Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.2001, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.2001, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. FEBRÚAR 2001 9 H INN 21. desember árið 1900, eða fyrir rétt rúmum 100 ár- um, fór Ólafur Þorleifsson, bóndi í Miðhúsum á Vatns- leysuströnd að leita að kind- um uppi á Strandarheiðinni. Hann kom aldrei til baka. Árið 1931 fundust síðan lík- amsleifar Ólafs ofan í djúpri og dimmri gjá. Í tímariti Ungmennafélags Vatnsleysustrandar- hrepps, Vitanum, er frásögn af því þegar bein Ólafs fundust. Þessi grein er skrifuð af Rafni Símonarsyni hinn 16. febrúar árið 1936, sex ár- um eftir að hann fann beinin. Rafn var fæddur 11. febrúar 1903 og var bóndi í Austurkoti á Vatnsleysuströnd mestan hluta ævi sinnar en hann lést 20. júní 1991. Vatnsleysustrandarhreppur nær frá Hvassa- hrauni sem liggur að landi Hafnarfjarðar og með ströndinni allt suður á Vogastapa þar sem Reykjanesbær tekur við. Síðan upp frá strönd- inni til fjalla allt að Grindavíkurlandi. Vatns- leysuströndin er ekki þekktust fyrir landbúnað fyrr á árum heldur hina geysimiklu útgerð sem þaðan var stunduð. En á flestum bæjum, þar sem grasnytjar voru, stunduðu ábúendur nokk- urn búskap með útgerðinni. Flestir áttu sauðfé og voru sumarhagar þess á Strandarheiði en þar þóttu nokkuð góðir bithagar. Eftir heiðinni endilangri liggja sprungubelti sem einkennast af opnum sprungum og gjám og oftast er grunn- ur sigdalur á milli. Þessar gjár eru margar mjög tilkomumiklar þar sem annar gjárveggurinn er miklu hærri heldur en hinn svo munar mörgum metrum. Því er heiðin torfarin og víða hættuleg eftir að snjó festir á jörðu. Þegar þeir atburðir sem hér á eftir eru raktir gerðust voru aðstæður einmitt svona á heiðinni. Snjór þakti jörð og huldi því víða djúpar sprungur eða gjótur sem gátu verið mönnum og skepnum hættulegar. Hvarf Ólafs Daginn sem Ólafur fór frá konu sinni, Val- gerði Björnsdóttur fæddri 3. júní 1857, og tveimur dætrum sínum, þeim Jórunni 11 ára og Þóreyju 6 ára, var mikill snjór en veðrið annars ágætt. Þegar leið á daginn tók hins vegar að þykkna upp og með kvöldinu gerði svartasta byl sem stóð þó ekki mjög lengi. Þennan sama dag voru Vogamenn að leita kinda á heiðinni og sáu þeir mann nálægt Dalselsenda skömmu áður en bylurinn skall á. Töldu þeir síðar víst að mað- urinn hafi verið Ólafur. Miðað við fótspor sem fundust og talin voru vera Ólafs hefur hann ver- ið á réttri leið þegar veðrið skall á en vegna blindhríðar og myrkurs fallið ofan í eina af hin- um mörgu sprungum sem leynast á þessari leið á Strandarheiðinni. Daginn eftir var leitað að Ólafi og einnig á aðfangadag en án árangurs. Leitinni var hætt í bili en hélt svo áfram um ára- mótin. Þá var snjórinn farinn sem hulið hafði jörðina og gert leitarmönnum erfitt fyrir. Leitað var í marga daga, bæði í gjám og sprungum en allt kom fyrir ekki. Ólafur var horfinn og fannst ekki hvernig sem leitað var. Í langan tíma eftir slysið höfðu menn, sem gengu þarna um, það fyrir vana að svipast um í gjánum um leið og þeir gengu yfir þær en aldrei sást neitt sem bent gat til hvar maðurinn væri niðurkominn. Næsta vor var maður að nafni Kristján Jóns- son úr Grindavík á ferð um heiðina. Hann gekk frá Vatnsleysu og yfir til Grindavíkur. Á leiðinni þóttist hann hafa séð staf og fataræfla liggjandi á stalli í gjá einni. Hann gaf þessu ekki nánar gætur en hafði þó orð á því þegar hann kom heim. Þetta fréttist fljótlega niður á Vatnsleysu- strönd og fóru þá Teitur Þorleifsson, bróðir Ólafs, sem bjó á Hlöðversnesi, og Benedikt Pét- ursson, bóndi á Suðurkoti í Vogum, til fundar við Kristján. Hann hafði hins vegar ekki lagt staðinn á minnið og treysti sér ekki til að finna hann aftur. Það var því ekki hægt að leita af neinu viti eftir þessum vísbendingum og allri leit hætt upp frá því. Rafn tekur fram í grein sinni að honum finnist frekar ólíklegt að staðurinn hafi sést