Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001 T ÓMAS Guðmundsson er Reykja- víkurskáldið. Skáldið sem fann sér efnivið til ljóðrænnar tjáning- ar í borginni, þessari sódómu sem fá skáld höfðu sér látið til hugar koma að byggi yfir fegurð sem tjá mætti í ljóðrænum hendingum í bundnu máli. Þessa hlið skáldsins þekkja allir þeir sem á annað borð kæra sig um að þekkja nokkuð til íslenskra bókmennta. Og margir sem aldrei hafa lesið ljóð Tómasar vita af þessu orðspori hans. Og Reykjavíkurborg hefur heiðrað þetta skáld sitt með því að kenna við hann ein virtustu bókmenntaverðlaun landsins: Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð- mundsonar. Heildarsafn rita hans hefur verið gefið út í tíu bindum (Almenna bókafélagið 1981) og heildarsafn ljóða hans hefur komið út í sérútgáfu (Almenna bókafélagið 1989) sem hefur verið enduprentuð fjórum sinnum. Efn- isrík úttekt Kristjáns Karlssonar: „Um ljóða- gerð Tómasar Guðmundssonar“ hefur verið endurprentuð víða. Staða Tómasar Guð- mundssonar í íslenskri bókmenntasögu virðist því trygg og er þá ónefndur allur sá fjöldi söng- laga sem gerður hefur verið við ljóð hans og margir kunna að raula utanbókar – jafnvel án þess að kunna skil á höfundi textans. Kannski lifa ljóð Tómasar bestu lífi meðal þjóðarinnar í þessum lögum. En það eru fleiri hliðar á skáldinu Tómasi Guðmundssyni, hliðar sem færri þekkja. Það eru aðeins fyrstu þrjú bindin í ritsafni hans sem hafa að geyma ljóð hans; í hinum bind- unum sjö er að finna greinar um ýmisleg efni; myndir, minningar, æviþætti og aldafarslýs- ingar sem bera snjöllum penna og hugmynda- ríkum huga glöggt vitni. Silfurniður Sogsins Reykjavík hefur gjarnan verið nefnd borgin við sundin blá og héldu því margir að titillinn á fyrstu ljóðabók Tómasar, Við sundin blá (1925), vísaði til höfuðborgarinnar. Svo mun þó ekki vera heldur var Tómas hér að vísa til Sogsins, elfunnar sem rann um æskuslóðir hans á Efri-Brú í Grímsnesi. Til þeirrar elfu vísaði hann síðan aftur í titli næstsíðustu ljóða- bók sinnar, Fljótið helga (1950), og hann yrkir um þessa „æskuveröld“ sína bæði í upphafs- og lokakvæðum þeirrar bókar. Í upphafskvæðinu „Kvöldljóði um draum“, sem er í fjórum hlutum, alls tólf erindi, yrkir Tómas af stakri snilld um stefnumót þroskaðs skálds við sitt eigið bernska sjálf. Hann hverf- ur á vit bernskuslóðanna, lýsir áhrifum stór- brotinnar náttúru á viðkvæma barnslund. Þar leikur elfan aðalhlutverk í mótun barnssálar- innar: Og lítill drengur heldur heim á leið – en hægt hann fer og lítur oft til baka. Í sál hans hrynur ennþá eflan breið og urriðar í lygnum hjartans vaka. Og frá þeim söng hann sofnar kvöldin löng svo sæll af því hann veit, að allar nætur mun fljótið halda áfram sínum söng í sál hans þangað til hann rís á fætur. Já, enn ég man þann söng, þann silfurnið, sem sorg og þrá er ljóði mínu ofinn. Hvert blik, sem skynjun drengsins dvelur við, hver draumur hans í blóði mínu er sofinn. Og enginn veit hve sárt er húmið hneig ég hefi einatt litla drengsins saknað, og stundum hef ég, gripinn feigðargeig, við grátstaf hans í brjósti mínu vaknað. Í samtalsbók Matthíasar Johannessen við Tómas, Svo kvað Tómas (1960), er að finna eft- irfarandi orð skáldsins, þar sem hann tjáir það sama og í erindunum hér að ofan – og á jafn ógleymanlegan máta: „Ja, það er rétt að ég er Árnesingur og upp alinn í Grímsnesi, en ég hef í reyndinni aðeins talið Sogið og nánasta umhverfi þess til átt- haga minna. Þar undi ég öllum stundum, sem ég mátti, þegar ég var drengur, og ég varð ákaflega samrýndur þessu undarlega fljóti. Mér er jafnvel ekki grunlaust um, að það hafi átt verulegan þátt í því, hvernig líf mitt hefur ráðizt. Þegar fjarlægur árniður fylgir ungum dreng inn í svefninn, skeður eitthvað undur- samlegt hið innra með honum, og þá þarf hann sterk bein til að vera ekki orðinn skáld, þegar hann vaknar.