Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.2001, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. SEPTEMBER 2001 15
MYNDLIST
Borgarskjalasafn Reykjavíkur: Verk
Svavars Guðnasonar. Til 9.9.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Blóðug
vígaferli og Götulíf víkinganna í York.
Til 1. okt.
Galleri@hlemmur.is: Guðrún Vera
Hjartardóttir. Til 9.9.
Gallerí Kambur, Rangárvallasýslu: Al-
bert Mertz. Til 30.9.
Gallerí Reykjavík: Árni Rúnar Sverr-
isson. Til 5.9.
Gallerí Smíðar og skart: Hjörtur
Hjartarson. Til 13.9.
Gallerí Sævars Karls: Arngunnur Ýr.
Til 15.9.
Hafnarborg: Bjarni Sigurbjörnsson.
Andri Egilitis í kaffistofu. Til 24.9.
Hallgrímskirkja: Detel Aurand. Til 26.
okt.
i8, Klapparstíg 33: Max Cole og Thom-
as Ruppel. Til 15.9.
Íslensk grafík: Steinþrykk frá Færeyj-
um. Til 9.9.
Listasafn Akureyrar: Per Kirkeby.
Hekla Dögg Jónsdóttir. Til 16.9.
Listasafn ASÍ: Sjö myndlistarmenn. Til
2.9.
Listasafn Borgarness: Helgi Þorgils.
Til 7.9.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14-17.
Listasafn Íslands: Andspænis nátt-
úrunni. Til 2.9.
Listasafn Rvíkur – Ásmundarsafn:
Svipir lands og sagna. Til 10.2.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Erró.
Til 6.1.
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir:
Myndir úr Kjarvalssafni. Til 31.5.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hefð
og nýsköpun. Til 30.9.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Torfi
Jónsson. Til 19.9.
Ljósaklif, Hafnarfirði: Hreinn Frið-
finnsson. Til 3.9.
MAN-sýningarsalur: Tati Herrara. Til
8.9.
Mokkakaffi: Kristinn Már Ingvarsson.
Til 4.9.
Norræna húsið: Ljósmyndir Hendriks
Relve. Nærvera listar. Til 23.9.
Nýlistasafnið: Sjálfbær þróun. Til 7.
okt.
Reykjavíkur Akademían: Sjónþing
Bjarna H. Þórarinssonar. Til 1. okt.
Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagna-
myndir Ásgríms. Til 1.9.
Sjóminjasafn Íslands: Grænlenskur
tréskurður. Til 2.9.
Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og
Þorgerður Sigurðardóttir. Til 31. des.
Stöðlakot: Hrefna Lárusdóttir. Til 16.9.
Þjóðarbókhlaða: Stefnumót við ís-
lenska sagnahefð. Til 15.9. Magnea Ás-
mundsdóttir. Til 1.9. Brúður Sigríðar
Kjaran. Til 15.9.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök. Til 15. okt.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Dráttarbrautin í Keflavík: Óperan Z-
ástarsaga. Kl. 19.
Sunnudagur
Dráttarbrautin í Keflavík: Óperan Z-
ástarsaga. Kl. 19.
Salurinn, Kópavogi: Skálholtsmessa
Hróðmars I. Sigurbjörnssonar. Kl. 20.
Ýmir við Skógarhlíð: Sólrún Braga-
dóttir, Gerrit Schuil. Kl. 14.30.
Miðvikudagur
Salurinn, Kópavogi: Freyja Gunn-
laugsdóttir, Hrafnhildur Atladóttir og
Stefan Paul píanóleikari. Kl. 20.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið: Með vífið í lúkunum,
1., 7. sept.
Loftkastalinn: Hedwig, 1.9.
Iðnó: Rúm fyrir einn, 6.9.
Vesturport: Diskópakk, 1., 2.9.
Norræna húsið: Sjónrænt barnaleik-
hús. 1.9.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í
tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar:
Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1,
103 Rvík.
Myndsendir: 5691222.
