Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Qupperneq 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001
B
JARNA voru afhent verslunar-
húsin í Hafnarfirði, eins og áður
segir, í apríl 1794. Samningur sá
er Bjarni hafði gert við verslun-
arnefndina hljóðaði á þann veg
að hann skyldi fá húseignirnar
og innanstokksmuni á sama
verði og Muxoll hafði gefið fyrir
þau fjórum árum áður. En sökum lélegs ástands
þeirra var Bjarna einungis gert að greiða þriðj-
ung þess verðs sem þau voru metin til, eða 2.474
rd. og átti hann að greiða árlega 10% af skuld-
inni vaxtalaust.
Ekki er hægt að segja að verslun Bjarna hafi
farið vel af stað því að einu og hálfu ári eftir að
Bjarni hóf verslun í Hafnarfirði eða í september
1795 rituðu 23 bændur kæruskjal til Ólafs
Stephensens stiftamtmanns og kvörtuðu undan
versluninni í Hafnarfirði. Kærðu bændurnir
kaupmennina meðal annars fyrir okur og fyrir
að selja skemmdar vörur, nota svikna vog og
vöruskort. Bændurnir kvörtuðu einnig undan
því að ekki væri hægt að fá greiðslu í peningum
hjá kaupmönnunum og því þurftu þeir að taka
út alls konar óþarfa munaðarvörur til að fá eitt-
hvað út úr verslun sinni við þá. Komu bænd-
urnir þeirri skoðun sinni á framfæri að besta
leiðin út úr þessum ógöngum væri að gefa versl-
unina algerlega frjálsa og stuðla þannig að heil-
brigðri samkeppni.
Ekki má þó dæma Bjarna algerlega eftir
þessu, því til eru heimildir um að árið 1807 hafi
hann lánað fátæku fólki nauðsynjavörur til að
bjarga því frá hungursneyð. „… var Bjarni
beztur kaupmaður þar syðra og þeir Flensborg-
arinn í Hafnarfirði lengi síðan, því Reykjavík-
urkaupmenn voru flestir vesælingar og komu
með litla vöru, en eyddu skjótt mikilli.“ Sagði
Jón Espólín um verslun Bjarna í Hafnarfirði og
einnig má hér vísa í orð Bjarna sjálfs þegar
hann sagði að „auð vildi hann safna, … en hann
vildi líka að aðrir auðguðust og einkum að þeir
björguðust.“
Aðalverslun Bjarna var alltaf í Hafnarfirði en
árið 1797 hóf hann einnig að reka verslun í
Reykjavík. Í upphafi var Sigurður Guðlaugsson,
forstöðumaður þessarar Reykjavíkurverslunar
Bjarna, en á eftir honum tók við versluninni Fil-
ippus Gunnarsson, bróðursonur Rannveigar,
konu Bjarna. Um svipað leyti og Bjarni fór að
versla í Reykjavík hóf hann að reka verslun í
Keflavík en minna er vitað um hana.
Bjarni rak sjálfur verslun sína í Hafnarfirði
og sigldi á milli landa. Hann bjó í Kaupmanna-
höfn á veturna en í Hafnarfirði á sumrin. Á
þessu tímabili var Bjarni með tvö skip í sigl-
ingum á milli landa og var annað þeirra rúmlega
80 stórlesta skip, „De tvende Söstre“, sem hann
keypti að öllum líkindum árið 1796.
Útgerðin
Á tíma konungsverslunarinnar síðari stund-
aði konungur einnig þilskipaútgerð við Ísland
og voru höfuðstöðvar hennar í Hafnarfirði. Þeg-
ar konungsversluninni lauk, árið 1787 var Ís-
lendingum boðið að kaupa skipin en vegna
móðuharðindanna, sem þá voru nýyfirstaðin,
var efnahagur landans bágur og ekkert varð úr
kaupunum. Seinna komst sá siður á að kaupskip
þau er komu til landsins á vorin fóru á veiðar
þegar búið var að losa þau hér á landi og veiddu
fram í lok júlímánaðar.
Þilskipaútgerð hófst aftur í Hafnarfirði rétt
fyrir aldamótin 1800, en þá keypti Bjarni Sívert-
sen sér danskt þilskip og ætlaði að nota það til
tilraunaveiða frá Hafnarfirði. Bjarni vissi að
margar þjóðir höfðu verið við veiðar við Ísland
og gengið vel. Því þarf ekki að undra að Bjarni
hafi velt því fyrir sér hvers vegna Íslendingar
gætu ekki hagnast á þessum veiðum eins og
Bretar eða Hollendingar svo dæmi séu tekin. Sú
fiskiskúta sem Bjarni átti um aldamótin var að
öllum líkindum eina fiskiskútan á landinu á þeim
tíma. Er reynsla komst á útgerð Bjarna sá hann
að það yrði mun ábatasamara að stunda þessa
útgerð á mörgum skipum. „Til að auka höndlun
sína og kenna landsmönnum sínum siglingar á
útlendum skipum, samt til þess að efla landsins
bjargræðisveg – svo segir Sívertsen frá tók
hann fyrir sig að fjölga fiskijöktum í Hafnar-
firði.“
Á ferðum sínum til Kaupmannahafnar vandi
Bjarni oft ferðir sínar í skipasmíðastöðvar til að
fylgjast með hvernig skip voru smíðuð. Hann
lærði af því sem hann sá og flutti þá vitneskju
með sér til Íslands. Þessi saga er óneitanlega
mjög lík sögunni af Pétri mikla, en hann lærði
einnig skipasmíðar erlendis með heimsóknum í
skipasmíðastöðvar og flutti kunnáttuna með sér
heim.
