Vísir - 15.07.1981, Side 9

Vísir - 15.07.1981, Side 9
Miðvikudagur 15. júli 1981 VÍSIR Enn hefur eitt stórmót hesta- manna veriðháö, Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna, sem haldið var á Rangárbökkum við Hellu. Mót þetta fór fram með miklum „bravör” að þvi er for- ustumenn þess hafa látið út ganga og sumir menn hjá press- unni hafa tekið undir það. Þvi verður ekki á móti mælt að veðrið var dágott og hin ytri hlið mótsins, sú sem að áhorfenda- skara helgarinnar snýr, var lýtalitil. Það virðist vera orðin hefð að þeir menn, sem forustu hafa á stærri mótum hér sunn- an- og suðvestanlands, setja traust sitt að verulegu leyti á veðurguðina — og guðirnir bregðast þeim ekki. Það sem á vantar i skipulagi og öðrum undirbúningi hylja umræddir guðir með bliðu sinni. Það er þó ekki ætlun min að gagnrýna þennan þátt móthaldsins, held- ur annan og, að minu mati miklu alvarlegri. Mótið á Rangárbökkum markar að minu viti timamót, timamót, sem enginn áhuga- maður um kappleiki hesta- manna getur komið sér undan „Sú barsmiö og bægslagangur, sem iðu- lega sést til sumra knapa er sagt vera barnagaman hjá því sem aðrir nota", segir Sigurjón Valdi- marsson í þessari grein um mótahald hesta- manna. Stjórn LH fær líka orð í eyra: „.... löngu vitað að þeirri stjórn er annað tamara en að fara að lögum og regium sam- bandsins, enda talið að hún geri óþarflega lítiðaf að kynna sér hvað þar stendur." að taka afstöðu til. Þar var tekin afstaða af hálfu stjórnar móts- ins til, hvort skyldi metið hærra, keppnisreglur Landssambands hestamannafélaga eða geðþótti einstakra keppenda og stjórn- enda. Geðþóttinn varð ofáná. Þverbrotnar reglur og lygilegar hvatningar Það er öllum ljóst, sem mótin hafa sótt að einhverju ráði undanfarin ár, að keppnisreglur kappreiða hafa verið þverbrotn- ar með þegjandi (?) samkomu- lagi knapa og kappreiðadóm- nefnda. „Ihaldsmenn” á ráslinu berja hestana með höndum og fótum, þegar rásmerki er gefið, og knaparnir hvetja hestana af lygilegu hugmyndaflugi og Gömul kappreiðamynd frá Viðivöllum. Ekki eru óiöglegar hvatingar af þvi tagi sem fjallað er um I greininni bornar á neinn knapanna sem hér sjást. Myndin er eingöngubirt sem skemmtileg kappreiða- mynd. hestsins utan vallar, né stöðu knapa og eigenda. „Þá verður allt vitlaust" Framkvæmdastjórn fjórð- ungsmótsins á Rangárbökkum komst að þeirri niðurstöðu að þessi maður væri óhæfur um að dæma A-flokk gæðinga, af þvi aö: „Það veröur allt vitíaust, ef hann fer að gefa 5 fyrir skeið,” eins og einn stjórnarmannanna orðaði það við undirritaðan. Jón var settur til að dæma B-flokkinn, en annar dómari settur i A-flókkinn, sem mjög haföi beðist undan aö þurfa að dæma alhliða gæöinga, á þeirri forsendu að hann taldi sig tæp- ast færan um aö meta skeið, svo vel færi. Svo mikið var I húfi, að stjórnin „keypti” dómarann siðarnefnda til að starfa I A-flokknum, meö ákveðinni til- slökun á fyrri ákvörðun. Ekki er mér kunnugt um að MR SEIH ÞEKKING OG HÆFNI VERDA LÖSTUR grimmd. Sú barsmið og bægsla- gangur, sem iðulega sést til sumra knapa, er sagt vera barnagaman hjá þvi sem aðrir nota. í þvi sambandi er talað um að sumir knapanna festi hóffjaðrir aftan i hæla stigvél- anna sinna og reki þær i siður