Vísir - 10.09.1981, Blaðsíða 12
12
Fimmtudagur 10. september 1981
VÍSIR
Er spegillinn hégðmi eða nauðsyniegur í sjáifsleit ungllnganna?
Ahrif spegilsins mikil
á daglegt líf manna
Frá þvi aö einhverjum hugvits-
manninum datt það snjallræöi i
hug aö setja tin eöa silfurlag á
slétt glerbrot eða málmplötu og
mönnum birtist eigin spegilmynd
hefur spegillinn haft ómæld áhrif
á lif manna. Aöur en spegillinn
var fundinn upp hafa menn lik-
lega séö sjálfan sig i augum
annarra og gáróttum lindum,
sem varla hafa veriö eins nær-
göngular spegilmyndir til dæmis
alla filapensla unglingsáranna
eða hrukkur efri áranna. Þessu
breytti spegillinn.
A morgnana þegar staulast er
svefndrukkinn á baöherbergið,
mætir manni svefndrukkin
spegilmynd. A kvöldin áöur en
lagst er til hvildar endurtekur sig
þaö sama, nema þá sýnir spegill-
inn þreytta veru sem varla hefur
umframorku til aö lyfta tann-
burstanum. öllu ööru sem fram
fer yfir daginn, á milli þessara
tveggja funda viö spegilinn,
getum viö kynnst með aöstoð
spegilsins. En hvers vegna leitum
við eftir eigin spegilmynd oft á
dag, eftir hverju erum viö aö leita
— eigin sjálfsmynd sem spegill-
inn endurkastar?
Sálfræöingur viö Columbia
Medical College i New York að
nafni Dr. Henrietta Klein hefur
gert athuganir á spegilskoöunum
unglinga, sem er sá aldurshópur
sem hvaö mest nýtur aðstoðar
spegilsins viö sjálfsskoðun. Dr.
Henriette Klein hefur meöal
annars þetta aö segja „Stúlkur
horfa oftar á spegilmynd sina en
piltar. Þrátt fyrir allt tal um jafn-
rétti og kvenréttindi hugsa
margar stúlkur ennþá á þann veg
aö útliö skipti meira máli en afrek
eöa hæfileikar”. Þó vill banda-
riski sálfræöingurinn meina aö æ
fleiri piltar veiti speglinum meiri
athygli nútildags en piltar al-
mennt gerðu áöur.'Annars leiti
piltar frekar eftir sjálfsimynd og
öryggi I iþróttum og kunningja-
hópi frekar en i speglinum.
Piltana skifti einnig töluveröu
máli aö hafa „spes gælunafn sem
smellur i stilinn” á meöal
kunningjanna. En ein ástæöan
fyrir spegilskoöun unglinganna er
tilraunastarfsemi. Þeir reyna
þessa og hina hárgreiösluna
athuga hvaöa mann fötin sem þau
klæðast skapa. Finna svo rétta
brosiö fyrir myndatökuna i
bekknum, sem stendur fyrir
dyrum og taka nokkur dansspor,
dilla sér og sveifla fyrir framan
spegilinn áöur en þau fara á
diskó. Allt gagnlegt á þeim árum
og réttlætanleg tilraunastarf-
semi.
„Þvi má einnig viö bæta aö
andleg pressa unglinganna er
mikil á þessum þroskaárum, þau
breytast ört og sjálfsagt fyrir þau
að fylgjast meö breytingunum i
gegnum spegilinn”, segir Dr.
Klein ennfremur. Oeðlilega tima-
frekir fundir hjá speglinum, sem
margir myndu telja hégóma, geta
þó stafaö innibyrgöum ótta ung-
lingsins.
Freknur, filapenslar og feitt
hár geta valdið miklu hugarangri
fyrir framan spegilinn,. Dr. Klein
hefur ráöleggingar I fórum sinum
til þeirra unglinga sem eru ótta-
slegnir við eigin mynd. „Slakið
á”, segir hún „einbeitiö ykkur
meira aö innra manni og hæfi-
leikum, móttakið eigin imynd og
brosiö”. Þegar allt annað viröist
vera ööru visi en þaö á aö vera er
staöreynd aö mest aölaðandi viö
hvern og einn er — brosið.