Árið 1803 hafði Bjarni lokið smíði fyrsta þil-
skips síns. Þetta skip var fiskijakt og gaf Bjarni
henni nafnið „Havnefjords Pröven“. Skipið var
bæði ætlað til flutninga og fiskveiða og var 18
álnir og 21 þumlungur á lengd og breidd þess
þar sem það var breiðast var 6 álnir og 7 þuml-
ungar. Eins og nafn þess gefur til kynna var
þessi smíði tilraun í augum Bjarna.
Bjarni var það ánægður með þessa frumsmíð
sína að þetta sama vor hélt hann til Kaup-
mannahafnar og skýrði frá árangri sínum og fór
fram á að fá bæði peningalán og land undir
skipasmíðastöð í Hafnarfirði. Eins og fyrri ferð
Bjarna gekk þessi mjög vel og fékk hann 6.000
rd. lán til þessa verkefnis. Bjarni fór fram á það
við rentukammerið að fá að kaupa konungsjörð-
ina Ófriðarstaði (nú Jófríðarstaði) án þess að til
uppboðs kæmi. Þetta gekk eftir og fékk hann
jörðina á 325 rd. og borgaði einn þriðja út en
fékk tvo þriðju á skuldabréfi.
Sumarið 1805 reisti Bjarni skipasmíðastöð
sína á Ófriðarstöðum og byggði þá stórt segl-
skip sem þótti bera af öðrum skipum. Það var
bæði betra sjóskip en þau skip sem menn
þekktu og einnig var það ekki eins mannfrekt og
teinæringur en bar þó meira en þeir. Þetta skip
var hugsað bæði sem fiskiskip og flutningaskip
með ströndum landsins. Ekki er vitað með vissu
hversu mörg þilskip voru smíðuð í skipasmíða-
stöð Bjarna í Hafnarfirði en hún sannaði nauð-
syn sína árið eftir, því þá kom póstskipið hingað
til lands mikið laskað eftir óveður sem það
hreppti á leið sinni til landsins. Var gert við
skipið í skipasmíðastöð Bjarna og var það eini
staðurinn hér á landi sem réð við það verkefni.
Bjarni rak útgerð sína með miklum dugnaði
og gekk hún vel. Hann varð þó fyrir nokkrum
áföllum, svo sem skipstjónum en hann keypti
eða smíðaði upp, í stað þeirra sem töpuðust.
Ekki er vitað með vissu hversu mörg skip
Bjarni gerði út frá Hafnarfirði en er eignir hans
voru boðnar upp eftir andlát hans er sagt að þar
séu Havnefjords Pröven, Flynderen og fleiri
fiskiskip.
Bjarni og Napóleons-stríðið
Um haustið 1807 lét Bjarni úr höfn í Hafn-
arfirði á skipi sínu „De tvende Söstre“. Sam-
ferða honum var Magnús Stephensen konfer-
enzráð og Westy Petræus kaupmaður í
Reykjavík. Ferð þeirra var heitið til Kaup-
mannahafnar, en ekki hafði þá sú frétt borist til
landsins að stríð geisaði á milli Dana og Eng-
lendinga. Skemmst er frá því að segja að 19.
september hertóku Englendingar skip Bjarna,
skammt undan Líðandisnesi og færðu það til
hafnar í Leith í Skotlandi. Farið var með það
eftir venjulegu ferli hertekinna skipa. Það var
fært til næstu bresku hafnar þar sem skiptöku-
embættismaður var með aðsetur, þar var áhöfn-
in yfirheyrð og birgðirnar annaðhvort innsigl-
aðar eða seldar. Máið var svo sent skiptökudómi
þar sem örlög skipa voru ákveðin. Bjarni og aðr-
ir þeir, sem með skipinu voru, voru kyrrsettir í
Leith en þó var Magnúsi leyft að halda ferð
sinni áfram til Kaupmannahafnar. Ekki er hægt
að segja nákvæmlega til um hve mörg Íslands-
för Englendingar hertóku á þessum tíma en
samkvæmt æviminningum Bjarna í Sunnan-
póstinum voru þau 15.
