Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Page 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001 1 Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól, hún flytur líf og líknarráð, hún ljómar heit af Drottins náð. 2 Sem Guðs son forðum gekk um kring, hún gengur ársins fagra hring og leggur smyrsl á lífsins sár og læknar mein og þerrar tár. 3 Ó, sjá þú Drottins björtu braut, þú barn, sem kvíðir vetrar þraut, í sannleik hvar sem sólin skín er sjálfur Guð að leita þín. 4 Því hræðst þú ei, þótt hér sé kalt og heimsins yndi stutt og valt, og allt þitt ráð sem hverfult hjól, í hendi Guðs er jörð og sól. 5 Hann heyrir stormsins hörpuslátt, hann heyrir barnsins andardrátt, hann heyrir sínum himni frá hvert hjartaslag þitt jörðu á. 6 Í hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er allt vort stríð, hið minnsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár. 7 Í almáttugri hendi hans er hagur þessa kalda lands, vor vagga, braut, vor byggð og gröf, þótt búum við hin ystu höf. 8 Vor sól og dagur, herra hár, sé heilög ásján þín í ár. Ó, Drottinn, heyr vort hjartans mál í hendi þér er líf og sál. Oft fer svo um kvæði sem við heyrum fyrst og fremst sungin, að þau eins og glataupprunalegu gildi sínu að talsverðu leyti. Áhersla færist yfir á tónlist, lag ogsöng, og við hættum jafnvel að gefa gaum að merkingu og boðskap textans.Við leggjum eyrun að söngnum og ljóðtextinn hverfur í einhvers konar auka- hlutverk. Þetta á allt eins við um sálma, þótt orðið sé meginþáttur boðskapar fagnaðar- erindisins, enda verður að gangast við því að æði margt í íslensku sálmabókinni er hálf- gert hnoð. Það gildir þó ekki um þennan nýárssálm Matthíasar Jochumssonar (1835–1920). Ólafur Briem segir í umfjöllun um skáldskap Matthíasar í útgáfu sinni á Ljóðum hans í úrvali (Rannsóknastofnun í bókmenntafræði og Menningarsjóður, Reykja- vík 1980, bls. 60) að sér finnist nýárssálmurinn Hvað boðar nýárs blessuð sól „heilsteypt- astur af sálmum Matthíasar“. Orðið sálmur er upprunalega dregið af grísku sögninni psál- lein sem merkir að gripla (eða „plokka“) strengi og haft um hörpuleik. Af því var svo myndað no. psalmós, „hörpusöngur“ – eða söngur við strengleik – og haft um hebreska orðið mizmor (söngur af því tagi er Davið söng til hörpu – John Ayto: Dictionary of Word Origins, New York 1990). Orðið fær svo merkinguna trúarljóð – en sálmasöngur í nútíma- merkingu verður til eftir siðaskipti. Sálmar eru því sérstök kveðskapargrein sem mótast efnislega af guðfræðikenningum og trúarviðhorfum hvers tíma og sækir myndmál og við- miðun í ýmiss konar táknmál kristinnar kirkju. Og þá verður einnig að hafa í huga að margt af því er dregið af heimsmynd sem orðin er úrelt, þar sem aukin þekking hefur veitt okkar nýjan skilning á veröld okkar og alheimi. Þetta ber að hafa til hliðsjónar þegar rýnt er í sálm séra Matthíasar ásamt einlægu trúartrausti hans, raunar trúarsannfæringu. Form sálmsins er átta ferhend erindi undir rímnahætti sem stafhenda nefnist (fjórir bragliðir í vísuorði, sá síðasti stýfður og ríma tvö fyrri vísuorðin saman og tvö hin síðari), nema hvað hér er að auki forliður í öllum vísuorðum allra erinda. Formið er því í senn mjög reglubundið og einfalt – og fer það vel við allt að því barnslega trúareinlægni skálds- ins. Ljóðmálið er að sama skapi einfalt, orðin auðskilin og setningaskipan og oðraröð blátt áfram. Fleyg hafa þó orðið tvö síðari vísuorðin í 3. erindi og allt 6. erindið. Fátt er um lík- ingar og umritanir. Helst má nefna líkinguna allt þitt ráð sem hverfult hjól (4. er.), náttúr- unnar jól (1. er.) og stormsins hörpuslátt (5. er.). Skáldleg tilþrif felast einkum í táknum og andstæðum. Aðaltákn sálmsins er sólin, enda er það hin hækkandi sól í ársbyrjun sem vekur upp- hafsspurningu sálmsins, – spurningu sem er í raun