Vísir - 24.10.1981, Blaðsíða 9

Vísir - 24.10.1981, Blaðsíða 9
Laugardagur 24. október 1981 VtSIR 9 ■ ■ Hvar endar þetta? Sagt er aö ekki sé mikið hlust- aö á Utvarpsumræöur frá al- þingi. Þaö er vissulega rétt, aö ekki er þaö upplifgandi til hlust- unar aö heyra háttvirta alþing- ismennina vaöa ýmist i ökkla eða eyra i lofi og lasti eftir þvi hvort þeir sitja i stjórn eöa st jórnarandstööu. Fáfróður kjósandinn veröur litlu nær eftir slika umræðu, enda óliklegt að nokkur hlýði á þaii ræ'öuhöíd af alvöru i þeim tilgangi að átta sig á réttu eða röngu i pólitikinni. Fólk hefur þvi fyrirfram dæmt eldhúsdaginn óalandi og óferjandi og snýr sér að Roger Moore og John Wayne á mynd- segulbandinu. Þeir eru ofar á vinsældarlistanum, hvaö sem liöur öllum skoöanakönnunum um vinsældir Gunnars Thor! Ræður um ekki neitt Fyrir okkur hina, sem höfum pólitisku bakteriuna eða hlust- um af skyldurækni eru þessar skylmingar i sölum alþingis mátulega þolandi og jafnvel býsna skemmtilegar á köflum. Eða er þaö ekki á stundum bros- legt þegar stjórnmálamaður tekur sjálfan sig svo hátiölega aö flytja kortersræöu um ekki neitt? Raöa saman oröum um baráttuþrek verkalýössamtak- anna, kaupmátt ráöstöfunar- tekna, hjöðnun veröbólgu miöaö viö þjóöarframleiöslu, rekstrar- skilyröi undirstööuatvinnuveg- anna og stööugleika og jafnvægi i þjóöarbúskapnum. Hinsvegar er ósanngjarnt aö halda þvi fram aö allar ræöur kvöldsins hafi veriö innihalds- lausar. Margt kom þar fram, sem hefur pólitiska þýöingu. Sjálfstæöisráöherrarnir láta engan bilbug á sér finna, og ekki fer á milli mála, að þeir eru harla ánægöir meö frammi- stööu rikisstjórnarinnar. Þeir sjá engar blikur á lofti, en flytja áferöafallegar ræöur um trausta efnahagsstjórn, fram- farir og atvinnu. Einn þeirra gekk jafnvel svo hraustlega til verka aö vísa á bug öllum áhyggjum af land- flótta meö þeim rökum, að Ei- rikur rauöi heföi einnig haft út- þrá! Hún væri okkur i blóö bor- in ævintýramennskan og út- þráin og engin ástæöa til aö gera veöur út af henni, frekar en Grænlandsför Eiriks foröum daga. Erlend skuldasöfnun Stjórnarandstæöingar geröu sitt besta til aö sverta ástandið, töldu fulla atvinnu lltiö afrek, hér heföi ekkert atvinnuleysi verið i hálfan annan áratug og teldist heldur ekki til tiöinda á þessu ári. Geir Hallgrimsson og fleiri bentu á að auk mikillar skattheimtu, sem geröi rikis- sjóöi kleift aö skila afgangi, væri þvi ráöi beitt I auknum mæli, aö færa útgjöld yfir á lánsfjáráætlun, og nú væri svo komið aö greiöslubyröi erlendra lána heföi aldrei verið meiri. Tómas Arnason viöurkenndi þessa hættu og upplýsti aö Framsóknarflokkurinn heföi á- hyggjur af þeirri þróun. Hann tók meira að segja fram, aö ár- angurinn i baráttunni gegn verðbólgunni, væri fyrst og fremst vegna aukinnar erlendr- ar skuldasöfnunar. Þetta var ó- vanaleg hreinskilni og virðing- arverö. Tómas fær plús fyrir slikan málflutning, ekki vegna þess aö hann fái stjórnarand- stööunni vopn I hendur, heldur vegna þess aö hann viöurkennir staðreyndir. Það er meira en margur gerir. Hinn talsmaöur Framsóknar- flokksins, Steingrimur Her- mannsson talaöi einnig, þannig aö eftir var tekiö. Þaö má Stein- grimur eiga aö hann segir hug sinn, talar út úr pokahorninu, hvort sem menn eru honum sammála eöa ekki. Þannig var hann opinskár I afstööu sinni til Flugleiöa og fer ekki lengur á milli mála, aö samgönguráö- herra er I meira lagi óhress út i þá Flugleiðamenn. Þaö kann aö draga dilk á eftir sér. ritstjórnar pistill Etlert B. Scturam ritstiöri skritsr Kaupa sér gott veður Annaö sem kom fram I máli Steingrlms og til tlöinda getur talist, var aövörun hans gagn- vart verkalýöshreyfingunni og kaupkröfum hennar. Ráöherr- ann vísaöi nánast á bug öllum grunnkaupshækkunum. Segja má, aö ummæli Steingrims hafi veriö það eina sem heyröist frá rikisstjórninni um