Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Síða 20
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001
Í
dag verður opnuð í Galleríi Sævars
Karls sýning Helga Þorgils Friðjóns-
sonar „Portrett og ský“. Portrettmynd-
irnar, sem eru þrettán talsins, eru af
hinum og þessum einstaklingum, sum-
um þekktum og öðrum ekki. Þegar
Helgi Þorgils er spurður að því hvað
hafi knúið hann til að vinna sýningu af
þessu tagi segist hann alla tíð hafa málað port-
rett, „kannski þó mest sjálfsmyndir. Ég var
með portrettsýningu á Kjarvalsstöðum fyrir
tíu árum og þá með Hallgrími Helgasyni. Mig
minnir að hans sjónarmið hafi verið að portrett
væru alls ekki gerð í dag og sú hugsun var for-
senda sýningarinnar. Á þessari fyrri portrett-
sýningu voru myndir af ýmsum kunningjum,
sumar nýjar en aðrar eldri. Svo ákvað ég fyrir
tveimur eða þremur árum að gera aðra sýningu
af þessu tagi. Sævar Karl hefur verið að biðja
mig um að sýna með reglulegu millibili, en það
var ekki fyrr en ég fékk þessa hugmynd að mér
fannst það spennandi“.
Þú segist hafa málað sjálfsmyndir; Frida
Kahlo sagði einhverju sinni að hún málaði
myndir af sjálfri sér af því hún væri sá efnivið-
ur sem hún þekkti best – á það kannski við um
þig líka?
„Kannski að einhverju leyti, en mér hefur
alltaf fundist skemmtilegt að skoða portrett
listasögunnar vegna þess að í þeim les maður
bæði tímann og söguna betur en úr mörgu öðru
– mun betur en t.d. úr skrifuðu orði. Í portrett-
myndum kemur hvorttveggja fram, það sem á
skylt við sálina og það sem tilheyrir hversdags-
leikanum.“
Nú hefur verið bent á að í portrettmynd fel-
ist ákveðin þversögn eða blekking, því myndin
lítur út fyrir að hafa fangað eitt augnablik, en í
raun er hún afrakstur langs ferlis í tíma.
„Já, og þetta kemur ágætlega fram í text-
anum hennar Hildar Bjarnadóttur í sýningar-
skránni, en hún er ein fyrirsætanna. En í raun-
inni má segja að þessi hugmynd eigi almennt
við um málverk, þótt það sé kannski augljósara
í portrettinu. Þar sem portrettið er bara mynd
af persónu finnst manni sem maður skilji það á
augnabliki. En auðvitað gildir það sama um
portrett og önnur málverk, maður skilur þau
ekki fyrr en maður hefur margskoðað þau og
helst nálgast þau nokkrum sinnum. Svo vel
skoðar þó yfirleitt enginn málverk, nema lista-
maðurinn sjálfur og ef til vill einhverjir örfáir í
viðbót. Reynsla margra þeirra sem sátu fyrir
var að fyrst fannst þeim verkið mjög ólíkt sér,
enda er myndin ekkert lík persónunni í fyrstu
tvö til þrjú skiptin nema í einstaka tilfellum. En
svo þegar fólk hefur séð verkið svona tíu sinn-
um finnst því portrettið jafnvel alveg eins og
persónan.“
Tíminn skiptir öllu máli
í málverkinu
Sumir segja að hugmyndir manna um port-
rettið hafi breyst mikið eftir að ljósmyndin kom
til sögunnar, því ljósmyndin beinlínis grípur
þetta augnablik sem málverkið gerir ekki, og
þannig varpar ljósmyndin nýju ljósi á málverk-
ið og sögu þess.
„Þarna kemur maður kannski aftur að þeim
þætti sem alltaf er verið að ræða um og er í
raun mjög greinanlegur í portrettum; að mál-
verk og ljósmyndir eru ekki sambærilegir hlut-
ir. Tíminn skiptir öllu máli í málverkinu, en
augnablikið trúlega mestu í ljósmyndinni. Á
sýningunni núna er ein skýjamynd og það er
t.d. mjög athyglisvert að sumt skýjafar er
þannig að þótt þú getir tekið ljósmynd af því þá
er ekki hægt að mála það vegna þess að það
verður svo ótrúverðugt, eða jafnvel svo súrreal-
ískt. Ef maður hins vegar stíliserar þetta sama
skýjafar verður það alveg eins og ský – það er
þá meira eins og tákn fyrir skýið og öðlast
þannig aftur trúverðugleika.“
Um sambandið sem myndast á milli fyrisætu
og málara segir Helgi Þorgils að í fyrri port-
rettsýningu sinni hafi hann valið vini sína eða
kunningja til að mála, „en í þessari sýningu
núna voru það meira andlitin sem kusu sýn-
inguna. Þetta var ekki fólk sem ég þekkti í upp-
hafi, en ég kynntist því að einhverju leyti smátt
og smátt í gegnum vinnuna við portrettið. Þeg-
ar það situr hérna verður maður eins og sál-
fræðingur og fólkið byrjar að tala og tala“, seg-
ir Helgi og hlær, „enda eru það margir tímarnir
sem það bara situr hér hjá mér. En ferlið við
þetta er ekkert ólíkt því sem sagt er frá í
grískri bók sem Gunnar Harðarson þýddi fyrir
nokkrum árum, þar sem persónuleikinn er veg-
inn og metinn eftir byggingu andlitsins. Lög-
unin á andlitinu, nefinu eða jafnvel holdafarið
hefur ákveðna þýðingu varðandi persónuleik-
ann. Manni finnst oft að maður kannist við per-
sónu þegar maður sér andlit í fyrsta sinn, en
svo er hún kannski allt öðruvísi en maður hafði
ímyndað sér við nánari kynni“.
