Attu pelr ekki llelri? „Klósettrúllum og tóm- ata kastað að Thatcher forsætisráðherra við koinuna til Liverpool i gær”, sagði Dagblaðið. Hvar skyldu þeir hafa | fundið þennan tómata?

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.