“ Í grein sinni um Tómas í Bókmenntaþáttum (1985) kemst Matthías Johannesson svo að orði að „Sogið [hafi] streymt inn í skáldæð hans og [fylgt] honum æ síðan. En þótt silfur- niðurinn hyrfi aldrei úr æðum drengsins varð hann þó sjálfur að hverfa úr Grímsnesinu og halda til höfuðborgarinnar til þess að ganga í menntaskóla og síðar háskóla þar sem hann lagði stund á lögfræði. Skyldi hinn unga Ár- nesing þá hafa grunað að hann væri til þess kallaður að verða höfuðskáld borgarinnar? Sofandi borg Fyrsta ljóðið í fyrstu ljóðabók Tómasar ber sama titil og bókin: „Við sundin blá“. Þar siglir ljóðmælandinn á fleyi sínu um sundin blá, einn að næturlagi um vor. „Til hvíldar er heimurinn genginn / og hljómarnir þysmiklu fallnir í dá. / Um sofanda varir fer viðkvæmt bros / meðan vornóttin gengur hjá.“ Það er innra líf ljóð- mælandans sem ort er um í þessu ljóði líkt og í flestum öðrum ljóðum þessarar fyrstu bókar skáldsins. Ef við ímyndum okkur (þótt við vit- um betur!) að skáldið sé hér siglandi fleyi sínu úti á bláum sundum Faxaflóans gætum við ályktað sem svo, að það hætti sér ekki enn sem komið er inn í hringiðu borgarlífsins, kjósi heldur að sveima um utan borgarmarkanna. Enda talaði Halldór Laxness um að í verkinu mætti sjá „sveimhygli“ og „jafnvel lénstíma- fyrnsku“ í hugmyndavali. Kristján Karlsson bendir hins vegar á, í áð- urnefndri grein sinni um ljóðagerð Tómasar, að Við sundin blá sé „í raun og veru […] eins og eitt kvæði, ein stemning“ og þarf að lesast í heild til að njóta sín. Hann telur að bókin sé „söngur um huglæga, algilda fegurð ástarinn- ar.“ Þessi næmi skilningur Kristjáns á heildar- hugsun bókarinnar opnar lesendum nýja leið að heimi hennar. Það er varla hægt að segja að höfuðborgin vakni til lífsins í þessum fyrstu ljóðum Tóm- asar, nema kannski í „Stúdentasöng“ þar sem: „Allt vaknar er vorar að, / sem veröldin fegurst ól“ og ort er um vonina um bjarta framtíð sem býr í sálum æskunnar. Það var ekki fyrr en í næstu bók skáldsins að Reykjavík lifnaði svo um munaði. Marga perluna er engu að síður að finna í Við sundin blá, til að mynda ljóðið „Ég leitaði blárra blóma“ sem þeir Gylfi Þ. Gíslason og Hörður Torfason hafa gert ódauðlegt í lögum sínum, hvor á sinn hátt. Borgin vaknar Hafi Halldór Laxness ekki verið ýkja hrifinn af þessari fyrstu bók vinar síns og talið á henni nokkurn „fornleifabrag“, kveður við annan og jákvæðari tón í umsögn hans um næstu bók, Fögru veröld (1933): „Áður var það riddari, skógur og höll. Nú eru það húsin í bænum, Vatnsmýrin, Austurstræti, – hann skynjar ljóðið í sínu eigin umhverfi…,“ segir Laxness í ritdómi sínum. Það er óþarfi að fjölyrða hér um þá borg sem rís svo lifandi upp af síðum Fögru veraldar – sú saga er flestum kunn. En vert er að hafa í huga það hugrekki sem felst í því að lýsa borginni „heitri af vori og sól með syngjandi stræti og glóandi götum“ og grasinu sem „vex á Arn- arhól“ á tíma sem flestir litu á sem mikla eymdartíma í lífi þjóðarinnar og dapurlegar hugmyndir áttu frekar upp á pallborðið. Enda segir Tómas í samtalsbókinni við Matthías að fólk hafi tekið bókinni „með ótrúlegum fögn- uði“ enda sé „ungt fólk samt við sig á hverju sem gengur og […] hafi þrátt fyrir allt litið til- veruna björtum augum.