Lesbók Morgunblaðsins - 21.07.2001, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. JÚLÍ 2001 15
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur. Til
31.8.
Árnastofnun, Árnagarði: Handrita-
sýning opin 11-16 mánudaga-laugar-
daga. Til 25.8.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Blóðug
vígaferli og götulíf víkinganna í York.
Til 1. okt.
Gallerí Sævars Karls: Pétur Örn Frið-
riksson og Helgi Eyjólfsson.
Til 1.8.
Gerðarsafn: Glerlist og höggmyndir
Gerðar Helgadóttur.
Til 12.8.
Gerðuberg: Ljósmyndasýning.
Til 17.8.
Hafnarborg: Hans Malmberg ljós-
myndari. Skotskífur frá Det Konge-
lige Skydeselskab og Danske Brod-
erskab. Til 6.8.
Hallgrímskirkja: Valgarður Gunnars-
son. Til 31.8.
i8, Klapparstíg 33: Eggert Pétursson.
Til 28.7.
Listasafn Akureyrar: Akureyri í
myndlist. Til 29.7.
Listasafn ASÍ: List frá liðinni öld. Til
12.8.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14-17. Til
2.9.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundar-
safn: Svipir lands og sagna.
Til 10.2.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús:
Erró-safnið. Til 6.1.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstað-
ir: Myndir úr Kjarvalssafni. Til 31.5.
Flogið yfir Heklu. Miðrými: Grétar
Reynisson. Til 19.8.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hefð
og nýsköpun. Til 12.8.
Ljósaklif, Hafnarfirði: Paul-Armand
Gette. Til 6.8.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Grófar-
húsi.: Franski ljósmyndarinn Henri
Cartier-Bresson. Til 29.7.
Mokkakaffi: Þórður Ingvarsson. Til
1.8.
Norræna húsið: Norrænir hlutir. Til
6.8.
Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagna-
myndir Ásgríms. Til 1.9.
Silfurtún, Garðabæ: Skúlptúr á Silf-
urtúni. Til 14.10.
Sjóminjasafn Íslands, Vesturgötu 8,
Hafnarf.: Ásgeir Guðbjartsson. Til
22.7.
Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og
Þorgerður Sigurðardóttir staðarlista-
menn. Til 31.12.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfis-
götu.: Landafundir og ragnarök.
Til 15.10.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Hallgrímskirkja: Orgelleikarinn Felix
Hell frá Þýskalandi. Kl. 12.
Norræna húsið: Sigurlaug S. Knudsen
sópran, Blake Fischer tenór og Úlrik
Ólason. Kl. 15.
Reykjahlíðarkirkja: Ingibjörg Guð-
laugsdóttir, básúnuleikari og Þor-
steinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari.
Kl. 21.
Sunnudagur
Akureyrarkirkja: Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran, Sigrún Arngríms-
dóttir mezzósópran og Björn Steinar
Sólbergsson orgel. Kl. 17.
Hallgrímskirkja: Orgelleikarinn Felix
Hell. Kl. 20.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Svava
Kristín Ingólfsdóttir mezzósópran og
Lisa Fröberg píanó. Kl. 20:30.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja: Anna Sigríður
Helgadóttir alt og Hilmar Örn Agn-
arsson orgel. Kl. 12.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið: Með vífið í lúkunum,
lau. 21., fös. 27. júlí. Wake me up, sun.
22., fim. 26. júlí.
Iðnó: Light Nights sýnt. Leikið á
ensku. sun. 22., mán. 23. júlí.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega eða
í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, menning/
listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Mynd-
sendir: 569-1222. Netfang: menning-
@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
einnig brautryðjendur í vísindum. Rannsakaði
litaskalann, ásamt vísindamönnunum Charles
Henry og Chevreul, og náðu þeir fram til
kenningar um andstæðuliti sem átti eftir að
hafa mikla þýðingu fyrir hann sjálfan og kom-
andi kynslóðir málara. Samvinnan leiddi einn-
ig til nákvæmrar líffræðilegrar greiningar á
starfsemi sjónarinnar, sem þeir voru mjög
uppteknir af, og átti sömuleiðis eftir að hafa
víðtæk og afgerandi bein og óbein áhrif á
framþróunina. Þá var Signac vígður rannsókn-
um á myndbyggingunni, sem hann áleit að
ætti að vera eins fullkomin óaðfinnanleg og
samræmd og hægt væri. Hér skipti myndefnið
ekki máli heldur útfærslan og nákvæm upp-
bygging allra eðlisþátta málverksins, en um
leið var teflt á tæpasta vaðið þannig að á
stundum virka myndir hans full yfirvegaðar,
tilbúnar og framandi, gerðar samkvæmt ná-
kvæmri þaulhugsaðri formúlu. Landslag og
sólarlag voru myndefni sem málaranum voru
sérlega hugleikin, en sagði ekki Picasso löngu
seinna, að menn þyrftu ekki að mála orustu til
að valda byltingu í málaralist, eitt epli væri
nóg og var þá trúlega að vísa til mynda Céz-
annes.
