Vísir - 13.10.1981, Qupperneq 12
Áskoranir um uppskriftir
Frá Sólveigu til Sigrúnar, frá
Sigrúnu til Sigriöar, koll af kolli
eöa frá manni til manns gengur
áskorunin. Sigriöur Jóhanns-
dóttir, áskorandi dagsins I dag,
hefur valiö aö gefa okkur upp-
skriftir af fjórum gómsætum
tertum. Sigriöur hefur ánægju
af kökubakstri og skemmti-
legast finnst henni að baka fyrir
veislur og þaö stórar fjölskyldu-
veislur.
„Astæöan er efiaust sú, aö þá
er tilefnið æviniega gleöi-
augnablik I lifinu. Min gleöi er
m .a.aö kakan min gefi til kynna
hversu hamingjusöm ég er”,
sagöi Sigriður viö blaöamann
Vísis.
Anna Long tekur viö áskorun-
inni frá Sigriði Jóhannsdóttur
næstkomandi þriöjudag.
—ÞG
Hlaupterta
3 egg
120 g sykur
100 g kartöflumjöl
•2 msk, hveiti
3/4 tsk, lyftiduft
1 msk vatn
Egg og sykur, þeytt vel
saman, þurrefnin sigtuð og sett
úti ásamt vatninu. Bakað i
meðalstóru springformi við 175
gr. hita i 20 minútur. Sett á rist
og látið kólna.
1 pakki sitrónuhlaup
1 pakki appelsinuhlaup
1 heildós ananasbitar
2 tsk. rifinn sitrónubörkur
Hlauppakkarnirleystir upp 12
bollum af heitu vatni og ananas-
safanum.
Tertubotninn brytjaður úti, en
hann leysist upp i vökvanum,
siðar öllu hrært saman. Sett i
hringlagaform með gati i miðj-
unni, en fyrst skal skola formið
að innan meö köldu vatni.
Kakan er losuð varlega úr form-
inu eftir 4-6 klukkustundir. Mjög
fallegt að bera hana fram á
glæru fati og setja vinberja-
klasa i miðjuna.
Sælgætisterta
4 egg
lOOg púðursykur
100 g saxaðar möndlur
100 g súkkulaði
1 msk. hveiti
1/2 tsk.lyftiduft
Eggin stifþeytt með sykrin-
um, þurrefnunum blandað út i.
Bakað i tveimur litlum lagköku-
mótum við 200 gc hita i 10
minútur. Kakan kæld og
karmellubráö sett á milli og of-
an á.
Karameliubráð
1 dl rjómi
125 g sykur
2 msk sýróp
30 gr smjör
1 tsk. vanilludropar
Allt sett i pott og soðið þar til
lögurinn þykknar. Kælt og látið
siðan á kökuna.
Sviaterta
3 eggjarauður
1 dl sykur
5 msk mjólk
1 1/2 dl (125 g) brætt smjör
1 1/2 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
Eggjarauður og sykur þeytt
saman, þurrefnin sigtuð og sett
saman við siðan smjörið og
mólkin.
Mareng
3 eggjahvitur
2 dl sykur
1 tsk, vanilludropar
1/2 pakki möndluflögur
Deigið sett á bökunarpappir á
plötu og marenginn þar ofan á,
stungið 1175 gr. heitan ofninn og
bakað i 1/2 klukkustund.
Uppskriftinni er skipt og bök-
uð tvisvar sinnum. Tertulögin
lögð saman með brytjuðu
súkkulaöi, perum (1 heildós) og
1/2 litra þeyttum rjóma. Svia-
terta þessi er áætluð fyrir 20
manns.
Veisluterta
Botn:
1/2 bolli sykur
3 egg
10-12 döðlur
50 g súkkulaði
1 tsk.ger
rúmlega 1/4 bolli hveiti
Egg og sykur þeytt saman,
þurrefnin sigtuð og brytjað
súkkulaði og döðlur sett úti.
Uppskrift þessi dugar i tvo
meðalstóra botna.
Tertan er ávallt þriggja laga
með upphækkun i miðju og þá
notaðir litlir botnar.
Fjöldi botna fer eftir stærð, 15
botnar fara i 60-80 manna tertu,
en þá sleppi ég döðlum og
súkkulaði i helmingi botnanna.