hestanna, aðrir hafi hóffjaðrir i höndunum og berji oddinum i herðakamb eða háls hestanna meðan á sprettinum stendur. Þar fyrir utan eru smámunir, eins og að hafa ýmsa hljóðgjafa i vösunum og hindranir viö aðra keppendur, bæði meö að taka i tauma hjá þeim, stinga út oln- bogum eða höndum fram fyrir hest sem sækir á og annað eftir þvi. Kappreiðadómnefndir gera enga tilraun til að setja skorður við þessum ólöglegu og and- styggilegu hvatningum. Ég hef margoft orðiö þess var að dóm- nefndamenn snúa sér undan, til að þurfa ekki að horfa uppá augljósustu hvatningarnar. Þeir sömu menn fara að sjálf- sögðu ekki að rýna dýpra i mál- in og sjá þvi ekki ósómann i öllu sinu veldi. Dómnefndir verði ekki með neina stæla Allt mun þetta vera gert til þess að sigra og setja met. Mörg félög hafa lagt i mikinn kostnað til að gera góða velli og þau telja sér nauðsyn á að fá helstu hlaupastjörnurnar á sin mót. Forráðamenn stjarnanna setja hinsvegar upp það skilyröi fyrir þátttöku sinni að dómnefndir verði ekki með neina „stæla”, eins og það heitir á þeirra máli sem framfylgja reglum. Svo langt er gengið i þessum efnum, að undirritaður hefur orðið fyrir hótunum um afarkosti, meið- ingar og að beitt verði þrýstingi til að ég verði rekinn úr starfi, ef ég láti ekki af „árásum” á þess- ar aðfarir. Hef ég þó minna beitt mér gegn þeim en ástæður hafa gefið til. Sannast að segja hélt ég að við Islendingar þekktum ekki slikar hótanir nema af lestri glæpareyfara en svo lengi lærir sem lifir. Enginn spyr um þekkingu á keppnisreglum Dómnefndum kappreiða er nokkur vorkunn að þær skuli ekki hafa beitt sér að neinu marki gegn þessum yfirgangi kappreiðamanna. Mönnum er bara hóað saman i dómnefnd, en einskis spurt um þekkingu þeirra á keppnisgreglum. LH hefur ekki haldið námskeið fyrir kappreiðadómara og engir menn hafa hér öölast viður- kenningu samtakanna um hæfni til slíkra dómstarfa. Það þarf naumast að taka fram að I kappreiðareglum LH er kveðið á um að stjórnin skuli veita rétt- indi til dómstarfa á kappreiðum og setja reglur um veitingu þeirra. Hvorugt er gert, enda löngu vitað að þeirri stjórn er annað tamara en að fara að lög- um og reglum sambandsins, enda talið að hún geri óþarflega litið af að kynna sér hvaö þar stendur. Frekja í fyrirrúmi Nú þegar keppendur hafa náð þessum tökum á kappreiðum, sækja þeir fast að ná sömu tök- um á gæðingakeppninni. Þar hafa þeir hinsvegar mætt mót- stöðu nokkurra dómara og þá verður þeim fyrst fyrir að reyna að losa sig við þá úr dómstörf- um. Framkvæmdastjórn fjórð- ungsmótsins á Rangárbökkum tók afstöðu meö keppendum i þvi efni. Þar voru mörkuð tlma- mót, þar sem viðurkennt er að frekja og fégræðgi skuli sitja I fyrirrúmi fyrir reglum þeim sem hestamenn hafa skapað sér um keppni. Það er tilefni þessa pistils. ómerkileg gangblanda Aðdragandi þessa máls er langur, ef til vill allt aftur á landsmót 1950, þar sem dóm- nefnd gæðinga varaöi mjög ein- dregíð víð að misnota töltið sem hraðgang og átaldi harðlega keppni i hraðtölti. „....oftast er aðeins um ómerkilega gang- blöndu að ræða,” sagði Eggert Jónsson frá Nautabúi, formaður dómnefndarinnar I ræöu, „ann- að hvort af skeiði og tölti eða brokki og tölti.” Mörgum árum seinna tóku Þjóðverjar