Vísir - 24.10.1981, Síða 14
vtsm
vtsm
Laugardagur 24. oktdber 1981
Laugardagur 24. október 1981
ast og þvi áhugasamur og leggur
sig allan fram”.
Sjónienn fórna mann-
réttindum
,,Ég hef lært mjög mikið af þvi
að stunda sjóinn, ekki sist hef ég
lærtaðþekkja manninn betur. En
sannleikurinn er sá, að menn
fórnamiklum mannréttindum við
það að vera úti á sjó. Sjáum bara
til með það eins og til dæmis á
togurunum. Sjómaðurinn veit
aldrei hvenær hann kemur i land.
Svo stoppar hann 36 tima i landi.
Það er allt og sumt. Hann getur
engar skuldbindingar gert i landi.
Hann getur ekki skuldbundið sig
til að mæta hér eða þar á tiltekn-
um degi, hann getur ekki tekið að
sér stjórnarstörf i einhverju
félagiog hann getur ekki ákveðið
að sjá Platters á tilteknum tima.
Til þess að svona nokkuö sé hægt
verður hann að taka sér fri að
minnsta kosti einn túr ef ekki tvo.
Ég er steinhissa á þvi, að á meöan
þið blaðamenn eruð búnir aö
semja um þriggja mánaða fri á
fimm ára fresti skuli svona vera
háttaðum sjómennina. Mér þætti
eðlilegt að sjómenn fengu þriggja
mánaöa fri eftir 800 daga úthald”.
Fæ útrás fyrir félags-
þörfina um borð
Þú nefndir áhuga á Sjómanna-
skólanum. Þýðir það að þú getir
ekki hugsað þér að vera á dekkinu
til frambúðar?
„Nei, siður en svo. Þaö eru
margir kostir við þáð að vera á
dekkinu umfram „hólinn”. Þegar
ég tala um löngun til að fara i Sjó-
mannaskólann er það fyrst og
fremst til að fá aukna þekkingu i
þessu fagi. Já, ég talaði um litla
möguleika sjómanna á þátttöku i
félagsstarfi i landi. Sjálfur hef ég
fengið útrás fyrir félagsþörf mina
um borð þann tima sem ég hef
verið á sjó. Um borð i skipi þar
sem er fimmtán manna áhöfn fer
fram mikið félagslif i ýmsu
formi. Það má segja að þetta sé
eins og litið málfundafélag þótt
engin formleg stjórn sé eöa þess
háttar. Það gilda samt vissar
reglur”.
Leikaraskapur i landi
„Menn fá að tala án þess að
gripið sé frammi fyrir þeim og
mönnum er unað þess að hafa sin-
ar eigin skoðanir. Kannski ekki
alveg i friði en nóg til þess aö
halda þeim frammi. Það sem
veitir manni frekast félagslega
útrás i þessu samfélagi er, aö
þarna getur maður lagt sig allan
fram. Maður getur verið hrein-
skilinn og opinn og sagt það sem
maður hugsar. í félagsstarfi i
landi er oft á tiðum ákveðinn
leikaraskapur. Þennan tima sem
ég var á sjó fann ég ekki hjá mér
þörf til að mæta á fundi og
ráðstefnur sem ég átti kost á
meðan ég stoppaði i landi”.
Vilmundur má gæta
sin...
Alþýðuflokkurinn, formanns-
kjör þar Vilmundar og fleira.
Spurt.
„Ég var ánægður þegar ég
heyrði að Kjartan hefði veriö
kjörinn formaður. Sjálfur átti ég
þess ekki kost að fylgjast með
þessu i návigi þvi ég var úti á sjó
um þær mundir. Samsetningin
Kjartan og Magnús er góð, gamli
grunnurinn og nýi grunnurinn. Ég
er þeirrar skoðunar að Vil-
mundur megi aðeins gæta sin á
metnaðargirni sinni. Ég er að
gefi kost á mér næst en það er
ýmsu háö. Ég tek það alveg skýrt
fram, að fyrir siðustu kosningar
var ég ákveöinn i að gefa kost á
mér til þingmennsku og gerði
það. En eftir þvi sem timinn hefur
liðið frá siðustu kosningum og ég
tekið til við önnur störf með ný
viðhorf i huga þá finn ég að það
eru mörg svið þjóðfélagsins þar
sem hugsanlega má ná árangri i
félagsmálum eins og á þingi.
