Vísir - 04.09.1981, Blaðsíða 7
Föstudagur 4. september 1981
VÍSIR
„Eg vissl
varð að s
- sagði Ottó Guðmundsson sem tærði KR tvð
stig með marki úr vítaspyrnu
Það'logarenn ljöstýra il. deild-
inni hjá Vesturbæjariiðinu KR
eftir óvæntan sigur yfir Akurnes-
ingum I gærkvöldi. Slagurinn
stendur áfram á milliKR og Þórs
og úrslitin ráðast um aðra helgi
þegar KR mætir Vikingi, og Þór
fær Val I heimsókn til Akureyrar.
Það verða síðustu leikir liðanna i
1. deildinni iár — og aðeins annað
þeirra mætir þar til ieiks næsta
sumar.
KR-ingar voru vægast sagt
ljónheppnir aö ná báðum stigun-
um i leiknum i gærkvöldi.
Skagamenn réðu lögum og lofum
i siðari hálfleiknum og óðu i
marktækif ærum, en frábær
markvarsla Stefáns Jóhannsson-
ar og óheppni og klaufaskapur
Skagamanna komuíveg fyrir, að
þeir gætu skorað mirg mörk.
1 fyrri hálfleik var jafnræði
með liðunum. Þá skoraði KR gott
mark og sá Helgi Þorbjörnsson
um aö gera þaö á 20. mínútu
leiksins. Bæöi liðin áttu góð
marktækifæri eftir það — Skaga-
menn það besta á 30. min. þegar
Sigurður Lárusson var á mark-
teig, en Stefán varði þá meistara-
lega i horn.
í siðari hálfleik byrjuðu Skaga-
menn með látum og Stefán hafði
nóg aö gera i markinu. Stöngin
bjargaöi honum þó einu sinni —
og linuvörðurinn í annað skiptið,
en þá skoraði Guðbjörn Tryggva-
son gott mark með skalla. En
Arni Sveinsson var þá heldur of
fljótur á sér og var rangstæður,
Magnús átti
að vera heið-
ursgestur
Magnds Jónatansson, fyrrum
þjálfari KR i knattspyrnu, og
núverandi þjálfari tsafjarðar-
liðsins, áttiað vera heiöursgest-
ur KR á leiknum viö Skaga-
menn i gærkvöldi.
Magniís afþakkaöi þaö boö
kurteislega — og bar viö önnum
viö æfingar. Hann var aftur á
móti mættur á völlinn og fylgd-
ist vel meö sinum gömlu nem-
endum, en Magnúsi var eins og
kunnugt er„sagt upp störfum”
hjá KR á miöju keppnistimabil-
inu I fyrra. —klp —
svo að markið var dæmt af.
Þegar 12 mlnútur voru eftir af
leiknum jöfnuðu loks Skagamenn.
Kristján Olgeirsson var þá á auö-
um sjó eftir góöa sendingu frá
Júliusi P. Ingólfssyni og hann
skoraði með þrumuskot.
KR-ingar komu með eitt og eitt
snöggt upphlaup og I einu þeirra
komst Óskar Ingimundarson einn
upp aðmarki. Bjarni markvörður
náði að stöðva hann rétt fyrir ut-
an teig með góðu úthlaupi, og
sluppu Skagamenn þar vel. Þaö
gerðu þeir aftur á móti ekki þegar
rétt um 3 mínútur voru eftir af
leiknum. Þákomst óskaralla leið
inn f teiginn en var felkiur þar af
Guðjdni Þórðarsyni.
Vilhjálmur Þór dómari dæmdi
umsvifalaust vitaspyrnu sem
Ottó Guðmundsson skoraöi’ör-
ugglega úr. ,,Ég vissi aö ég varð
að skora, þvi aö við þurftum þessi
2 stig nauðsynlega og ég hugsaöi
ekki um neitt annað”, sagði Ottó
á eftir.