Nú bera þessi portrett með sér blæ íkona eða
helgimynda og skýin í bakgrunni sumra
styrkja þá hugsun. Er einhver skyldleiki
þarna?
„Ég veit það ekki,“ segir Helgi, „kannski er
þetta vegna þess að ég var með galleríið hans
Sævars Karls í huga þegar ég vann allar mynd-
irnar, nema þá af Sverri Guðjónssyni, sem er
elst. Það má svo sem reikna með því þar sem
þetta eru þrettán myndir og ein mynd af skýj-
um, auk þess sem galleríið minnir pínulítið á
kirkjuskip.“
Hægt að nálgast sama hlutinn frá svo
mörgum hliðum í einu
En hvað með portrettmyndir eins og í sögu
Oscars Wilde af Dorian Gray, þar sem myndin
er eiginlega orðin meira en manneskja?
„Já, margar af fyrirsætunum nefndu það að
myndirnar væru líkari persónunni en mann-
eskjurnar sjálfar. Ég hef nú reyndar trú á því
með málverk, að hægt sé að ná slíkri tilfinningu
fram vegna þess að maður hefur svo mikið
frelsi, umfram t.d. ljósmyndarann. Í málverk-
inu er hægt að nálgast sama hlutinn frá svo
mörgum hliðum í einu að hann verður ósjálfrátt
viðameiri en maður heldur að hann sé. Popp-
tímabil málverksins eyddi þessum möguleika
að einhverju marki en ég álít mig nú frekar til-
heyra þessum sögulegu málurum sem fara
framhjá viðfangsefninu og allt í kringum það.
Enda held ég að málverk af því tagi séu að
koma aftur. Þessi kalda írónía sem hefur ein-
kennt síðastliðin þrátíu ár í málaralist er að
víkja, ásamt öllu því sem byggðist eiginlega
eingöngu á einni, snöggri hugmynd. Sagan er
aftur að koma fram í forgrunninn á öllum svið-
um. Mér virðist meira að segja sem eitthvað
hliðstætt sé að gerast í vísindum þar sem menn
reyna nú að nálgast þá keðjuhlekki sem slitn-
uðu í burtu á ákveðnu tímabili. Ætli samhengi
hlutanna sé ekki farið að skipta meira máli á
nýjan leik.“
Nú er verið að gefa út bók á Ítalíu um þig og
þína list. Geturðu sagt mér eitthvað af því?
„Búið er að skipuleggja tuttugu bóka flokk
um fígúratíva samtímamálara og bókin um mig
er ein sú fyrsta, en auk hennar koma út bækur
um þá Jan Knapp og Salvo til að byrja með.
Bókin um mig er um hundrað síður og með um
60 myndum. Útgáfufyrirtækið er vel þekkt svo
það má búast við því að bækurnar fái ágæta
dreifingu á alþjóðlegum vettvangi. Síðan á að
koma út annar flokkur um listamenn sem eru
heldur poppaðri, en mér finnst ég nú hafa lent í
skemmtilegri flokknum,“ segir Helgi og brosir.
Hringhreyfing sem veitir
einnig heilmikil svör
Talið berst að lestri Helga á Kierkegaard, en
hann segir að útgáfufyrirtækið hafi beðið hann
að senda einhverja tilvitnun sem hægt væri að
nota sem einkunnarorð fyrir bókina. „Ég
gleymdi því nú alveg,“ segir hann, „en fann svo
í Kierkegaard það sem ég hefði getað hugsað
mér að senda. Það var þegar Kierkegaard segir
frá manni sem fór upp í sjöunda himin til að
ræða við guðina. Þeir spurðu hvers hann myndi
óska sér ef hann ætti eina ósk og fyrst hugsaði
hann um peninga og ást og allt þetta sem
mönnum dettur vanalega í hug. En að lokum
kvaðst hann myndu óska sér þess að geta hleg-
ið endalaust. Guðirnir hugsuðu sig lengi um og
skellihlógu svo. Kierkegaard útskýrir síðan
fyrir lesendum sínum að svona ósk sé ekki
hægt að svara með neinu nema hlátri. Mér
finnst þessi saga vera dæmi um fallegan hring,
sem veitir líka heilmikil svör,“ segir Helgi.
Sérðu þá ef til vill portrettin þín sem svona
hringhreyfingu í kringum manneskju?
„Já, ég gæti trúað því,“ svarar hann. „Ég
gæti trúað að myndlistin mín væri svolítið á
þessum nótum og þess vegna hafi ég orðið
svona hrifinn af þessu. Maður leggur upp með
ákveðna spurningu, vinnur sig áfram og fær
kannski rökrétt svar vegna þess að maður
heldur að maður fái svar – eins og guðirnir
gerðu hjá Kierkegaard. Og stundum getur
svarið jafnvel falist í því að svara ekki.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Helgi Þorgils Friðjónsson, myndlistarmaður.
SÁLIN OG
HVERSDAGS-
LEIKINN
„Portrett og ský“ heitir sýning Helga Þorgils Friðjóns-
sonar sem verður opnuð í dag í Galleríi Sævars Karls.
Portrettin eru þrettán talsins og bera með sér óræðni
helgimynda, en að sögn listamannsins minnir
sýningarsalurinn dálítið á kirkjuskip. FRÍÐA BJÖRK
INGVARSDÓTTIR leit inn á vinnustofu hans og komst
að því að úr portrettum má lesa ýmislegt bæði um
söguna og tímann, sálina og hversdagsleikann.
Helgi Sverrisson. Hildur Bjarnadóttir. Kristín Gunnlaugsdóttir. Karin Kneffel.