Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.2001, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.2001, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. JANÚAR 2001 7 ars að þetta væri hálfgerð ofrausn. Hvað segir Þórunn um það? „Ég held að kostirnir við þetta hafi verið ótvírætt fleiri en gallarnir. Við áttum ágætt samstarf við Listahátíð í Reykja- vík og það varð til þess að hægt var fá hingað San Franscisco Ballettinn sem var gríðarlega stórt og dýrt verkefni. Við áttum líka samstarf við Listahátíð um fleiri verkefni. Hið sama má segja um samstarfið við Landafundanefnd. Þar áttum við gott samstarf þar sem listkynn- ing af okkar hálfu fór fram í samstarfi við kynningar og hátíðardagskrár á vegum landa- fundanefndar í Bandaríkjunum og Kanada á liðnu sumri. Afraksturinn af því lét ekki á sér standa og frá því í sumar höfum við fengið allt að eitt þúsund heimsóknir á dag á heimasíðu okkar og langflestar frá Bandaríkjunum. Við höfðum skrifstofur okkar í sama húsi og bæði Landafundanefnd og Kristnihátíð og þetta samstarf var mjög gagnlegt fyrir alla aðila. Einnig komum við sterkt inn í dagskrá Menn- ingarnæturinnar í Reykjavík og báðir aðilar nutu góðs af því.“ Samstarf við sveitarfélögin í landinu Hugsunin að baki Listahátíð í Reykjavík er allt önnur en liggur að baki heilu Menningar- ári og Þórunn lýsir því þannig að um sé að ræða annars vegar samþjappaða dagskrá há- gæða listviðburða þar sem atvinnumenn eru eingöngu í sviðsljósinu, innlendir og erlendir. „Hins vegar var Menningarárið hugsað sem fljótandi röð viðburða sem skarast hver við annan, á þá var ekki lagt sama listræna mat í öllum tilfellum heldur var gert ráð fyrir að al- menningur kæmi til þátttöku með ýmsum hætti. Mér dettur ekki í hug að halda því fram að allt á dagskrá Menningarborgarinnar hafi höfðað til mín persónulega enda spegluðum við áhuga mjög breiðs hóps. Sjálf lagði ég mikinn metnað í að ná samstarfi við önnur sveitarfélög í landinu um verkefni og tel að það hafi tekist vel. Við lögðum megináherslu á viðburði utan höfuðborgarsvæðisins í júlímánuði og það kom vel út.“ Á það má benda að samstarf lista- manna úr ýmsum listgreinum og samruni þess sem áður var kallað dægurmenning við hinar æðri listgreinar hafi einnig verið markmið og einkenni dagskrár Menningarársins. „Við vild- um þenja út hin viðurkenndu mörk og undir- strika hversu fjölbreytt lista-og menningar- starfsemin er orðin. Popptónlist, hönnun, tíska, bókmenntir, nútímatónlist, margmiðlun o.fl. o. fl. voru meðal stórra verkefna sem komu fram á árinu. Þetta tilheyrir allt okkar sam- tímamenningu.“ Þórunn hlær þegar hún segir að eitt af yfirlýstum markmiðum hennar í upp- hafi ársins hafi verið að tryggja að í lok ársins væri þjóðin ekki búin að fá ógeð á orðinu „menning“. „Ég gætti þess reyndar vandlega að segja þetta hvergi opinberlega en ég held að þetta hafi tekist hjá okkur. Þjóðin hefur ekki fengið sig fullsadda af menningu og listum, heldur vill hún meira og sífellt betri list. Eft- irspurnin er meiri nú en í upphafi árs 2000.“ Í framhaldi af þessu segir hún að róðurinn hafi orðið léttari eftir því sem leið á árið, gagnstætt því sem margir stjórnendur annarra menning- arborga hafa sagt. „Í Kaupmannahöfn, sem var menningarborg 98, voru allir búnir að fá nóg þegar árið var hálfnað og seinni hluta árs- ins var áhugi almennings horfinn.“ Þórunn segist ekki geta lagt næga áherslu á mikilvægi þess að skipuleggja svona langtímadagskrá rétt. „En skipulagið má ekki vera þvingun á listamennina og hið skapandi starf. Skipulagið á að vera gatan sem gengið er eftir hindrana- laust. Það veitir aðhald og beinir öllum í rétta átt.