ofan af gjáarbarmi þar sem aldimmt var þar niðri og staðurinn þar sem líkamsleifar Ólafs fundust með öðrum ummerkjum en Krist- ján skýrði frá. Göngustafur Ólafs finnst Árið 1930, rétt um 30 árum síðar, voru menn úr hreppnum að leita kinda uppi á heiðinni. Mik- ill snjór var sem gerði mönnunum erfitt fyrir. Þeir urðu oft að stoppa til að hreinsa snjó úr ull kindanna sem gerði þeim erfitt um gang og svo urðu þeir að fara varlega því snjórinn huldi margar hættur. Rekstrarmenn sáu að kindur féllu ofan í gjá eina og engin leið að bjarga þeim nema að síga niður, bæði vegna myrkurs og fátt sem hægt var að festa hendur eða fætur á. Þeg- ar mennirnir komu til byggða báðu þeir Rafn Símonarson um að síga niður í gjána. Rafn hafði alltaf verið hræddur við þessar sprungur en í þetta sinn fannst honum hann verða að síga nið- ur af einhverri ástæðu. Snemma næsta morgun var lagt af stað og þeir fóru fimm saman útbúnir nauðsynlegustu áhöldum. Þegar að gjánni kom voru fest bönd utan um Rafn og hann látinn síga niður eftir hlið gjárinnar. Hann seig niður í djúp svartnættis, myrkurs og kulda og fannst það ekki mjög aðlaðandi. Þó fannst honum svolítið ævintýralegt að vera kominn tólf til fjórtán metra ofan í jörðina, lifandi og í fullu fjöri. Þegar hann var kominn ofan í gjána þar sem kind- urnar voru verður honum litið upp fyrir sig og sér þá, sér til mikillar undrunar, staf sem stung- ið hafði verið í bergið. Honum brá í fyrstu við þessa sýn og hann hugsaði um alla þá menn sem gengið höfðu um heiði þessa og aldrei komið til baka. Þegar hann ætlaði að skoða stafinn betur fannst honum sem hvíslað væri að þetta væri stafur Ólafs Þorleifssonar sem mikið var leitað en aldrei fannst og hér hlytu því leifar hans að liggja. Rafn kallaði til félaga sinna að hann hefði fundið göngustaf sem hann héldi að væri stafur Ólafs. Þeir svöruðu að það gæti tæplega verið því það væri svo langt síðan það slys átti sér stað. Rafn hugsaði með sér að þeir hefðu sjálf- sagt svarað honum svona til að honum myndi ekki bregða og missa jafnvægið og traðka þá kannski á beinunum sem leynst gætu þarna niðri. Rafn bjargaði kindunum eins og hann átti að gera en aðgætti um leið hvort hann fyndi ein- hverjar vísbendingar en það var töluverður snjór þarna niðri og því ekkert að sjá. Rafn og félagar hans tóku stafinn með sér heim og ákváðu að fara aftur á þennan stað og rannsaka hann betur um leið og snjórinn færi. Beinin finnast Um vorið, hinn 21. júní 1931, fóru þeir svo af stað. Þegar þeir komu að gjánni leist þeim betur á þetta því allur snjór var horfinn og mun auð- veldara að leita. Vorsólin skein og lýsti upp dimmar og drungalegar sprungur heiðarinnar. Þar sem áður var nístingskuldi og myrkur var nú kominn vorylur og birta. Þeir hófust handa, bönd voru fest á Rafn og hann látinn síga niður í gjána til að leita Ólafs sem fór að heiman frá konu og dætrum glaður og heill heilsu en kom aldrei til baka. Þegar Rafn var kominn um það bil tíu metra ofan í gjána leit hann niður fyrir sig og sá þá hvar beinin lágu á litlum stalli sem stóð út úr berginu. Stallurinn var svo lítill ummáls að ekki var hægt að standa á honum á meðan verið var að tína beinin upp. Hann þurfti því að hanga í böndunum á meðan hann gerði það. Þegar Rafn hafði tekið allt sem á stallinum var sá hann að fótleggi og fótabein vantaði. Þau höfðu dottið fram af stallinum og lágu á jörðinni nokkru neð- ar. Rafn gaf því félögum sínum merki um að láta sig síga neðar. Rafn sagði að pallurinn þar sem beinagrindin var hafi verið svo lítill að ekki hafi verið unnt að sitja þar nema að láta fæturna hanga fram af. Lærleggirnir lágu líka þannig að endar þeirra stóðu út af pallbrúninni. Annar lærleggurinn var brotinn en lá þó þannig að brotin féllu saman og sennilega hefur Ólafur lærbrotnað um leið og hann féll ofan í gjána. Að öðru leyti voru beinin mjög lítið fúin, næstum allar tennurnar voru til dæmis fastar í kjálk- unum. Á