upp keppni á tölti, þar sem hraöinn vegur hvað mest. Og þrátt fyrir aðvaranir, gamlar og nýjar, tóku islenskir keppnismenn þær upp eftir Þjóðverjum. Afleiðingin er komin I ljós, I fullu samræmi viö orð Eggerts, hestarnir fara á ómerkilegri gangblöndu. Um gæðingadómara Nú krefjast sumir keppenda þess að þessi ómerkilega gang- blanda sé viðurkennd sem skeið, þegar það hentar þeim, eða tölt þegar svo ber undir. Einn þeirra manna, sem mest hafa barist gegn þvi að slikar kröfur nái fram að ganga, er Jón Guðmundsson, ættaður frá Eirlksstöðum. Hann hefur opin- berlega látiö I Ijosi þá skoðun, að skeiðtaktur hjá gæðingum skuli vera hreinn og sömuleiðis takturinn i tölti. Gangblending- urinn skuli verða til lækkunar einkunninni og jafnvel til þess að hesturinn fái lágmarkseink- unn, fyrir skeiðið, sé takturinn i blendingnum nær tölttakti en skeiðs. Jón Guðmundsson er margreyndur dómari og af flestum talinn mjög næmur fyr- ir takti, enda mikill músslk- maður. Engan hef ég heyrt bera honum hlutdrægni á brýn. Hann er hinsvegar talinn samvisku- samur dómari sem dæmir ein- göngu það sem hann sér hestinn gera meðan hann er I dómi, en ekki það sem hann veit um getu mótstjórnin hafi sett öðrum dómurum flokksins sérstök skil- yröi. Ég get hinsvegar fullyrt að þeir voru flestir eða allir lítt reyndir. Otkoma dómsins varö svo I samræmi við það sem til var stofnað. Hestar sem fóru á „ómerkilegum gangblendingi” jafnvel nær tölttakti, fengu jafn- háar einkunnir fyrir skeiö og hinir, sem fóru á fallegu skeiði. Sjórnendur og keppendur eru væntanlega ánægðir með árangurinn. Þegar kostirnir verða einskis virði Hér voru mörkuð timamót. Hér verður að staldra við og ákveða stefnuna. A að fara aö reglum LH I keppni og dóm- nefndamönnum fengin þjálfun og vald til að tryggja að öllum keppendum sé gert jafnt undir höföi. Eða á að fara fram sem horfir, að gera stærri mótin að auglýsingu fyrir hestakaup- menn, þar sem þeir fá óverð- skuldaðar einkunnir á „gæð- inga” sina, fyrir kosti sem þeir ráða ekki yfir, og þar með hærri greiðslur I vasann. Það er að- eins um þessa tvo kosti að velja. Þeim seinni fylgir að keppnis- mennirnir taka alla stjórn mót- anna I sinar hendur, eins og þeir hafa reyndar að mestu gert nú þegar. Þá veröa hreinir kostir hestsins ekki miklu lengur hafð- ir i hávegum. Þá hætta llka sómakærir hestamenn að taka þátt i leiknum. Merki þreytu þeirra og leiða eru raunar farin að sjást og heyrast. Ef til vill má þó eitthvað græða af peningum enn um sinn á slikum mótum. Ég Imynda mér að forráða- menn móta ofmeti þátttöku þeirra manna, sem setja skil- yrði fyrir komu sinni. Þeir mega sitja heima ef þeim er of- raun að keppa eftir settum regl- um. sv Jón Guðmundsson frá Eiriks- Frá kappreiöum á fjórðungsmótinu. Ekkert verður hér fullyrt um stöðum var talinn óæskilegur hvers vegna knapinn á dekkri hestinum hefur fæturna svo langt út dómari á fjórðungsmóti, vegna frá hestinum, en heldur þykir ótrúlegt að hann haldi þeim svona að of mikillar hæfni. öllum jafnaði, þegar hann hleypir hesti. Glæsir var hæst dæmdur allra alhliða gæðinga á móti Fáks og á fjórðungsmótinu. Menn deila um hvort hann hafi sýnt skeið I keppn- inni.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.