Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.2001, Side 9
vesturströnd Bandaríkjanna. Það má merkja
áhrif frá umhverfi Kaliforníu í hönnun hans,
umhverfis þar sem saman fara pálmatré, gifs-
húðaðir húsveggir og sterk keramíkhefð and-
spænis hrárri iðnaðarsvæðum afgirtum með
stálgirðingum og bylgjóttu bárujárni, að
ógleymdri víðáttumikilli strandlengju Kyrra-
hafsins.
Dansað á mörkum
tveggja listgreina
Yfirborð stáls og áls hefur alltaf heillað
Gehry. Það er gestum sýningarinnar gert
ljóst um leið og stigið er inn fyrir dyr safnsins
því utan um víðfrægan hringlaga fláa þess
hafa verið hengd stálnet sem hylja sýning-
arrýmið nær sjónum. Fínlega útgáfu sama
efnis ber að líta á svölum safnsins þar sem
reistur hefur verið bylgjulaga strúktúr, einna
líkastur kjólfaldi, þakinn álplötum ámóta þeim
sem notast var við í Bilbao. Það var Gehry
sjálfur sem hannaði umgjörð sýningarinnar í
samstarfi við hönnuðinn Bruce Mau.
Frank Gehry efnir gjarnan til samstarfs við
listamenn sem og aðra arkitekta. Telur hann
að slíkt samstarf örvi frjóa hugsun og leiði til
óvæntrar og spennandi niðurstöðu. Hefur
langvarandi vinskapur hans við listamenn á
vesturströndinni, s.s. Larry Bell, Robert Irw-
in, Ed Ruscha, Richard Serra og Claes Olden-
burg, vafalaust sett mark sitt á hugmyndir
arkitektsins en af verkum sýningarinnar að
dæma þokast hann sífellt nær hreinni skúlpt-
úrgerð í hönnun sinni.
Skrifstofubygging DG-bankans í Berlín er
dæmi um þetta, en fundarsalur í miðrými
byggingarinnar er í formi hrosshauss.
Segja má að Gehry hafi fyrst náð sér al-
mennilega á strik eftir að tölvutæknin gerði
honum kleift að útfæra og hrinda í fram-
kvæmd byggingu flókinna straumlínulagaðra
strúktúra, bygginga sem minna í senn á iðandi
skrokk snáksins, hreyfingar öldunnar eða
fisks sem slær sporðinum við á sundi. Hug-
búnaðurinn sem arkitektastofa Gehry tók þátt
í að þróa í byrjun 10. áratugarins nefnist
CATIA, og það var þá sem bylgjóttu, álþöktu
strúktúrarnir litu fyrst dagsins ljós.
Frá stálkeðjum
til spegilgljáðs áls
Fyrsta verkið sem vakti verulega athygli á
Frank Gehry sem arkitekt var hönnun hans á
viðbyggingu og umgjörð um eigið heimili í
Kaliforníu (1977–78 og 1991–92).
Þar notaðist Gehry við óhefðbundin efni á
borð við bárujárn, stálgirðingu og ódýran
krossvið og formgerð sem stóð einna næst
kúbisma og miðaði að einu allsherjar uppbroti
hefðbundinnar rýmisgerðar.
Síðan þá hefur aðdáun hans á óhefðbundn-
um efnum þróast frá því grófa til fínlegri út-
færslna. Kassalag bygginganna hefur að sama
skapi verið brotið upp og sótt til áhrifa úr
óreglulegri formgerð náttúrunnar. Í verkum
Gehrys í dag mætast þessar andstæður hreyf-
ingar og léttleika og þyngdar og kyrrstöðu.
Straumlínulaga og áli þakin formin, ásamt
glampandi glerinu, ljá byggingunum yfirbragð
ólgandi iðunnar en þyngd hins margupp-
brotna kassalags útveggjanna, sem og stærð
þeirra segja manni að þær séu rismeiri og
varanlegri en svo að hægt sé að hreyfa við
þeim.
Gestir fá nasaþef af vinnuferli arkitektsins
og samstarfsmanna hans í þeim hluta sýning-
arinnar þar sem þróunin við hönnun viðbygg-
ingar við MIT-tækniháskólann í Massachus-
etts er rakin frá óreiðukenndum útlínum í
frumskissum Gehrys til fullunnins módels og
þrívíddarmynda í tölvum. Fjöldi módela frá
mismunandi vinnslustigum bygginga Gehrys
leiðir í ljós hversu margbrotið ferli býr að
baki einstaka byggingum.
Afkastamikill sem aldrei fyrr
Afköst Gehrys á síðastu árum hafa verið
með ólíkindum.
Af 40 verkum á sýningunni mátti telja um
átta stór hönnunarverkefni, sem ýmist eru ný-
hafin eða á mismunandi vinnslustigum. Á um-
svifamikilli arkitektastofu Gehrys í Kaliforníu
starfar nú fjöldi arkitekta og hönnuða undir
leiðsögn meistarans en engu að síður spyr
maður sig endurtekið að því við skoðun sýn-
ingarinnar hvernig mögulegt sé að halda utan
um og þróa slíkan fjölda tæknilega flókinna
verkefna á sama tíma.
Nokkur þeirra eru verkefni sem verið hafa í
vinnslu um skeið en er enn ólokið, eru tónlist-
arhús Disney samsteypunar sem hýsa mun fíl-
harmóníusveit Los Angeles, tónlistarhúsið í
Chicago, skrifstofubygging í Hannover í
Þýskalandi og hótel kennt við Marques de
Riscal á Spáni. Á síðasta ári efndi Gehry auk
þess til samstarfs við arkitektinn David
Childs um tillögu að nýrri byggingu The New
York Times við Times-torg í New York og við
franska arkitektinn Jean Nouvel við hönnun
leikvangs í Prag.
Þá eru enn ótalin smærri verkefni, á borð
við nýja mötuneytið í byggingu útgáfufyr-
irtækisins Condé-Nast í New York. Sögur af
hönnun Gehrys þar hafa farið sem eldur í sinu
um borgina og eru við það að æra áhugasama
af forvitni því öðrum en starfsmönnum fyr-
irtækisins er meinaður aðgangur að dýrðinni.
Vart þarf að taka fram að pappamódelin í
Guggenheim fleyta sýningargestum skammt í
þeim efnum.
KKIR ENGIN BÖNN
Ljósmynd/Whit Preston, Frank O. Gehry & Associates
Angeles sem verið hefur í vinnslu frá 1987.
Ljósmynd/Peter Mauss, Esto
Frá Vitra-hönnunarsafninu í Weil am Rhein í Þýskalandi sem Gehry hannaði á árunum 1987–89 og
var fyrsta stóra verkefni hans í utan Bandaríkjanna.
Ljósmynd/Tim Street-Porter
Arkitektinn vakti fyrst athygli fyrir umbætur á eig-
in íbúðarhúsi í Santa Moníka í Kaliforníu á árunum
1977–78. Hann bætti aftur við húsið árið 1991.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. ÁGÚST 2001 9