Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Blaðsíða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. ÁGÚST 2001
Á LISTAHÁTÍÐINNI var haldin sér-stök yfirlitssýning á verkum ís-lenskra skopteiknara og áttu tíu ís-lenskir teiknarar myndir á henni.
Listahátíð skopteiknara er hluti af alþjóðlegri
listahátíð sem haldin er í Tyrklandi ár hvert. Í
ár var hún opnuð í Menningarhöllinni í Ankara
með sýningu íslensku skopteiknaranna.
Þorsteinn Eggertsson er stofnandi og forseti
Íslandsdeildar FECO, alþjóðlegra samtaka
myndasöguteiknara, og átti hann veg og vanda
að þátttöku Íslendinga í hátíðinni.
„FECO kom að máli við mig árið 1999, þegar
ég vann til verðlauna á fimmtu listahátíðinni
sem haldin var í Ankara það ár, um að ég myndi
setja á stofn Íslandsdeild innan félagsins,“ seg-
ir Þorsteinn. „Í raun var hún svo ekki stofnuð
fyrr en í vetur, því að þeir setja það skilyrði að
minnst tíu teiknarar séu í deildinni, og að þeir
séu atvinnumenn. Það tók nokkurn tíma að
smala þeim saman.“
Hefur mikla þýðingu
fyrir íslenska teiknara
Flestir teiknaranna í Íslandsdeild FECO
áttu verk á sýningunni í Ankara, en í samtök-
unum eru auk Þorsteins þeir Árni Elfar, Bjarni
Hinriksson, Böðvar Leós, Eyþór Stefánsson,
Gunnar Karlsson, Ólafur Pétursson, Sigurður
Örn Brynjólfsson og Þorfinnur Sigurgeirsson.
„Þetta er í raun fyrsta yfirlitssýning íslenskra
skopteiknara erlendis,“ segir Þorsteinn. „Þessi
sýning hlýtur talsverða athygli víða um heim og
skiptir því félagsmenn nokkru máli í kynningu
á sjálfum sér sem teiknurum. Ég var reyndar
líka með verk fyrsta skopmyndateiknara okkar
Íslendinga, Halldórs Péturssonar, en hann lést
fyrir nokkrum áratugum. Í tengslum við sýn-
inguna er jafnan mikil útgáfustarfsemi, sem
getur gegnt lykilatriði í kynningu, og sýningin
hefur svo ferðast um Tyrkland eftir að henni
lauk í Ankara. Þar í landi er litið á skopmynda-
teikningu sem listgrein. Það gera einnig margir
listfræðingar víða um heim og fólk er farið að
veita henni meiri athygli sem slíkri.“
Þorsteini var boðið til opnunarinnar í Ankara
og hitti hann þar marga af þekktustu mönnum í
heimi skopteiknara, meðal annars franska
teiknarann Jean Plantu sem teiknar fyrir Le
Monde. Kona Þorsteins, Jóhanna Fjóla Ólafss-
dóttir, var með í för og hélt hún söngdagskrá
við opnun íslensku sýningarinnar við góðar
undirtektir.
Að sögn Þor-
steins eru skop-
teikningar ekki ein-
ungis fyndnar
myndir, heldur
fjalla líka um póli-
tísk mál. Yfirskrift
sýningarinnar í
Ankara að þessu
sinni var einmitt
„Skopmynd og
pólitík“. „Þetta eru
myndir sem segja
sögu, en án texta. Þær verða að geta útskýrt sig
sjálfar,“ útskýrir hann. „Skopmynd segir
dæmisögu, er skrýtla, fyndin eða fær mann til
að hugsa. Í slíkum myndum á ekki að þurfa að
nota neitt tungumál og skiljast þess vegna hvar
sem er í heiminum. Þetta er ekki alltaf hreint
grín, oft er sterkur áróður í myndunum eða þá
að þær koma við hjartað í manni.“
Hlaut heiðursverðlaun
Eyþór Stefánsson teiknari, sem teiknar
myndgátur DV daglega, var einn af þátttak-
endunum á sýningunni í Ankara. Í forvali á
skopmyndahátíðina Aydid Dogan, sem haldin
verður í Istanbúl í haust, hreppti hann sérstök
velgengnisverðlaun fyrir myndir sínar á sýn-
ingunni, sem þykir sérstakur heiður. „Mynd-
irnar sem koma á þessa hátíð skipta þúsundum
og einungis nokkur hundruð fá birtingu. Verð-
laun eru svo veitt um fimmtán myndum,“ segir
Þorsteinn. „Þó að verðlaunaféð sé ekki mikið,
er mikill heiður fólginn í viðurkenningunni. Það
má því segja að Íslandsdeild FECO hafi farið
vel af stað.“
„SKOPMYNDIR ERU BÆÐI
GRÍN OG ALVARA“
Sjöunda alþjóðlega
listahátíð skopteiknara
var haldin í Ankara í
Tyrklandi fyrir skemmstu.
INGA MARÍA LEIFS-
DÓTTIR ræddi við Þor-
stein Eggertsson, forseta
Íslandsdeildar FECO,
alþjóðasamtaka mynda-
söguteiknara.
ingamaria@mbl.is
Ein af myndum Þorsteins Eggertssonar.
Ein af myndum Eyþórs Stefánssonar á sýningunni í Ankara.
ÞETTA er í fyrsta sinn sem Íslendingur er val-
inn til að leiða hljómsveitina, en allir strengja-
leikarar hennar gangast undir prufuspil þar
sem staða þeirra í hljómsveitinni er metinn.
