Vísir - 24.10.1981, Qupperneq 12
12
* rM rrfT t i«
tW? Wtf'ft'íWí -M "ilkksfcwm-
LaugardagúV 24.’ ötidb'er11981' *4 4
sælkerasídan
Nýr veitingastaður i Reykjavik:
Lækjarbrekka
Eins og komiB hefur fram I
fjölmiðlum var nýlega opnaöur
veitingastaöur i Reykjavik. Var
ekki nóg af veitingastöðum
fyrir? Hvenær mettast þessi
markaður? Sennilega hafa
margir Reykvikingar spurt sig
þessarar og fleiri spurninga.
Sælkerasiðan er þeirrar skoö-
unar að enn eigi nýir veitinga-
staðir eftir að veröa opnaöir hér
i Reykjavik. Verö á veitingum
hefurlækkað, þaö er ekki lengur
neinn munaöur aö fara Ut aö
boröa. Þaö er athyglisvert hvaö
margir Reykvlkingarfara út aö
boröa í hádeginu, einnig er þaö
ánægjulegt aö nánast engin
vandamál hafa oröiö samfara
þvi, aö margir hinna nýju veit-
ingastaöa hafa vinveitingaleyfi.
LÆKJARBREKKA er falleg
veitingastofa, sem ánægjulegt
er aö heimsækja. Þaö er lágt
undir loft niðri en haöstofu-
stemning á efri hæöinni. HUsiö
sjálft er sannkallaö listaverk,
öll litasamsetning er hin þægi-
legasta. Kerti eru á borðum og
aö degi til er þægilega bjart
inni, gluggarnir eru hæfilega
stórir. Þaö eina sem Sælkera-
siöan hefur Ut á að setja er aö
Umsjón
Sigmar B.
Hauksson
fjarlægja mætti þunglamaleg
veggteppi og nokkrar af þeim
mörgu myndum sem eru á
veggjunum. Húsiö sjálft er
nægjanlegt listaverk og ætti að
fá að njóta sin til fulls. Gólf-
klukka er ieinni stofunni en hUn
er hinsvegar vinaleg og passar
vel viö innréttinguna.
MATSEÐILLINN: er langt frá
þviaövera fátæklegur. Boöiö er
upp á 8 forrétti, 4 súpur, 9
sjávarretti, 9 kjötrétti, 8 smá-
rétti og 7 eftirrétti. Já.þaö er af
nægu aö taka. Aö visu getur
Sælkerasiban ekki séð neina
óhemju spennandi rétti á seðl-
inum. Aö visu er þó nokkrir rétt-
ir spennandi, t.d. forréttur nr. 5,
sem er „hrátt hangikjöt með
sinnepssósu”. Kjötréttur nr. 28
er „baconvafiim turnbauti með
Lakjarbrekka er vinalegur veitingastaöur.
kryddsmjöri”, þessi réttur er
hinn girnilegasti. Þaö er gaman
aö sjá aö ostur er oröinn „fastur
liður” á matseðlum islenskra
veitingahúsa. I LÆKJAR-
BREKKU er boöið upp á osta-
bakka og djúpsteiktan Cam-
enbert meö rifsberjahlaupi.
Sælkerasiöan þykist vita aö
er þessi seöill var settur saman
var þaö haft i huga að koma til
móts viö óskir og smekk hins
venjulega borgara en ekki sér-
viskra sælkera. Hinsvegar telur
Sælkerasiðan aö matseölar
Reykviskra matsöluhúsa, ein-
kanlega þeirra minni, mættu
vera minni, þ.e.a.s. færri réttir
á þeim en hinsvegar mætti
skipta örar um seðil en nú er
gert. Auk þess mætti aö skað-
lausu hafa á boöstólum ööru
hverju nýstárlega og spennandi
rétti. A matseðli LÆKJAR-
BREKKU eru nokkrir gimilegir
réttir, hinsvegar treystir Sæl-
kerasiöan sér ekki til aö leggja
neitt mat á réttina, staöurinn
hefur ekki verið opinn nægjan-
lega lengi til þess. Veröur nánar
I
I
I
I
I
I
I
I
fjallaö um þaö atriöi síðar hér á
siöunni.
VINLISTINN: er óvenju fjöl-
breyttur. A honum eru hvorki
meira né minna en 13 tegundir
rauövína og 13 teguundir hvít-
vina. Þaö sem meira er um
vert, þá eru á seölinum nokkrar
af betri rauðvins- og hvitvins-
tegundum sem hægt er aö fá
hérlendis. Einnig er auövitað
bo&ö upp á rósavin, fordrykki
og ýmsar sterkari veigar.
