Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.2001, Síða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. JÚNÍ 2001
Y
FIRSKRIFT sýningarinnar er
„Akureyri í myndlist“, og er
tilgangur hennar að gefa
þverskurð af listalífi bæjarins
og veita áhorfendum þannig
tækifæri til að kynnast fjöl-
breytninni í akureyrski mynd-
list við upphaf nýrrar aldar.
Að sögn Hannesar Sigurðssonar, sýningar-
stjóra og forstöðumanns Listasafnsins á Ak-
ureyri, var farið þá leið að bjóða átta myndlist-
armönnum af ólíkum toga til þátttöku, sem
höfðu hver fyrir sig frjálst val um að bjóða öðr-
um listamanni að sýna með sér. Fyrir valinu
urðu þau Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Amí,
Arna Valsdóttir, Einar Helgason, Elli, Guð-
mundur Ármann Sigurjónsson, Guðný Þórunn
Kristmannsdóttir, Gunnar Kr. Jónasson,
Jonna, Kristinn G. Jóhannsson, Laufey
Margrét Pálsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Nói,
Óli G. Jóhannsson, Stefán Jónsson og Svein-
björg Hallgrímsdóttir. Verk listmannanna
spanna allt frá hefðbundnum landslags- og af-
straktmálverkum, til skúlptúra, tölvu-, ljós-
mynda- og hugmyndaverka. Meginþema sýn-
ingarinnar er þó Akureyri sjálf, sem
listamennirnir túlka út frá sinni eigin persónu-
legu reynslu og listrænu forsendum.
„Þarna er vitanlega um mjög breiðan hóp
listamanna að ræða sem á það engu að síður
sameiginlegt að búa og starfa í þessu um-
hverfi. Því var ákveðið að gera Akureyri að
meginþema sýningarinnar. Þannig er spurt
hvort greina megi einhver sérstök einkenni
eyfirskrar myndlistar, þrátt fyrir ólíka miðla,
viðfangsefni, stílbrigði og kynslóðarbil. Getur
verið að Akureyri sé í eðli sínu eitthvað frá-
brugðin öðrum bæjum landsins? Það er sem
sagt myndlist á Akureyri og Akureyri í mynd-
list sem er veltiás sýningarinnar,“ segir Hann-
es. Í tengslum við sýninguna hefur safnið gefið
út sextíu síðna litprentaða sýningarskrá á ís-
lensku og ensku þar sem finna má grein eftir
Aðalstein Ingólfsson listfræðing og hugleið-
ingar eftir listamennina. Sýningarskráin er
innifalin í aðgangseyri, en eintök sem af ganga
verða seld að sýningu lokinni á 1.590 krónur.
„Með því að gefa skrána, en þar njótum við
stuðnings fjölmargra fyrirtækja, vonumst við
til að hún rati í sem flestra hendur og verði
þannig listamönnunum og akureyrskri mynd-
list til framdráttar,“ bætir Hannes við.
Könnun á smekk almennings
Við undirbúning sýningarinnar kom upp sú
hugmynd að fara nýja leið við kaup á verki fyr-
ir safnið, en það fær árlega vissa fjárhæð til
kaupa á listaverkum fyrir hönd Akureyrar-
bæjar. „Í stað þess að safnráð taki ákvörðun
um hvaða verk er keypt verða áhorfendur
beðnir um að kjósa „besta“ verkið að þeirra
mati. Heppinn áhorfandi getur síðan eignast
verk eftir „vinsælasta“ listamanninn og flug-
miða fyrir tvo til New York í boði Flugleiða.
Önnur verðlaun eru kvöldverður fyrir tvo á
Karólína Restaurant í boði hússins,“ segir
Hannes og bætir því við að líta megi á þessa
nýbreytni sem nokkurs konar tilbrigði við
sumarleik margra fyrirtækja. Til að reka
smiðshöggið á þennan gagnvirka leik var í
samráði við listamennina og Ragnar Friðrik
Ólafsson deildarsérfræðing hjá námsmats-
stofnun útbúin nánari skoðanakönnun á mynd-
listarsmekk almennings þar sem meðal annars
er spurt hversu hrifið eða ekki hrifið fólk er af
verkunum á sýningunni, og eru spyrjendur
m.a. beðnir að fylla út upplýsingar um kyn,
aldur, búsetu og menntun. „Taki nægilega
margir þátt í könnuninni verður hægt að kom-
ast að ýmsum fróðlegum hlutum, til dæmis
hvaða þjóðfélagshópur er hrifnari af afstrakt-
list en raunsærri list, enda
eiga flestar stefnur sinn
fulltrúa á sýningunni. Þessi
tilraun hvetur hinn al-
menna sýningargest einnig
til að horfa á verkin með
öðru hugarfari en hann á að
venjast, og gefur honum
tækifæri til að kveða upp
opinberan listdóm sem
hingað til hefur aðeins verið
á færi fjölmiðla.“
Tengsl milli staða
Blaðamaður ákveður að
kanna viðhorf listamann-
anna sjálfra til eyfirskrar
myndlistar og mælir sér
mót við fjóra fulltrúa sýn-
ingarinnar, þá Guðmund
Ármann Sigurjónsson, Óla
G. Jóhannsson, Svein-
björgu Hallgrímsdóttur og
Laufeyju Margréti Páls-
dóttur. Þá Guðmund og Óla
má telja til kynslóðar af-
straktlistamanna og hafa
þeir fylgst með þeim sveifl-
um sem myndlistarlífið á
Akureyri hefur farið í gegn-
um undanfarna áratugi. Óli
bendir á að myndlistarlífið í
bænum hafi átt erfitt upp-
dráttar framan af öldinni,
en þó liggi ræturnar nokk-
uð langt aftur. „Það er ekki
fyrr en í kringum 1973 að
hópur ungs fólks hér á Ak-
ureyri sem hafði áhuga á
myndlist ákvað að reyna að
lyfta myndlistarlífinu upp.