“ Vafalaust er auðveldara að segja þetta en að halda því til streitu í verki, ekki síst í hita leiksins þegar mörg járn eru í eldinum sam- tímis. „Við þurftum að læra margt á stuttum tíma og gæta þess að gera ekki mistök því þau hefðu orðið dýrkeypt.“ Erfiðasta málið á árinu segir Þórunn hafa verið þegar Björk ákvað að draga sig í hlé frá þátttöku í Röddum Evrópu. „Það var hárrétt ákvörðun hjá henni en eft- irleikurinn var erfiður fyrir okkur þar sem samstarfsaðilar okkar höfðu bundið miklar og nokkuð óraunsæjar vonir við þátttöku hennar. Þetta kenndi mér hversu harður heimur þetta er orðinn og hversu miklu umboðsmennirnir ráða í hinum alþjóðlega heimi listanna. Vald þeirra er mikið og eins gott fyrir alla aðila að kynna sér nákvæmlega undir hvað er verið að skrifa. En við komum vel út úr þessum slag enda höfðum við allt okkar á þurru.“ Mikilvægast að þekkja eigið samfélag Þórunn tekur nú til starfa á skrifstofu Listahátíðar í Reykjavík brynjuð meiri reynslu af stjórnun listahátíða og alþjóðlegu samstarfi um menningarviðburði en nokkur annar Íslendingur. Hún segir að þó reynslan sé ómetanleg þá sé þó þekking á eigin sam- félagi meira virði en nokkuð annað. „Við mig töluðu stjórnarmenn grískrar borgar sem verður Menningarborg Evrópu árið 2005 en þeir komu hingað um daginn. Þeir vildu kanna hvort ég hefði áhuga á starfinu af því að þeir héldu að sambönd mín við aðila víða í Evrópu væru svo mikilvæg. Ég sagði þeim að ráða ein- hvern úr eigin röðum sem þekkti samfélagið þeirra og fólkið sem byggi í borginni. Það væri aðalatriðið.“ Verður Listahátíð í Reykjavík árið 2002 með öðru sniði en fyrri hátíðir? Þórunn hristir höfuðið. „Ég á ekki endilega von á því að breytingarnar á sjálfri dagskrár- samsetningunni verði mjög afgerandi. Ég er hins vegar hallari undir þá skoðun að sá tími sé liðinn að okkur sé mest nýnæmi að heimsókn- um alþjóðlegra stjórstjarna á Listahátíð. Þetta eru yfirleitt listamenn sem troða upp á ótal listahátíðum um alla Evrópu á hverju ári. Ís- lendingar eiga þess orðið kost að sjá þessa listamenn erlendis. Það er hins vegar fengur að því að fá hingað á Listahátíð listamenn og hópa frá framandi menningarsvæðum og af- burða listamenn sem vinna með íslenskum listamönnum. Þar vil ég leggja áherslurnar auk þess sem efla á frumkvæði að innlendri listsköpun og gera hlut hennar sem stærstan á Listahátíð. Ég vil einnig auka samstarf við sveitarfélögin í landinu og horfi til hins nýja Menningarborgarsjóðs með það í huga. Þar ættu að gefast tækifæri til að efla samstarfið í formi samstarfsverkefna sem styrkt yrðu úr Menningarborgarsjóðnum.“ Að lokum spyr ég Þórunni hvort hún hafi sjálf ekki fengið sig fullsadda af menningu og listum á Menningarárinu. „Þetta er ekki spurning um það. Menning og listir eru hluti af lífinu. Maður fær aldrei nóg af því. Þetta er mitt starf og mér finnst það mjög skemmtilegt. En ég hef líka verið afar heppin. Svo er þetta líka spurning um að tímasetja hlutina rétt. Það er hægt að taka rétta ákvörð- un á röngum tíma. Kúnstin við þetta allt saman er taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Þá er gaman og þá fær enginn nokkurn tíma nóg.“ Morgunblaðið/Þorkell Finnski kórinn Öskurkarlarnir, Mieskuoro Huutajat, á tónleikum í haust. Morgunblaðið/Ómar  Menningarborg og Menningarnótt tóku höndum saman með eftirminnilegum hætti. Sýning á æviverki Ragnhildar Óskarsdóttur, Rósku, var ein af athyglisverðum sýningum í Nýlistasafninu á Menningarárinu. Ítalska útileikhúsið Studio Festi dró að sér þúsundir áhorfenda þann 9. desember. Þá yrði líklega farin af mér feimni var titill leik- innar heimildarmyndar sem Sjónvarpið, Út- varpið og Menningarborgin stóðu að. Ljósmynd/Jón Gunnar Grjetarsson Stjórnendur Menningarborga Evrópu árið 2000 komu saman í Bologna í lok ársins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.