Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.2001, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 28. APRÍL 2001 15
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Hand-
ritasýning opin þri. - fös. kl. 14 - 16. Til
15. maí.
Galleri@hlemmur.is: Erla S. Har-
aldsd. og Bo Melin. Til 6. júní.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Gunnella.
Til 6. maí.
Gallerí Sævars Karls: Mömmumyndir.
Til 3. maí.
Gerðarsafn: Carnegie Art Award 2000.
Til 6. maí.
Gerðuberg: Drasl 2000. Til 29. apr.
Gula húsið, Lindargötu: Fílapensillinn.
Til 13. maí.
Hafnarborg: Jón Gunnarsson. Jean
Posocco. Til 14. maí.
Hallgrímskirkja: Kristín Geirsdóttir.
Til 20. maí.
Handverk og hönnun: Borðleggjandi.
Til 20. maí.
i8, Klapparstíg 23: Karin Sander. Til
29. apr.
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Ljós-
myndaætingar. Til 29. apr.
Listasafn Akureyrar: Henri Cartier-
Bresson. Til 3. júní.
Listasafn ASÍ: Olga Bergmann og
Anna Hallin. Til 29. apr.
Listasafn Borgarness: Hrefna Harð-
ardóttir. Til 4. maí.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 14-17.
Listasafn Rvíkur - Ásmundarsafn: Páll
Guðmundsson og Ásmundur Sveinsson.
Til 6. maí.
Listasafn Rvíkur - Hafnarhús: John
Isaacs. Til 29. apr. John Baldessari. Til
17. júní.
Listasafn Rvíkur - Kjarvalsstaðir:
Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Odd
Nerdrum. Til 27. maí.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: List
Sigurjóns, 1930-1960. Til 1. júní.
Listasalurinn Man: Ásdís Kalman. Til
6. maí.
Listhús Ófeigs: Berglind Björnsdóttir
ljósmyndari. Til 6. maí.
Norræna húsið: Ljósmyndir frá Kir-
una. Fimm myndlistarmenn frá Sví-
þjóð. Til 13. maí.
Sjóminjasafn Íslands: Ásgeir Guð-
bjartsson. Til 31. maí.
Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og
Þorgerður Sigurðard. Til 31. des.
Stöðlakot: Kristján Jónsson. Til 13.
maí.
Þjóðarbókhlaða: Elsa E. Guðjónsson.
Til 30. apr.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Langholtskirkja: Graduale nobili. Kl.
20.
Langholtsk.: Gospelsystur Rvíkur. Páll
Rósinkranz. Kl. 14 og 17.
Neskirkja: Hátíðarkór Tónlistarskóla
Ísafjarðar, Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. Kl. 16.
Ýmir: Árnesingakórinn. Kl. 17.
Sunnudagur
Háteigskirkja: Kvöldvökukórinn og
Kvennakórinn Glæður. Kl. 17.
Langholtskirkja: Requiem Szymons
Kurans. Kl. 20 og þriðjudag.
Þriðjudagur
Ýmir: Rannveig Fríða Bragadóttir,
Gerrit Schuil og Guðný Guðmunds-
dóttir. Kl. 20.30 og miðvikud.
Varmárskóli, Mofellsbæ: Karlakórinn
Stefnir. Kl. 17.
Miðvikudagur
Seltjarnarneskirkja: Inga Björg Stef-
ánsdóttir, Brynhildur Ásgeirsdóttir og
strengjakvartett. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Laufin í Toskana, 2.
maí. Syngjandi í rigningunni, 3., 4. maí.
Blái hnötturinn, 28., 29. apr. Með fulla
vasa af grjóti, 28., 29. apr. 2. apr. Já,
hamingjan, 28. apr.
Borgarleikhúsið: Skáldanótt, 4. maí.
Blúndur og blásýra, 28. apr. Móglí, 29.
apr. Kontrabassinn, 28., 29. apr. Píku-
sögur, 29. apr. 3., 4. maí.
Íslenski dansfl: Kraak een, Kraak
twee, Pocket Ocean, 29. apr.
Loftkastalinn: Sniglaveislan, 29. apr. 4.
maí. Á sama tíma..., 28. apr.
Iðnó: Feðgar á ferð, 28., 29. apr.
Íslenska óp.: Fífl í hófi, 28. apr.
Kaffileikhúsið: Eva, 3. maí.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Platanof, 28.
apr. 2., 3. maí.
Leikfélag Akureyrar: Ball í Gúttó, 28.
apr. Sígaunabaróninn, 3 maí. Kl. 20.30.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
GRANNUR maður með mjúkantrefil berst með vindum inn á ís-lenskt kaffihús, eitt af þeim. Hanná jakkaföt, bæði gráleit, brún og
yrjótt en þennan dag er hann í peysu, ósköp
látlausri. Maðurinn finnur sér fljótt borð og
stól og í huga hans býr eitthvað sem verður
kannski. Seinna lesum við þetta af ljóðabók
eða sjáum í leikriti, jafnvel kvikmynd. Nema
ef vera skyldi í skáldsögu, svokölluðum
prósa, því að maðurinn með trefilinn kveðst
ungur hafa skrifað slíkan órímaðan texta og
hann hefur nýlega játað þá dýrðlegu synd að
vera fremur ungur ævinlega. Sagt er að
hann sé til hálfrar aldar skúffuskáld prósa,
en vitað er um ljóðabækur mannsins, leikrit
og nýlegar skáldsögur reyndar líka.