Þýtt og endur sagt. ÞG
Húsráð
Frystar sokkabuxur
Áður en þú ferð í nýjar
sokkabuxur, ættir bú að
frysta þær fyrst. Þær
endast lengur ef þú bleytir
þær rækilega í vatni, vind-
ur þær varlega og setur
þær síðan í plastpoka og
inn í frystinn. Þegar
sokkabuxurnar eru
frystar, tekur þú þær úr
frysti og lætur þær þiðna í
baðkerinu og hengir síðan
upp til þerris.
Mold á stofugólfið
Or vöndu getur verið að
ráða þegar moldarkögglar
berast inn á stofuteppin.
Reynandi er að setja salt á
moldarblettinn og láta
saltið draga að sér moldina
í að minnsta kosti 15
mínútur og þá ætti að vera
létt verk að ryksuga mold-
ina burtu.
Sígarettureykur
Bleyttu handklæði í vatni
og sveiflaðu því nokkrum
sinnum um herbergið.
Reykurinn hverfur fljót-
lega. Settu litlar skálar
með ediki í hvert horn her-
bergisins, þar sem reyk-
ingarmennirnir eru eða
kveiktu á kertum til að
draga úr reyknum.
Svínaflesk
Til þess að koma í veg
fyrir að svínafleskið
hlaupi saman á pönnunni,
þá dýfðu því í kalt vatn
áður en þú þurrsteikir það.
Að hreinsa gluggana
Matarsóti hreinsar fljótt
fitubletti af rúðum bílsins,
Ijósunum og krómi. Settu
sótann í rakan svamp og
strjúktu yfir blettina
skolaðu síðan með vatni.
Er kærleikurinn
elnn af hornsteinum
heilsunnar?
1 nýlegu hefti timaritsins Hðisa
er vitnað i ummæli sænska
læknisins Björn Liedén sem birt-
ist i sænska læknablaöinu, þar
sem hann f jallaði um tilraun, sem
var gerö á kaninum. Þar kom i
ljós að kaninur sem fengu ástúð-
lega umhyggju frá hirði sinum i
5—6 vikur þjáöust af 60% minni
æðakölkun, en þær kaninur sem
nutu engrar ástúöar, en fengu
nákvæmlega sama kólesterol-
auöuga fóörið. Niðurstöður
tilraunarinnar birtust i Science
22. júni 1980.
Læknirinn bendir einnig á að
þegar Nóbelsverðlaunahafinn
móðir Theresa kom til Vestur-
landa til að veita verðlaunum sin-
um viötöku, vakti þaö athygli
hennar hve mikil fátækt rikti hér
á Vesturlöndum, fátækt sem mun
erfiðara er að bæta úr en þeirri
fátækt sem hægt er aö lækna með
nokkrum skálum af hrisgrjónum.
Þar átti hún viö þann skort sem
rlkir á kærleika og umhyggju og
skeytingarleysi okkar gagnvart
þvi sem lifir.
Tilraunaniðurstöður sem
þessar eru kærkomnar á timum,
þegar sérfræðingar eru búnir að
tapa heildarsýninni. Sú einhæfa
og einstrengingslegá umfjöllun
sem sérfræðingar samtiðarinnar
hafa tamið sér nægir ekki til
árangurs. Þaö verður nú æ
ljósara að sjúkdómar eiga sér aö
miklu leyti fjölþættar orsakir.
Heildarsýn sem tekur mið af
margþátta orsökum sjúkdóm-
anria er þvi nauösynleg til þess að
hægt sé að finna rétta meöferö
sem leiöir til árangurs. Halsa.
IHR ihúsinu
• . . ... . •= 'ftmmmtati B
Grænmellshiaup
með remúiaOlsósu
1 djúpur diskur soöiö grænmeti grænmetiö I mótinu. Látiö stifna
1/3 1 grænmetissoö á köldum staö.Hvolft á fat og
6 blöö matarlim boriö fram meö remúlaöisósu.
Sósan:
Formkökumót skolaö úr köldu
vatni, skreytt meö harösoönum
eggjum og grænum baunum.
Matarlimiö lagt i kalt vatn.
Grænmetiö brytjaö, sett i mótiö
matarlimiö tekiö úr kalda vatn-
inu, sett út i sjóöandi heitt soöiö,
þaö bragbætt með ETO-súpu-
krafti og þvi siöan hellt yfir
1 bolli oliusósa (majones)
1-2 sitrónur
púðursykur og ETO
2 dl. þeyttur rjómi
Oliusósan krydduð eftir
bragöi, þeytta rjómanum
blandað saman viö.
(NLFL^