Vísir - 25.08.1981, Side 14

Vísir - 25.08.1981, Side 14
Búðir rannsðknarleiðangursins i Hvannalindum heimsðttar VÍSIR Þriðjudagur 25. ágúst 1981 Þriöjudagur 25. ágúst 1981 vísm „Allt í sómanum” „Jú, þvi er ckki aö neita, aö viö erum i vandræöum.” Fararstjóriþrjátiu manna hópsins var ekki mjög upplitsdjarfur þar sem hann sat viö vegarkantinn skimandi eftir vatni. „Þetta er I þriöja sinn, sem ég kem hingaö til lands, sem leiöangursstjóri hjá British School og meira aö segja hef ég gengiö þvert yfir Vatnajökul I einni feröanna.” Brian Needham ieiöangursstjóri ræöir viö blaöamann ég gengiö þvert y Visis i Hvannalindum. seglr leióangursstjórinn Á annað hundrað manns hafa að undanförnu dvalið i Hvannalindum við ýmis rannsóknarstörf, eins og kunnugt er af fréttum. Hópurinn sem telur um 130 manns, er hér á vegum British School Exploring Society, sem hefur um 50 ára skeið skipulagt ferðir á borð við þessa, sem i senn eru ævintýra- og visindaferðir. Er ísiandsferðin nú sú ellefta i röðinni á vegum félagsins hingað til lands. Hópurinn komst fyrst i fréttirn- ar, þegar hann hafði tjaldað i óleyfi á friðlýstu svæði i Hvanna- lindum og valdið þar náttúru- spjöllum og siðan fyrir að ætla i gönguferð eina mikla yfir þveran Vatnajökul. Þá hefur hópurinn veriö gagnrýndur fyrir að brjóta reglur er gilda um ferðir svona hópa, svo og fyrir slælegan útbún- aö. Visismenn fóru i Hvannalindir til aö kynnast málinu af eigin raun. Við hittum leiðangursstjór- ann Brian Needham að máli, svo og einn flokkinn þar sem hann ráfaði stjórnlaust um óbyggðirn- ar hrópandi á vatn! „Fararstjórarnir kunnir ferðamenn.” Needham var einn i tjaldbúðun- um, þegar okkur bar að garði og við spuröum fyrst, hvert væri markmiðið með feröinni. „Þetta er rannsóknarferð,” sagði Needham, „Viö förum eftir ákveðnu prógrammi og skiptum okkur i flokka, sumir rannsaka veðurfar, uðrir jaröfræðina og enn aðrir flóruna og svo framveg- is.” — Hefur þessi ferð verið lengi i undirbúningi? „Já, ég kom hingað i ágúst i fyrra og kynnti mér aðstæður hér i Hvannalindum. Ég kom siðan aftur i mars og átti þá tal við for- manh Náttúruverndarráðs og fleiri. Þannig að ferðin er i alla staði mjög vel undirbúin. Fyrir utan að fararstjórarnir eru allir kunnir ferðamenn og visinda- menn frá breskum háskólum, þannig að þar er allt i sómanum.” ,,Ósanngjörn gagnrýni”. Eruð þið nógu vel að ykkur um Island? Þið hafið verið gagnrýnd- ir fyrir vanþekkingu, til dæmis kom fram i umsókn ykkar til Rannsóknarráðs, að þið hefðuð hug á að rannsaka burknategund- ir i öskju, sem aldrei hafa vaxið þar. Hvað viltu segja um þetta? „Þetta er mjög óréttlát gagn- rýni. Þegar maður sækir um svona leyfi, er það um leið ráð- gjöf. Ég veit aö Askja er dauð gróðurlega séð, en á ferð minni þar um i fyrra, varö ég var við nokkrarplöntur.sem mig langaði til að rannsaka frekar og þess vegna setti ég þetta i umsóknina. Ég fékk engar athugasemdir varðandi þetta atriði frá Rann- sóknarráði og veit ekki betur en þeir hafi verið ánægðir með um- sóknina, enda hef ég gert mér far um að fara að öllu að vilja þeirra. Ogþettaaðviðséum illa að okkur um Island, er tóm vitleysa. Ég þori að fullyrða, að ég og minir menn vita miklu meira um landið en margur Islendingurinn, sem aldrei hefur séð Island, nema út um bilrúöur.” —Þið hafið verið gagnrýndir fyrir lélegan útbúnað. Hvert er þitt álit á þvi? „Svona nokkuð segir aðeins sá, sem ekki veit. Ég og minir farar- stjórar hafa verið á hættulegri stöðum en finnast á Islandi. Við höfum verið á Spitzbergen Græn- landi, ölpunum og svo framvegis með alveg þennan sama útbúnað