stallinum voru einnig leifar af fötum. Þetta sýnir vel hvað hlutir geta varðveist ótrú- lega vel niðri í jörðinni þar sem hæfilegur kuldi og loft fær að leika um þá, en víða niðri í þessum gjám er snjór stóran hluta ársins. Á meðan Rafn var að tína upp beinin velti hann því mikið fyrir sér hvað Ólafur hefur þurft að ganga í gegnum áður en hann lést. Hann hef- ur fallið ofan í gjána og líklega lærbrotnað við það að lenda á syllunni. Þegar stafurinn hans fannst stóð hluti hans út úr berginu. Ólafur hef- ur sennilega stungið honum í glufu í berginu og reynt að hífa sig upp en stafurinn brotnað við það. Þá hefur ekkert annað verið að gera en að bíða, bíða eftir því að deyja. Rafn velti fyrir sér hvaða hugsanir flugu í gegnum hug Ólafs þar sem hann sat á syllunni. Hann hefur örugglega hugsað til Valgerðar, eiginkonu sinnar, og Jór- unnar og Þóreyjar, ungra dætra sinna, sem yrðu nú að halda jólin án pabba síns og án þess að vita afdrif hans. Hvað yrði nú um konuna hans og börn hefur hann kannski hugsað. Á meðan biðu þær heima eftir því að hann kæmi sem hann aldrei gerði. Stúlkurnar spyrja hvað hefur orðið af honum pabba en mamma þeirra getur ekki svarað því. Hún bíður bara og vonar að hann komi heim í nótt. En nóttin líður, dag- arnir líða og árin líða og aldrei kemur hann heim. Hugsanir þessum líkar ímyndaði Rafn sér að farið hefðu í gegnum huga Ólafs á meðan hann beið þögull eftir því að dauðinn kæmi og tæki hann. Kvalirnar sem Ólafur þurfti að þola af meiðslum sínum voru eflaust litlar miðað við þær hugsanir sem kvöldu sálu hans. Það má þó ætla að Ólafur hafi látist fljótlega eftir að hann féll í gjána þar sem hann svaraði ekki köllum leitarmanna daginn eftir Að lokum í vígðri mold Ólafur Þorleifsson var fæddur í Austurkoti hinn 10. júlí 1861 og var því aðeins 39 ára gamall þegar hann lést í desember árið 1900. Leifar hans voru bornar að Austurkoti í Brunnastaða- hverfi og síðan fluttar að Kálfatjörn þar sem Ólafur var jarðaður að viðstöddu fjölmenni hinn 30. júní 1931. Þegar Valgerður kona Ólafs var orðin ekkja með tvær ungar dætur á sínu fram- færi réð hún sig sem ráðskona hjá Andrési Grímssyni á Ólafsvöllum í Innri-Njarðvík og var hún þar til æviloka. Dætur hennar giftust báðar og bjó Þórey í Innri-Njarðvík en Jórunn í Gerðahreppi. Gjáin, sem Ólafur féll í og týndi lífi sínu, er nokkuð fyrir austan Arahnjúk og kallast nú Ólafsgjá og þar hjá er einnig Ólafsvarða. Þess má til gamans geta hvílíkar tilviljanir tengjast þessum atburði. Það að Rafn hafi þurft að síga ofan í þessa gjá nákvæmlega á þeim stað sem beinin lágu er ótrúlegt þar sem heiðin er öll krosssprungin og mjög algengt að kindur falli í gjár á þessu svæði. Það er einnig merkilegt að Rafn bjó mestan hluta ævi sinnar í Austurkoti, bænum þar sem Ólafur var fæddur. Það að auki hét kona Rafns Valgerður alveg eins og kona Ólafs Þorleifssonar í Miðhúsum. Heimildir: Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi. Vogar: Guðmundur B. Jónsson. Kirkjubók, Kálfatjörn 1894–1920. Kristján Hannesson (munnleg heimild, 21. janúar 2001, handrit í fórum höfundar). Keflavík. Rafn Símonarson (1936, 16. febrúar). Þrjátíu ár í gjáar- sprungu. Vitinn, tímarit Ungmennafélagsins Þróttar, Vatnsleysustrandarhreppi. TÝNDUR Í ÞRJÁTÍU ÁR „Honum brá í fyrstu við þessa sýn og hann hugs- aði um alla þá menn sem gengið höfðu um heiði þessa og aldrei komið til baka. Þegar hann ætlaði að skoða stafinn betur fannst honum sem hvíslað væri að þetta væri stafur Ólafs Þorleifssonar sem mikið var leitað en aldrei fannst og hér hlytu því leifar hans að liggja.“ Rafn Símonarson með líkamsleifar Ólafs Þorleifssonar. Tekin í Austurkoti árið 1931. Myndin er í eigu Bryndísar Rafnsdóttur, dóttur Rafns Símonarsonar. Höfundur er nemi í þjóðfræði og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. E F T I R H Ö N N U M A R Í U K R I S T J Á N S D Ó T T U R

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.