Sigurður Pálsson er höfundur úr íslenskri
sveit og úr Reykjavík ekki síður og þeirri
heimsins menningu sem til dæmis blómstrar
í París í Frakklandi. Hann mun svara spurn-
ingum um höfundarverkið, ævistarfið hingað
til og sjálfan sig í því, núna í dag í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti. Þar
verður stefnumót listamanns við lesendur,
sem sumir eru líka starfsfélagar hans. Hinir
sem koma og eru ekki í þeim hópi skipta
ekkert minna máli, því að skrif eru skrif og
lestur er að Sigurðar sögn í sjálfu sér sköp-
un.
Á ritþingi Sigurðar Pálssonar, sem hefst
klukkan hálftvö og stendur til fjögur, lesa
leikararnir Edda Heiðrún Backman og
Benedikt Erlingsson og Sigurð spyrja rit-
höfundarnir Vigdís Grímsdóttir og Kristján
Þórður Hrafnsson ásamt Jóni Yngva Jó-
hannssyni bókmenntafræðingi, stjórnanda
þingsins. Þangað eru allir velkomnir sem
vilja hitta Sigurð, heyra úr verkum hans og
spyrja út í þau og þann mann sem hefur
skrifað. Það var lengi í litlar minnisbækur,
ötula félaga á göngu um götur, en skáldið
kveðst nú um nokkurra ára skeið vera laus
frá vasabók og síkvikum penna. Honum
finnst léttir að því að láta auðnu ráða fram-
vindu hughrifa. En kveðst þó drífa í því að
hripa niður minnispunkta þegar brýnt sé og
svo safnar hann slíkum nótum saman í tölv-
unni, sem orðin er allra vinur eða næstum
því. Samt notar skáldið tölvu ekki í fyrsta
kasti nema við þýðingar, hann er áfram háð-
ur penna og blaði og þau líkast til honum.
Því hér er enginn nýgræðingur lengur á
ferð, þótt hugur hans sé ef til vill ungur hef-
ur Sigurður lifað árin og jafnvel tugina með
orðinu og æði þess.
Leiklestur og söngur
Ferill hans og verk verða rifjuð upp í
Gerðubergi í dag. Þau mótast meðal annars
af þessu þrennu: bernskuslóðum á Skinna-
stað í Axarfirði, Parísarárum við nám í leik-
húsfræðum, Reykjavík, ó borg hans borg,
líkt og Haukur söng. Því mörgum þykir
skáldið bera kyndil Tómasar Guðmundsson-
ar með kvæðum um þessa höfuðborg, við-
kvæmri sýn á mannlífið nálægt heimskauts-
baug og huga líka við þá heimsins menningu
sem ýmist er forn eða vestræn eða til fyrir
hvert okkar í sjálfri sér.
Sigurður er annars nýkominn úr annarri
borg, Tallin í Eistlandi, þar sem hann var á
vegum Norðurlandaráðs ásamt fleiri höf-
undum og las ljóð sín í þjóðarbókhlöðunni og
borgarleikhúsinu. Þetta var ein vegtylla af
mörgum, sumum meiri í hefðbundnum skiln-
ingi. Hann var eitt af listaskáldunum vondu
1976. Formaður Rithöfundasambandsins
1984-88. Riddari af franskri orðu lista og
bókmennta 1990. Borgarlistamaður Reykja-
víkur 1987-90. Handhafi bókmenntaverð-
launa Útvarpsins í hitteðfyrra.
Þessi vinur ljóðsins segist hafa hætt að
teikna fimmtán ára, slík dilla að spyrja hann
um myndlist sé ekki út í bláinn. Hann hafi
barnungur ætlað að leggja þá listgrein fyrir
sig auk skrifa og smíði eðalmálma. Ritlistin
hafi svo orðið ofan á og hann fái sína útrás
fyrir hið sjónræna með orðum, aðallega í
ljóðum. Og þegar þrengt er að segir Sig-
urður að hann hafi nú á vinnuborði ljóðabók
og raunar skáldsögu jafnframt, þetta séu
verk sem verði að koma á daginn, með
haustinu kannski eða þar næsta. Gamla hug-
myndin um gullsmíði virðist ganga upp því
að Sigurður Pálsson hefur visst víravirki í
verkum sínum og væntanlega karakter.
Jafnan óvænt orð og íhugulan svip. Ef vel
er, lítið bros í augunum, bros heimsmanns af
Íslandi, manns sem selur orð eins norður-
ljós. Ekkert svindl er í gangi, hvorki svik né
prettir frekar en hjá öðrum skáldum.
Íbyggni maðurinn með trefilinn stendur fyr-
ir sínu. Norðurljós Sigurðar eru til manns
komin úr hans eina og sanna hugarheimi;
fallvötn, ár og lygnir pollar, ljóð sem vega
salt og menn.
ÍBYGGNA SKÁLDIÐ SEM
ÆTLAÐI SÉR Í GULLSMÍÐI
Þetta verður spuni, segir Sigurður Pálsson um ritþing sitt, sem hefst klukkan hálftvö í dag í Gerðubergi.
Þangað eru allir velkomnir en með Sigurði sitja Vigdís Grímsdóttir, Kristján Þórður Hrafnsson og Jón
Yngvi Jóhannsson. Til að forvitnast um stefnumótið fór ÞÓRUNN ÞÓRSDÓTTIR í menningarmiðstöðina.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vigdís Grímsdóttir, Sigurður Pálsson, Jón Yngvi Jóhannsson og Kristján Þórður Hrafnsson.