Strákurinn Gulli
Við rikjandi aðstæður i þinginu
getur það varla talist spennandi
fyrir unga menn að sækjast eftir
þingmennsku. Þar virðist vonlitið
að koma góðum málum áfram,
tregöulögmálið er alsráðandi.
Margir þingmenn eru orðnir yfir
sig þreyttir á jobbinu og mundu
fegnir skipta ef þeir fengjustarf
viö sitt hæfi”.
Páll á Höllustöðum kallaði þig
strákinn Gulla. Var ekki tekið
mark á þér i þinginu?
„Það kann vel að vera að hugur
margra þingmanna hafi verið
þannig þegar ég kom á þing en ég
varð ekki var við það i daglegum
störfum. Þaðkom náttúrulega oft
fyrir þegar ég bar fram mál sem
stungu eilitið i stúf við þaö sem
áður hafði verið flutt, að menn
svöruöu mér með hæönislegu orö-
bragöi. Hins vegar varð ég miklu
meira var við þetta þegar ég um-
gekkst eldri embættismenn sem
telja sig fremur stóra en litla.
Þeir virtusteiga erfitt með að líta
á mig sem alvöruþingmann i
fyrstu en áttuðu sig siðan flestir á
hlutverki sinu”.
Þingmennskan eðlilegt
framhald
Uröu það þér ekki mikil von-
brigði að detta svo snemma út af
þingi? Var það ekki gamall
draumur að komast á þing, ha?
„Vonbrigði. Það held ég ekki.
Ég hef verið flokksbundinn Al-
þýðuflokksmaður frá þvi ég var
16 ára og virkur i félagsstörfum
viðar. Þannig má kannski segja
að þingmennskan hafi verið eðli-
legt framhald af ýmsum störfum,
sem ég hafði verið að sinna áður.
Ég heföi hins vegar aldrei orðið
þingmaöur ef prófkjörin hefðu
ekki komið til. Hinu er ekki að
leyna, að þeirrar tilhneigingar er
farið að gæta hjá þeim sem eru i
forystu hverju sinni að þeir reyni
að draga úr virkni þess tækis —
prófkjörsins — sem kom þeim til
valda. Auðvitað til þess að aðrir
geti ekki notað þetta tæki til að
bola þeim sjálfum i burtu. Þessa
er fariö að gæta i Sjálfstæðis-
flokknum og hjá Alþýðuflokknum
kom þessi tilhneiging virkilega
fram i prófkjörinu 1979”.
Guð verður maður
„Ég á hins vegar mina framtið
fyrir mér i árum og enginn kom-
inn til með að segja aö ég geti
ekki orðið þingmaður seinna þótt
þaö yrði ekki endilega alveg á
næstunni." Og nú er spurt um
sambandið milli guðfræðináms
og stjórnmálavafsturs.
„Þaö er skritið hvað þetta kem-
ur mörgum á óvart. Guðfræðin
spannar öll svið hins mannlega
lífs, þar er ekkert undanskilið. t
guðfræöináminu er ég að fjalla
um alla þætti lifaðs lifs á jörðu.
Við skulum gæta að þvi aö grund-
völlurkristindómsinsersá að guð
verður maður i Jesú Kristi. Það
er það sem skiptir sköpum fyrir
kristna trú. Guð kom og vitjaði
mannsins. Hann lifði með mönn-
um, hann þjáöist, hann hungraði,
visu mjöghrifinn af mönnum sem
eru metnaðargjarnir og áhuga-
samir um að koma sjálfum sér og
sinum baráttumálum á framfæri.
En það verður að gæta nokkurs
hófs i þessu. Ég hef ekki trú á þvi,
Vilmundar vegna, að hann þurfi
aö eignast allan heiminn á einu
eða tveimur árum. Ég held að það
væri gott fyrir hann og þau mál-
efni sem hann hefur áhuga á, að
hann mætti berast áfram i stjórn-
málunum svona með þeim hraða
sem honum hæfir. Hann má ekki
fara sér of óðslega i þessum efn-
um og verða sinni eigin
metnaðargirni að bráð eins og ég
tel að sé mjög nærri þvi að ger-
ast. Ég tala ekki um metnaðar-
girni hér i neinum neikvæðum
skilningi.
En þú sjálfur?
Ert þú metnaðargjarn?