Milli laga nota ég marin
jarðarber, sitrónufromage,
þeyttan rjóma, brenndan sykur,
möndlur og marsipan.
Sitrónufromage:
3 egg
90 g sykur
2 sitrónur
6-7 matarlimsblöð
1/2 1 rjómi
Matarlimið lagt i bleyti.
Rjóminn þeyttur, sitrónurnar
kreistar og börkurinn raspaður
niður.
Egg og sykur þeytt saman.
Matarlimið sett úti svolitið af
safanum og blandað saman við
egg. Sykur og rjóminn hrærður
úti. Látið standa i skál i 6
klukkustundir. Tertuna útbý ég
á 50-60 cm kringlóttum tertu-
diski, sem á er settur hvitur
plastdúkur. Tertubotnarnir
lagðir ofan á diskinn og skornir
til, þannig að þeir mynda eina
heild.
Mörðum jarðarberjum og
þeyttum rjóma smurt á, siðan
lag af botnum, þvi næst sitrónu-
fromaginn smurður ofan á. Þá
koma botnar aftur og þar ofan á
þeyttur rjómi með brenndum
sykri, möndlum og marsipan.
Siðan lokast tertan með botn-
um. A miðju er sett þriggja laga
litil terta, byggö upp á sama
hátt.
Ég frysti siðan tertuna á disk-
inum þar til 4-6 klukkutímum
áður en hún er borin fram.
Skreyting tertunnar fer eftir
tilefni, hvort um er að ræða
brúðkaup, fermingu, skirn eða
afmæli. Ég útbý ávallt
marsipanblóm, hjörtu og stafi,
þegar timi er til og geymi i lok-
uðu plastboxi.
Veislutertan er sprautuð með
þeyttum rjóma allan hringinn
og ennfremur upphækkunin,
siöan skreytt með marsipan-
blómum, sem mynda blómvönd
eða blómunum dreift um tert-
una.
Askorandi minn er frú Anna
Long. Hún er einn þeirra vina,
sem gera lifið bjartara i kring-
um okkur.
Uppskriftir hennar munu
sýna, að hún er snillingur i mat-
reiðslu fiskrétta.
Sigríður Jóhannsdöltir
skorar á Önnu Long
Sigrlöur Jóhannsdóttir hellir upp á könnuna fyrir aldraða I eldhúsi Safnaðarheimiiis Langholtskirkju.
(Visism. EÞS)
Gömsætar tertur
Umsjón
Þórunn
Gestsdóttir.
HÚSRÁD
Glugga, sem ekki eru
opnaðir að staðaldri,
getur verið erfitt að
opna, þegar þarf að þvo
þá eða annað. Úr þessu
má bæta með þvi að
smyrja rifurnar i körm-
unum með bóni, kerta-
vaxi eða litlausum
skóáburði.
— O—
Þegar sagað er i kross-
við, hættir köntunum
hinum megin á kross-
viðsplötunni að tætast
upp. Þetta er hægt að
forðast, ef límdar eru
breiðar pappirsræmur
undir plötuna, áður en
fariðeraðsaga.
— O —
Þegar sólarnir á
smábamaskónum eru
famir að verða hálir, er
ráð að ýfa þá með sand-
pappír.
— O —
Ágætt ráð fyrir þá sem
þurfa að þurrka stóran
þvott á fáum snúrum:
Það tekur minna pláss
að hengja flikurnar á
milli snúranna heldur en
á snúrnumar eins og
venjulegast er gert.
— O —
Málmhnappar vilja oft
bletta ljósar flikur, sem
þeir eru festir á eða
núast við. Lakkið þvi
hnappana með glæru
naglalakki, áður en þeir
valda skemmdum.
— O —
Grænsápa og gamall
nylonsokkur eru aldeilis
frábær „hjálpargögn” á
stálvaskinn sem misst
hefur allan gljáa. Prófið
að hafa þetta tvennt við
höndina næst þegar stál-
vaskurinn verður þveg-
inn.
— O —
Gúmmihönskum hættir
við að slitna á fingur-
broddunum. Snúið þvi
fingrunum á hönskunum
við og limið heftiplástur
innan á þá! Hanskamir
endast beturþannig.
— O —
Ef þið eigið gott snið,
sem þið hafið hug á að
nota oftar en einu sinni,
er heillaráð að klippa
það út i þunnt plast, þá
endist það vel og lengi.