og allt hefur gengið að óskum. Mitt fólk er vel úbúið, auðvitað er alltaf hægt að vera með betri út- búnað. Aðalatriðið er bara að út- búnaðurinn sé nægilegur og okkar er það. Ég hef séð Islendinga á ferð um hálendið mjög illa útbúna og mitt fólk stendur þvi langtum framar.” — En nú ætluðuð þiö i Vatna- jökulsgönguferðina með venjuleg tjöld en ekki jöklatjöld. Er ekki óðs manns æði, að fara með 42 unglinga i ferð með svona útbún- að? „Þessi tjöld eru fullboðleg og valin sérstaklega i þessa ferð. 1978 fór ég i svipaða ferð yfir Vatnajökul og það gekk mjög vel. Fyrir utan það, að við höfum not- að svona tjöld i 20 þúsund feta hæð á Everest og allt i góðu lagi. Svo þetta með tjöldin, er bara móðursýki.” — Hópur frá þér lenti i vandræðum i öskju og var til dæmis matarlaus i einhvern tima, hvernig stóð á þvi? „Astæöan var sú, að bill, sem þau voru á, islenskur bill, bilaði i Herðubreiðarlindum á leiö i öskju. Þau fengu far með öðrum bil inneftir, en þar sem litið pláss var i bilnum og mikill flýtir á hópnum gátu þau ekki tekið allt með sér þau tóku tæki, en gleymdu matnum. Þessu var svo bjargað, þannig að annar okkar bila fór inneftir með mat.” ,,Af þvi að við erum gestir hér...” —Nú kom hingað i Hvannlind- ir sýslumaður Norður-Múlasýslu við f jórða mann á þriðjudag til að reyna að koma i veg fyrir ferðina á Vatnajökul. Hvert er þitt álit á þvi? „Ég er auðvitað mjög þakklát- ur fyrir væntumþykjuna, en það var langt frá þvi, að mál þeirra væri sannfærandi. Þaö var erfið ákvörðun að hætta viö feröma, sem hafði verið ár i undirbúningi, en við erum gcstir hér og ég vildi ekki valda neinum vandræöum, þess vegna hætti ég við þetta. Við erum gjörkunnugir Vatnajökli og jöklaferðum, en ég hætti við ferð- ina til að vera stór og sýna sam- vinnu við Islendinga.” — Nú hafðir þú verið beðinn um að hafa samband við Slysa- varnarfélagið og eins félagi þinn Rayward, sem hingað kom til þess eins að fara þessa ferð, en þið gerðuð það ekki. Var það vegna þess, að þið hafið þá reynslu af Islandsferðunum, aö slikt sé óþarfi? „Ég skal segja þér, að ég er skólastjóri í Bretlandi og hef það orð á mér þar, að vera varkár og öruggur i öllu sem ég tek mér fyrir hendur. í þessu tilviki, þá spiluðu tungumálaerfiðleikar inni og ekkert annað, aftur á móti hafði ég samband við sendiráðið og fékk minar upplýsingar þar.” „Vörðurinn var ekki til staðar.” — Þú segir, að þið hafið að öllu farið að vilja Rannsóknarráðs og annarra aðila er þið hafið átt „llla skipulagt” segir einn pátttakenda Séð yfir hluta tjaldbúöanna i Hvannalindum. samskipti við hérlendis. Hvers vegna tjölduðið þið þá á friðlýstu svæði hér i Hvannalindum? „Þetta stafar af misskilningi. Þegar ég talaði við Náttúru- verndarráð i april i vor, var mér sagt að tala viö landvörðinn hér varðandi tjaldstæði. Hann var ekki til staðar, þegar við komum, en um leið og hann kom þá færð- um við tjöldin.” — Nú olluð þið töluverðum spjöllum á friðlýsta svæðinu. Hafið þið lagað til eftir ykkur þar? „Ekki alveg enda eigum við eftir að vera hér nokkra daga enn. Annars er umgengnin eftir minn hóp mun betri en ég hef orð- ið var við hjá Islendingum sjálf- um, en auðvitað getur umgengnin ekki verið fullkomin, þegar um svo stóran hóp er að ræða,” sagði Brian Needham. ,,Þú hefur ekki við neinn annan að tala.” Þegar hér var komið sögu, var Needham spurður, hvort hann gæti gefið einhverjar upplýsingar um hópana, svo við gætum spjall- að við einhverja þátttakendur. „Þú hefurekki við neinn annan að tala varðandi þetta mál nema mig. Auk þess eru hóparnir á fjöllum og mér sýnist þið ekki bú- in