kjarakröfur launþegahreyfingarinnar. Þaö sýnir auövitaö innihaldsleysi þessarar umræðu, aö ræöumenn foröuöust eins og heitan eldinn aö minnast á þaö mál, sem mestu ræöur um framvindu efnahagsmálanna á næsta ári. Svavar Gestsson var spurður af Karvel Pálmasyni um afstöö- una til þessara krafna en Svav- ar kaus aö vikja sér undan þeim spurningum meö aldeilis dæma- lausri langlóku um „baráttu- þrek verkalýöshreyfingarinn- ar”. Var hann aö kaupa sér gott veöur? Fánýt mælistika Eitt þaö athyglisveröasta sem fram kom I umræöunni á fimmtudagskvöldiö var um- mæli fjölmargra þingmanna varöandi myntbreytinguna. All- ir þeir sem tjáðu sig þar aö lút- andi voru sammála um, aö myntbreytingin heföi gjörsam- lega misheppnast. Mörg dæmi voru nefnd þvl til sönnunar, og þá bæöi af stjórnarsinnum sem stjórnarandstæöingum. Þetta kemur heim og saman viö til- finningu og reynslu almennings, allt hefur stórhækkaö I veröi, I skjóli myntbreytingarinnar. Þvi furöulegra er, aö vlsitalan skuli ekki mæla framfærslukostnaö- inn hærri en raun ber vitni. Skýring er auðvitaö aö ein- hverju leyti fólgin I þvi, aö vlsi- töluvörum er haldiö niöri, meö- an flóögáttir opnast I verölagi að ööru leyti, og undirstrikar þaö aöeins fánýti þessarar mælistiku, sem ekkert segir lengur til um útgjöld venjulegr- ar fjölskyldu. Visitalan er enn aö mæla framfærslu fjölskyld- unnar sem bjó I Reykjavlk ein- hvern tlman á sjötta áratugn- um. Þetta er jafn fáránlegt, eins og þaö aö segja fólki aö klæöa sig samkvæmt tiskunni eftir striö, eöa haga heimilishaldi I samræmi viö búskaparhætti fyrri kynslóða. Svo mikil og snögg umskipti hafa orðiö I lifi og lifsháttum tslendinga á tveim áratugum, aö þar er um aö ræöa tvö óllk samfélög. Samviskuleysi En ef vlsitalan hefur dagaö uppi, þá má ekki slöur tala um stöönun I karpinu um kjörin. Þvillktog annaö eins! 011 þjóöin er farin aö gera sér grein fyrir hringsnúningi Alþýöubanda- lagsins I kaupgjaldsmálum. Slagoröiö „samningarnir I gildi” er oröiö aö almennu at- hlægi og satt aö segja þarf aödá- unarvert samviskuleysi, aö snúa svo rækilega viö blaöinu, eins og Guömundur J. og kump- ánar hafa gert. Þaö er auövitaö þeirra mál, hversu langt hægt er aö ganga I flokksþjónkun en ekki er unnt aö imynda sér, aö kjósendur, launþegar, beri mikla viröingu fyrir stjórn- málamönnum eöa verkalýös- foringjum, sem snúast eins og vindhanar I svo stórpólitlsku máli. Alþýöuflokkurinn tók einnig þátt I kröfunni um „samningana i gildi”, en haföi þá einurö og þrek tii aö snúa viö blaöinu og viöurkenna siöar aö kaupmátt- ur er meira viröi en krónutölur. Þegar Kjartan Jóhannsson benti á og gagnrýndi umskipti Alþðubandalagsins I ljósi hinnar hófsömu kröfu ASÍ um 13% kauphækkun á tveim árum, svaraði Svavar Gestsson þeirri gagnrýni meö upprifjun á skil- yrðum Alþýöuflokksins, eftir siöustu kosningar, þess efnis aö kaupgjaldi yröi haldiö niöri. Meö öörum oröum, hann skammaðist yfir þeim tillögum Alþýöuflokksins, sem voru efn- islega á sömu lund og Alþýöu- bandalagiö stóö aö um siöustu áramót, og viröist fylgja nú. Skilur einhver upp eöa niöur I þessum rökræöum? Eru þetta rökræöur ábyrgra stjórnmála- leiötoga? Er nema von aö kjós- endur hafi lltinn áhuga á ab fylgjast meö eldhúsdagsumræö- um frá alþingi viö sllkar aö- stæöur? Hvar endar þetta? Þegar þetta er skrifaö, er enn ekki vitaö um viðbrögö vinnu- veitenda gagnvart kröfum ASI. Þó hefur framkvæmdastjóri VSl, fullyrt aö þegar allar kröf- ur væru lagöar saman og reikn- aöar út I beinum kauphækkun- um væru þær nærri 40%. Samt eru menn á þeirri skoðun aö kröfurnar séu hófsamar! A sama tima er gert ráö fyrir 1 til 2% auknum þjóöartekjum á næsta ári. A sama tima er verib aö taka milljóna tuga lán til aö styrkja atvinnuvegina og halda þeim gangandi. Hvar endar þetta? Ellert B. Schram

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.