Vísir - 04.09.1981, Page 3
3
Föstudagur 4. september 1981
Ttilluúlgerð á
Sigdldulóninul
„Við gerum okkur vonir um að þessar miklu
rannsóknir i fyrrasumar og i sumar leiði til þess að
þétting lónsins verði markvissari og beri meiri
árangur”, sagði Björn Jóhann Björnsson verkfræð-
ingur, sem af hálfu Landsvirkjunar hefur umsjón
með þéttingu hins migleka Sigöldulóns ofan Sig-
ölduvirkjunar. Þar leka að jafnaði 14 og allt upp i 20
rúmmetrar undir stifluna, sem er um helmingi
meira en gert var ráð fyrir á sinum tima.
Þessimiklileki,sem er álika og
Elliöaárnar streymi sjöfaldar að
sumarlagi, hefur valdið vatns-
skorti i Sigölduvirkjun að vetrin-
um, og þess vegna er mikið kapp
lagt á að draga sem mest úr hon-
um.
Svissneskir sérfræðingar hafa
stjórnað lekaleitinni, sem fer
þannig fram i aðalatriðum, að
sérstök trilla er notuð við að dæla
litarefni og geislaefni niður á botn
lónsins, en siðan er beðið eftir þvi
neöan stiflu, að efnin skili sér.
önnur trilla er notuð til þess að
setja út liklegustu lekastaðina i
samræmi við þessar athuganir,
svo og til þess að mæla strauma i
lóninu jöfnum höndum. Rann-
sóknarfólkið á trillunni, þaðan
sem efnunum er sökkt, verður að
búa allt sumarið niður við Hraun-
eyjafossvirkjun og má ekki hitta
þá, sem standa i eftirleiknum!
Eins má ekki nota trilluna þess i
neitt annað, svo að hún er hreyfð
aðeins tvisvar eða þrisvar i viku.
Nú er búið að mæla og merkja
út allmörg svæði, sem þykja lik-
legustu lekastaðirnir i lóninu. Bú-
iö er að gera bryggju og setja á
flot pramma frá Hafnarmála-
stofnun.sem nú flytur sprengt og
rippað móberg yfir þessa „álit-
legu” staði og hellir i rifurnar,
sem vonað er að séu þar. Að sögn
Björns Jóhanns er ómögulegt að
segja til um, hve langan tima tek-
ur að þétta Sigöldulónið. En þvi
lýkur tæpast i bráð.
HERB
Flytur ut tðlf
mllljðn flðskur
af úrykkjarvatni
- Hreinn Sígurðsson hefur gerl samning vlð bandarískt
fyrirtæki um sölu á íslensku vafni
Hreinn Sigurðsson
framkvæmdastjóri á
Sauðárkróki hefur gert
samning við banda-
riskt fyrirtæki um sölu
á 12 milljónum flaskna
af drykkjarvatni á ári.
Vatnið verður sett á
flöskur i verksmiðju,
sem mun verða reist á
Sauðárkróki. Reiknað
er með að útflutningur
geti hafist þegar i april
á næsta ári.
Hreinn sagöi i samtali við Visi
að hann gæti ekki upplýst um
verðmæti þessa samnings en
óhættværiaðsegja að þaufæru
yfir einn milljarð gamalla
króna.
Framkvæmdir viö grunn
verksmiöjuhússins hófust i
þessari viku en það verður
hvorki meira né minna en fjög-
ur þúsund fermetrar að stærð.
Vatninu verður tappaö á eins og
hálfs litra plastflöskur sem
veröa framleiddar hjá fyrirtæk-
inu sjálfu vegna ákvæða um
hreinlæti. Vélar til átöppunar og
flöskugerðar verða keyptar frá
Frakklandi.
Hér er á feröinni ný Utflutn-
ingsgrein og brautryðjendastarf
sem gæti skilað þjööarbúinu
drjúgum tekjum. Þegar fram-
leiðslan kemst i fullan gang er
gert ráö fyrir þvi aö um 30
manns vinni hjá fyrirtækinu.
Afköst þess veröa um 50 þúsund
flöskur á dag miðað viö 8 tima
vinnu.
Vatniö er fengiö hjá Vatns-
veitu Sauðárkróks og hefur það
hlotiö viöurkenningu hjá banda-
riskum heilbrigöisyfirvöldum.
Drykkjarvatniö verður selt I
New York og New Jersey þann-
ig að landinn ætti að geta fengiö
sér islenskt blávatn á feröalagi
vestra.
—KS
Heimilisfang
Dreginn
Byggðarlag
Sími Nafnnúmer
Hvað heitir forsætisráðherrann
í Japan?
□ Mitsubishi
□ Datsun
□ Zuzuki
• Þegar þú telur þig vita rétta svarið krossar þú í viðeigandi
reit.
• Ef þú ert ekki þegar áskrifandi að Visi, þá krossar þú i reitinn
til hægri hér að neðan, annars í hinn.
• Að þessu loknu sendir þú getraunaseðilinn til Vísis, Síðumúla
8, 105 Reykjavik merktan „Sumargetraun"
• Annar vinningurinn Peugeot 104 Gl (verðmæti 80.000 kr.)
var dreginn út 24. júli.
• Seinni vinningurinn Datsun Cherry GL
(verðmæti um kr. 84.000.-)
verður dreginn útá miðvikudaginn—9. september
• Hver áskrifandi getur aðeins sent inn einn Datsun-seðil
• Verðmæti vinninganna er samtals 164.000 kr.
• Allir áskrifendur geta tekið þátt í getrauninni.
Einnig þeir, sem verða áskrifendur á síðustu stundu.
• Þátttaka byggist á þvíað senda inn einn seðil fyrir Datsun-linn
• ATH: þetta er síðasta birting á Datsun-seðli.
Mundu að senda seðilinn strax. Annars getur það gleymst.
I Ég er þegar
' áskrifandi
að Visi
Ég óska að gerast
áskrifandi
að Vísi
Nafn