LOKAORÐ: Veitingahiísið
Lækjarbrekka er vinaleur
staður i hlýlegu húsi og á
skemmtilegum stað Aö mati
Sælkerasiðunnar mætti matseö-
illinn veraö aöeins „djarfari”.
Staöurinn minnir á veitinga-
húsiö „Torfuna”bæöi hiisiö sem
slikt og eins uppsetningin á
matseölinum. Eins og áður
hefur komiö fram, veröur
fjallað nánar um LÆKJAR-
BREKKUhér á Sælkerasiðunni.
Sælkerasiöan vill svo nota
tækifæriö og óska eigendum og
starfsfólki til hamingju og óska
þeim alls hins besta.
tslenska lambakjötiö er upplagt I þennan indverska rétt. | J /k T) Vf
Góda súpu gjöra skalj I
LUXEMBURG
Fyrir þau ykkar sem boröiö
eina heita máltiö á dag t.d. i
hífdeginu, þá kemur hér upp-
skrift af pottrétti eöa súpu sem
upplagt er aö boröa á kvöldin.
Þaö tekur sinn tima aö útbúa
þennan rétt en þetta er upplagö-
ur „snarl”-réttur. Einnig má
bjóöa þennan rétt t.d. eftir leik-
húsferö. Þessi réttur er Ind-
verskrar ættar og þvi nokkuö
bragömikill og þarf rétturinn
nokkuö langa suöu. En er ekki
upplagt aö laga góöan rétt eftir
amstur dagsins, þaö er bæöi
gagnleg og skemmtileg tóm-
stundaiöja sem allir i fjölskyld-
unni geta tekiö þátt i.
1 þennan rétt þarf:
3 meöalstóra gula lauka
2 matsk. smjör
1 matsk. karrý
1/2 (tæpl.) tesk kajenepipar
1 1/2 tesk. paprikuduft
2 hvitlauskrif
1 græn paprika
1 dós niðursoönir tómatar
500 gr. lambakjöt skoriö I bita
(stærö viö sykurmola)
3 dl. kjötsoö
1 tesk kartöflumjöl.
Saxiö niöur laukinn og steikiö
hann i smjörinu ásamt karrý-
inu, kajenepiparnum, papriku-
duftinu og hvitlauknum, (sem
áöur hefur veriö pressaöur, eöa
finsaxaöur). Strimliö paprikuna
og þvoiö og setjiösvo 1 pottinn á-
samt niöursoönu tómötunum.
Látiö þetta malla i 5 min. Þá er
kjötinu og kjötsoöinu bætt I pott-
inn og rétturinn látinn malla viö
vægan hita i klukkutíma.
Fylgist vel meö aö allur vökvi
gufi ekki upp úr pottinum, bætiö
i hann vatni ef meö þarf. Undir
lokin er kartöflumjölinu hrært
út I vatn og jafningnum blandaö
saman viö vökvann. Þá er þessi
súpa, sem eiginlega ekki er nein
súpa, tilbúin. Ágætt er aö hafa
hrisgrjón meö þessum rétti.
Beriö þau fram i sér skál.
Einnig á aö bera fram gróft
brauö meö þessari Indversku
„súpu”. Hvaö á svo aö drekka
með? Jú, t.d. pilsner eöa létt-
mjólk, ef hún er til.
,,Einn”
á undan
matnum
í finni veislum tilheyrir aö
bjóöa lystauka fyrir matinn. Ef
drekka á létt vin meö matnum
og boröa á fleiri en einn rétt, þá
á alls ekki aö bjóöa sterka lyst-
auka. Þaö á raunar aldrei aö
bjóöa brennda drykki, svo sem
viský eöa vodka fyrir mat. Hér
áöur fyrr voru hanastél eöa
kokteilar mikiö i tisku. Sterkir
kokteilar passa ekki sem lyst-
auki fyrir mat. En er þörf á aö
bjóöa drykk fyrir matinn? Auö-
vitaö er þaö ekki nauösynlegt.
