Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.2001, Síða 2
Morgunblaðið/Kristinn
Sari Maarit Cedergren
TVÆR sýningar verða opnaðar í Hafnarborg í dag kl. 15. Þar sýna
verk sín finnsku listakonurnar Sari Maarit Cedergren og Kaisa Koiv-
isto.
Sýning Sari Maarit í Sverrissal heitir Landið og eru þar lágmyndir
úr gifsi. Viðfangsefni listakonunnar er landslagið og fjarvíddin,
hvernig birta og skuggar kalla fram ýmis áhrif og stemmningu.
Sari er hugleikið hvernig veðrabrigði hafa áhrif á það sem hún sér
og segir kyrrðina til dæmis kalla fram vissa stemmningu. Regnskúr-
inn og þokubakkinn gjörbreyti einnig landslaginu. Hún túlkar breyti-
leika landsins á sinn hátt með myndunum en áhorfandinn fær jafn-
framt sitt svigrúm til að fylla í eyðurnar.
Sari er fædd í Finnlandi árið 1965 en fluttist til Íslands 1986 og hef-
ur búið og starfað hér síðan. Hún stundaði myndlistarnám í Svíþjóð,
Finnlandi og á Íslandi.
Efniviðurinn fundinn í sláturhúsum
Sýning Kaisu Koivisto ber yfirskriftina „Villt“ og byggist á vanga-
veltum listakonunnar um samband manna og húsdýra. Hluti sýning-
arinnar fjallar til dæmis um rannsóknir hennar á því hvar kúabú voru
áður í New York, en í sumum borgarhlutum þar voru kýr haldnar
fram á síðustu áratugi tuttugustu aldarinnar. Á sýningu Kaisu er að
finna ljósmyndaverk, höggmyndir og innsetningar, en Koivistu beitir
ýmsum efnum til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri. „Í
höggmyndum mínum og innsetningum nota ég kýrhorn, bein og tenn-
ur sem efnivið. Þetta efni finn ég á flóamörkuðum og í sláturhúsum.
Þar sem ég hef verið að vinna með dýr hef ég líka kannað viðfangsefni
á borð við genatækni og möguleika hennar, ræktun dýra með það fyr-
ir augum að bæta kyn og auka framleiðni, umhverfissögu, baráttuna
fyrir réttindum dýra, kenningar um húsdýr og ræktun þeirra, sam-
band dýra og manna eins og því er lýst í textum Biblíunnar og það
hvernig dýr koma fyrir í trúarbrögðum, siðfræði og goðsögnum. Svo
má ekki heldur gleyma gæludýrum og meindýrum á heimilum,“ segir
Kaisa.
Við opnun sýningarinnar verður flutt fimmtán mínútna dansverk
eftir Veera Suvalo Grimberg. Höfundurinn flytur sjálfur verkið við
tónlist eftir Johönnu Dahl og með sviðsmynd eftir Klas Grimberg.
Verkið hefur áður verið flutt á Wäinö Aaltonen-safninu í Åbo í
tengslum við sýningu Kaisu Koivisto þar í júlí í fyrra.
Kaisa hefur sýnt víða um heim og unnið til verðlauna fyrir list sína.
Hún hefur einu sinni áður haldið einkasýningu á Íslandi en það var ár-
ið 1993 í Gallerí II við Skólavörðustíg.
Sýningin í Hafnarborg er styrkt af Flugleiðum, finnska listasjóðn-
um FRAME, finnsk-íslenska sjóðnum og Letterstedska-sjóðnum í
Stokkhólmi. Sýningin stendur til 5. febrúar og er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17.
Tvær finnskar listakonur opna sýningar í Hafnarborg
Kaisa Koivisto
LANDSLAG
OG HÚSDÝR
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. JANÚAR 2001
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing opin þri.–fös. kl. 14–16. Til 15. maí.
Borgarbókasafnið, Grófarhúsinu,
Tryggvagötu 15: Handrit og bækur
Tómasar Guðmundssonar. Til 27. jan.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Íslensk
myndlist um aldamót. Til 28. jan.
Gallerí Sævars Karls: Helgi Þorgils
Friðjónsson. Til 25. jan.
Gallerí Stöðlakot: Hörður Jörundsson.
Til 28. jan.
Gerðarsafn: Samsýning sex málara.
Birgir Snæbjörn Birgisson, Ed
Hodgkinson, Jóhann Ludwig Torfason,
Peter Lamb, Sigríður Ólafsdóttir og
Þorri Hringsson. Til 21. jan.
Gerðuberg: Eggert Magnússon. Til 18.
feb.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugs-
dóttir. Til 19. feb.
Listasafn ASÍ: Ásmundarsalur og
Gryfja: Anna Jóa. Arinstofa: Úr eigu
safnsins. Til 28. jan.