Magnús Stephensen sá fyrir að ef skipin
fengju ekki að flytja vistir til Íslands myndi ekk-
ert annað en hungursneyð bíða þjóðarinnar. Til
að reyna að koma í veg fyrir þetta sneri hann
sér til Sir Josephs Banks, sem var breskur nátt-
úrufræðingur og mikill Íslandsvinur eftir að
hann heimsótti landið 1772. Banks var mikils-
metinn maður í Englandi og var forseti Kon-
unglegu bresku vísindaakademíunnar 1778–
1820 og hafði meðal annars unnið sér það til
frægðar að fara umhverfis jörðina 1768–71 með
J. Cook.
Í bréfi sem Magnús skrifaði Banks sagði
hann að það væri sama og að dæma þjóðina til
hörmunga og hungursneyðar ef skipin fengju
ekki að sigla áfram á milli landanna. Hann
minnti á að þegar Englendingar hertóku Kaup-
mannahöfn hétu þeir því að láta í friði eigur ein-
stakra manna. Í því sambandi benti hann á að
Íslandsverslunin væri ekki lengur einokunar-
verslun og því væru skipin og farmarnir eign
einstakra manna en ekki danska ríkisins. Sir Jo-
seph Banks sendi þegar boð til baka þar sem
hann kvaðst vilja gera allt sem í hans valdi stæði
til að aðstoða í þessu máli. Hann vildi fá þá
Bjarna Sívertsen og Westy Petræus til London
þar sem þeir, allir þrír, gætu ráðgast um hvað til
bragðs ætti að taka. Bjarni sagði sjálfur svo frá:
„Síðan fengum við honum [Banks] okkar bón-
arbréf til höndlunarráðsins um það, að Íslensk
höndlunarskip yrðu frígefin, og að þau, meðan á
stríðinu stæði, mættu fara á milli landa, því ann-
ars mundi fólk á Íslandi ei géta lífi haldið.“
Í kjölfar þessa voru öll þau Íslandsför, sem á
Íslandi áttu heima, látin laus í marsmánuði
þetta sama ár. Þarna voru einungis fimm skip af
fimmtán látin laus, því Englendingarnir slepptu
einungis þeim skipum sem voru skráð á Íslandi
en ekki þeim skipum sem voru skráð í Dan-
mörku. Englendingarnir gátu ekki látið skip,
sem tæknilega séð voru í eigu óvinaþjóðar, laus.
Skipunum var sleppt með þeim skilyrðum að
þau héldu beint til Kaupmannahafnar, tækju
þar vörur og sigldu þaðan beinustu leið til Ís-
lands. Þrátt fyrir að skip Bjarna væri látið laust
ákvað hann að fara ekki, heldur reyna að fá hin
skipin tíu einnig laus, því hann „vildi ekki hætta
við hálfgjört“ eins og hann orðaði það sjálfur.
Bjarni Sívertsen gerði sér grein fyrir því að
fimm skip dugðu ekki til að koma öllum þeim
vistum til Íslands sem þurfti, því ekki hafi veitt
af þegar 40 skip sáu um siglingarnar. Bjarni
segir svo sjálfur frá: „Ég innsendi því annað
bónbréf og setti enskum fyrir sjónir: að þó
nokkrir Íslands kaupmenn staðnæmist við og
við í Kaupmannahöfn höfðu þeir samt höndlun
og heimili á Íslandi, og Íslands borgarar væru
þeir. Af velgjörðum stjórnarinnar við þessa
eyju, næði ei sínum tilgangi nema öll Íslandsför
yrðu laus gefin, þau sem tekin höfðu verið 1807,
og það sama ár til Íslands farið.“
Bjarni og Banks lýstu því einnig fyrir Earl
Bathurst sem var forseti viðskiptamálaráðu-
neytisins að samkvæmt dönskum lögum þyrftu
„VAR BJARNI BESTUR
KAUPMAÐUR ÞAR SYÐRA...“
Bjarni riddari Sívertsen. Brjóstmynd eftir Ríkarð Jónsson í Hellisgerði í Hafnarfirði.
Skatthol úr búi Bjarna Sívertsens. Í dagbók
Hollands frá 1807 segir svo um heimsóknina
til Bjarna: „Heimili Bjarna er langfegursta
sem við höfum enn séð á Íslandi. Það er ekki
nóg að segja að það sé fallegt, heldur er það
beinlínis glæsilegt, bæði að húsgögnum og
öðrum innra búnaði og umgengni.“
E F T I R B J Ö R N P É T U R S S O N
BJARNI SÍVERTSEN – SÍÐARI HLUTI
„Þetta er Hafnarfjörður. Helzti maðurinn þar á staðn-
um er Bjarni Sívertsen, vel efnaður kaupmaður. […]
Heimili Bjarna Sívertsens er hið langfegursta, sem við
enn höfum séð á Íslandi,“ segir í dagbók Henry Hol-
lands sem ferðaðist um Ísland árið 1910.