Ef t.d. er haft hvitvin meö for-
réttinum og rauövin meö aöal-
réttinum, þá er upplagt aö bjóöa
glas af hvitvini áöur en sest er
til borös. Annars er upplagt aö
nota góö hvitvin sem lystauka
fýrir matinn: t.d. hiö ljúfa
Elsassvin Gewurztraminir,
Menn ættu aöláta séreinn nægja á undan matnum.
boröum
ljómandi fordrykkur. Nú, einnig
má bjóöa gott þurrt eöa hálf-
þurrt sherry sem lystauka eöa
þá þurran vermút, t.d. Martini
dry eöa Noilly Pratdry. Hægt er
aö fá I verslunum A.T.V.R. svo-
kallaöa aperitifa. Af þeim mætti
nefna Dubonnet St. Raphael,
Kir, Bitter Martini og hinn
fræga drykk Campari. Þaö er ó-
kurteisi aö bjóöa of marga lyst-
auka fyrir matinn, 1 eöa 2 ættu
aö vera nóg. Gestirnir eiga ekki
aö þurfa aö drekka fordrykki
meö matnum. Þegar sest er aö
eru glös sem for-
drykkurinn var i borinn út. Já,
þaö er af ýmsu aö taka i þessum
efnum. Sælkerasiöan er hér meö
uppskrift aö fordrykk, sem er
ágætur lystauki.
Helliö hvitvinsglas hálft af
misket hvitvini. Bætiö svo i
glasiö:
1 matsk. Peter Heering likjör
1 matsk. mulinn Is.
Þaö er auövelt aö blanda
þennan drykk, hann er bragö-
góöur og ekki mjög sterkur. Viö
köllum þennan drykk „Dögg”.
t byrjun október voru
■ islenskir sælkerar á ferð I
• Luxemborg. Sælkerasiöa Visis
{ og Sælkeraklúbburinn eru
! frumherjar I þessum þætti
! ferðamála. Þetta er i þriðja sinn
■ sem sælkerar leggja land undir
J fót. Aö hvaða leyti eru Sælkera-
I feröir frábrugðnar öörum
j feröalögum? I Sælkeraferöirnar
fer fólk sem áhuga hefur á
góöum mat, en einnig á ýmsu
öðru, svo sem matar- og vin-
menningu annarra þjóöa. 1
Sælkeraferöiimi til Luxemborg-
ar var Moseldalurinn heim-
sóttur og vinkjallarar og akrar
skoöaöir. Einnig var skoðað
vinsafn i Ehnen, sem var hiö
áhugaverðasta, en þar gafst
kostur á aö skoöa nánast allt i
sambandi viö vinframleiöslu.
Luxemborgarar framleiða
mörg ljómandi góð hvitvin og
veröur nánar fjallað um þau
siöar hér á Sælkerasfðunni. Enn
hefur þó ekki verið minnst á
mikilvægasta þátt Sælkera-
feröanna en þaö er aö „slaka
á”, skilja stressiö eftir heima.
Ferðirnar eru ekki of skipu-
lagöar. Fólk þarf ekki aö standa
ierfiöum ferðalögum og þaöbýr
á þægilegum hótdum og getur
látiö sér liöa vel. 1 siöustu Sæl-
keraferö var búiö á hinu
ljómandi hóteli Aarogolf
Sheraton. Ekki sakar aö geta
þess aö á hótelinu er stórgóður
veitingastaöur, og rétt við hótel-
iö er stór golfvöllur. í
Luxemborg eru margir frá-
bærir veitingastaöir enda er
Luxemborg i hjarta Evrópu.
Það má þvi segja aö þeir sem
ekki hafa tíma til að heimsækja
nokkur Evrópulönd i sömu ferð-
inni ættu aö dveljast i Luxem-
borg i nokkra daga, þar gætir
sterkra franskra og þýskra
áhrifa, sömuleiöis portú-
galskra, og italskra. I Luxem-
borg eru italskir, kinverskir og
griskir veitingastaöir, já og
jafnvel islenskir. Sælkerum ætti
þvi ekki aö leiöast i Luxemborg.
Þvi miöur komust margir ekki
meö i siðustu Sælkeraferð til
Luxemborgar og er þvi í bigerð
aö endurtaka Sælkeraferöina
um miðjan növember. Nánar
veröur sagt frá þessari ferö
siöar en þeir lesendur Sælkera-
siöunnar sem hug hafa á að taka
þátt I þessari Sælkeraferð til
Luxemborgar eru beönir aö
senda nafn og heimilisfang til
blaösins. Þátttaka i feröina er
takmörkúö. Haft verður svo
sambandi viö þau ykkar sem
sendiö siöunni bréf.
Heimilisfangiö er:
Dagblaöiö Visir
Sælkerasiöan
Siöumúli 14
105 Reykjavik.
Frá Sælkeraklúbbnum
Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn i Veitingahús-
inu NAUSTI, sunnudaginn 31. október kl. 16.00. Nyir
félagar hvattir til að mæta. Fundurinn nanar auglýst-
ur í næsta helgarblaði Visis.