Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.2001, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.2001, Blaðsíða 2
Blásarakvintett Reykjavíkur ráðgerir tónleikaferð til Skotlands ásamt Philip Jenkins píanóleikara í apríl. BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur og Philip Jenkins píanóleikari ríða á vaðið með fyrstu tónleikum á afmælisári í Garðabæ sem verða í Kirkjuhvoli í dag, laugardag, kl. 17. Flutt verða þrjú verk. Divertimento í B- dúr eftir Joseph Haydn; Færeyskt rapp eftir Atla Heimi Sveinsson og Sextett fyrir píanó og blásarakvintett eftir Francis Poulenc. Blásarakvintett Reykjavíkur var stofnað- ur árið 1981 af núverandi meðlimum hans. Kvintettinn hefur haldið tónleika víða í Evr- ópu, Bandaríkjunum, Asíu og Ástralíu. Hljómplötufyrirtækin Chandos og Bis gefa út diska með leik kvint- ettsins sem dreift er um allan heim. Á þessu starfsári hefur kvint- ettinn m.a. haldið tón- leika á vegum menn- ingarborganna Reykja- víkur og Bergen og komið fram á heims- sýningunni í Hannover. Í apríl nk. er ráðgerð tónleikaferð til Skotlands með píanóleikar- anum Philip Jenkins. Philip Jenkins er fæddur í Englandi og stundaði tónlistarnám þar og síðar í París. Snemma á ferli sínum sem píanóleikari vann hann til ýmissa verðlauna, m.a. í London, Brussel og víðar. Jenkins hefur leikið víða, bæði austan hafs og vestan, ýmist einn eða sem einleikari með hljómsveitum eða kamm- erhópum. Íslenskum tónleikagestum er hann að góðu kunnur, en hann starfaði um tíma hér á landi, bæði sem kennari og píanóleik- ari. JENKINS OG BLÁSARA- KVINTETTINN Í GARÐABÆ Philip Jenkins 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. FEBRÚAR 2001 MYNDLIST Árnastofnun, Árnagarði: Handrita- sýning opin þri.–fös. kl. 14–16. Til 15. maí. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Magnús Þorgrímsson. Til 18. feb. Gallerí Sævars Karls: Pétur Halldórs- son. Til 15. feb. Gerðarsafn: Ljósmyndasýning Ljós- myndarafélags Íslands og BLÍ. Til 11. feb. Gerðuberg: Eggert Magnússon næf- isti. Til 18. feb. Hafnarborg: Kasa Kovisto. Sari Maarit Cedergren. Til 5. feb. Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugs- dóttir. Til 19. feb. Íslensk grafík: Frumherjar í grafík. Til 25. feb. Listasafn Akureyrar: Margmiðlunar- sýningin DETOX. Til 2. mars. Listasafn ASÍ: Hlynur Helgason. Til 17. feb. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug- ardaga og sunnudaga, kl. 14–17. Listasafn Íslands: Gerhard Richter, Rúrí og Jón Stefánsson. Til 18. feb. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar- safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur Sveinsson. Til 29. apr. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Höggmyndnir Roberts Dell í útiport- inu. Til 20. mars. Frásagnarmálverkið: Valerio Adami, Peter Klasen, Jacques Monory, Hervé Télemaque, Bernard Rancillac og Erró. Sófamálverkið. Til 25. mars. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað- ir: Gullpensillinn – samsýning 14 lista- manna. Birgir Snæbjörn Birgisson, Daði Guðbjörnsson, Eggert Pétursson, Georg Guðni Hauksson, Hallgrímur Helgason, Helgi Þorgils Friðjónsson, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Jóhann Ludwig Torfason, Jón Bergmann Kjartansson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Sigurður Árni Sig- urðsson, Sigtryggur Bjarni Baldvins- son og Þorri Hringsson. Til 24. mars. Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni. Norræna húsið: J.P. Gregoriussen, arkitekt. Til 12. feb. Nýlistasafnið: Samræður við safneign. Til 18. feb. Stöðlakot: Jón A. Steinólfsson. Til 18. feb. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Kirkjuhvoll í Garðabæ: Blásarakvint- ett Reykjavíkur og Philip Jenkins píanóleikari. Kl. 17. Sunnudagur Kristskirkja, Landakoti: Hulda Guð- rún Geirsdóttir sópransöngkona og Douglas Brotchie organisti. Kl. 20. Salurinn, Kópavogi: Camerarctica. Kl. 20. Mánudagur Listasafn Íslands: Kammersveit Reykjavíkur. Einsöngvari er Guðrún Edda Gunnarsdóttir, stjórnandi Bern- harður Wilkinson. Flutt verða verk eft- ir Leif Þórarinsson. Kl. 20. Miðvikudagur Listasafn Íslands: Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau. Kl. 20:30. Fimmtudagur Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Hljómsveitarstjóri er James MacMillian. Einleikari er Raphael Wallfich. Kl. 19.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Antígóna, lau. 3. feb., fim., 8. feb., fös. 9. des. Blái hnötturinn, sun. 4. feb. Já, hamingjan, lau. 3. feb., fös. 9. febr. Með fulla vasa af grjóti, lau. 3., sun. 4. mið. 7., fim. 9., fös. 9. febr. Borgarleikhúsið: Öndvegiskonur, fim. 9., fös. 9. febr. Skáldanótt, lau. 3. febr. Móglí, sun. 4. febr. Ástkonur Picassos, fös. 9. febr. Loftkastalinn: Á sama tíma síðar, sun. 4., fös. 9. febr. Sjeikspír, lau. 3. febr. Iðnó: Sýnd veiði, lau. 3., fös. 9. febr. Trúðleikur, lau. 3. febr. Möguleikhúsið: Lóma, sun. 4., þrið. mið. 7., fim. 8., fös. 9. febr. Snuðra og Tuðra, sun. 4. febr. Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysing- arnir, lau. 3., fös. 9. febr. Kaffileikhúsið: Eva, lau. 3., þrið. 6. febr. Háaloft, fim. 8. febr. Leikfélag Akureyrar: Sniglaveislan, lau. 3., sun. 4. febr. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U VERIÐ er að koma fyrir innsetningarverki bresku listakonunnar Tracy Emin á mynd- inni. Verkið nefnist „excorism of the last painting I ever made“ sem útleggja má á ís- lensku sem gagnrýni á síðast verk sem ég nokkurn tímann gerði, en búist er við að verkið seljist fyrir þrjár til fjórar milljónir króna er það verður boðið upp hjá uppboðs- húsi Christies síðar á árinu. Reuters GAGNRÝNI EMIN Á TÓNLEIKUM Tíbrár annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20 leikur Camerarctica kammertónlist eftir Schubert, Weber og Pleyel. „Þetta eru verk frá fyrri hluta 19. aldar, þegar rómantíkin var að taka við af klassíkinni. Fyrst verður leik- inn Kvartett fyrir flautu og strengi eftir Ignace Pleyel en hann var mjög afkastamikið tónskáld og skrifaði m.a. 18 flautukvartetta,“ segir Hallfríður Ólafsdóttir flautu- leikari. „Því næst verður leikinn Klarin- ettukvintett eftir Carl Maria von Weber sem saminn var fyrir klarin- ettusnillinginn Heinrich Bärmann árið 1815. Að lokum leikum við Strengjakvartett Franz Schuberts sem nefndur er Rosamunda eftir hinu fræga stefi hæga þáttarins, sem Schubert tók úr tónlist sinni við leikverkið „Rosamunda prinsessa frá Kýpur“,“ segir Hallfríður. Camerarctica hefur starfað frá árinu 1992. Hljófæraleikararnir starfa flestir við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að koma fram sem einleikarar og leika kammertónlist. Camerarctica hefur m.a. tekið þátt í Myrkum músíkdögum, Listahátíð í Reykjavík og Norrænum músíkdög- um og staðið að tónlistarhátíðum, m.a. í minningu tónskáldanna Hindemith og Fauré og Schubert og Brahms. Árið 1996 var gefinn út geisladiskur með verk- um eftir Mozart (Skref 007). Camerarctica skipa, auk Hallfríðar, þau Ármann Helgason, klarínettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðluleikarar, Guðmundur Kristmundsson, víóluleikari, og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. 19. ALDAR KAMM- ERVERK Í SALNUM Tónlistarfólkið í Camerarctica stillti sér upp fyrir ljós- myndarann á æfingu fyrir tónleikana. Morgunblaðið/Jim Smart LEIÐRÉTT Í RABBI Atla Harðarsonar, Lýðræði og tekjujöfnun, sem birtist í Lesbók 27. janúar misrituðust tölur í fyrstu og annarri töflu. Í þeirri fyrstu átti að standa 0, 0, 0 í vinstri dálki og -4, +2, +2 í þeim hægri. Í annarri töflunni átti að standa -3, +2, -1 í vinstri dálki og -4, +2, +2 í þeim hægri. Einnig var fyrri neðan- málsgreininni ofaukið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.