Netfang: menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
NÆSTU VIKU
ÞAÐ er bjartur og rómantískur heimursem opnast manni í bílskúr í Breiðholt-inu. Skapari þessa heims er ArngunnurÝr Gylfadóttir, en í gærkvöldi flutti hún
þessa tólf mynda veröld sína með sér niðrí
Bankastræti, þar sem hún verður til sýnis á
veggjum Sævars Karls. Þetta eru tólf myndir
málaðar með olíulitum, flestar á tré en nokkrar
á striga. „Það þýðir ekkert fyrir mig að vinna
lengur á striga því ég vinn myndirnar svo í
þaula, að striginn þolir það ekki. Mér finnst líka
skemmtilegt að vinna á tré, því það er svolítið í
anda gömlu málaranna og aldagamalla hefða.“
Viðfangsefni Arngunnar Ýrar er líkt og tál-
sýnir; – bjartir draumar sem við vitum ekki
hvort nokkrun tíma muni rætast. „Það er mark-
viss boðskapur að baki myndanna minna og ég
er búin að þaulhugsa þær áður en ég byrja að
vinna þær. En þá leyfi ég líka tilviljunum að ger-
ast og það er mikilvægt fyrir mig. Þessar mynd-
ir er ég gagngert að gera rómantískar vegna
þess að ég vil vekja upp spurninguna um það
hvort það þýði nokkuð að vera rómantískur. Þú
sérð að rómantíkin er öll að eyðast og breytast,
og spurningin um rómantíkina er sú að við erum
stöðugt að láta okkur dreyma og vona; – gera
okkur væntingar um fólk, staði, aðstæður og
slíkt; en svo verða hlutirnir kannski öðru vísi en
við vonuðumst til. Þetta er ekki svartsýni hjá
mér; – meira hugsað sem húmor. Það er allt fall-
valt. Ég hef gaman af því að tefla saman and-
stæðum; bæði hugmyndafræðilegum andstæð-
um og andstæðum í efni og myndefni. Og fyrir
mig er það mikilvægt að þetta sé spennandi og
sé svolítill leikur. Þetta eru líka vangaveltur um
tíma. Allt er breytingum háð og hlutirnir þróast.
Allt og ekkert
Sem dæmi um andstæðurnar reyni ég mjög
markvisst að láta myndirnar tæla áhorfandann
inn, en um leið að gera þær fráhrindandi, þannig
að það er stöðugt verið að varpa fram spurn-
ingum til áhorfandans. Þess vegna kalla ég sýn-
inguna Allt og ekkert. Það er hægt að horfa á
þessar myndir og sjá í þeim margt djúpt og flók-
ið, en um leið er hægt að horfa á þær og sjá eitt-
hvað sem er ekki mjög merkilegt. Enn annað
sem ég velti fyrir mér er verðmætamat og verð-
gildi listarinnar. Listaverk eru auðvitað ekkert
nema hlutir sem eiga eftir að eyðast og sjálf er
ég þannig sinnuð, að mér finnst fólk ekki þurfa
að eiga alla hluti. Sjálf vil ég frekar upplifa hluti
í lífi mínu. Þannig er líka tvískinnungur í því að
ég sé að búa til hluti sem eru dýrir og ekki hver
sem er hefur efni á að kaupa. Það þykir fínt að
eiga málverk. Þannig að hæðnin í verkunum
snýr líka að þessu gildismati eins og rómantík-
inni.“ Á myndum Arngunnar Ýrar sést móta
fyrir sjóndeildarhring þar sem haf og himinn
mætast langt í fjarska. Óvænt skemmdarský
trufla þessar rómantísku víddir, og maður er
ekki lengur viss hvort myndin sé að tærast upp
eða hverfa. „Það er ekkert land að sjá, og engin
festa. Maður getur upplifað það eins og maður
sé týndur, – eða að maður viti ekki hvert ferð-
inni sé heitið; – það er mikið frelsi í því.“
Sýning Arngunnar Ýrar verður opnuð kl. 14 í
dag og stendur í þrjár vikur.
ARNGUNNUR ÝR GYLFADÓTTIR SÝNIR HJÁ SÆVARI KARLI
Morgunblaðið/Jim Smart
Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarkona við eitt verka sinna.
SPURNING UM
RÓMANTÍK
SÝNING á nýjum verkum eftir BjarnaSigurbjörnsson verður opnuð í Hafn-arborg, menningar- og listastofnunHafnarfjarðar í dag, laugardag, kl. 16.
Þetta er umfangsmesta sýning Bjarna til þessa
og verður hún í öllum sýningarsölum hússins.
Sýninguna nefnir hann Ekkert.
