Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001 11 þetta læddi hún eftirfarandi orðum út úr sér, kankvís á svip: „Hún var víst fyrir löngu búin að kveðja hann.“ Um miðjan júlí tókum við félagarnir þrír okk- ur far með áætlunarbíl frá Flórens til Rómar. Leiðin lá fram með ströndinni, þar sem við nut- um heillandi útsýnis af hafinu á aðra hönd og fjöllunum á hina, enda þótt færi í alla staði ljóm- andi vel um okkur, þá virtist ferðin aldrei ætla að taka enda, sökum þess hve víða var áð. Ein- hverjum okkar var því að orði að þótt allar leiðir væru sagðar liggja til Rómar, þá bæri ekki á öðru en við hefðum valið þá lengstu. Í höfuðborginni fengum við inni á notalegu gistiheimili, Pensione Rifiorente, á ákaflega góðum stað, nánar tiltekið á Via Veneto, aðal- götu heimsborgarinnar og meira að segja við hliðina á Hótel Excelsior, einu dýrasta og glæsi- legasta gistihúsi landsins, sem tíðum hýsir nafn- togað fólk af konungsættum eða úr heimi lista og bókmennta eins og t.d. Oriana Fallaci, svo einhver sé nefnd. Ég ætla mér ekki þá dul að reyna að lýsa Rómaborg fyrir lesendum mínum svo nokkur mynd verði á, til þess er hún öll alltof stórbrotið og mikilfenglegt listaverk. Ég ætla samt sem áð- ur að leyfa mér að segja að borgin eilífa sé op- inberun eða vitrun, sem engin mannleg sál, hversu næm sem hún kann annars að vera, get- ur meðtekið á skömmum tíma. Thorvaldsen taldi t.d. tuttugu ár tæplega nægan tíma til þess eins og frægt er orðið: „Sjá Róm og dey“ eru því orð að sönnu. Vatikansafnið eitt og sér verður t.d. ekki grandskoðað né gerð viðhlítandi skil nema á heilum mánuði. Um skoðunarferðir okkar félaga er það að segja að þær voru jafnvel enn betur skipulagðar í Róm en í Flórens, en þar sem maður lifir ekki á listinni einni saman, þá kom það stöku sinnum fyrir að við slettum úr klaufunum eins og til að mynda í ævintýralega kveðjuhófinu, sem haldið var Guðmundi Dan- íelssyni til heiðurs eftir að hann hafði haft um það bil tíu daga viðdvöl í borginni. Skömmu eftir að Guðmundur Daníelssonvar horfinn á braut, komu tveir gamlirog góðir vinir okkar til Rómaborgar, þarsem voru þau Örlygur Sigurðsson list- málari og kona hans Unnur Eiríksdóttir. Þau fengu gistingu á gistiheimili frú Dinesen, sem hýst hefur fjöldann allan af Norðurlandabúum, þeirra á meðal Halldór Kiljan Laxness, ef mig misminnir ekki. Þetta voru hinir mestu fagn- aðarfundir eins og gefur að skilja. Það má í raun- inni einkennilegt eða lygilegt heita hvað leiðir okkar Örlygs hafa víða legið saman. Við ólumst báðir upp á Akureyri, þar sem við gengum í sama framhaldsskóla. Eftir stúdentspróf vorum við fyrst samvistum í Bandaríkjunum, nánar til- tekið í Los Angeles í Kaliforníu, síðan í Frakk- landi og loksins á Ítalíu. Það er ekki ofmælt að tilviljanir geti verið með ýmsu furðulegu móti. Einhverju sinni þeg- ar við fjögur vorum að spóka okkur í góða veðr- inu á Via Veneto, rákumst við á mann, sem við síst af öllu bjuggumst við að sjá þar. Það var nefnilega enginn annar en Hálfdán Bjarnason, sjálfur ræðismaðurinn okkar í Genúa. Hann heilsaði okkur svo fagnandi, að það var engu lík- ara en hann hefði hitt sína elstu og bestu vini eða gripið guð í fótinn eins og Skaftfellingar hefðu getað orðað það. Hann lagði sig augsýnilega í líma að stjana við okkur á allra handa máta. Hans fyrsta verk var að bjóða okkur í mat á Alessandro, frægasta, fínasta og dýrasta veit- ingastað í Róm. Af viðtökum yfirþjónsins á staðnum mátti undireins ráða að ræðismaðurinn okkar var þarna tíður og velkominn gestur. Eft- ir að okkur hafði verið vísað til sætis á besta stað í salnum, var