Já, en i hófi þó. Hin eiginlega
köllun er sú, að maður hafi ein-
lægan áhuga á þvi, sem maður
tekur sér fyrir hendur. En þessi
köllun má aldrei verða svo æöis-
leg að maður hafi meiri áhuga á
sjálfum sér en málefnunum —
egóiö má ekki drepa málefnin.
Sá sem svo skorinort mælir er
Gunnlaugur Stefánsson fyrrver-
andi alþingismaöur Alþýðu-
flokksins, guðfræðinemi og sjó-
maður. Hann var kjörinn á þing
fyrir flokk sinn i kosningunum
1978 og sat á þingi meðan sú
stjórn var við völd i rúmt ár.
Hann var yngstur þingmanna,
aðeins 26 ára gamall þegar hann
steig fyrstu skrefin i þinghúsinu.
En fleyg urðu ummæli Gunniaugs
við Visi eftir að hann var kjörinn
þar sem hann sagðist mundu taka
sér fri frá guðfræðináminu i tólf
ár til þingsetu.
Að þessu sinni
„Nei þetta var nú ekki alveg
svona. Ég átti við það, að þing-
menn ættu almennt ekki að sitja
lengur en tólf ár á þingi. Þingset-
an þjónar ekki réttum tilgangi ef
húnfer mikiðfram úr þeim tima.
Um þetta eru mörg dæmi i þing-
inu i dag. Sem sagt aldrei meira
en tólf ár i einu en vitaskuld gat
sá timi orðiö styttri eins og varð
hjá mér að þessu sinni”.
— Að þessu sinni?
„Já.það kann vel að vera aö ég
Gunnlaugur Stefánsson
I helgarvidtali
„Það getur ekki verið nein tilviljun að landsþing
herstöðvaandstæðinga skuli alltaf vera kallað
saman annað hvort þegar flokksþing Alþýðuflokks-
ins er haldið eða þegar þing sambands ungra
jafnaðarmanna er haldið. Þú getur skilað þvi til
félaga okkar i samtökunum að við Kratar tökum
ekki þátt í svona samstarfi lengur”. Og svo var tól-
inu skellt á. Simtali við forsvarsmann samtaka her-
stöövaandstæðinga var lokið.
hann þyrsti. Hann tók þátt i lifi og
starfi á jörð. Þar var ekkert und-
anskilið. Um þetta lif erum við að
.fjalla, ekki<bara hans lif heldur
okkar lif út frá hans”.
Þetta tvennt fer mjög
vel saman
„Þar af leiðandi sjáum við, að
stjórnmál verða ekki rædd og
skilin án þess að við tökum tillit
til trúarþáttarins. A sama hátt
ræðum við ekki trúmál af neinu
viti nema við gerum okkur grein
fyrir þvi i hvaða umhverfi trúin
ersett. Þar snerta stjórnmálin öll
svið mannlifsins og þess vegna
fer þetta tvennt mjög vel saman.
Ef við værum syndlausir eins og
við vorum skapaðir til i upphafi
þá þyrftum við ekki á trú að
halda. En það er nú einu sinni
svo, að við menn erum syndugir.
Allir menn eru syndugir. Við bú-
um við þetta rofna samband milli
guðs og manna og allir eiga kost á
þvi tilboði sem felst i Jesú Kristi.
Það má þvi segja, að hið sam-
eiginlega markmið stjórnmál-
anna og trúmálanna sé að skapa
mannlif sem i felst hin sanna
mennska sem Jesú Kristur er
tákn fyrir”.
Biblian eins og leiðar-
visir við skattframtal
„Vissulega er ég trúaður
maður en ég hef ekki þann trúar-
skilning sem margir virðast hafa.
Margir lita svo á að trúin sé að-
eins leiðarvisir á það hvað sé rétt
og hvað rangt. Siðan er Biblian
notuð eins og leiðarvisir i skatt-
framtali um það hvernig eigi að
rata réttar brautir. Fyrir mér er
hún óneitanlega handhæg á þenn-
an máta en hún er mér miklu
meira. Biblian er miklu meira en
einhver þess háttar leiðarvisir.
Það þarf ekki mikla visku til að
setja saman slikan leiðarvisir”.
Ég stunda ekki þannig
stjórnmálastörf
Nú er aðeins farið yfir i málefni
herstöðvarandstæðinga.
