Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.2001, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 28. APRÍL 2001 13
STJÓRNENDUR Miho-safnsins í
Tókýó, eins stærsta fornminja-
safns Japana, viðurkenndu á
dögunum að Búddastyttu í þeirra
vörslu hefði verið stolið frá
Shandong-héraðinu í Kína 1994.
Á fréttamannafundi, þar sem for-
svarsmenn safnsins greindu frá
uppruna styttunnar, var und-
irritaður sáttmáli við kínversk
yfirvöld og mun styttan verða af-
hent Kínverjum. Safnayfirvöld
hafa ekki viljað láta uppi hve
mikið þau greiddu fyrir styttuna,
sem er mjög sjaldgæft eintak af
standandi Búdda, en talið er að
verð hennar nemi tæpum átta
milljörðum króna.
Sem hluta af sáttmála þjóð-
anna hafa kínversk yfirvöld sent
frá sér yfirlýsingu um að þau
telji safnayfirvöld Miho-safnsins
hafa keypt styttuna, sem er frá 6.
öld f.Kr. í góðri trú. Auk þess
sem samþykkt hefur verið að hún
verði höfð að láni hjá Miho-
safninu til 2007, er efnt verður til
sýningar á listmunum tengdum
Búdda og verkum frá Shandong.
Munir „Lísu í
Undralandi“
á uppboð
AÐDÁENDUM bóka Lewis Carr-
olls um Lísu í Undralandi gefst á
næstunni tækifæri á að eignast
safn bréfa og annarra muna sem
áður voru í eigu Alice Pleasance
Hargreaves, stúlkunnar sem
Carroll byggði söguna af Lísu á.
Það er barnabarn Hargreaves,
Mary Jean St. Clair, sem sett hef-
ur safnið á uppboð hjá Sotheby’s,
en St. Clair segist lengi vel ekki
hafa talið neitt sérstakt við það
að vera barnabarn Hargreaves.
„Ég vissi hver hún var,“ sagði St.
Clair og kveður það ekki hafa
verið fyrr en fræðimenn og aðdá-
endur Lísu tóku að heimsækja
hana eftir dauða föður hennar
sem hún áttaði sig á verðmæti
safnsins.
Í safninu, sem boðið verður
upp 6. júní nk. er að finna hundr-
uð bréfa, ljósmynda og handrita,
m.a. bréf frá Caroll til Hargreav-
es og móður hennar, handskrif-
aða og skreytta útgáfu af hand-
ritinu Ævintýri Lísu neðan-
jarðar, sem er grunnurinn að
bókinni Lísa í Undralandi. Safnið
er metið á tæpar 300 milljónir
króna, en undanfarin ár hefur
það verið í geymslu hjá Christ
Church College í Oxford.
Sveitasæla
þema Proms-
tónleikanna
STJÓRNENDUR Proms-tón-
leikaraðarinnar sem haldin er í
Albert Hall í London ár hvert
munu að þessu sinni beina at-
hygli tónleikagesta að breskri
náttúru að því er blaðið Daily
Telegraph greindi frá. Hugljúfar
myndir af sveitum landsins verða
þannig dregnar fram í verkum
tónskálda á borð við Haydn,
Handel og Beethoven. Þema tón-
leikanna var ákveðið löngu áður
en gin- og klaufaveikin gerði
vart við sig í landinu og vona
stjórnendur nú að almenningur
telji sveita þemað ekki smekk-
laust í kjölfar gin- og klaufaveiki-
faraldursins. Tónleikarnir taka
þó einnig á faraldrinum þar sem
auk eldri verkanna verður frum-
flutt verk tónskáldsins Sally
Beamish sem nefnist Knotgrass
Elegy. En að sögn Beamish
fjallar verkið um þær ógöngur
sem nútíma landbúnaðarhættir
hafa leitt breska bændur í.
ERLENT
Búdda af-
hentur Kín-
verjum á ný
TIL ÞESS legg ég Ragnheiður Brynjólfs-dóttir, hönd á helga bók og það sver ég viðGuð almáttugan, að ég er enn nú á þessaristundu svo óspjölluð mey af öllum karl-
manns völdum og holdlegum saurlífsverkum sem
þá er ég fæddist fyrst í þennan heim af minnar
móður lífi, svo sannarlega hjálpi mér Guð með
sinni miskunn sem ég þetta satt sver, en refsi
mér ef ég lýg.“ Þannig hljóðaði eiður Ragnheiðar
Brynjólfsdóttur í Skálholti í maí 1661.