„Í verkum Bjarna má sjá kröftuga tjáningu.
Hann málar á plexigler með blöndu af olíu-
litum og vatni, efnum sem hrinda hvort öðru
frá sér og skilja svo eftir ummerki um þau átök
á myndfletinum sem í mörgum verkanna er
gríðarstór,“ segir í kynningu safnsins.
Um aðferð sína segir Bjarni: „Ég lít á mig
sem eins konar garðyrkjumann sem kemur
gróðri af stað og reynir síðan að hlú að honum
eftir bestu getu. Ég aðstoða málverkið þar sem
það er að vaxa fram en reyni ekki að halda al-
gerri stjórn á því. Hver hreyfing mín ákvarð-
ast af hreyfingunni á undan og þær mynda net
hreyfinga á gegnsæjum fletinum gegn teikn-
ingu vatnsins. Það er engin áætlun, ekkert
uppkast, og ekkert er fyrirfram ákveðið nema
stærðin og efnis- og litavalið.“
Í sýningarskrá er einnig inngangur eftir Jón
Proppé þar sem verk Bjarna eru sett í list-
sögulegt samhengi og fjallað um erindi þeirra
til samtímans.
Bjarni hefur haldið allmargar einkasýningar
í listhúsum hér á Íslandi og í Bandaríkjunum
og hefur líka tekið þátt í samsýningum. Sýn-
ingin í Hafnarborg nýtur fjárstuðnings frá
Marel hf. sem jafnframt kostar gerð sýning-
arskrár.
Ljósmyndasýning
í kaffistofunni
Í kaffistofu Hafnarborgar verður Andri Egi-
litis frá Lettlandi með ljósmyndir. Viðfangs-
efni hans er landslagið.
Sýningarnar standa til 24. september og er
opin alla daga nema þriðjudaga frá 11–17.
KALLAST Á
VIÐ TEIKNINGU
VATNSINS
Morgunblaðið/Þorkell
Bjarni Sigurbjörnsson kemur verkum sínum fyrir í Hafnarborg.
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju,sem undanfarin ellefu ár hefurverið starfræktur og kenndur við
Laugarneskirkju í Reykjavík, flytur sig
um set eftir ellefu ára starf í Laug-
arnessöfnuði og verður Neskirkja í
Reykjavík framtíðarheimili kórsins.
Nafn kórsins breytist þar með í
Drengjakór Neskirkju. Ástæða búferla-
flutninganna er sú að Neskirkja er,
hvað húsnæði og aðra aðstöðu varðar,
betur í stakk búin til að hýsa svo um-
fangsmikla starfsemi sem kórnum
fylgir. Drengjakór Neskirkju er kirkju-
kór og eini drengjakórinn hér á landi.
Hann hefur á ferli sínum flutt bæði
trúarlega og veraldlega tónlist. Þar að
auki hefur kórinn skapað sér nafn sem
tónlistar- og uppeldisstofnun fyrir unga
drengi.
Drengjakórinn var stofnaður árið
1990 af Bandaríkjamanninum Ronald V.
Turner, sem þá starfaði sem organisti
við Laugarneskirkju. Stofnfélagar voru
15 drengir víðs vegar að af höfuðborg-
arsvæðinu. Síðan þá hafa u.þ.b. 200
drengir, á aldrinum 6–20 ára, verið
skráðir kórfélagar um lengri eða
skemmri tíma. Í dag starfa í kórnum
rúmlega þrjátíu drengir auk þess sem
starfrækt er deild eldri félaga sem nú
telur ellefu unga menn.
Núverandi kórstjóri er Friðrik S.
Kristinsson en hann hefur stýrt kórnum
frá árinu 1994. Friðrik stjórnar einnig
Karlakór Reykjavíkur og Snæfellinga-
kórnum í Reykjavík. Drengjakórinn hef-
ur komið fram við margvísleg tækifæri
hér á landi sem og erlendis auk þess
sem hann hefur gefið út tvo geisladiska.
Í október mun Drengjakórinn taka
þátt í dagskrá í tilefni af heimsókn Vín-
ardrengjakórsins til Íslands í október.
Inntökupróf verða haldin í Neskirkju
mánudaginn 3. september frá kl. 17–19.
Drengja-
kórinn flyt-
ur í vest-
urbæinn