Vísir - 10.09.1981, Blaðsíða 28
kzsdz
veðurspá
Norftaustur af landinu er
minnkandi 1006 mb lægö, sem
hreyfist noröaustur, en vaxandi
980mb lægö um 500 km norö-
austur af Irlandi hreyfist
norðnoröaustur.. Yfir Noröur-
Grænlandi er 1030 mb hæð.
Heldur hlýnar á Suð-austur-, og
Austurlandi, en annar staöar
breytist hiti litið.
Suðurland: Norðan stinnings-
kaldi og bjart meö köflum i
fyrstu, en allhvass eða hvass
norðaustan og rigning austantil
þegar liöur á daginn.
Faxaflói: Allhvass eöa hvass
norðan og noröaustan, skýjað aö
mestu.
Breiöafjöröur: Allhvass eða
hvass norðaustan, smáskdrir,
einkum noröantil.
Vestfirðir: Allhvass eöa hvass
norðaustan,skilrireöa slydduél.
Strandir og Noröurland vestra:
Allhvass norðan og noröaustan.
Slydda eða rigning meö köflum.
Noröurland eystra og Austur-
land að Glettingi: Norövestan
kaldi og skúriri fyrstu, en vax-
andi noröaustan átt þegar liöur
á daginn. Allhvass noröaustan
og rigning í kvöld eöa nótt.
Austfiröir: Hæg breytileg áttog
léttskýjað til landsins I fyrstu,
en þykknar siöan upp meö vax-
andi norðaustanátt. Hvassviðri
og rigning siödegis.
Suö-Austurland: Noröan kaldi
og viöa léttskýjaö i fyrstu, en
þykknarsiöan upp meö vaxandi
austanátt.
Veðrið hér
og par
Kl. 6 i morgun:
Akureyri alskýjaö 2, Bergen
hálfskýjaö 9, Heisinki þoku-
móöa 12, Ka upmannahöfn þoka
16, Osló þokumóöal4,Reykjavfk
léttskýjaö-4, Stokkhólmur þoka
12, Þórshöfn rigning 11.
Kl. 18 i gær:
Aþena léttskýjaö 21, Beriin
mistur 19,Chicago skýjaö 22,
Feneyjar skýjaö 22, Frankfurt
mistur21, Nuuk alskýjað 7,Lon-
donmistur22, Luxemburg létt-
skýjaö 18, Las Palmas skýjaö
25, Mallorka skýjaö 26,
Montreal skllr 13, New York
skýjað 23, Paris skýjaö 23,Róm
léttskýjaö 23, Malaga léttskýjaö
27, Vi'n Urkoma i grennd
17, Winnipeg alskýjað 26.
Loki
segir
Scmentsverksmiöja rikisins
hefur nú tekiö 10 milljön króna
erlent lán til þess aö losa sig Ut
úr skuldum. Þar meö er verk-
smiöjan skuldlaus — eöa
hvaö?
Fimmtudagyr 10. september 1981
síminnerðóóll
Áhrif sam-
dráttar i
miólkur-
framleiðslu:
„Þaö hefur dregiö svo úr
mjólkurframleiðslunni, aö út-
flutningur á ostum fer aö heyra
fortiöinni til”, sagöi óskar H.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Osta- og smjörsölunnar, I samtali
viö VIsi.
A siðustu tveimur árum hefur
mjólkurframleiðslan i landinu
stórdregist saman, eða sem
nemur um 15 milljónum litra eða
um 16 hundrað tonnum af osti.
Vegna þessa hefur útflutningur á
útflutningur á
ostum að hverfa
osti orðið mjög litill og i ár er
hann aðeins áætlaður rúm 8
hundruð tonn, þar af eiga 600 tonn
að fara á Bandarikjamarkað og
afgangurinn á Evrópumarkað.
Söluverðmæti þessa hefur aðeins
veriö um 20 til 35 prósent af
innanlandsverði, en það fer eftir
tegundum.
„Mjólkurframleiðslan nú nægir
rétt fyrir innanlandsþörfum og ég
á von á, að á næstu misserum
veröi útflutningur á ostum mjög
rýr, ef nokkur. Við erum þó i
augnablikinu að reyna að fylla
upp i Bandarikjakvótann, en þaö
er alveg óvist, hvort það tekst.”
