Vísir - 15.07.1981, Síða 27

Vísir - 15.07.1981, Síða 27
MiOvikudagur 15. jtili 1981 VISIR 27 Ævintýraheimur i Herjólfsdal. hefð vera haldið að semja sérstakt þjóðhátiðarlag. Á föstudagskvöld verður kveikt á stórum bálkesti og á laugar- dagskvöld verður mikil flugelda- sýning. Kynnirá hátiðinni verður Arni Johnsen. Það er ekki öllum ljóst að áriö 1874, þegar minnst var þdsund ára afmælis tslandsbyggöar á Þingvöllum, gekk eyjamönnum illa að komast til lands til þess að taka þátt i hátiðinni og urðu þvi að gera sér að góðu að fara hvergi. Þegar eyjamenn eru þó á annað borð biínir að ákveða að gera eitthvaö, þá þarf meira til að stööva þá.' Þetta herrans ár var fyrsta þjóðhátið Vestmannaeyja haldin og það inni i Herjólfsdal. Enn þann dag i dag, 107 árum síðar, er haldin þjóðhátiö i Herjólfsdal i Vestmannaeyjum. Guðjón Magnússon og Kristinn Sigurösson hafa borið hitann og þungann af undirbúningi hátiöar- innar, en Guðjón verður einmitt 60 ára á þessu ári, eins og félagið hans, Týr. Þeir félagar hafa séð um undirbúning fyrir marga þjóðhátfðina og þeir sögöu i sam- tali við Visi að erfitt væri að slita sig frá þessu. „Við fylgjumst með þeim sem yngri eru og ef okkur likar ekki það sem þeir gera, þá tökum við i taumana”, sögöu þeir Guðjón og Kristinn. Guðm. Þ. B. ólafsson, Vestm. Steini í Laufási yfirsmiður. Knáir kappar i starfsliði Týs. Formaður félagsins, Ágúst Bergmam lengst til vinstri. Gaui Manga, omissandi þegar vinna á fyrir þjóðhátlð. þjóðhátiðin i Eyjum 31. júli: dyrMr hádöardagana Þjóðhátið Vestmannaeyja fjórar nætur, eða stanslaust frá verðurhaldin dagana 31. jiilí 1. og 2. ágúst n.k. Það er knattspyrnu- félagið Týr sem sér um hátlðina að þessu sinni, en félagið er ein- mitt60ára á þessu ári, stofnað 1. mai 1921. Félögin Týr og Þór skiptast á að halda hátiöina annaðhvert ár. Ekki er að efa að nóg.verður um dýröirhátiðardagana, en fram til jiessa hefur þetta verið stærsta útiskemmtunin hér á landi. Þeim sem verið hafa á þjóðhátið ber saman um það, að Herjólfsdalur likist einna helst ævintýraheimi, þegar skreytinganefndin hefur lokið verki sinu og kveikt hefur verið á ljósunum. Hátiðin stendur i 3 daga og þvi að dansleikur hefst kl. 20.00 á fimmtudagskvöldi og fram á mánudagsmorgun. Hin fastmót- aða dagskráhefstþó ekki fyrr en kl. 14.00 á föstudag, með ræðu formanns Týs, Agústs Bergs- sonar. Þar á eftir kemur hátiðar- guðsþjónusta og siðan rekur hver dagskrárliður annann. Fjölmarg- ir skemmtikraftar munu koma fram, bæði heimamenn og og gestir af fastalandinu. Má þar nefna: Asa i Bæ, Ólöfu Harðar- dóttur, GarðarCortes, Lúðrasveit Vestmannaeyja, Grýlurnar, leikarana Randver Þorláksson og Sigurð Sigurjónsson, Brimkló og Bjifrgvin, Erling Agústsson, Ariu, Fóstbraaður, Sigga Reim, Hauk Mortens, Hjálmtý Hjálmtýsson og frú. BrúðuleildiUsið, Sigga á Eiðum Grím Þorðar, iþrótta- garpana Sigurð T. Sigurðsson og Valbjörn Þorláksson, Kirkjukór- inn, Tóta trUð, auk fjölmargra annarra. Siðast ai ekki sist mun heimsfrægur skemmtikraftur að nafni Jack Elton, sem er það til lista lagt að þykja með eindæm- um likur rokksöngvaranum sál- uga Elvis Presley, syngja. U ndirbUningur hófst um siðustu áramót og verður allt gert til þess að þeim þUsundum sem mæta á þjóðhátfð i' Eyjum um verslunar- mannahelgina líði þar sem best. CJt