engin spurning þar sem skáldið veit svarið og birtir það umsvifalaust. Annað meginþema þessa kvæðis er því samsömun sólar og guðsmyndar. Endurfæðing birtunnar á noðurhveli er sem fæðing frelsarans. Nú veit enginn hvenær Jesús fæddist, en ákveðið var að fagna fæðingu Jesú 25. desember á að- alhátíð rómverska sólguðsins Sol Invictus og hvíldardagurinn var færður frá laugardegi til sunnudags, dags sólarinnar. Sólin sem ímynd Guðs er algeng hugmynd á miðöldum, og sést það vel í íslenskum kveðskap í hinum frægu sólarerindum Sólarljóða. Og sólin gengur auðvitað ekki „ársins fagra hring“ (2. er.) þótt svo sýnist fyrir augum manna. En allt er þetta táknrænt og nær hámarki í sálminum í hinum fleygu orðum í þriðja erindi: „í sann- leik hvar sem sólin skín / er sjálfur Guð að leita þín“. Hitt meginþemað er er svo hinn persóngerði Guð er allt veit, allt sér og heyrir og hefur allt í hendi sér: „hið minnsta happ, hið mesta fár, / hið mikla djúp, hið litla tár“ (6. er.) – og tjáð er með skáldlegum hætti í andstæðum, sem séra Matthías beitir oft í ljóðum sínum. Margir eiga nú erfitt með að sætta sig við slíka guðshugmynd. Þykir þeim örðugt að skilja að slíkur guð sé á bak við þá mannvonsku, hamfarir og hörmungar er dynja yfir mann- kynið. Og ekki síður torvelt að skilja þá allt að því smáborgaralegu smækkun á hinum skapandi mætti tilverunnar að ímynda sér hann sem manngerving er líkt og stendur á hleri til að nema hverja hugsun sérhvers manns. En slík er hin einlæga og barnslega trúarsannfæring skáldsins, sem þó háði marga hugarglímu við óskiljanleik manns og heims. LJÓÐRÝNI MATTHÍAS JOCHUMSSON NÝÁRSSÁLMUR N J Ö R Ð U R P. N J A R Ð V Í K þess að gera þetta allt áhrifameira raulaði karlinn sjálfur með. Örlygur Sigurðsson, stemmningsmaðurinn mikli, lét heldur ekki sitt eftir liggja, hóf því upp raust sína og það í kröftuglegasta lagi. Þótt vini mínum, Örlygi sé margt til lista lagt, þá er sönglistin ekki hans sterkasta hlið. Auðsætt er að sönggyðjan hefur aldrei nokkurn tíma haft fyrir því að kasta á hann kveðju. Hvort Örlygur lítur á sjálfan sig sem baðherbergisbaritón eða „toilettenor“ veit ég ekki, en þrátt fyrir þessa miklu annmarka, þá magnaðist gamanið og stemmningin þarna á bryggjunni, öllum viðstöddum til óblandinn- ar ánægju. Það sem ég tel nú eftir á að hyggja að hafi vakið mesta kátinu meðal manna var það hversu gjörólíkir „söngfuglarnir“ í þessum kostulega dúett voru, annars vegar hrjúfur strigabassi frá Íslandi (Norðurlandi) og hins vegar mjúkraddaður tenór frá Suður-Ítalíu. Söngskemmtun þessari lauk svo með því að við kvöddum þennan glaðbeitta spiladósasala án þess að eiga við hann nokkur viðskipti, svo blessaður karlinn sat þarna eftir með sárt enn- ið. Hann átti svo sannarlega betra skilið. Hér væri ef til vill ekki úr vegi að geta þess svona í framhjáhlaupi að dóttursonur og nafni Örlygs, söngvarinn Örlygur Jakobsson Smári, getur svo vissulega prísað sig sælan fyrir að hafa ekki erft rödd afa síns. Um dvölina á Kaprí ætla ég að verafrekar fáorður, enda þótt við hefðumnotið hennar í ríkum mæli og vanda-laust væri að fara mörgum fögrum eða fjálglegum orðum um einstaka náttúrufeg- urð eyjarinnar. Fyrsta daginn, 18. ágúst, klöngruðumst við alla leið upp að kastalavirki Tiberíusar keisara og skoðuðum einnig hús sænska læknisins og rithöfundarins Axels Munthe sem stendur á fallegum stað efst á eynni. Það er ennfremur með öllu óhugsandi að fjalla um Kaprí án þess að minnast lítillega á tvennt til viðbótar, í fyrsta lagi gat nokkurt, sem er býsna áþekkt gatinu í gegnum Tóina í Dyrhólaey og hins vegar á Grotta Azzurra eða Bláa hellinn, sem víðfrægur er, enda lengi dregið að sér fjöldann allan af erlendum ferða- mönnum. Þarna inni í hellinum og reyndar líka fyrir utan hann syntum við Thor eða öllu held- ur ærsluðumst í nokkurn tíma, okkur