Vísir - 24.10.1981, Side 19
Laugardagur 24. október 1981
idÉsm
19
Sannkalladur
senuþjófur
Siöastliöiö miövikudagskvöld
gengust jassáhugamenn nánar
tiltekið klúbburinn Jassvakning
fyrir tónleikum i Háskólabiói.
Húsfyllir var og ekki að undra þvi
þó flytjendur væru aðeins tveir þá
höfðu þeir upp á þrennt að bjóða
sem hvert eitt fyrir sig dugar til
þess að fylla samkomusali borg-
arinnar: Gitarleik, jass og
Niels-Henning örsted Pedersen
Tónleikarnir voru auglýstir
sem fyrstu dúótónleikar bassa-
leikarans Niels-Henning örsted
Pedersen og gitarleikarans Philip
Catherine sem báöir eru islensk-
um jassunnendum að góðu kunnir
og hafa heimsótt okkur áöur. Þvi
miöur báru tónleikarnir þess
nokkur merki að auglýsingin
hefði við rök aö styöjast. Ekki aö-
eins að þetta væru fyrstu dúótón-
leikar þeirra félaganna heldur
einnig að skammt væri liðiö siöan
ákveðið heföi verið að halda þá.
Verulega vantaði á að samæfing
væri sem skyldi. Hér voru á ferö-
inni tveir ágætis jassleikarar sem
höfðu æft saman nokkur stef
mestmegnis eftir sjálfa sig en
skiptu si'öan einleiksköflum
bróðurlega á milli sin.
Þvi er þetta sagt aö svo bar
NHÖP af þeim félögum á fyrri
hluta tónleikanna að á köflum var
eins og hann væri einn á sviðinu.
Sama var hvort hann var aö leika
einleikskafla i verkunum eða
leika undir hjá Catherine þá átti
hann athygli áheyrenda allra.
Sannkallaður senuþjófur.
Um tima læddist sá grunur að
undirrituðum að eitthvað væri i
ólagi með hljómflutningsútbúnað
félaganna þar sem hreinlega ekk-
ert heyröist i gitarnum langtim-
um saman. Þaö kom þó fram á
siöari hluta tónleikanna að svo
var ekki þvi Philip Catherine
hresstist allur og þá sér i lagi þeg-
ar þeir tóku til viö aö leika gamla
standarda og lög sem þeir léku
áður með Billy Hart þá fyrst var
hægt að tala um samleik.
Greinilegt var að báöir eru þeir
félagarnir fyrsta flokks lista-
menn en sá meginmunur er á
þeim að NHÖP leikur eins og sá
sem sannfæringuna hefur um eig-
in getu enda var gaman að fylgj-
ast meó svipbrigðum áheyrenda
þegar þeir fylgdust með honum
leika af fingrum fram og hvað
eftir annaö mátti heyra menn
gripa andann á lofti i undrun yfir
leikni hans. Philip Catherine
geröi margt listavel en til hvers
eru öll tæknibrögöin bæði i leik og
útbúnaði ef ekki tekst aö koma
þeim til áheyrenda?
Það verður að koma fram að
þótt undirritaður hafi haft eitt og
annaö við tónleikana að athuga
þá var greinilegt að gestir Jass-
vakningar héldu ánægðir heim á
leið og margir höfðu á orði að
bregða sér á hótel Sögu kvöldiö
eftir, en þar áttu þeir félagarnir
aðkomafram. SGD
Það hefur verið ákveðið aö i
þessum dálki verði i framtiðinni
fjallaö litillega um jass i Helgar-
blaði Visis. Reynt verður að hafa
upplýsingar um það helsta sem er
að gerast i jasslifinu i hverri viku
og milli þess sem að stærri uppá-
komur veirða/eynt að kynna hvaö
er að finna á hljómplötumarkað-
inum af jasstónlist o.fl. i þeim
dúr. Umsjón meö þessum dálki
mun Sverrir Gauti Diego hafa
með höndum.
Litli Leikklúbburinn
á ísafirdi sýnir
Halelúja eftir Jónas
Sunnudaginn 25. október n.k.
mun Litli Leikklúbburinn á
Isafirði frumsýna gamanleikinn
Hallelúja eftir Jónas Árnason i
leikstjórn Arnhildar Jónsdóttur.