til fjallgöngu.” Svo mörg voru þau orð. ,,Vatn, vatn, vatn...” Við ókum nú frá Hvannalindum og er við höfðum farið um tveggja klukkustunda leið og ekiö yfir fjölda lækjarspræna, sáum við skyndilega mann á veginum. Hann sat við vegarkantinn og var að gera við primus einn, harla óásjálegan. Þegar hann varð okk- ar var, stóð hann upp með vega- kort i hendinni og stöðvaði okkur. „Hvar finn ég vatn?” spurði hann. „Vatn?” sögðum við, „er ekki vatn hér alls staðar?” „Við höfum nú verið vatnslaus i tvo daga,” sagði hann, ,,og það kem- ur sér dálitið illa, þvi matur okk- ar er allur þurrkaður og þvi höf- um við verið matarlaus i tvo daga. En við vorum nú að finna poll hérna rétt áðan svo við gát- um eldað. Annars erum við á leið- inni gangandi að Mývatni og get- ur þú sagt mér, hvar við getum tjaldaðá þeirri leið, svo við kom- umst i vatn?” Við ræddum nú nánar við manninn. Kom uppúr kafinu, að hann var fararstjóri 30 manna hóps úr leiðangri British School. Þeir höfðu lagt af stað úr Hvannalindum fyrir tveimur dög- um áleiðis til Mývatns. —■ Eruð þið i einhverjum vandræöum? spurðum við. „Já, ekki er þvi að neita,” sagði hann. „Tveirúr hópnum eru veik- ir og ekki hefur það bætt úr þetta matarleysi.” — Hefur þú komið áður til Is- lands? Heldur voru þau þreytuleg, þar sem þau örkuðu áleiöis til Mývatns, og tugir kilómetra framundan á tveimur jafnfljótum. Tjaldið fremst á myndinni er eins og þau er átti að fara meö á Vatnajökul, þar við hliöina er aðsetur Bri- ans Needham, leiðangursstjóra. „Nei.” — Ertu einn með hópinn? „Við erum þrir.” — Og enginn komið til íslands áður? „Nei”. —- Höfðuð þið ekki skipulagt næturstaði, áðuren lagt var upp? „Nei,” sagði fararstjórinn, og nú var eins og hann grunaði okkur um græsku og vildi litiö tjá sig meira. ,,IUa skipulagt og stjórnlaust.” Nú sáum við hvar hópur ferða- manna kom i ljós undan barði einu skammt i'rá. Unglingarnir voru þreytulegir að sjá og virtust margir hverjir að niðurlotum komnir. Við tókum nokkra þeirra tali og voru allir á einu máli um að þetta hefði verið mjög erfitt, en þó spennandi. Islensk stúlka var með þessum hópi, menntaskólanemi úr Reykjavik, Heiður Björnsdóttir, en henni hafði verið boöin þátt- taka i rannsóknarleiðangrinum, ásamt pilti einnig islenskum og var hann á ferðalagi með enn öðr- um hópi. „Ég held ég verði að segja, að þetta hefur verið illa skipulagt frá upphafi og stjórnendurnir virðast litið vita, hvað þeir eru að gera,” sagði Heiður aðspurð. „Þeir vita þetta sjálfir, held ég, en eru of stóltir til að snúa við úr þvi sem komið er. Þetta hefur samt verið mjög skemmtilegt og það sem hefur bjargað okkur er fádæma gott veður,” sagði hún. — En hvað með útbúnaöinn? „Hann hefur verið alveg sæmi- legur, annars hefur litið reynt á hann, þvi veðrið hefur verið svo gott.” — Vissi fólkið, heldurðu, hvað það var að fara út i? „Fólkið litur á þetta sem ævin- týri, það bjóst við einhverju, en vissi ekki hverju og virtist ekki hafa hugmyndum, hvaða aðstæð- ur eru hér uppi á hálendinu. Annars eru allir orðnir alveg úr- vinda af þreytu og ég til dæmis ætla að þrauka i Mývatnssveit- ina, en þangað ætla ég að láta sækjamig”,sagöiHeiðurog bætti við: „Heyrðu getið þið ekki tekið þessaveiku uppá Egilsstaði? Nei, annars það þýðir ekki, þeir eru örugglega of stoltir til að biðja Islendinga um hjálp.” Og nú var hópurinn farinn af stað, svo Heiður varð að þjóta, en heldur voru þau þreytuleg að sjá. —KÞ Mörg tjaldanna í tjaldbúöunum voru lokuð með venjulegum þvottaklemm- um. Myndir Gunnar V. Andrésson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.