Vísir - 05.11.1981, Side 11
Fimmtudagur 5. nóvember 1981
vísrn
Eg hef aldrei staðiö
leikara að vinnusvikum
- segir Sveinn Einarsson, djóðleikhusstjóri
p p
„Mér finnst rétt aO þaO komi
fram aO þessi könnun á hag-
kvæmni I rekstri hjá Þjóö-
ieikhúsinu, er ekkert einstakt
fyrirbæri heidur er hér um aö
ræöa röö af hliöstæöum könnun-
um hjá ríkisstofnunum. Sem
slik er skýrslan i sjálfu sér góö
og giid, en þó eru i henni margar
fullyröingar sem ekki eru nógu
vel útskýröar og settar fram
„patentlausnir” sem eiga þar
alls ekki hejma”, sagöi Sveinn
Einarsson, þjóöleikhússtjóri i
samtali viö Visi.
„Mörg þau atriöi sem þarna
eru dregin fram eru einvörö-
ungu itrekun á þvi sem viö höf-
um klifaö á i áravis, án þess aö
fá nokkrar úrbætur. En önnur
mál eru sett fram af augljósri
vanþekkingu og án þess aö tillit
sé tekið til þeirrar staðreyndar
hversu afbrigöilegur vinnustaö-
ui;leikhús er I raun og veru.
Menn hafa einblint nokkuð á
það úrtak sem i skýrslunni er
sett fram um nýtingu leikar-
anna.
„I fyrsta lagi er þessi könnun
alls ekki marktæk, þvi hún nær
ekki yfir nægilega langt timabil.
A hinn bóginn er engan veginn
hægt að dæma nýtingu leikara
eftir einhverri stimpilklukku.
Yfirleitt koma þeir best út i
slikri könnun sem fá mörg en
smá hlutverk, en hinir sem leika
stærstu hlutverkin og bera
þannig aðalsýningarnar uppi,
fá slæma útreiö. Klukkustunda-
fjöldber ekki rétti mælikvarö-
inn og ég hef aldrei staöið
leikara aö vinnusvikum, þvert á
móti eru þeir mjög samvisku-
samir.”
„Ég hef hinsvegar aldrei
farið dult meö þá skoöun mina,
aö hreyfing mætti vera meiri á
leikurum milli leikhúsanna. Þar
meö fengist einnig hagstæöari
aldursdreifing, en hún er einnig
talin óhagstæö i skýrslunni.
Þetta er bara ekki hægt aö setja
upp á svo einfaldan hátt, þvi
þarna er komiö inn á atvinnu-
öryggi og fleira, sem stéttar-
félagiö hefur veriö aö berjast
fyrir”. En nú eru stööugildi I
Þjóðleikhúsinu tæplega 25%
fleiri en heimilaö er?
„Stööugildi við leikhús eru
nokkuö erfiö viöureignar. Fyrst
ber að nefna aö þeir samningar
sem fjármálaráöuneytiö hefur
gert viö leikara, gera beinlinis
ráð fyrir að út af þessu sé
brugöiö, þar sem lausráönir
leikarar ganga sjálfkrafa inn á
samning þegar þeir fá hlutverk.
Einnig hefur starfssemin aukist
mjög umfram það sem gert er
ráö fyrir I áætlun stööugilda.
Þar má til dæmis nefna tslenska
dansflokkinn og svo Litla sviöiö,
þar sem aöeins er einn fastráö-
inn starfsmaður og hann var
meira aö segja tekinn af aöal-
sviöinu. Lögin um starfssemi
Þjóöleikhússins hafa gert ráö
fyrir útvikkun starfsseminnar,
en þvi alls ekki fylgt eftir viö
ráðningar starfsfólks”.
1 skýrslunni er gefiö i skyn að
„mórall” meöal starfsfólks sé
frekar slæmur?
„Ég held aö hæpiö sé aö setja
fram einhverjar fullyrðingar
um slikt i leikhúsi. Andinn fer
auövitaö eftir þvi fyrst og
fremst hvernig gengur hverju
sinni, hvort leikurum og öörum
ir
Sveinn Einarsson þjóöleikhúss-
stjóri.
listamönnum gengur vel eöa
illa. Þetta er mjög persónu- .
bunííiö á hverjum tima. En þaö ■
hefur seát yfir aö i skýrslu þess- j
ari er einnig tekið fram aö góöur .
vinnuandi riki i leikhúsinu viö |
flest þau verkefni sem sam- ■
staöa skapast um”.
Ertu slikur einræöisherra .
sem gefið er i skyn?
„Þaö er algjör rangtúlkun aö .
einhver hefö sé komin á aö mis- ■
skilja mitt hlutverk og aö ég ■
taki litiö sem ekkert tillit til álits ■
Þjóöleikhúsráös, sé einráöur i ■
verkefnavali og svo framvegis. ■
öll meiri háttar mál, stefnu- ■
mörkun og verkefnaval er boriö '
undir ráðið og i verkefnavals- I
nefnd hefur gilt sú regla að taka 1
eingöngu til sýningar þau verk
sem alger samstaöa næst um.
Hitt er svo annað aö þegar verr |
árar, rikir oft sú tilhneiging aö .
varpa ábyrgð á einhvern ein- |
stakan, finna einhvern blóra- .
böggul, i þessu tilfelli leikhús- |
stjórann sjálfan”, sagöi Sveinn .
Einarsson aö lokum.
—JB J
Þjóðleikhúsið er nú komið i sviðsljósið vegna skýrslu rlkisendur-
skoðunar um nýtingu leikara.
með Rokoko-Darok-Renaisence «•<*>»]
Ertu að vinna við útsaum?
Eigum ávallt glæsilegt úrval af antik-
og rokoko- stólum og stólgrindur fyrir
útsaum.
Veitum fullkomna ráðgjöf um
strammastærð og fleira vegna upp-
setningar i bólstrun.
Leitið þangað, sem úrvalið er mest og
kjörin best.
SNýia
^ólstargorðín
Reykjanesbraut — Fossvogi.
Simi 91-16541.