Listasafn Íslands: Úr safnaeign. Til 15.
jan.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Ísland öðrum augum litið. Til 21. jan.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað-
ir: Gullpensillinn – samsýning 14 lista-
manna. Til 24. mars. Austursalur: Jó-
hannes S. Kjarval.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Sigríð-
ur Ólafsdóttir. Til 16. jan.
Man, Skólavörðustíg 14: Guðbjörg
Lind Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdótt-
ir og Kristín Jónsdóttir frá Munka-
þverá. Til 15. jan.
Norræna húsið: Kirkjuteikningar fær-
eyska arkitektsins J.P. Gregoriussen.
Til 12. feb.
Skaftfell, Seyðisfirði: Jón Óskar. Til 15.
jan.
Skálholtskirkja: Teikningar Katrínar
Briem. Til 1. feb.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.-
umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur Breiðholtskirkja: Jörg
Sondermann: Bach í Breiðholtskirkju.
Kl. 17. Sunnudagur Salurinn: Ólafur
Kjartan Sigurðarson baríton og Jónas
Ingimundarson píanó. Kl. 20. Þriðju-
dagur Salurinn: Richard Simm píanó-
leikari. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Horfðu reiður um öxl,
fös. 19. jan.
Antígóna, lau. 13. jan., sun. 14. jan.
Með fulla vasa af grjóti, lau. 13., sun. 14.
fim. 18. jan.
Ástkonur Picassos, fös. 19. jan.
Borgarleikhúsið: Öndvegiskonur, fim.
18. jan.
Móglí, sun. 14. jan.
Skáldanótt, lau. 13., fös. 19. jan.
Leikfélag Íslands: Á sama tíma síðar,
lau. 13., sun. 14., fim. 18., fös. 19. jan.
Iðnó: Trúðleikur, lau. 13., fös. 19. jan.
Kaffileikhúsið: Eva, fim. 18. jan.
Stormur og ormur, sun. 14. jan.
Háaloft, lau. 13., þrið. 16. jan.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysingarn-
ir, lau. 13., fös. 19. jan.
Tónleikasalur Söngskólans, Veghúsa-
stíg 7: Nemendaópera. Gondólagæjarn-
ir, sun. 14., mið 17. jan.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í
tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
569 1222. Netfang: menning@mbl.is.
MENNING/
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Morgunblaðið/Ásdís
Úr leiksýningunni Móglí.
SAMNINGUR um breytt rekstrarfyrirkomu-
lag og eignarhald Borgarleikhússins var und-
irritaður á fimmtudagskvöld, 11. janúar, af-
mælisdag Leikfélags Reykjavíkur. Þá voru
liðin 104 ár frá stofnun félagsins. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Páll Baldvin
Baldvinsson, formaður stjórnar Leikfélags
Reykjavíkur, undirrituðu samninginn. Í sam-
komulaginu felast kaup Reykjavíkurborgar á
eignarhluta LR í Borgarleikhúsinu, að undan-
skilinni húseign í Auðbrekku, og er kaupverðið
195,1 milljón króna. LR mun áfram hafa end-
urgjaldslaus afnot til æfinga og leiksýninga í
Borgarleikhúsinu í 12 ár eða til ársloka 2012. Í
samningnum skuldbindur LR sig til þess að
innrétta nýjan sal Borgarleikhússins, á milli
Borgarleikhússins og Kringlunnar, sem nú er
nær fullgerður að utan en fokheldur að innan.
Verði verkinu lokið fyrir 1. október á þessu ári
og endurgreiði Reykjavíkurborg LR kostnað
við innréttingar.
Reykjavíkurborg mun veita LR árlegan
rekstrarstyrk til reksturs félagsins og Borg-
arleikhússins samkvæmt fjárhagsáætlun
Borgarsjóðs hverju sinni en stefnt er að því að
styrkurinn verði að fjárhæð 180 milljónir
króna árið 2001.
Í samningnum er kveðið á um þá skyldu
Leikfélags Reykjavíkur að standa fyrir öflugri
og samfelldri menningarstarfsemi árið um
kring í Borgarleikhúsinu, á eigin vegum og í
samstarfi við aðra. LR skal setja upp í það
minnsta sjö leiksýningar á eigin vegum á
hverju starfsári og tryggja að minnsta kosti
tveimur öðrum leikflokkum endurgjaldslaus
afnot af húsnæði Borgarleikhússins til æfinga
og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Stefnt
er að náinni samvinnu Leikfélags Reykjavíkur
og Borgarbókasafnsins um samstarfsverkefni
í húsakynnum Borgarleikhússins og safnsins
og samvinnu við rekstrarfélag Kringlunnar um
hvers konar aðra starfsemi í Borgarleikhúsi.
Leikfélag Reykjavíkur og Reykjavíkurborg
UNDIRRITA SAMNING UM
REKSTUR BORGARLEIKHÚSS
Morgunblaðið/Kristinn
Páll Baldvin Baldvinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir undirrita samninginn.