Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. ÁGÚST 2001 L ITLA bláa húsið í Krísuvík, í ná- grenni hins forna höfuðbóls fyrir sunnan Kleifarvatn, lætur ekki mikið yfir sér í hrjúfu landslaginu. Ókunnugum ferðalangi kæmi vart til hugar að þar innan dyra sé að finna listasafn í bland við vöku- drauma sérstæðs og atkvæðamik- ils málara. Húsið ei heldur á alfaraleið, þarf að aka nokkurn spöl um afleggjara og í sveig framhjá bæjarstæðinu til að nálgast það. Persónuleg kynni mín af málaranum hófust seint og heimsóknir mínar í húsið ekki marg- ar, má líkast telja þær á fingrum annarrar handar, en síðustu ár listamannsins rötuðu iðulega til mín langt að komnar kveðjur og bréf með hugleiðingum sem hann þurfti að koma frá sér. Gat verið á ferðalagi langt úti á rúmsjó, í hótelherbergi í Fort Lauderdale, Flórída, eða einhvers staðar í New York, þar sem hann var á kafi við skoðun sýninga og listasafna. Hugðumst hittast að staðaldri, ann- ars vegar upp á síldarrétti og bjór en hins veg- ar spaghetti og rauðvín, en varð ekki af, lang- tífrá. Báðir vígðir vinnunni og eintalinu, þá vill tíminn líða hratt, verða að örsögu og lítil stund aflögu í slíkt stúss til hliðar, listamenn líka al- ræmdir sérhyggjumenn, en þar fyrir utan félagslyndir á aðra röndina. Þetta með síldina og bjórinn fékk ég þó til allrar hamingju að kynnast einu sinni er þær valkyrjur í listheim- inum, Svava og Svala í listhúsinu Nýhöfn á Hafnarstræti, sem var og hét, hugnaðist að bjóða mér samflot til málarans. Áttu til hans erindi að skoða málverk og vistarverur, leið- angurinn verið í bígerð um nokkurt skeið, ég haft pata af honum en þó kom boðið flatt upp á mig Bjartan og fagran sunnudag á sumri skeði svo að við lögðum í sjónrænan víking til mál- arans, þetta átti eftir að verða eftirminnilegur mildur og fallegur dagur, einn þeirra sem sitja í minninu ævilangt. Kleifarvatn spegilslétt og skyggni í þá veru að allar fjarlægðir sýnast litlar, skynjar þó miklar opnar og tímalausar víddir allífsins allt um kring. – Málarinn tók vel á móti okkur er við renndum á hlað, var í einstaklega góðu skapi og eftir að hafa boðið gestum sínum í sitt kæra hús upphófust léttar samræður í notalegu bóka- og hvíldarrými útaf vinnustofunni. Fljótlega beindist athyglin þó að myndverkum listamannsins, skoðun þeirra að sjálfsögðu megintilgangur heimsóknarinnar. Tók þá eftir, að allt var vígt tjáningunni á grunnfletinum, en minna hugað að umbúð- unum, eins og þær væru aukaatriði, þannig var það líka hjá Kjarval. Veit til þess, að þegar svo óhönduglega vildi til að blindramminn sem léreftið var strengt á hafði óforvarendis skekkst í þeim átökum og náði ekki réttri lög- un hvernig sem hann var sveigður, gerði meistarinn sér lítið fyrir og braut hann um hornin! Eyddi engum dýrmætum tíma til gildra lagfæringa, sköpunarkrafturinn varð að fá útrás, hér og nú og engar refjar. Þannig var því bersýnilega einnig farið hjá Sveini, á stundum nokkuð klambur með undirlagið sem hélt masónítplötunum stöðugum, bara ein- hverjar tilfallandi aflangar spýtur og hananú, pentskúfurinn skyldi á loft. Athyglisvert að einmitt þegar listamaðurinn viðhafði slík óformleg og umhugsunarlaus vinnubrögð, gaf huldunum sínum og öllu hlut- vöktu í tíma og rúmi frí, heila klabbinu, náði hann hvað heildstæðustum árangri á mynd- fletinum. Sumar þessar snöggsoðnu