Vísir - 13.10.1981, Blaðsíða 27

Vísir - 13.10.1981, Blaðsíða 27
ÞriOjudagur 13. október 1981 SERSTÆDIR TONLEIKAR Sænskur ásláttarsnill- ingur frumflytur m.a. 3 verk eftir Áskel Másson. Sérstæðir tónleikar verða á Kjarvalsstöðum á miðvikudaginn kemur. Þar mun koma fram 24 ára gamall Svii, Roger Carlson, sem þekktur er orðinn fyrir meistaralega kunnáttu á áslátt- arhljóðfæri. A tónleikunum verða flutt sex verk og fjögur þeirra frumflutt. Manuela Wiesler, Jós- ef Magnússon, Reynir Sigurðsson og meðlimir úr kór Tónlistaskól- ans iReykjavikundir stjórn Mar- teins H. Friðrikssonar taka þátt i tónleikunum auk Carlssonar. Fyrsta tækifærið hérlendis A tónleikunum mun Roger Carlsson leika á ýmis ásláttar- hljóðfæri, sem ekki hafa sést hér- lendis áður og gefst þvi fyrsta tækifærið til að heyra leikið á þau nú. Koma Carlssonar mun einnig vera áhugafólki um tónlist mikill viðburður, þvi hann hefur, þrátt fyrir ungan aldur, getið sér góðs orðstirs fyrir kunnáttu sina eins og áður var getið. Carlsson lærði fyrst við tónlist- arskólann i heimabæ sinum, Bor- ás i Sviþjóð, siðar i Gautaborg. Kennarar hans i Sviþjóð voru m.a. Jan Rydback, Bo Halm- strand og Sture Olsson. Að loknu náminu heima fyrir hélt Carlsson tilLondon, þar sem hann lærði við Royal Academy of Music og Nati- onal Center for Orchestral Studies. A meðan Carlsson varvið nám, lék hann margoftsem einleikari á kammer- og sinfóniutónleikum. Siðan hefur hann gert einleiks- dagskrá fyrir sænska, pólska og austur-þýska útvarpið og leikið með hljómsveitum ýmissa út- varpsstöðva annars staðar i Evr- ópu. Hann starfar um þessar mundir jöfnum höndum við sin- fóniuhljómsveitir i' Gautaborg, Helsingfors og Þrándheimi og hefur að auki stofnað sina eigin slagverkshljómsveit, sem hann stýrir. Tónskáldin skrifa Mörg tónskáld hafa samið verk sérstaklega handa Roger Carls- son. Má nefna Sven-Eric Johan- son, Zoltan Gaal og Sture Olsson meðal þeirra. Askell Másson hef- ur og samið sérstaklega fyrir Carlson og verða raunar flutt fjögur verk eftir Askel á tónleik- unum á miðvikudaginn. Þá vinna þeir Par Lindgren, William Holmes Bouton og Michael Roz- weig að verkum fyrir Carlsson. Fjögur verk frumflutt nú A tónleikunum á Kjarvalsstöð- um á miðvikudagskvöld verða flutt sex verk eins og áður sagði og eru fjögur þeirra frumflutn- ingur. Höfundarnir eru Askell Másson, Zoltan Gáal og Sture Olsson. Meðal hljóðfæra sem Roger Carlsson mun leika á eru roto-tom trommur og maribu og munu margir ekki eiga annars úrkosta en koma á Kjarvalsstaði þetta kvöld til að komast að þvi hvernig þau hljóðfæri hljóma. Að- eins verður um þessa einu tón- leika að ræða. á meðan á stuttri dvöl Rogers Carlssonar stendur hér að þessu sinni. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Ms Myndiu var tekiu á æfingu. (Ljósm.Friðþjófur) 27 SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS C^XL^LU UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ AðalfundurSÁÁ Verður haldinn fimmtudaginn 15. október n.k. kl. 20.00 í Siðumúla 3-5. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ávarp: Svavar Gestsson, heil- brigðis- og félagsmálaráðherra. Stjórnin. Magnús E. Baldvinsson Laugavegi8 — Sími 22804 ÞOKULUDRAR N0RRÆNUNNAR Arið 1930 ákvað Bandaríkja- stjórn að senda tslendingum að gjöf styttu af Leifi Eirikssyni, sem fékk viðurnefnið heppni eftir að hann fann Vlnland hið góða (Amerlku). Banda- rlkjamenn létu fylgja áritun: Son og Iceland. Discoverer of America. Siöan er liðið fimmtlu og eitt ár.