„Það hefur alltaf verið sam-
komulag i Alþýðuflokknum um að
láta ekki þetta mál sundra
flokknum. Við teljum mörg önnur
mál brýnni. Ég hirði ekki um að
setja fram einhver stóryrði um
brottför hersins, sem ég sé aö
ekki verður staðið við i náinni
framtið. Við s jáum dæmi um slikt
hjá Alþýðubandalaginu. Sifelldar
yfirlýsingar þeirra eru marg-
sviknar. Ég stunda ekki þannig
stjórnmálastörf að ég þurfi að
standa frammi fyrir kjósendum
minum annað veifið og segja
þeim að ég þyrii að svikja þá,
annað sé brýnna”.
En samt fylkja Kratar sér
undir merki herstöðvaand-
stæðinga og vinna þar með.mönn-
um sem iðka þessa pólitik?
Þeir hafa beitt ýmsum
ráðum...
„Já það er rétt en satt að segja
hefur litið samstarf verið milli
Alþýöuflokksins og herstöðva-
andstæðinga á undanförnum ár-
um. Alþýðubandalaginu likar
ekkert að vinna með okkur að
þessum málum. Þess hefur gætt i
samtökum herstöðva and-
stæðinga að Alþýðubandalags-
menn hafi einir viljað ráða ferð-
inniog stjórna samtökunum. Þeir
hafa beitt ýmsum ráðum til að
koma i veg fyrir að við getum tek-
ið almennilegan og virkan þátt i
störfum samtakanna”. Nú minnir
Gunnlaugur á timabilið sem rakið
er iupphafi viðtalsins. Meiri guð-
fræði.
Séra Gunnlaugur?
Verður Gunnlaugur Stefánsson
orðinn prestur einhvers staðar á
útkjálka næsta haust?
„Þetta er nokkuð sem ég hugsa
mikið um þessa dagana. Hvað
tekur raunverulega við hjá mér
þegar námi minu vonandi lýkur
næsta vor. Á ég að fara i prests-
skap eða inn á einhver önnur svið
þjóðlifsins? t rauninni get ég
varla svarað þessu. Hér eru
margir þættir, sem skipta máli
ekki sist kjaramálin. Það er mik-
ill ábyrgðarhluti fyrir mann með
fjölskyldu að hella sér út i prests-
skapinn með það markmið að
vinna það starf eins og eðlilegar
kröfur hljóta a ð vera um. Svo illa
er búið að prestum bæði launa-
lega og aðstöðulega. Ungir prest-
ar hafa orðið að drýgja tekjur sin-
ar á ýmsan hátt. Ég þekki dæmi
um kennslu, bókhaldsstörf og
uppskipun samhliða prestsskap”.
í Sjómannaskólann?
„Ég er að kanna með sjálfum
mér hvort þetta yrði fjárhagslega
kleift og hvort til greina geti kom-
ið að vinna eitthvað með. Mér
hefur helst dottið i hug litil útgerð
eða lítiö hrossabú. Guðfræði-
nemar i dag standa frammi fyrir
svona spurningum og verða að
hugleiða framtiðina i þessu sam-
hengi”, auk þess finnst mér
nauösynlegt að vera i lifandi og
beinum tengslum við fólk i at-
vinnulifinu.
Nú var aðeins minnst á útgerð.
Við þykjumst vita að Gunnlaugur
eigi að baki nokkurn tima á sjó,
aöallega á togurum. Spurt um
það.
„Já mér var mjög vel tekið á
sjónum, fyrrverandi þingmann-
inum. Ég kann geysilega vel við
þetta starf og hef mikinn áhuga á
að fara i Sjómannaskólann á
næstu árum ef ég hef tækifæri til.
Sjómennskan á virkileg itök i
mér. Þetta er spennandi starf,
alltaf eitthvað að gerast. Maöur
er sivakandi i þessu. Enda er
maður mjög háður þvi hvað fisk-
Guöfræðin spannar öll sviö hins mannlega llfs
Vissulega er ég trúaöur maöur
Mér var vel tekiö á sjónum
Þaö eru margir þingmenn orönir þreyttir á jobbinu
Skrif Óskar Magnússon
Myndír: EmÍl ÞÓr SÍgurdsSOn É8 á mina framtlö fyrir mér
Menn fá aö hafa slnar skoöanir Ifriöi aö mestu leyti
DREPA MALEFNIN