eintóna, mónó- krómu myndheildir sem hann gerði síðustu ár- in sem hann lifði tvímælalaust með því hrif- mesta sem eftir hann liggur. Að sjálfsögðu tókum við á stundum hlé, settumst niður og blöðuðum í skissubókum, skáldverkum, listaverkabókum og aðskiljan- legasta fróðleik á ritmáli auk þess að líta út um gluggana. Sveinn átti mikið af dönskum listtímaritum, sem hann erfði frá frænku sinni málaranum Júlíönu Sveinsdóttur, í þeim drjúgur fróðleikur um myndlistarlíf í Dan- mörku langt aftur í tímann, hér blasti við mér ólíkt meiri ræktarsemi, hlutlægni sem og skil- virkari vinnubrögð en hér á klakanum. Lista- maðurinn sögubrunnur um umhverfið og dul- armögn þess, huldukonuskip á Geststaðavatni, og Krísuvíkurmadonnuna með sitt séríslenzka útlit og litaraft í ætt vil fjallablámann og firrð- ir óendanleikans. Svo kom að því að okkur var boðið fram í eldhús, þar beið dúkað borð með hollu brauði, mörgum tegunum af síld og köld- um mjöð. Allt vel þegið enda þetta þrennt ein- hver albesta og hollasta næring sem skrokk- urinn fær, undur og stórmerki að þjóð sem sótt hefur í hafdjúpin einhverja bestu síld í heimi hér skuli ekki hafa gert þessa blöndu að almennum veislukosti og þjóðarsið. Auðvitað allir í sólskisskapi undir borðum, í takt við geislana er skáru loftið, raddböndin í hágír, bragðmikil lauksíldin og röm krydd- síldin örvaði heilasellur, mjöður rafmagnaði aðrar. Að loknum málsverði var haldið áfram að kíkja á myndverk húsráðanda og loks var allt húsið tekið fyrir hátt og lágt, litið á mynd- verk annarra listamanna, er öll áttu sér sögu sem hann rakti upp fyrir okkur, einkum frænkunnar. Andrúmið er tengdist þessari heimsókn mikil lifun og létt á okkur brúnin er haldið var heimleiðis. Áðum á fjörukambi við Kleifar- vatn, umhverfið svo stillt og fallegt á þessum afhallandi sólbjarta sumardegi, máttum til með að rétta úr okkur og minnast við hrjúf sem mjúk náttúrusköpin allt um kring. Malar- og sandfjaran fyrir neðan löng og bogadregin, hún gengin og þrædd, flötum ávölum stein- völum rennt eftir blágráu vatninu, sem rétt gáraði er svo var komið, þannig að þær fleyttu kellingar, burt, burt, burt… Í þá veru getur eitt eftirmiðdegi runnið sitt skeið, en þó stöðvast einhvers staðar í heila- búinu, skorðast þar og setið óhagganlegt, fer allt eftir stemmningunni hverju sinni. Mál- arinn í eigin og litríkri persónu á staðnum að þessu sinni og þetta síðasta heimsókn mín til hans, en þótt halur sé farinn er nærvera hans til staðar í húsinu. Nærvera sem bókstaflega andar á gest og gangandi dulmögnuð og hlý. MÁLARINN Í BLÁA HÚSINU Morgunblaðið/Bragi ÁsgeirssonMálarinn í bláa húsinu. Málarinn Sveinn Björnsson (1925–1997) átti sér draumahús í Krísuvík þar sem hann undi löngum með málaragræjurnar í hágír sem var hans sérstaka vinnulag frá fyrstu tíð. Engin lognmolla hér, listamað- urinn í bland við handanheima og ófreski, frumorku í iðrum jarðar, hraun, vötn og gróðurvinjar. BRAGA ÁSGEIRSSYNI fannst rétt að minna á tilvist hússins, sem er eins konar andlit Sveinssafns í Hafnarfirði. Horft yfir Geststaðavatn út um glugga vinnustofunnar. Málarinn milli Svövu og Svölu. Sveinssafn er í Trönuhrauni 1 í Hafnarfirði. Bláa húsið í Krísuvík er opið fyrsta sunnudag í mánuði til 2. sept- ember frá kl. 13–17, en áhugasamir geta pantað leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.