Hallelúja var fyrst sett á svið
hjá Leikfélagi Húsavikur siðast-
liðið vor, en i sumar hefur Jónas
unnið að endurbótum á verkinu,
og er sýning Isfirðinga i þeirri
nýju gerð. Leikurinn gerist um
næstu aldamót og f jallar um for-
setakosningar á Islandi, en vett-
vangur leiksins er kosningaskrif-
stofa eins frambjóðandans.
Jónas sýnir á gamansaman
hátt hvernig hægt er að yfirtaka
og skrumskæla lif þeirrar per-
sónu, sem er i framboöi til forseta
— ef áróðurog sýndarmennska er
á annað borð höfð i hávegum.
í leiknum koma fram 18 per-
sónur, en alls hafa um 25 meðlim-
ir Litla Leikklúbbins lagt hönd á
plóginn við undirbúning sýning-
arinnar, auk þess sem leitað var
til fjölmargra meö sérstök verk-
efni. Halelúja er35. verkefni Litla
Leikklúbbins.
Þess má að lokum geta, aö Litli
LeikklUbburinn gerir það ekki
endasleppt við Jónas, fremur en
mörg önnur leikfélög á landinu.
Þann 9. október siðastliðinn hélt
klúbburinn kynningu á verkum
hans, og ka llað ist hú n, ,Þ ið m uniö
hann Jónas”. A kynningunni var
sungið, lesið, dansaöog spilað, en
þarna kom fram nýtt og fjörlegt
trió sem æfði sérstaklega fyrir
þessa kynningu. Jónas Arnason
var mætturá staðinn og stjórnaði
fjöidasöng i'lokin við mikla lukku
viðstaddra.
Það veröur svo á sunnudaginn
sem Litli Leikklúbburinn (sem er
nú reyndar búsna stór) frumsýnir
Halelúja i Félagsheimilinu i
Hni'fsdal kl.20.30 — jsj.
Þórhildur
fékk styrkinn
Úthlutað hefur verið i annað
sinn úr menningarsjóði Félags
leikstjóra á Islandi og hlaut Þór-
hildur Þorleifsdóttir, leikstjðri
styrkinn að þessu sinni, að upp-
hæð kr. 9.000.-
Þórhildur Þorleifsdóttir hefur
sett upp á þriðja tug leiksýninga
og á s.l. ári settihún upp „ótemj-
una” hjá Leikfélagi Reykjavikur
og ,,Gust” i Þjóðleikhúsinu. Þór-
hildur er einn af stofnendum Al-
þýðuleikhússins og mun starfa
þar i vetur. 1 stjórn menningar-
sjóös FLÍ eiga sæti Jónas Jónas-
son, Sverrir Hólmarsson og Þór-
unn Sigurðardóttir. Formaður
FLl er Hallmar Sigurðsson.
Visir óskar Þórhildi til ham-
Þórhildur Þorleifsdóttir, leik-
stjóri.
ingjumeö styrkinn og óskar henni
gæfu i framtiðinni. . .
—JSJ
Hjónarúm nr. 100
Svefnbekkir meödýnum og 3 púðum, með eða án
hillna. Verð frá kr. 1.380.-
Skrifborðssamstæða
öll einingin kr. 1.600.-
Mette sófasett
HUSGAGNASYNIKG
í dog — lougardQg frá kl. fO—Í7
á morgun — sunnudag frá kl. i4—Í7
Sendum í póstkröfu
ATH. Okeypis heimkeyrsla á stór-Reykjavíkursvæðinu
REYKJAVÍKURVEGI 66 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 54100
__ ' r
Japönsk tœkni samfara
glœsileika General Motors
Isuzu Pickup
Isuzu Pickup bensín eða dísel er framleiddur af stœrstu
verksmiðju ó sviði flutningafarartœkja i Japan
Um árabil hefur ISUZU framleitt léttbyggðar og sparneytnar
díselvélar fyrir margskonar tœki
Isuzu Pickup er fyrsti og því reyndasti 4ra drifa pallbíllinn
sem kom á markaðinn frá Japan
Komið og reynsluakið Isuzu Pickup
Við bjóðum góð greiðslukjör
eða tökum jafnvel gamla bílinn uppí
VÉLADEILD SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3. SÍMI 38900, REYKJAVÍK
171
ISUZU