Vísir - 25.08.1981, Page 16

Vísir - 25.08.1981, Page 16
16 Þriðjudagur 25. ágúst 1981 VÍSIR Beltanuddtækin vinsælu frá V-Þýskalandi eru nú aftur fáanleg, tvær gerðir mMÆMXTpuaf Getum ávallt útvegað með stuttum fyrirvara hina þekktu ,/Nordic Solarium" Ijósalækn- ingalampa. Viðurkenndir af Geisla- vörnum ríkisins. v\ JEBRONsf. Vesturgötu I7a — Simi 17830. ÆSKAN er 56 síður. Nýir áskrif endur f á einn eldri árgang í kaupbæti. Það borgar sig að gerast áskrifandi. Afgreiðsla: Laugavegi 56, sími 11336. Stimplagerð Félagsprentsmiöjunnar hf. Spítalastíg 10 — Sími 11640 Bréfavlnur með fjðlbreytf áhugamál Bréf frá Bandarikjun- um Ég er þrjátiu og sex ára gam- all vélatæknifræðingur og bý i Bandarikjunum. Ég hef áhuga á að skrifast á við Islending. Ég er rómversk kaþólskur og tala aðeins ensku. Áhugamál min eru meðal annarra ljós- fræði, laserfræði, Visindi, ís- land, véltæknifræði, fæða úr sjónum, vindorka, sólarorka og notkun jarðhita. Kona min, Dorothy, er einka- ritari og hefur áhuga á mat- reiðslu (hefur skrifað mat- reiðslubók), köttum, antik, garðrækt, blómum, léttum hús- gögnum, dúkkuhúsum og gluggatjöldum. Eg hlakka til að fá tækifæri til að skrifast á við Islending, karl eða konu. Með fyrirfram þakklæti, Jim Roman. Jim sendi okkur á Visi þetta bréf og við látum það hér með frá okkur fara i lauslegri þýð- ingu, til þeirra, sem kunna að hafa áhuga. Fullt nafn og heimilisfang er : James Roman, One Chalden Court, Huntington Station, New York, C.S.A. 11746 Bjöggi og Bubbi. Skallapopp og Gúanórokk. Er annaöhvort eða bæöi tiskustefnur? Hvopf er hetta Gúanð- rokk eða Skaliapopp? Sigrún skrifar: „Future”rokkunnandi talaði um að bréfið frá Bigga skalla- poppara séaumt, en hvað kallar hann þá sitt? Og skýringin á skallapoppi og gúanórokki. Ég ætla ekki að efast um hana né koma með einhverja aðra skýr- ingu, en að leyfa sér að kalla fólk óvita sem ekki gerir greinarmun á þessu. Ég heyri að visu þó nokkurn mun á þessu en ég ætla ekki að koma með mina kenningu, leyfa fólkinu að hafa sina og ekki að gefa skit i hað sem þvi finnst. Af þvi að lesa bréfið kemst maður ekki hjá þvi að sjá að hann vill ekkert með Brimkló hafa. Hvers vegna er hann að skaprauna sjálfum sér með þvi að vera að hlusta þá? Það eru kannski einhverjir sem hafa gaman af þvi að hlusta á Brim- kló. Mér sjálfri finnst sum lög hjá Bubba og Co ágæt og sömu- leiðis sum lög Brimlóar, þess vegna get ég ekki gert litið úr hvorugri hljómsveitinni. Þó verð ég að segja.aö sum lög hjá Bubba eru að mestu leyti bara öskur. Með þessu bréfi er ekki meiningin að skita neinn út og ég vona að ég hafi ekki gert það. Og ég vona að þessir „gúanó- rokkarar sjái að það er ekkert betra eða gáfulegra að vera gúanórokkari, skalla- poppararnir standa þeim alveg jafnfætis. Sjáum svo til hvað þessir menn segja þegar það verður ekki lengur i tisku að vera gúanórokkari. Hvers vegna eru sum gjaid- brot leyndarmái? „Áhugamaður um gjaldþrot” skrifar: „Fyrir augum borgaranna fara gjaldþrotaskipti lram á siðum þess ágæta blaös, Lög- birtingablaðsins. Og þvi miöur verða ýmis fyrirtæki og ýmsir einstaklingar gjaldþrota. En upplýsingar Lögbirtingablaös- ins, tilkynningar skiptaráðenda, eru tvenns konar, þegar búin hafa veriö gerö upp. Annars vegar er þetta tilkynnt með töl- um um kröfuupphæöir og hve mikið hafi greiðst upp i þær, ef eitthvað, en hins vegar er þess einfaldlega getið aö skiptum sé lokið. Hvers vegna eru ekki alltaf birtar tölur? Gjaldþrot er alvörumál fyrir hvern þann, sem i þvi lendir, en einnig fyrir þá sem starfa i við- skiptalifinu og ýmsa fleiri. Haldgóðar upplýsingar eru þvi Skipla- ráðandi svarar bráðum Lesendasiðan hafði samband við Ragnar H. Hall, skiptaráð- anda við Borgarfógetaembættið og bað hann um upplýsingarn- ar, sem bréfritari óskar eftir. Hann var fús til að svara fyrir- spurninni og sagðist mundu senda skriflegt svar, fljótlega. mörgum mikilvægar. Fyrst Lögbirtingablaðið er vettvang- ur upplýsinga um þessi mál, hvers vegna eru þær þá ekki samræmdar, spyr ég aftur.” Lögbirtingablað Gcfið úl samkvæmt lögum nr. (>4 16. des. 1943 skrif«tofa buBsiiw tt á Uiintil 11«. 2. h»«. •Iml 25001. Arr- ko«Ur «8 krá*ar. FERLEGUR DONASKAPUR E.J. hringdi og kvart- aði sáran undan dóna- skap hjá starfsmanni J:L-hússins. Hún sagði að allan daginn á fimmtudaginn var hefðu glumið auglýsingar frá JL-húsinu um friar kartöflur. Hún fór sið- degis, en þá var allt búið. Hún sagðist hafa tekið þvi sem hverju öðru hundsbiti en þegar hún heyröi auglýsinguna lesna enn einu sinni i útvarpinu eftir þetta, hringdi hún og spurði hvort meira hefði kornið. „Djöfuls græðgi er þetta,” var svariö sem hún fékk og að fólk hefði rifiö meö sér 6-8 poka hver og allar kartöflurnar væru löngu búnar. Þá spurði E.J. hvers vegna ' veriö væri að auglýsa enn, löngu eftir aö allt væri búið. Hún fékk svarið: „Það kemur þér ekkert við.” „Mérfinnst þetta svo ferlegur dónaskapur,” sagði E.J. „að mér finnst þetta verði að koma fram.” Gerði einhver starfsmanna sig sekan um dónaskap? „Trúi þvi ekki,” segir verslunarstjórinn. „Tpúi pvl ekkl nokkur hér. seglr verslunarstjórinn „A þessari stundu get ég ekki sagt um hvort einhver starfs- manna hér hefur viðhaft þessi orð,” sagði Björgvin Magnús- son verslunarstjóri i matvöru- markaði JL-hússins, þegar les- endasiðan bar kvörtun E.J. upp við hann. „Ég verð að kanna það hér, hvort svo er. Það er auðvitað með öllu óverjandi og fyrir neðan allt velsæmi, af starfsmanni að segja svona nokkuð, ef satt reynist, en ég trúi ekki að nokkur af okkar starfsmönnum hafi sagt þetta,” sagði Björgvin.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.