Áhuginn var feiknarlega
mikill, og ákveðinn grunn-
ur varð til sem stuðlaði að
myndlistarlífi hér. Mynd-
listarfélagið var stofnað og Gallerí Háhóll var
m.a. opnað. Við sem unnum að þessu upplifð-
um hreint ævintýralega tíma, ekki síst vegna
þess að bæjarbúar höfðu verið í svo miklu
svelti myndlistarlega séð að aðsókn að við-
burðum var með eindæmum og það varð til
þess að hægt var að fá stór nöfn til að koma og
sýna hér. Upp úr þessum hræringum varð til
grunnur að myndlistarkennslu, sem myndlist-
arskólinn var byggður á. Við stofnuðum mynd-
smiðju og urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
Guðmund Ármann hingað norður til okkar í
kennslu og hann er hér enn. Þetta var
skemmtilegt tímabil. Það var mikið um að vera
en fyrst og fremst einkenndist þetta tímabil af
gífurlegri bjartsýni.“ Óli bendir á að næsta öfl-
uga bylgja í myndlistargrósku hafi byrjað
snemma á tíunda áratugnum en þá hófst, undir
forystu Gilfélagsins, menningaruppbygging í
Grófargili sem stendur enn.
Guðmundur Ármann flutti til Akureyrar ár-
ið 1972 og segist hann hafa skynjað þann kraft
sem einkenndi myndlistarlífið mjög sterkt.
„Hér var allt bara á fullu, og fólk var drifið
áfram af óhemju ósérhlífni og dugnaði. Ég
kenndi hjá Námsflokkum Akureyrar, mynd-
listarfélaginu og í menntaskólanum og það var
fullt á öllum námskeiðum. Ég kenndi fólki á
öllum aldri, allt frá fimm ára krökkum upp í
fullorðna. Arna Valsdóttir sem sýnir hér á
samsýningunni var til dæmis í námskeiði hjá
mér fimm ára gömul,“ segir Guðmundur.
Hann bendir þó á að sá veruleiki sem blasti við
á Akureyri, hafi verið mjög ólíkur þeim hug-
myndum sem kollegar hans í Reykjavík höfðu.
„Menn kvöddu mig eins og ég væri að fara í út-
legð á Sahara-eyðimörkinni, og skildu lítið í því
hvers vegna ég væri að fara á þennan eyðistað
þar sem ekkert væri um að vera.“ Eftir nokkra
umhugsun segir Guðmundur að líklega fengi
hann sams konar kveðjur væri hann að flytja
norður í dag og óneitanlega sé myndlistarlíf á
Akureyri í nokkurs konar jaðarstöðu gagnvart
höfuðborginni. „Ég fann mjög sterkt fyrir því
að þegar ég kom hingað var ég bara orðinn
„landsbyggðarmaður“, og mörg þeirra tæki-
færa sem voru mér opin áður, lokuðust. Það
var bara eins og ég hafi færst niður í annan
flokk í íslenskri myndlist. Því miður er þetta sá
veruleiki sem blasir við enn þann dag í dag.“
Hópurinn er sammála um að í bænum fyr-
irfinnist ákveðinn sköpunarkraftur og öflugt
mannlíf sem staðist hafi mótvinda, jafnvel
styrktst af þeim. „Við verðum að athuga að í
þessu 15.000 manna bæjarfélagi eru 70 starf-
andi listamenn, rekin er blómleg safna- og sýn-
ingarstarfsemi og hér er sterkur myndlistar-
skóli. Margir af burðarásunum í íslenskri
myndlist eru jafnframt komnir héðan frá Ak-
ureyri. Þannig held ég að myndlistarlífið hér
styrkist fremur en veikist af því að hafa dálítið
hressilegan mótvind,“ segir Óli.