matseðillinn grandskoðaður og réttirnir pantaðir mest eftir ábendingum og smekk ræðismannsins. Af tali gestgjafans og yf- irþjónsins, sem tók næstum því hálftíma mátti ráða að hér voru eldklárir náungar, sem höfðu gott nef fyrir vínum. Í beinu framhaldi af þessu má geta þess að Unnur, kona Örlygs, borðaði fyrsta réttinn, sem var „tagliatelli“ (eða núðlur) af fatinu sem hann hafði verið matbúinn á af yf- irkokkinum eftir öllum matlistarinnar kúnstum. Þar var víst talið að bragðið væri best. Seint um kvöldið að snæðingi loknum hófst mikill þeys- ingur í leigubílum fram og aftur um alla Róma- borg með viðkomu á um það bil tuttugu næt- urklúbbum, að vísu mjög stuttri á hverjum stað. Ekki var annað að merkja en að ræðismaðurinn kæmi starfsfólkinu flestu býsna kunnuglega fyr- ir sjónir. Mörgum áratugum síðar, þegar ég hittihann enn einu sinni af tilviljun íAusturstræti og minntist meðal ann-arra orða á þetta höfðinglega mat- arboð hans á Alessandro, varð honum að orði: „Bauð ég ykkur virkilega á Alessandro?“ Það var í raun og sanni engu líkara en hann sæi nú eftir öllu saman. Var þetta sami maðurinn, sem Örlygur hafði sagt, að væri stórveitull, örveitull og síveitull eins og húnvetnskir forfeður þeirra beggja? Jú, vissulega var hann það þrátt fyrir þessa furðulegu eftirþanka og eitt er víst að ég mun aldrei gleyma honum né rausnaskap hans. Þegar þau hjón, Örlygur og Unnur, heyrðu að við Thor höfðum ráðgert að bregða okkur til Kaprí ákváðu þau að slást í förina með okkur. Á leiðinni þangað vorum við nætursakir á hóteli í hafnarborginni Napoli. Það væri í sjálfu sér ekki frásagnarvert nema vegna heldur leiðinlegs at- viks sem gerðist á gistihúsinu. Nýleg og rándýr dragt sem Unnur hafði keypt í París var horfin með öllu og fannst hvergi þótt leitað væri dyrum og dyngjum. Starfsfólkinu í gestamóttökunni var ekki aðeins tilkynnt um hvarfið heldur var líka hótelstjórinn kvaddur til, en í staðinn fyrir að fá viðhlítandi úrlausn sinna mála, fékk Unnur aðeins undarlega loðin svör. Starfsliðinu virtist vera fyrirmunað með öllu að skilja hvernig slíkt og annað eins gæti gerst á þeirra góða gistihúsi. Ekki var samt laust við að einhver tvískinnung- ur skini út úr svip þeirra og viðbrögðum. Við vorum öll saman staðráðin í því að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Við hótuðum öllu illu, að kæra t.d. ekki aðeins stuldinn til lögreglunnar heldur tilkynna hann líka til útlendingaeftirlits- ins og utanríkisráðuneytisins o.s.frv. Við vorum svo ákveðin og harðfylgin að hótelstjórinn sá þann kost vænstan að gera eitthvað raunhæft í málinu, enda kom í ljós eftir lygilega stutta rannsókn og eftirgrennslan að herbergisþerna nokkur hafði gerst fingralöng í meira lagi og átti því ekki þegar hér var komið annarra kosta völ en að skila Unni feng sínum. Daginn eftir tókum við okkur far með lest til Sorrento. Það var ekkert sérstakt til tíðinda fyrr en við stóðum á bryggjusporðinum og biðum ásamt fleiri ferðamönnum eftir ferjunni, sem átti að flytja okkur til Kaprí. Við vorum ekki bú- in að vera þarna ýkjalengi þegar gamall, kump- ánlegur og skælbrosadi spiladósasali vatt sér að okkur og vildi alveg ólmur pranga inn á okkur einni dós og í því augnamiði opnaði hann eina, sem lék alþekkt ítalskt lag, Funicolo-Funicoli, einskonar húsgang ef svo má að orði kveða og til þegar Dante hittir Beatrice. Í baksýn er Arno-áin sem rennur gegnum borgina. Eitt frægasta listaverk í Flórens eru lágmyndir Ghibertis á dyrum Skírnhússins. Þær eru alls tíu, þessi sýnir fórn Ísaks. Dæmigert íbúðarhverfi í Flórens.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.