ekki að- eins til stundargamans heldur til ógleyman- legrar gleði. Satt best að segja minnist ég þessara óborganlegu gamanláta okkar þarna í volgum sjónum eins og þau hefðu gerst í gær. Í einu framhaldi af þessu er vert að geta þess að mörgum ártugum síðar gafst mér tækifæri sem leiðsögumanni að sigla inn í og skoða hella í Vestmannaeyjum eins og til að mynda Kaf- helli í Hænu og Fjósin, vestan í Stórhöfða, sem að mínum dómi standast fyllilega samanburð við Grotta Azzurra á Kaprí. Í þeim síðarnefnda kvað víst vera sérstaklega fallegt við sólarlag, þá slær einkennilegum og töfrandi litbrigðum á bergið og sjóinn í hellinum. Þeirrar sýnar nutum við hjónin, að vísu óbeint, þegar Odd- geir Kristjánsson, eftirlætistónskáld Eyjar- skeggja, sýndi okkur á sínum tíma ljómandi fallegar ljósmyndir sem hann hafði tekið í Fjósunum við slík skilyrði. En þrátt fyrir fá- dæma fegurð þeirra þá held ég að mig myndi ekki langa til að synda eða busla í Vestmanna- eyjahellunum. Perugia í hjarta Umbriu á sér langa og merka sögu, sem nær til fornsögulegra tíma. Frá sjöttu til þriðju aldar fyrir Kristsburð réðu Etrúskar, sú nafntogaða menningarþjóð þar ríkjum. Eftir 295 fyrir Kristsburð komust svo Rómverjar til valda í Perugia. Á miðöldum verður hún svo sjálfstætt borgarríki, sem læt- ur mjög að sér kveða á sviði stjórnmál, lista, uppfræðslu og annarra menningarmála. Til marks um það má t.d. geta þess að þar var fyrst reistur eða stofnaður háskóli árið 1308 og enn þann dag í dag hefur Perugia merku menningarhlutverki að gegna vegna þess að þar var settur á laggirnar háskóli fyrir erlenda nemendur og stúdenta árið 1927 og veitir ítalska utanríkisráðuneytið fjölda þeirra náms- styrki. Sá sem þetta ritar var t.d. svo lánsamur að fá þriggja mánaða styrk árið 1979. Að mín- um dómi eiga Ítalir svo sannarlega skilið mikið hrós fyrir þetta framtak sitt og frumkvæði. Ónafngreindar nágrannaþjóðir þeirra gætu mikið af þeim lært, enda verða þær að teljast miklir eftirbátar þeirra á þessu sviði. Fyrir miðjan september settumst við Thor á skólabekk í þessari merku menntastofnun, sem er til húsa í Gallenga-höllinni, einhverju reisulegasta byggingarmannvirki frá átjándu öld þar í borg, steinsnar frá etrúska boganum fornfræga. Fyrir utan nám í ítalskri tungu og bókmenntum lögðum við Thor einnig stund á listasögu. Auk listasafna í Perugia, sem hafa miklar gersemar að geyma, börðum við líka freskur Cimabues, Giottos, i Lorenzetti og Simones Martini í San Fransesco-kirkjunni í Assisi augum. Ég hugsa að það sé ekki ofmælt að við höfum staðið sem bergnumdir frammi fyrir freskum eða veggmyndum Gioros bæði í grafhvelfingunni og svo í efri hluta kirkjunnar, sem lýsa lífsferli dýrlingsins, Heilags Fransis frá Assisi. Álíka ógleymanlegar eru sömuleiðis freskur Piero della Fransesca í kórnum í San Fransesco-kirkjunni í Arezzo, þar sem rakin er helgisagan um krossinn, en þangað fórum við í fylgd með prófessorunum okkar í lista- sögu, okkur til óblandinnar fagurfræðilegrar nautnar. Einhverju sinni var frægur ítalskur leikari fenginn til að lesa upp ljóð eftir Dante, Petr- arca, Heilagan Fransis frá Assisi og Lorenzo Il Magnifico Medici og fleiri ítalska skáldjöfra og gerðu nemendur sérstaklega góðan róm að flutningi hans. Utan skólans var margt gert til menn-ingarbrigða í Perugia. Leiksýningarog tónleikar voru til að mynda al-gengir þar. Einhverju sinni urðum við þeirrar óvæntu ánægju aðnjótandi að hlusta á tónverk eftir þýska tónskáldið Paul Hindemith og það undir hans eigin stjórn og fóru tónleikarnir fram í kirkju, þó ekki í dóm- kirkju staðarins og vöktu þeir bæði hrifningu og aðdáun allra viðstaddra. Úr því að kirkjur hafa verið nefndar hér á nafn að framan mætti benda á nokkuð svona í framhjáhlaupi sem vakti fremur furðu okkar en hrifningu en það var skilti á einum veggnum eða