Vísir - 15.07.1981, Side 14

Vísir - 15.07.1981, Side 14
14 Miðvikudagur 15. júli 1981 vísm islanflsmol i tiugí með fjarstýrð svifflugmúdel: BAHSTI .jttsnunr Theodór Theodórsson og Benedikt Jonsson íslandsmeistarar Hvolsvöllur var mótsstaður- inn, þegar haldið var Islands- mót i flugi með fjarstýrð svif- flugmódel um næst siðustu helgi, nánar til tekið var það eiginlega Bakkavöllur á Hvols- velli, en þar slógu þátttakendur upp tjaldbúðum og þar var helmingur keppninnar, i boði Jóns Benediktssonar, en hann og fjölskylda hans ólu önn fyrir keppendum og fylgdarliði þeirra af rómaðri gestrisni. Hástart Fyrri hluti mótsins var keppni i „hástarti” á Bakkavallartún- inu, en sá hluti var laugardag- inn 4. júli. Hástart-keppnin fer þannig fram, að fjarstýrðu svif- flugmódeli er skotið á loft meö sérstakri teygju, upp i 100 metra hæð. Siðan á flugmaðurinn, sem auðvitað stendur föstum fótum á jörðinni, annars vegar að halda módelinu á lofti i' hitaupp- streymi i sem næst sex minútur og lenda þvi sem næst miðlinu á 6x30 metra braut, og hins vegar að fljúga 4x150 metra vegalengd eins hratt og hann getur og lenda siðan með sama hætti og áður. Stig eru reiknuð eftir tima og lendingu. Átta kepptu i hástartinu og luku allir keppni. Eftir tvisýna baráttu varð Theodór Theodórs- son Islandsmeistari á „Hobby Hawk” módeli með 3619 stig. Ásbjörn Björnsson kom næstur á „SB10” með 3518 stig og þriðji varð Islandsmeistarinn frá i fyrra, Einar Páll Einarsson á „Todi” með 2784 stig. Hang Daginn eftir var keppt i „hangi” i Hvolsfjalli. Þar er tak- markið að fljúga módelinu 10x150 metra braut eins hratt og mögulegt er i uppstreymi þvi, sem myndast þegar brekka neyðir vindinn upp. Farnar eru fimm umferðir og stig reiknuð fyrir hverja ferð, en stysti timi i hverri umferð gildir 1.000 stig en lakari timar siðan hlutfall af þeim. Þeir voru niu sem kepptu i hangi og enn luku allir keppni. Og eins og fyrri daginn var baráttan hörð, en svo fór að Is- landsmeistari annað árið i röð varð Benedikt Jónsson á „Sag- itta” með 3.810 stig, en hann er aðeins 17 ára gamall. Annar varð svo Theodór á „Ridge Rat” með 3.776 stig og þriðji Jón Péturssoná „Sagitta” með 3.774 stig. Bikarar Theodór hlaut til varðveislu farandbikar frá Pétri Snæland hf. fyrir sigur i hástarti, en Benedikt farandbikar frá Sport- veri/Lee Cooper fyrir sigurinn i hangi, en um þessa bikara var nú keppt i fyrsta sinn. HERR Theodór Theodórsson, tslandsmeistari i„hástarti1 setur „Hobby Hawk” í loftið, innfellda myndin er af honum með módelið. Yngsti keppandinn á mótinu, Heiðar Hinriksson, 12 ára gamall, keppti á „Favorit” i hástarti. Einar Páll Einarsson flýgur „Sagitta” módeli sinu i hang-keppninni. Innfellda myndin er af Benedikt Jónssyni, tslandsmeistara ihangi, meðsams konar módei sitt. PARIS 2335 KM V' UHDOH ht/’sh Vigdis Finnbogadóttir skrapp norður fyrir heimskautsbaug þótt Kári blési af krafti. Mynd: G.S./Akureyri. Guðmundur Kærnested, skipherra, forseta, i björgunarvestið áður en h heimsókn forsetans i Grimsey. Myi Alfreð Jónsson, oddviti Grimseyinga Guðmundsson frá Grimsey i lok kaff

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.