Skiptar skoðanir voru um rétt-
mæti vitisins á áhorfendapöllun-
um. „Óskarsagöisjálfur.að Guö-
jón hefði rennt sér i sig en ekki I
boltann. Guðjón sagöi aftur á
móti, að Óskar hefði dottið um
sjálfan sig og Ö6krað um leiö, og
-dómarinn þvi dæmt viti!!”
Siðustu 2 minúturnar var allt á
suðupunkti og gul spjöld og rauð á
lofti bæði utan vallar og innan.
Mátti ekki á milli sjá hverjir
voru taugastrekktastir, — KR--
ingarnir, Skagmenn eða dómar
.
Boltinn I netinu hjá KR. Þeir GIsii Glslason og Stefán Jó-
hannsson horfa á eftir boltanum I hliðarnetiö eftir þrumu-
skot Kristjáns Olgeirssonar f leiknum I gærkvöldi. mynd Friöþjófur.
inn. En KR-ingarnir héldu út
þessar 2 minútur og dýrmæt stig-
in voru þeirra. Tapiö var sárt
fyrirSkagamenn, þvi aö þeir voru
betri aðilinn i leiknum, en það
hafa þeir reyndar oft veriö áöur I
sumar.og fengið sömuútkomuog
nú. — klp —
..Kl R-ingar \ M 1
me ð ólðgles it ð
- og við ætlum að kæra lelklnn” sögðu forráðamenn ífl eftlr lelklnn
I gærkvöldi - En sumir lelkmenn liðsins eru lltið hrifnir af hvf
„Viö munum kæra þennan leik,
þvl að KR-ingar léku meö ólög-
legan leikmann I leiknum”, sagöi
Jón Runólfsson, formaöur Knatt-
spyrnuráös Akraness eftirleikinn
i gærkvöldi.
Þaö, sem hann átti viö með ó-
löglegan leikmann, var þegar Vil-
hjálmur Þór dómarisýndi óskari
Ingimundarsyni „rauða spjaldið”
fyrir utan leikvöllinn i lok leiks-
ins. Yfirgaf hann völlinn án leyfis
Bjarni rétt við
verðlaunapallinn
- á heimsmeistaramótinu I júdó I Hollandi í gær
tslenskir júdómenn stóöu sig
frábærlega i heimsmeistara-
keppninni I júdó, sem haldin er i
Maastricht I Hollandi og sett var I
gær. Á fyrsta deginum komust
tveir þeirra I úrslitakeppnina og
munaöi litiu aö annar þeirra,
Bjarni Friöriksson, kæmist á
verölaunapali.
Hann keppti i undir 95 kg flokki
og komst i úrslit i sinum riðli. 1
úrslitakeppninni lagði hann Chris
Georghiu frá Kýpur, en tapaði
svo fyrir Frakkanum Roger
Vachon, en hann er einn besti
júdómaður Evrópu.
Vachon keppti næst við Austur-
Þjóðverja, og sigraði hann, og
þar með voru bronsverðlaunin
hans. Gulliö hlaut Khuguluri Sov-
étrikjunum, en silfrið Robert Van
De Walle frá Belgiu.
I yfir 95 kg flokki keppti Kol-
beinn Gislason og hann komst i
úrslit með góðum árangri úr sin-
um riöli. lúrslitakeppninni tapaði
Kolbeinn fyrir Juha Salonen frá
Finnlandi, en Salonen þessi hlaut
siöan bronsverðlaunin. Heims-
meistari i þessum flokki varö
Yasuhiro Yamashita frá Japan —
eins og búist hafði verið við — en
silfrið hlaut Verichev frá Sovét-
rikjunum.
Þeir Viðar Guðjohnsen og Nieís
Hermannsson keppa i dag, Hall-
dór Guðbjörnsson verður i slagn-
um á laugardaginn, en á sunnu-
daginn veröur „öpni flokkurinn”
og þá keppa sumir okkar manna
aftur.