Margar af hrifmestu myndum sínum málaði
Signac í Saint-Tropez um og eftir 1890, en þar
bjó hann í þrettán ár. Þorpið var þá nánast
óþekkt og þar gat hann verið einn með mál-
verkinu og siglt á Miðjarðarhafinu í seglbáti
sínum sem hann nefndi Olympíu, í höfuðið á
samnefndri mynd Manets. Hann var ástríðu-
fullur siglari á seglskútum og löngu áður hafði
hann átt bát sem hann skírði Monet-Zola-
Wagner, sem segir sitthvað af persónuleik-
anum.
Mikið öryggi einkennir þessar myndir eins
og málarinn sé kominn í heila höfn eftir miklar
rannsóknir og tilraunir, og tímabilið má telja
hápunktinn á fjölþættu sköpunarferli hans.
Málaði meðal annars röð mynda sem sem báru
tónræn nöfn eins og t.d Opus 152, Opus 182,
Opus 219 o.s.frv. Eftir St. Tropez málar hann
mun minna af olíumálverkum, í mesta lagi
þrjár fjórar á ári en hins vegar öllu meira af
sjónrænum stemmum einkum með myndefn-
um frá Norfolk, Rotterdam og Feneyjum. Við
tóku löng og mikil ferðalög innan og utan Evr-
ópu, og þá voru riss og vatnslitir öllu nærtæk-
ari tjámiðlar.
Að baki kaflaskila í listum eru jafnaðarlega
einhverjir velgjörðarmenn sem hafa inn-
byggða ratsjá á púls tímanna; keisarar, kon-
ungar, páfar, listakaupmenn, listhöfðingjar,
listsögufræðingar eða rithöfundar. Og svo var
einnig um punktastefnuna og þar var helstur
baráttumaður og fræðikenningasmiður list-
rýnirinn Félix Fénéon. Til eru frægar myndir
af honum eftir þá Seurat og Signac málaðar á
svipuðum tíma eða um og eftir 1890, og í báð-
um tilvikum eru þetta í hæsta máta einkenn-
andi myndir fyrir listastefnuna. Myndin sem
Signac málaði og fékk langa titilinn; Félix Fé-
néon, opus 217. F.F. fyrir framan smeltigrunn,
stigbreytingar í fyrirferð, mælieiningum,
hornum, blæbrigðum og litatónum, (Portrait
de Félix Féneon Opus 217. Sur l’émail d’un
fond rythmique de measures et d’angles, de
tons et de teintres). Inniber þannig flest lög-
mál punktastefnunnar þegar hún var hreinust
og í mestum blóma. Litirnir lagðir á í litlum
punktum/deplum, lita og tóngæði, svo og inn-
byrðis munur, eiga í minnstu eindum að höfða
beint til sjáaldursins – sjónrænnar blöndunar.
Sam-andstæður, andstæðulitir og tenging mis-
munandi hornahlutfalla, blæbrigða og lita líkt
og lesa má í myndtitilsins hljóðan. Hið sér-
tæka mynstur í bakgrunninum eins og vísar til
tækni, fræðikenninga og tiltrú listamanna
punktastefnunnar á gildi vísindalegra rann-
sókna. Afhjúpar um leið sívaxandi tilhneigingu
til hins abstrakta sem einmitt á líkum tíma
kom fram í æskustílnum. Til viðbótar heldur
listsögufræðingurinn á lilju í framréttri hend-
inni, tákni hreinleika og dulmagna, eins konar
skírskotun til táknsæistefnunnar symbolism-
ans, sem stóð nærri nýáhrifastefnunni í við-
leitni málaranna til þéttingar tjámeðalanna.
Kona með regnhlíf (Berthe Signac). Opus 243, 1893, olía á léreft 82 x 67 sm. Orsay í París.
Listrýnirinn Félix Fénéon 1890. Málsvari og áróðursmaður punktastefnunnar, olía á léreft 74 x 95 sm. MoMA New York.