— Hvers vegna er osturinn
seldur svona ódýrt?
„Við verðum að fara eftir og
sætta okkur við heimsmarkaðs-
verðið.”
— Er eftirspurn mikil eftir ost-
inum?
„Ja, það er náttúrlega alltaf
hægt að selja þessa vöru sem
slika.”
— Attu von á, að útflutningur á
osti verði þá engin á næsta ári?
„Hann verður kannski einhver,
en ef hann á að komast upp i það,
sem hann hefur verið, þarf að
verða einhver veruleg breyting,
þvieins og er, er nánast jafnræði I
framleiðslu og eftirspurn á
mjólkinni hér innanlands”, sagði
Óskar H. Gunnarsson.
—KÞ
tslendingar unnu sinn annan sigur I heimsmeistarakeppni i knattspyrnu frá upphafi.þegar þeir lögöu
Tyrki aö velli 2:0 i gærkvöldi. Tyrkirnir voru mjög grófir i leiknum og tóku tapinu illa. Hér má sjá einn
þeirra vera aö biöja Pétur Pétursson afsökunar á einu fólsku-bragöinu og fer svona heldur „kvenlega”
aöþvi. Nánar er fjailaöum þennan glæsilega sigur knattspyrnumanna okkar á bls. 6 og 7 I blaöinu í dag.
— klp —/Visismynd Friöþjófur.
DregiD
hádegið
Dregiö var um hádegiö I dag
um seinni vinninginn I sumarget-
raun VIsis. Veröur væntanlega
unnt aö skýra frá þvi I blaöinu á
morgun, hver áskrifenda Visis
hreppti hnossiö, Datsun Cherry
GL aö verömæti um 85.000 kr.
Tilstóð að draga igærkvöldi, en
þvi varð að fresta þar sem seðlar
voru að berast fram eftir kvöldi.
Heyskaðar
Bændur á Suðurlandi urðu fyrir
miklum heyskaða i nótt.
Veðurstofan spáði rigningu i
spánni klukkan tiu i gærkvöldi og
gripu þá margir bændur til þess
ráðs að múga það hey, sem þeir
áttu flatt. Sumt af þessu heyi var
oröið gamalt og hrakið og þvi létt
i sér.
Engin rigning kom, en hinsveg-
ar hvessti mikiðog þegar bændur
komu út i morgun var heyið að
mestu horfið.
SV/PÞ Sandhóli
Eldur i dagheimlli
Eldur kom upp i skóladagheim-
ilinu við Auðarstræti 3 i Reykja-
vik um klukkan 12.30 i gær. Börn-
in voru utan dyra á meðan og ekki
stafaði hætta af.
Smiðir frá Reykjavíkurborg
höfðu verið að vinna á 2. hæð
hússins við texplötur i lofti. Þeir
höfðu haft með sér gaslampa,
sem eldurinn virðisthafa hlaupið
úr á meðanþeir voru i mat.
—AS
VISINDANEFHD OECD A FUNDII REYKJAVÍK
Ráðstefna um visinda-og tækni-
stefnu á tslandi hófst á Hotel
Loftleiðum í morgun og lýkur á
morgun. Er ráðstefna þessi loka-
þáttur athugunar, sem gerð er á
vegum OECD á visinda-og tækni-
málum íslendinga, að beiðni
Rannsóknarráðs risins.og um leið
formlegur fundur visindanefndar
OECD.
Tilgangur ráðstefnunnar er
upplýsinga-og skoðanaskipti um
þennan mikilvæga málaflokk og
erþess vænst, að áhrifa hans gæti
iumfjöllun um skipulag og starfs-
hætti rannsókna-og tækni-
þróunarstarfsemi i landinu á
næstu árum.
Ýmsir erlendir fulltrúar sækja
fundinn og munu sumir þeirra, á-
samt innlendum aðilum. flytja
stutt erindi á ráðstefnunni. Meðal
þeirra eru prófessor Christopher
Freeman, James Mullin, Ingvar
Gislason, Steingrimur Her-
mannsson, Hjörleifur Guttorms-
son, Jónas Haralz og fleiri.
—KÞ
dief pepsi
sykurlaust
minna en
» einkabria
iflösku