verður gefið sérstakleg-a vandað þjóðhátiðarblað, eins og ávallt, og svo mun einnig þeirri Réttur ttt að selja svikna vðru Það telst til góðra viðskipta- hátta að skýra frá þvi á umbúð- um, hvenær vöru sé pakkað. t samræmi við það, lætur Mjólk- ursamsalan þess einungis getið hvenær hún telur slðast forsvar- anlegt að selja mjólkina. Und- anfarna daga hefur veriö skýrt frá þvi, að mjög mikiö af súrri mjólk og fúlri sé til sölu, og mjólkin jafnvel óhæf til neyslu, áöur en „siöasti söludagur” rennur upp. t viðtölum við forstöðumann Heilbrigðiseftirlitsins hefur komið fram, að þær reglur, sem Mjólkursamsalan fer eftir um siðasta söludag, helgast ekki af geymsluþoli m jólkurinnar, heldur vinnutima samsölunnar og fridögum. Þannig er siöasti söludagur lengri fyrir stórhátið- ir en á virkum dögum, þótt að engin rök hnigi aö þvi, að mjólk súrni siöur um helgar eöa jól. Allar tilraunir til þess aö fá Mjólkursamsöluna til að breyta um viðskiptaháttu og merkja vörur sínar að heiðvirðra kaup- manna hætti hafa reynst árang- urslausar. Þetta rifjar upp, að fyrir mörgum árum síðan gátu menn keypt ýmsar smjörtegundir I búðum. Natni Norðanmanna og vandvirkni varð til þess að al- menningur keypti KEAsmjör, ef það fékkst, en sist af öllu Flóasmjör, enda var það jafn- blautt og Flóinn. Þá var gripið tii þess ráðs að blanda saman öllu smjöri á iandinu, góðu smjöri og vondu smjöri. Það var kallað gæðasmjör og er eina löggiita svikna varan á tslandi. Þegar kvartað er undan ónóg- um kaupmannsanda I viðskipt- um Mjólkursamsölunnar og margra annarra kaupfélagsfyr- irtækja, er vanalega svaraö með skætingi, svo ekki sé minnst á þau ósköp I orðaforða, sem dynja á þeim, sem óska eft- ir þvl að mega kaupa kartöflur á frjálsum markaði. Þannig hef- ur það verið mörg undanfarin ár, að Norölendingar sitja uppi meö mjög góðar kartöflur úr Eyjafirði, sem ekki fást settar á markaö I Reykjavik, fyrr en seld er hver einasta kartafla, skemmd eða ný, sem kemur frá kartöflubændum syðra. Tapa á þessu góðir bændur bæði norðan lands og sunnan. Nú hafa Norðlendingar snúið á Grænmetissöluna með þvl að setja upp kartöfluverksmiöju , sem býr til franskar kartöflur. Sllkt fellur utan við framleiðslu- lögin og hafa þvi verksmiðju- menn góðan hagnað. Góðum bændum gremst vit- anlega, að sölusamtök bænda telji óþarfa að gefa viöskipta- vinum sinum upplýsingar um vörur þær, sem eru á boðstól- um. En talsmenn bænda eru ann- arar skoöunar: Agnar Guðnason, blaöafull- trúi bændasamtakanna, skrifaði grein I Dagblaðiö I slðustu viku,. 1 greininni segir Agnar frá þvl, að hann hafi átt bfl af árgerð 1975. Hann seldi bllinn konu einni, og var sagt I afsalinu, að bfllinn væri árgerð 1976. Þegar konuveslingurinn ætlar aö selja bflinn aftur, kemur I Ijós, að Agnar hafði sagt rangt til um árgerð, og þvi fengið hærra verð fyrir bllinn en markaösverö. Agnar skrifar grein sina af þessu tilefni, og þykir sárt að mega ekki halda sinu búvöru- veröi á bilnum. Hann telur llk- legt, að konan hafi einu sinni keyrt á sig og ekki borgaö bæt- ur. Rekur hann svo söguna og endar á þvl, að hann gerir dóm- sátt um að greiöa skaðabætur fyrir rangar upplýsingar. Grein sinni likur hann hins vegar með þvi, að vara menn við bfla- bröskurum! Svarthöfði

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.