—klp—
og fyrir það fékk hann að sjá
spjaldiö eldrauða.
En i öllum látunum, semunöul
sambandi viðþað, athugaðidóm-
arinn ekki, að Atli Þór Héðinsson
var þegar kominn inn á fyrir Ósk-
ar. Vildu main meina aö hann
væri ólöglegur, þvi að ekki mætti
annar maöur koma inn á i staðinn
fyrir annan, sem búið væri að
reka útaf.
Vilhjálmur, sem hafði dæmt
leikinn mjög vel, sagði er við töl-
uðum viö hann á ef tir, að sér heföi
orðið á mistök með þvi aö láta
Atla Þór vera inni á þær tvær
minútur, sem eftir voru. „Þetta
eru mannleg mistök og ekkertviö
þeim aö gera úr þvi sem komið
er”, sagði hann.
Sumir leikmenn Akraness voru
allt annaö en hrifnir, þegar þeir
fréttu, aö forráðamenn þeirra
ætluöu að kæra þetta atvik.
Bjarni Sigurðsson. markvörður,
og Sigurður Halldórsson, sögðu
að slikt væri alveg ófært. „Þaö
erubara léleg liö sem standa i að
kæra leiki. Við Skagamenn eigum
aö geta unniö leiki og mót án þess
að þurfaaö standa Islíku”, sögðu
þeir, þegar við gengum út úr bún-
ingsklefa þeirra.
Sjálfsagthefur þetta mál mikiö
verið rættá leiðinni upp á Skaga,
en það kemur I ljós i dag eða á
morgun, hvaö Akurnesingar
gera.
— klp — I
Hannes
áfram
í Fram
Hannes Leifsson, handknatt-
leiksmaður úr Fram, hefur hætt
við að leika og þjálfa Reyni,
Sandgerði, i 3. deildinni i hand-
knattleik i vetur. Var búið að
ganga frá félagaskiptum þang-
að. En hann hefur nú ákveöiö að
leika áfram með Fram.
Framarar hafa f engið til liðs við
sig tvo nýja menn Gauta Guö-
jónsson úr Gróttu og hinn unga
og efnilega leikmann úr Val,
Hermund Sigmundsson.
-klp-
- að skora mörk
lyrir Vlklng
Sigurður Gunnarsson, hand-
knattleikskappi, sem lék með
Leverkusen i Vestur-Þýska-
landi s.l. vetur, lék sinn fyrsta
leik með Vikingi i gærkvöldi.
Var þaö æfingaleikur viö Fram i
KR-heimilinu og sýndi hann þar
góöa takta og skoraði með
hverju þrumuskotinu á fætur
öðru.
-klp-
Þorsteinn
hættir með
Niarðvík
Þorsteinn Bjarnason, lands-
liðsmarkvörður i knattspyrnu,
gekk i gærkvöldi frá félaga-
skiptum úr Njarðvik i Keflavik i
köruknattleik.
Þorsteinn er mjög góður
körfuknattleiksmaður eins og
kunnugt er, og varö Islands-
meistari með UMFN i vor. Er
án efa mikill styrkur fyrir
Keflavikinga að fá hann, þvi aö
þeir eru að missa Jón Kr. Gisla-
son til Bandarikjanna.
-klp-
Francis
til City
- á 1.2 millónlr punda
Trevor Francis, landsliösmiö-
herji Englands, var i gær seldur
frá Nottingham Forest til
Manchester City á 1,2 milljónir
sterlingspunda. Leikur hann
sinn fyrsta leik meö City gegn
Stoke á laugardaginn.
Þá gekk John Bond, fram-
kvæmdastjóri Man. City. i gær
frá kaupum á syni sinum Kevin
Bond.. frá Seattle Sounders I
Bandarikjunum fyrir 400 þús-
und pund. Hann pungaöi þvi út
með 1,6 milljónir punda i gær.