Bjartsýn á framtíðina
Þær Sveinbjörg og Laufey tilheyra þeirri
kynslóð myndlistarmanna, sem kemur í kjölfar
þeirrar sem Guðmundur og Óli tilheyra. „Við
njótum náttúrulega góðs af því sem þau lögðu
fram. Hins vegar hefur uppbyggingin alltaf
þurft að halda áfram, og óneitanlega geldur
myndlistarlífið hér fyrir að vera fjarri mið-
puntkinum. Maður er reglulega spurður hvað
maður sé að gera hérna, og
hvers vegna maður flytji ekki
suður,“ segir Laufey. Svein-
björg tekur undir þetta og
bendir á að myndlistarfólkið á
Akureyri fylgist vel með því
sem er að gerast fyrir sunnan
og sæki sýningar jafn reglulega
og margir sem þar búa. „Sem
myndlistarmaður þarf maður að
vera í tengslum við það sem er
að gerast, ekki aðeins í höfuð-
borginni, heldur einnig í heim-
inum. Samskipti og tengsl milli
staða eru hluti af öllu listalífi, og
tengsl við umheiminn hafi alltaf
verið til staðar á kaupstaðnum
Akureyri.“ Viðmælendur verða
sammála um það í spjalli sín á
milli að því að starfa í myndlist
fylgi alltaf ákveðin barátta, og
alls staðar verði átök og ágrein-
ingur, ekki síst þegar bitist er
um lítinn markað. Tískustraum-
ar og menningarpólitík séu auk
þess öfl sem hver listamaður
þarf að glíma við, og þar séu
vindar mishagstæðir eftir tíma-
bilum. Óli bætir því við að sam-
starfsvilji bæjaryfirvalda hafi
verið öllu meiri á þeim tíma sem
myndlistarlífið byrjaði að
byggjast upp á staðnum.
En hvaða augum líta viðmæl-
endur framtíðina í myndlistar-
lífi á Akureyri? Laufey mælir
fyrir hönd hópsins þegar hún
segir að menn líti nokkuð björt-
um augum á framtíðina, ákveðin
grunnur og gróska sé til staðar
sem ekki verði burtu tekinn, og
það sjáist á þeim árangri sem
myndlistarmenn bæjarins hafa
verið að ná. Viðmælendur benda
þó á nokkra þætti sem þeim
þykir að huga verði að á næstu árum í mynd-
listarmálum bæjarins. „Það þarf að vera
ákveðinn grunnur til staðar, sem gerir metn-
aðarfullum myndlistarmönnum kleift að búa
hér og starfa. Mestur hluti þeirra myndlist-
armanna sem eru að ná góðum árangri, flytj-
ast héðan brott. Af þeim sökum er áhuga-
mennska kannski meira áberandi hér en fyrir
sunnan. Það er því mikilvægt að greint verði á
mun skýrari hátt á milli fagmennsku og áhuga-
mennsku í myndlist hér í bænum,“ segir
Sveinbjörg. „Myndlistarmenntun er einnig
þáttur sem þarf að hlúa að,“ segir Laufey og
Óli tekur undir það. „Og þá er ekki aðeins ver-
ið að tala um að mennta myndlistarmenn,
heldur einnig almenna menntun, þar sem
skólabörn öðlast þekkingu á myndlistarhefð-
inni og sögunni,“ bætir Óli við. Sveinbjörg
bendir á að tilkoma Listasafnsins á Akureyri
geri kennurum nú kleift að fara með nemend-
ur reglulega á listasýningar og það sé vett-
vangur sem nauðsynlegt sé að hlúa að. Að lok-
um bendir Guðmundur á að aðgangur
listamanna á landsbyggðinni að opinberum
sjóðum og menningarstofnunum sé mun tak-
markaðri en þeirra sem búa á höfuðborgar-
svæðinu. Verksvið margra þessara stofnana
taki landsins alls og þurfi þær að fylgjast mun
betur með því sem er að gerast annars staðar
en í Reykjavík.
Með þessum orðum kveður blaðamaður þau
Guðmund, Hannes, Laufeyju, Óla og Svein-
björgu, sem hverfa hvert í sína áttina að leggja
lokahönd á undirbúning sýningarinnar sem
verður opnuð sem fyrr segir kl. 16 í dag, laug-
ardag.
Morgunblaðið/Heiða Jóhannsdóttir
(Standandi frá vinstri): Myndlistarmennirnir Guðmundur, Laufey, Sveinbjörg, Óli og safnstjórinn
Hannes eru bjartsýn á framtíðina í myndlistarlífi á Akureyri.
Merki sýningarinnar Akureyri í myndlist.
Í dag verður opnuð á listasafninu á Akureyri samsýn-
ing sextán myndlistarmanna sem eiga það sameig-
inlegt að búa og starfa á Akureyri. HEIÐA
JÓHANNSDÓTTIR ræddi af því tilefni við nokkra
fulltrúa hins blómstrandi listalífs bæjarins.
BLÓMLEGT
MYNDLISTARLÍF
Á JAÐRINUM