Ari Þór leiðir hljómsveitina í þremur af fjórum
verkum sem flutt verða á tónleikum sveitar-
innar í ár, en hinn konsertmeistarinn, Mari-
anne Hustad, sem leiðir í einu verki, hafði verið
valin áður vegna fyrri reynslu.
Orkester Norden eða Norræna hljómsveitin
er skipuð ungu tónlistarfólki frá Norðurlönd-
unum. Hljómsveitin kemur saman einu sinni á
ári, æfir saman í hálfan mánuð, en leggst þá út
í tónleikaferð. Tíu krakkar frá Íslandi voru
valdir í hljómsveitina í sumar, en meir en 300
ungmenni sækja um þátttöku með prufuspili.
38 Svíar eru í hljómsveitinni í sumar, 23 Finn-
ar, 16 Danir, 11 Norðmenn, 10 Íslendingar og 1
Færeyingur. Stjórnandi hljómsveitarinnar í er
hinn heimsþekki finnski hljómsveitarstjóri
Okko Kamu, og á efnisskránni verða fjögur
verk, Þríhljómsleikir eftir Miklós Maros,
Fiðlukonsert nr. 2 eftir Sergei Prokofijev, Sin-
fónía nr. 5 eftir Gústav Mahler og Sinfónía nr.
2 eftir Jean Sibelius. Nú
stendur yfir æfingatímabil
hljómsveitarinnar, í Málm-
ey í Svíþjóð. 7. ágúst verður
svo lagt af stað í tónleika-
ferð. Eftir tónleika í Málm-
ey verður leikið í Kaup-
mannahöfn áður en hin
formlega reisa hefst. Þar
leggja norrænu ungvíking-
arnir Bretaveldi að fótum
sér og leika á fernum tón-
leikum á listahátíðum í
Englandi og Skotlandi. Hugmynd að stofnun
hljómsveitarinnar kom frá Lionshreyfingunni
á Norðurlöndunum, sem enn er aðalbakhjarl
sveitarinnar, auk norrænu ráðherranefndar-
innar og Norðurlandaráðs. Þess má geta að í
september tekur íslenska Lionshreyfingin í
fyrsta sinn þátt í keppni ungra tónlistarmanna
sem hefur verið haldin árlega á Evrópuþingi
Lions. Í ár er keppnishljóðfærið fiðla, og hefur
Ari Þór Vilhjálmsson verið valinn til að keppa
þar fyrir Íslands hönd.
ÍSLENSKUR
KONSERTMEISTARI
Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari hefur verið
valinn annar tveggja konsertmeistara
ungmennahljómsveitarinnar Orkester Norden.
Ari Þór
Vilhjálmsson
SKÁLDSAGAN Hjartastaður kom út á
þýsku í febrúar sl. hjá svissneska forlaginu
Ammann í þýðingu dr. Colettu Bürling og
hefur hlotið góðar viðtökur. Fyrsta upplagið
seldist upp tveimur mánuðum eftir útgáfu
og bókin hefur nú verið endurprentuð.
Samningar hafa einnig náðst við Ammann
um útgáfu á Jöklaleikhúsinu, nýrri skáld-
sögu Steinunnar, sem kemur út hjá Eddu í
haust. Þá hefur Rowohlt, eitt þekktasta for-
lag Þýskalands, keypt rétt til að gefa
Hjartastað út í kilju. Um leið tryggði það
sér kiljuréttinn að Tímaþjófnum en hann
hefur áður komið út í Þýskalandi á vegum
annars forlags.
Hjartastaður hefur hlotið lofsamlega
dóma í helstu dagblöðum í Sviss og Þýska-
landi, t.d. segir ritdómari Süddeutsche Zeit-
ung: „Það, sem skipar höfundinum í fremstu
röð meðal fulltrúa íslenskra nútímabók-
mennta, er hvernig hann tekur á stereótýp-
um. Höfundur kryfur þær og kannar gildi
þeirra og bregst með því við hinum sam-
félagslegu breytingum, sem orðið hafa á Ís-
landi, síðan sjónvarp og flugsamgöngur
gerðu kleift að nálgast umheiminn...“ „Í
rauninni er skáldsaga hins
íslenska höfundar ... bók-
menntalegt afbrigði vega-
myndar (road movie),
sneisafullt af myndum og
máli,“ skrifar gagnrýn-
andi Frankfurter Rundsc-
hau. Í svissneska dag-
blaðinu Neue Zürcher
Zeitung er meðal annars
talað um að höfundur leiki
sér að frásagnarformum,
og að gáskafull notkun
hans á tungumálinu minni á leik.
Í Tages-Anzeiger (Zürich) segir m.a.:
„Skáldsaga Steinunnar Sigurðardóttur
Hjartastaður gagntekur lesandann með
kröftugu málfari og gnægð mynda. Bók-
staflega: ... einkennist af vímuvaldandi mál-
farslegum krafti og myndrænni gnægð.
Í Stadtrevue Köln segir meðal annars:
„Með frásagnarmáta, sem einkennist af
hugrenningatengslum og myndrænu, gerir
Steinunn Sigurðardóttir á meistaralegan
hátt kleift að skynja hvernig dagdraumar og
samtöl við sjálfan sig virka.“
HJARTASTAÐUR
HLÝTUR LOFSAM-
LEGA DÓMA
Steinunn
Sigurðardóttir