Þegar Ragnheiður sór eiðinn, að viðstöddum
klerkum auk biskups föður hennar, var hún 19
ára og talin mestur kvenkosta. Tildrög eiðtök-
unnar hafa verið skáldum yrkisefni; ástir Ragn-
heiðar og Daða Halldórssonar prestlings, og
heift biskups, sem mátti ekki til þess hugsa að
kusk settist á æru Ragnheiðar, yndis hans og
eftirlætis.
Klukkan 23.00 á sunnudagskvöld verða sendir
út á vegum Ríkisútvarpsins tónleikar úr Skál-
holtskirkju, þar sem þessa atburðar er minnst.
Tónleikarnir eru sendir út í samvinnu við Evr-
ópusamband Útvarpsstöðva, EBU. Ár er síðan
undirbúningur tónleikanna hófst, en Sverrir
Guðjónsson hefur haft veg og vanda af honum.
„Ég hafði góðan tíma til að velta þessu fyrir
mér. Það var búið að ákveða að tónleikarnir yrðu
sendir út úr Skálholtskirkju, enda þema tón-
leikaraðar EBU tengt merkum sögustöðum í
Evrópu. Mig langaði til að það yrði þráður í tón-
leikunum, sem fengi hlustandann til að fara inn í
einhvern heim. Í huga mér kom mögnuð ást-
arsaga Ragnheiðar og Daða. Ég vildi hafa tónlist
úr handritunum, og tónlistin verður öll þaðan, en
Snorri Sigfús Birgisson hefur útsett nokkra
söngva fyrir selló og sópran, þar á meðal Mús-
íkulof. Þegar ég heyrði þetta verk fyrst heillaðist
ég af því og vildi nota það; – fannst sópraninn
vera rödd Ragnheiðar og sellóið rödd Daða. Voc-
es thules sönghópurinn syngur líka, og gefur yf-
irbragð hins forna, og vísar einnig í karlasam-
félagið sem þá var við lýði. Eftir þrjú klukkuslög
Skálholtsklukkna les Arnar Jónsson leikari að-
dragandann að eiði Ragnheiðar. Í lok tón-
leikanna fer Hallveig Rúnarsdóttir sópran, rödd
Ragnheiðar, með eiðinn undir söng Voces thules
til að magna upp þennan dramatíska seið.“ Við
undirbúning tónleikanna las Sverrir Guðjónsson
ljóðabálkin Ærukrans eftir Daða Halldórsson.
„Mín hugmynd er sú að Ærukransinn sé sam-
viska Daða. Þetta eru trúarleg ljóð, og ég valdi
erindi sem gætu tengst hugsun hans um Ragn-
heiði og barnið þeirra, þótt hann sé í raun að
tala um Maríu og Jesúbarnið. Ærukransinn var
saminn við Liljulagið og texti Daða verður les-
inn yfir leik þess.“ Tónleikunum verður útvarp-
að til flestra landa Evrópu.
„Svo sannarlega hjálpi mér Guð,
en refsi mér ef ég lýg“
Morgunblaðið/Kristinn
Arnar Jónsson, Voces thules, Hallveig Rúnarsdóttir og Nora Kornblueh flytja verk tengd eiði Ragn-
heiðar Brynjólfsdóttur á Útvarpstónleikum í Skálholti á sunnudagskvöld kl. 23.
SÁLUMESSA (Re-quiem) eftir WolfgangAmadeus Mozart verð-ur flutt í Neskirkju í
dag, laugardag, kl. 16. Það eru
Hátíðarkór Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar og Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna ásamt fjórum
einsöngvurum sem flytja verk-
ið sem frumflutt var í Ísafjarð-
arkirkju um páskana. Er flutn-
ingurinn tileinkaður minningu
Jónasar Tómassonar organista
á Ísafirði. Einsöngvarar eru
Guðrún Jónsdóttir, sópran,
Ingunn Ósk Sturludóttir alt,
Snorri Wium tenór og Ólafur
Kjartan Sigurðarson bassi.
Ingvar Tómasson, sonur Jón-
asar, stjórnar flutningi verks-
ins en hann er jafnframt
stjórnandi Sinfóníuhljómsveit-
ar áhugamanna, sem skipuð er um 35 hljóðfæra-
leikurum, bæði áhuga- og atvinnumönnum. Kons-
ertmeistari hljómsveitarinnar er Hjörleifur
Valsson.