“ En það eru ekki bara borgarljóðin sem setja svip sinn á þessa bók sem gerði Tómas að „höf- uðskáldi og þjóðskáldi.“ Hafi Tómast ort um „huglæga, algilda fegurð ástarinnar“ í fyrstu bókinni þá gerir hann það ekki síður í Fögru veröld. Hann yrkir um það þegar „lítið hjarta“ gengur „í fyrsta sinn úr skorðum“ og um ástina „sem brann í sálu minni.“ Og hann yrkir um sorgina: „Hún er konan, sem kyrrlátust fer / og kemur þá minnst þig varir“ – sem reyndar er eitt af áleitnustu yrkisefnum hans, þegar grannt er skoðað. Og þá eru ónefndar ýmsar af sígildustu perlum Tómasar sem finna má í þessari bók hans, svo sem „Fjallgöngu“ og „Hótel Jörð“. Fyrrnefnda ljóðið er eitt albesta dæmið um það hvernig form ljóðs, hrynjandi og efniviður geta fallið í eina órjúfanlega heild þegar snillingur heldur á penna. Gaman og alvara Með þriðju ljóðabók Tómasar, Stjörnur vorsins (1940) bætast enn nýjar víddir í ljóðlist Tómasar. Kristján Karlsson hefur bent á að í ljóðum Tómasar hafi íslensk borgarmenning eignast sjálfstæða rödd í íslenskri ljóðagerð; hann hafi með skáldskap sínum endurnýjað ís- lenskt skáldamál í takt við þann tíma sem hann lifði og hrærðist í. Hann bendir einnig á að af einstökum bókum Tómasar þá beri Stjörnur vorsins „samfelldust auðkenni talaðs máls.“ Og í samræmi við það þá eru yrkisefni bók- arinnar flest unnin úr „hversdagslegum at- burðum og fyrirbærum.“ Einnig kveður við nýjan tón í þeim fjölda gamankvæða sem Tómas birtir í þessari þriðju bók sinni, má til dæmis nefna kvæðið „Þegar ég praktíseraði“ þar sem Tómas hendir gaman af sinni stuttu starfsævi í lögfræðingastétt. Því lýkur á þessu erindi: „FEGURÐARDÝRKANDI ÁN SAMNÍNGA“ „Þeir sem ritað hafa um ljóðlist Tómasar Guðmundssonar hafa flestir lagt áherslu á þá miklu endurnýjun ljóðmálsins sem skáldskapur hans býr yfir og þarf enginn að velkjast í vafa um réttmæti þeirrar áherslu.“ Morgunblaðið/Ólafur K. MagnússonTómas Guðmundsson E F T I R S O F F Í U A U Ð I B I R G I S D Ó T T U R TÓMAS GUÐMUNDSSON (1901–1983) – ALDARMINNING „Fagra veröld er ekki einungis eitt hið frumlegasta og fegursta ljóðasafn, sem hér hefur komið út á þessari öld, heldur mark- ar það nýtt spor í menningu Reykjavík- urbæjar. Tómas Guðmundsson hefur feng- ið alla menntun sína og þroska hér í Reykjavík, hann hefur haft skarpskyggni og djörfung til þess að leita yrkisefna sinna í hversdagslegu lífi og umhverfi þessa bæjar, sem svo fáir kunna að elska og oftar heyrist lastaður en lofaður, og hann hefur numið þar nýtt land fyrir ís- lenzkar bókmenntir. Þessi litla bók hefur farið sigurför um landið og fólk hefur litið upp og spurt undrandi: Getur Reykjavík átt svona mikið af fegurð og nýjum yrk- isefnum? …“ (Úr greinargerð sem send var bæjar- stjórn Reykjavíkur árið 1934 með áskorun um að veita Tómasi Guðmundssyni fjár- stuðning. Undirritað af Alexander Jóhann- essyni, Einari Ólafi Sveinssyni, Kristjáni Albertssyni, Ólafi Lárussyni, Vilmundi Jónssyni, Árna Pálssyni, Jóni Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi, Magnúsi Jónssyni, Sig- urði Nordal og Theódóru Thoroddsen.) Nýtt spor í menningu Reykjavíkurborgar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.