Vísir - 14.10.1981, Side 19
Miövikudagur 14. október 1981
VÍSIR
19
Kvedjuhóf til heiðurs
Maestra Eugenia Ratti
Félagar i Pólýfónkórnum héldu kvebjuhóf til heiöurs itölsku söng-
konunni Maestra Eugenia Ratti I Súlnasal Hótel Sögu á sunnudags-
kvöldiö, aö loknu námskeiöi sem söngkonan efndi til fyrir kórfélaga.
Um 120félagar i Pólýfónkórnum tóku þátt i námskeiöinu og var greini-
legt á máli manna i hófinu svo og viömóti gagnvart hinni Itölsku lista-
konu aö hún hefur þar unnið frábsert starf og má segja aö hún hafi átt
hvert bein og hverja taug i þeim sem viöstaddir voru kveöjuhófiö þetta
kvöld.
Samkvæmiö hófst meö léttum söngæfingum og kórsöng Pólýfónkórs-
ins, en siöan var borinn fram kvöldveröur og á milli rétta voru flutt
ávörp og fjölniargir einsöngvarar úr hópi kórfélaga komu fram við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Söngvararnir sem komu fram voru Friöbjörn G. Jónsson, lngibjörg
Marteinsdóttir, Hjördis Hjörleifsdóttir, Eygló Walderhaug, Sigrún
Gestsdóttir, Arni Sighvatsson, Margrét Pálmadóttir, Páil Jóhannes-
son, Una Elefsen og aö auki tveir óvæntir geslir, Janis Caroll og Krist-
inn Sigmundsson.
Hápunktur kvöldsins var svo söngur Maestra Eugenia Ratti sjálfrar
og duidist engum sem á hlýddu aö þar fór afburða listakona, cnda viö-
fræg úr þekktustu óperuhöllum heims. Veislustjórar voru ólöf
Magnúsdóttir og Ingólfur Guðbrundsson og I iok hófsins afhenti Ingólf-
ur hinni itölsku listakonu þakklætisvott frá kórfélögum, feröabók Poul
Gaimard, fágætan gripsem nú ersvo tilófáanlegur. t bókina voru rituö
nöfn þeirra er tóku þátt i námskeiöinu.
Aö lokinni dagskránni var stiginn dans fram eftir nóttu viö undirleik
Dansbandsins en meðfylgjandi myndir voru teknar I hófinu á sunnu-
dagskvöldiö.
Arni Sighvatsson.
Hinni itolsku iistakonu var ákaft fagnað i kveöjuhófinu sem var haldiö
henni til heiöurs.
Séö yfir salinn.
Eygió Walderhaug
Kristinn Sigmundsson.
Maestra Eugenia Ratti á sviðinu ásamt undirleikaranum Jónasi Ingi-
mundarsyni.
Janis Caroll.
Margrét Pálmadóttir og
Páll Jóhannesson.
Maestra Ratti ásamt Siguröi Demetz Franzsyni sem var annar
heiöursgestur hófsins enda átti hann afmæli þetta kvöld.
Pólýfónkórinn söng undir stjórn Ingólfs Guöbranssonar og undirleik Maestra Ratti.
Una Elefsen. (Visismyndir GVA) Friöbjörn G. Jónsson. Ingibjörg Marteinsdótlir. Hjördis Hjörieifsdóttir. Sigrún Gestsdóttir.
*