Vísir - 10.09.1981, Blaðsíða 19
Eiginmaóurinn
breyttist i konu
— en þau eru enn hjón
Erfió
barátta
Leikkonan Charlene
W Tilton, sem leikur
F Lucy i Dallas hefur
löngum átt i striöi viö
aukakilóin. Nýlega geröi
hun samning viö
bandariska timaritiö
,,Glamour" um aö taka þátt
i megrunarkur, sem blaöiö
haföi samið, og átti hún aö
missa 15 kiló á þremur
manuóum En þegar upp
L var staðið haföi Lucy
I litla engum kiloum
h tapaö heldur þvert a
inoti ba>ti v>ö sig 5
kiioum
Það eru ekki margir sem vita
leyndarmál þeirra og flestir ná-
grannarnir halda að Marie Ange
og Marie Claude Geier séu sam-
rýmdar systur sem búa og vinna
saman. Þótt ótrúlegt kunni að
virðast eru þær hjón, eða að
minnsta kosti voru það hér i eina
tið og hjúskaparsáttmálinn hefur
enn ekki verið ógiltur þótt tals-
verðar breytingar hafi orðið á
högum þeirra frá þvi á brúð-
kaupsdaginn.
Þar til fyrir þremur árum hét
Marie Ange Jacques, virtur
augnlæknir i heimabæ sinum i
SaintChamond i Frakklandi, sem
var hamingjusamlega kvæntur
starfsfélaga sinum Marie Claude.
En þá lét hann gera á sér kyn-
skiptiaðgerð sem breytti honum
úr karlmanni i konu.
„Það er ekkert óhreint, saurugt
eða kynferðislegur öfugugga-
háttur á bak við þetta”, — segir
Marie Ange i viötali við timarit
eitt nú nýverið. — „Við erum
engin viðundur heldur tveir ein-
staklingar sem elskum hvor
annan þótt núverandi aðstæður
séu óvenjulegar”.
Að sögn þeirra hjóna mun kyn-
lif þeirra hafa verið i lágmarki
allt frá brúðkaupsdeginum enda
var Jacques áhugalaus um allt
slikt. — „Nðtteina heyrðiég hann
tala upp úr svefni”, — segir
Marie Claude. — „Mér til
undrunar talaði hann með konu-
rödd og i svefninum talaði hann
um að hann héti Marie Ange en
ekki Jacques. Ég vakti hann og
þá brotnaði hann niður og sagði
mér að allt sitt lif hefði hann
barist viö aö valda hlutverki sinu
sem karlmaður þótt honum
fyndist hið innra með sér að hann
væri kona. Hann bað mig fyrir-
gefningar en ég sagöi honum að
hann hefði ekkert aðhafst sem
væri rangt, — segir Marie Claude.
í nokkur ár á eftir lifði hann
tvöföldu lifi. A daginn var hann
læknirinn Jacques en á kvöldin,
innan veggja heimilisins var
hann Marie Ange, með hárkollu
Umsjón:
Svefnn
Guðjónssop
Jacques á háskólaárunum.
og i kvenmannsfötum. Jacques
spurði konu sina um möguleikana
á kynskiptum en hún hafnaði
þeirrihugmynd. Eftir þvi sem ár-
in liðu varð hann daprari og niö-
urdregnari þar til fyrir þremur
árum, að hann viðurkenndi fyrir
konu sinni að hann hygðist fremja
Eftir aðgerðina gengur Jacques
undir nafninu Marie Ange.
sjálfsmorö.
— „Ég geröi mér þá grein fyrir
að þaö var ekki um annaö að
ræða”, — segir Marie Claude og
bætir þvi við, aö siöan hafi þær
búið saman eins óg samrýmdar
systur þótt á pappirunum sé
„þær” enn hjón.
SfMUlWE
IMPIAN/
potífkv
cg'fflHHHHf'e
—Hafiöi ekki heyrt getið um indjánana frá HongKong?