Hátíðarkór Tónlistarskóla Ísafjarðar sem skip-
aður er um 60 manns, núverandi og fyrrverandi
nemendum og kennurum tónlistarskólans auk
fleira áhugafólks og koma kórfélagar úr öllum
sveitarfélögum á norðanverðum Vestfjörðum.
Stjórnandi kórsins er Beta Joó. Öll framkvæmd
og undirbúningur tónleikanna er í höndum Tón-
listarskóla Ísafjarðar og Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna, sem njóta til þess
stuðnings Ísafjarðarbæjar,
menntamálaráðuneytis og ým-
issa fyrirtækja á Vestfjörðum og
í Reykjavík.
Jónas Tómasson var fæddur
að Hróarsstöðum í Fnjóskadal í
Suður-Þingeyjarsýslu 13. apríl
1881. Hann flutti til Ísafjarðar
árið 1903, og fljótlega upp úr því
hófst hans tónlistarferill, sem
bæði varð langur og farsæll.
Hann starfaði fyrst með söng-
flokki Jóns Laxdals um árabil.
En veturinn 1909-1910 var hann
við nám hjá Sigfúsi Einarssyni
og lærði hjá honum tónfræði og
orgelleik.
Hann starfaði sem organisti,
tónskáld og bóksali á Ísafirði um
áratuga skeið, var stofnandi og
fyrsti stjórnandi Sunnukórsins
og upphafsmaður bæði Tónlistarfélags og Tón-
listarskóla Ísafjarðar. Hann var mikill athafna-
og hugsjónamaður, sem lagði grunninn að vest-
firsku tónlistarlífi. Jónas samdi um dagana mik-
inn fjölda tónverka og gekk frá meginhluta þeirra
til útgáfu áður en hann féll frá.
Sálumessa flutt til minningar um tónskáld
Hátíðarkór Tónlistarskóla Ísafjarðar, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og einsöngv-
arar í Ísafjarðarkirkju þar sem Sálumessa Mozarts var frumflutt á dögunum.
BJÖRG Örvar opnar sýningu á verkum sín-um á Myndlistarvori Íslandsbanka íVestmannaeyjum í dag, laugardag, kl.16. Sýningin er í gamla vélasalnum á
horni Vesturvegar og Græðisbrautar. Sýning
Bjargar er þriðja sýningin af fjórum sem sett er
upp á þessu vori. Björg á að baki langan feril sem
listmálari og hefur gengið í gegnum mörg tímabil
á ferli sínum. Jafnframt því að mála hefur Björg
einnig glímt við orðsins list og árið 1991 gaf hún
út ljóðabókina Í sveit sem er eins og aðeins fyrir
sig, og árið 1996 skáldsöguna Meinabörn og
Maríufang. Myndirnar sem Björg sýnir nú hefur
hún verið að vinna síðastliðinn tvö ár og hafa þær
ekki birst sjónum almennings áður. Björg Örvar
hefur aldrei komið til Eyja né sýnt verk sín þar
svo hún er full tilhlökkunar að komast í náin
kynni við þann galdur sem eyjarnar búa yfir.
Um verk sín og stöðu innan listarinnar segir
Björg Örvar meðal annars: „Af samahengi hlut-
anna núna sé ég að ég hef verið lengi að koma til.
Á hverjum tíma finnst mér ég hafa verið að gera
eitthvað sem mér hefur sjálfri þótt ókunnuglegt
og skrítið og fundist það í lagi en grundvall-
aratriðið er að það er mitt á hverjum tíma og
þegar ég lít til baka skil ég hvað var að gerast og
í sumu tilliti finnst mér ég vera komin til baka að
því sem ég var að gera fyrst, en með öðrum að-
ferðum. Leitin er þess vegna ekki eins örvænt-
ingarfull og hún var í upphafi og mér finnst ég
komin á nokkuð lygnan sjó í myndlistinni.“
Sýningunni lýkur sunnudaginn 6. maí.
Opið verður um helgar frá 14–19. Lokað virka
daga. Aðgangur er ókeypis.
Íslandsbanki í Vestmannaeyjum er stærsti
stuðningsaðili Myndlistarvorsins, sýningarsalur-
inn er í eigu Vestmannaeyjabæjar. Aðrir stuðn-
ingsaðilar Myndlistarvorsins í Eyjum 2001 eru
Eyjaprent/Fréttir, HSH flutningar og Apótek
Vestmannaeyja.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Björg Örvar með eitt verka sinna.
Björg Örvar sýnir
á Myndlistarvori