súlunni innan- dyra þar sem stóðu þessi stórletruðu orð: „Vietato sputare sul pavimento“, sem útleggst á íslensku: Bannað að hrækja á gólfið“. Ekki ber á öðru en einhver brögð hafi verið að slíku háttalagi í þann tíð, en nú hafa sem betur fer öll slík bannorð verið fjarlægð úr ítölskum guðshúsum og það fyrir löngu. Batnandi mönnum er best að lifa. Ég veit ekki hvað Thor hefur um það að segja, en eitt er víst að ég bý enn að þeim mikla fróðleik, sem mér var miðl- að í Perugia forðum daga. Að námsdvöl okkar í Perugia lokinni héldum við til Feneyja þar sem við skoðuðum þau markverðustu menningarverðmæti er þessi furðulegi fenjastaður hefur upp á að bjóða. Hér verður þó ekki farið nánar út í þá sálma að þessu sinni, hins vegar má til gamans geta þess að þar í borg bar fyrir augu okkar tvo heims- fræga menn og það svo að segja samstundis. Þannig vildi til að við vorum staddir inni á mál- verkasafni uppi á annarri hæð við San Marco- torgið. Fyrir utan okkur voru ekki margir gestir í salnum, reyndar aðeins einn maður og kona, sem við veittum enga sérstaka athygli fyrst í stað, en fyrr en varði bárum við kennsl á manninn, sem reyndist vera enginn annar en stórleikarinn enski Michael Redgrave, en oft er skammt stórra högga eða réttara sagt stórra stjarna á milli, af því að svo að segja jafnskjótt og okkur var þetta ljóst, varð okkur litið út um gluggann og blasti þá við sjónum okkar á miðju San Marco-torginu ekki minni maður en sjálfur Orson Welles spígsporandi þarna við annan mann. Erindi hans til Feneyja hefur áreiðanlega verið í sambandi við fyrir- hugaða kvikmyndagerð hans af sjónleik Shakespeares um márann, Óþelló. Um heims- frægð er það að segja að hún getur tíðum reynst fallvaltur mælikvarði, en það á engan veginn við þá snillinga tvo sem hér hafa verið nefndir að framan, vegna þess að þeim tókst að ávaxta sitt pund á sínu sviði svo rækilega að það verður í minnum haft svo lengi sem menn- ing og listir eru nokkurs metnar í þessum ófull- komna heimi okkar. Að lokum langar mig til að vitna í bréf, sem ég skrifaði föður mínum frá París í nóvember- byrjun: „Ferðin frá Feneyjum til Parísar gekk ekki allskostar áfallalaust. Ekkert markvert gerðist fyrr en við komum til Mílanó, en þar áttum við að skipta um lest. Í sparnaðarskyni ferðuðumst við á þriðja farrými og einmitt þess vegna dundi ólánið yfir okkur. Á járn- brautarstöðinni í Mílanó fengum við þær slæmu fréttir að þriðjafarrýmisfarþegum væri ekki hleypt til Frakklands á sunnudögum og stangaðist það gjörsamlega á við þær upplýs- ingar, sem við höfðum fengið á ferðaskrifstof- unni í Feneyjum. Okkur sárnaði þetta mjög eins og vonlegt var, enda sáum við fram á svefnlausa nótt á háværri og kaldri brautar- stöð, svangir og næstum auralausir. Við keypt- um okkur nokkrar samlokur og lögðumst síðan fyrir í biðsalnum og biðum morgundagsins með óþreyju og kvíða. Það var fátt fólk í saln- um og við gátum því sofið furðuvel þrátt fyrir nætursvalann. Næsta dag fórum við snemma á fætur og tókst okkur að sjá það helsta í Mílanó, þar með talda dómkirkjuna, á þeim fimm tím- um sem við höfðum fram að hádegi. Kl. 14.40 lögðum við síðan af stað. Fórum í gegnum Sviss. Sáum hluta af Lago Maggione, ítölsku og svissnesku Alpana. Komum til Parísar kl. 6.30 næsta morgun. Áttum ekki einn einasta franka. Skildum því allan farangurinn okkar eftir á stöðinni og gengum alla leið heim til Ör- lygs á Montparnasse. Á leiðinni komum við í Notre Dame, sem er eitthvert það dýrðlegasta guðshús sem til er í víðri veröld. Hlýddum þar á morgunmessu og orgelleik og nutum við þessarar heilögu morgunstundar til fullnustu, enda er birtan alltaf best árla dags. Betri heim- komu, já, ég segi heimkomu, er ekki hægt að hugsa sér. Höfundurinn rak málaskóla í Reykjavík í marga áratugi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.