án þess að mikið hafi borið á þvi, að Leifur heppni, sonur tslands, hafi fundið Amcriku. Þó hafa verið gefnar út tilskipanir frá Washington um ákveðna fánadaga I Banda- rikjunum, sem tileinkaðir hafa verið hinum „norræna” manni, Leifi Eirikssyni, og virðist, hvað ættfærslu snertir, hafa orðið skyndileg gleymska á gjörðum Hooverstjórnarinnar árið 1930, þvi að eigi var Leifur þá talinn norænn maður, heldur sonur tslands. Nú hefur enn einu sinni verið nefndur dagur og stund til að minnast Leifs Eiríkssonar i Bandarikjunum. Það var á föstudag. Sama orðalag fylgdi þeirri tilskipun eins og I fyrri skiptin. Leifur Eiriksson skyldi vera norrænn maður, en ekki sonur tslands, eins og er þó skjalfest af Bandarikjamönnum á styttu þeirri, sem stendur á Skólavörðuholti. Norrænn mað- ur er einskouar millistig á milii þess að vera Skandinavi almennt, íslendingur, Finni eða Dani, eins og skilningur er lagð- ur i það orð núna á tima mikillar norrænnar samvinnu. Sam- kvæmt þeirri kenningu ætti t.d. Snorri Sturluson að vera nor- rænn maður, en ekki sonur tslands, hvenær sem útlend- ingar vildu eitthvað gera með hann. Og þá mun hann jafn- framt hafa skrifaö norrænar bókmenntir. Auövitað er þetta vitleysa, og höfð f rámmi til þess eins að gera Norðmönnum og öðrum Skandinövum hátt undir höfði, og hærra en þeir eiga nokkurn rétt á. Leifur Eiriksson var islenskur maður samkvæmt skilningi okkar tima og samkvæmt skiln- ingi Bandarikjamanna, sem sendu okkur styttuna af syni tslands. Þeirri staðfestingu fær ekkert breytt, jafnvel þótt öflug skandinavisk samtök i Banda- rikjunum og félagsskapurinn „Synir Noregs” þar I landi vilji láta umtalsverða menningar- arfleifð islendinga falla sér til góða, hvenær sem til hennar þarf að gripa, undir dulnefninu „norrænn maöur, norrænar bókmenntir”. Landlægur aum- ingjaskapur tslendinga I sam- skiptum við frekjuliðið á hinum Norðurlöndunum, svo og af- skiptaleysi utanrikisráðuneytis- ins um þessa hluti, sem vill Hk- lega heldur hafa mál Leifs i flimtingum, bendir aðeins til þess að fööurlandið hefur orðiö eftir i ferðatöskunum og kokteilboöunum. Ekki er við öðru að búast en opinberir stjórnarerindrekar Bandarikjanna hér á landi muni fúslega votta Leifi Eirikssyni virðingu sina með einum eða öðrum hætti og verða þannig til að auövelda að koma landkönn- uðinum úr klóm norrænunnar og til sins heima, ef eftir væri leitað. En til þess eru islenskir ráðamenn of sljóir, og kannski heldur ekki heppileg rikisstjórn við völd til að halda uppi slikum minnum. Bandaríkjamenn eru sem sagt ekki I tlsku núna. Engu að siður eru hin gömlu tengsl okkar viö Norður-Amer- Iku óvéfengjanleg. Þar fæddist fyrsta hvlta barnið, sem siðar var Snorri Þorfinnsson,' bóndi að Glaumbæ i Skagafirði. Þess er auðvitað aldrei getið af þeim þokulúðrum norrænunnar, sem helst halda merki Leifs Eiríkssonar á lofti i Ameriku. Fæðing Snorra gengur þó næst á eftir landafundinum sjálfum, en eins og mál horfa nú við, er óþarfi að halda þeim atburði að Sonum Noregs, þvl þeir mundu óðara vera búnir að falsa sög- una og koma sér upp Glaumbæ i Noregi. Svarthöföi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.