Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2001, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2001, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. OKTÓBER 2001 11 Er ætihvönn góð lækningajurt og hvernig er hún þá matreidd? SVAR: Ætihvönn er ein merkasta lækningajurt Ís- landssögunnar en hún var notuð á Íslandi allt frá landnámi. Auk þess að vera mikilvæg mat- jurt á Norðurlöndum og Bretlandseyjum var lækningamáttur hvannarinnar vel þekktur meðal norrænna manna. Ætihvönn óx einnig sunnar í Evrópu en sú norræna þótti kraft- meiri. Þegar víkingar hófu verslunarferðir til Evr- ópu á níundu öld var ætihvönnin mikilvæg verslunarvara. Á haustin tóku menn með sér þurrkaðar hvannarætur sem notaðar voru sem gjaldmiðill í verslun við innfædda. Sjaldan er getið um nytjajurtir í íslenskum miðaldaritum en hvannir koma þó fyrir á nokkrum stöðum. Í Grágás er til dæmis kveðið á um viðurlög við stuldi á hvönn, útlegð eða sekt ef teknar voru hvannir í annarra garði. Latneskt heiti ætihvannar er Angelica arc- hangelica. Sagan segir að þegar bólusóttarf- araldur fór um Evrópu 1665 hafi munk einn dreymt að engill sýndi honum jurt, ætihvönn, sem gæti læknað menn af drepsóttinni. Munk- urinn nefndi jurtina Angelica archangelica eft- ir englinum og hefur nafnið verið notað síðan. Bólusótt er smitsjúkdómur og var oftast ban- væn en síðari tíma rannsóknir hafa sýnt að í ætihvönninni eru ýmis sýkladrepandi efni og hefði hún því getað komið að gagni. Notkun ætihvannar Hvönnin var öll notuð, ræturnar, blað- stilkar, laufið og fræin. Áhrifin voru einkum talin felast í því að styrkja og verma melting- arfærin, örva meltinguna, eyða spennu og losa slím. Ætihvönn var einkum talin góð fyrir fólk sem var að ná sér eftir erfið veikindi, ef það skorti þrek og kraft. Ætihvönn var notuð við meltingartruflunum svo sem krampa og vindi í meltingarfærum og gegn kvilla í lifur. Hvönnin var talin mjög góð til að losa slím úr öndunarfærum og var hún notuð við bronkítis og brjósthimnubólgu og öðrum lungnakvillum. Fræin voru talin góð við krabbameini. Algengast var að búa til te og seyði en einnig jurtaveig (tinktúru í 45% vín- anda) af laufi, rót eða fræjum. Áherslan á notkun hvannar við kvillum í öndunarfærum og meltingarfærum er skiljanleg þegar haft er í huga að fólk bjó oft í röku og köldu húsnæði og maturinn var oft gamall og jafnvel skemmdur. Ætihvönnin er ekki aðeins forn lækn- ingajurt, hún er einnig vinsæl sem bragðefni. Ætihvönn hefur verið notuð í framleiðslu á líkjörum, Vermouth og Dubonnet. Bragðefnin úr hvönn hafa einnig verið notuð í framleiðslu á gini og Muscatel Rínarvíni að ógleymdu hvannarótarbrennivíni. Ætihvönn er einnig notuð sem matvara, sem fersk kryddjurt á kjöt og fisk. Íslenskar rannsóknir á ætihvönn Rannsóknir á Raunvísindastofnun hafa sýnt að í hvönn eru efni sem verka á bakteríur, veirur, sveppi og jafnvel á krabbameins- frumur, og þar eru efni sem virðast örva ónæmiskerfið. Þessar niðurstöður staðfesta þá reynsluþekkingu liðinna kynslóða, að æti- hvönnin getur verið mjög virk lækningajurt. Virkni afurða úr íslenskum lækningajurtum hefur verið borin saman við erlendar vörur úr samskonar jurtum sem vaxa á suðlægari slóð- um. Virkni íslensku jurtanna hefur reynst mun meiri en þeirra erlendu. Þetta staðfestir tiltrú manna frá víkingatímanum. Sigmundur Guðbjarnason. Hvað er hagvöxtur? SVAR: Eitt af einkennum efnahagslífs flestra ríkja undanfarna áratugi er að framleiðslugetan hefur vaxið frá ári til árs og þá um leið þjóð- arframleiðslan. Með þjóðarframleiðslu er átt við heildarverðmæti allrar vöru og þjónustu sem þjóð framleiðir á einu ári. Ástæður vax- andi þjóðarframleiðslu eru margar, tækni- framfarir auðvelda framleiðslu, aukið fjár- magn safnast fyrir og vinnandi fólki fjölgar og verkkunnátta þess eykst. Mjög er þó misjafnt hversu ört þjóðarframleiðsla vex og mörg dæmi eru um að hún hafi dregist saman um tíma. Vöxtur þjóðarframleiðslu frá ári til árs nefnist hagvöxtur og er hann mældur í hundr- aðshlutum (prósentum). Ef þjóðarframleiðsla dregst saman er stundum talað um neikvæðan hagvöxt. Stundum er miðað við landsframleiðslu en ekki þjóðarframleiðslu. Hagvöxtur er þá reiknaður sem vöxtur landsframleiðslu frá ári til árs. Nokkur munur er á þessum tveimur stærðum. Þannig teljast til dæmis tekjur út- lendinga af eignum og vinnu á Íslandi ekki til þjóðartekna Íslendinga en til landsframleiðslu Íslands. Á sama hátt teljast tekjur Íslendinga af eignum og vinnu erlendis til þjóðartekna Ís- lendinga en ekki til landsframleiðslu Íslands. Mörg álitamál koma upp við útreikning þjóðar- eða landsframleiðslu og niðurstaðan er ekki einhlítur mælikvarði á það hve vel efna- hagslíf þjóðar eða lands gengur. Við útreikn- inginn er til dæmis ekki tekið tillit til vöru og þjónustu sem ekki er seld á markaði, tekju- skipting er ekki skoðuð og ekki er athugað hvort efnahagslífið leggur óhóflegar byrðar á umhverfið. Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við HÍ. Hvað eru margar fisktegundir við Ísland? SVAR: Við síðasta „fiskatal“ sem Gunnar Jónsson fiskifræðingur tók 15. nóvember 2000 var vitað um 360 fisktegundir sem fundist hafa innan 200 sjómílna lögsögunnar. Af þessum 360 tegundum eru 39 tegundir brjóskfiska, þar af 19 háffiskar, 14 skötuteg- undir og 6 hámýs. Beinfiskategundirnar eru 319. Þar á meðal eru helstu nytjategundirnar eins og þorskur, ýsa, síld, loðna og lax. Auk þess hafa fundist tvær tegundir svokallaðra vankjálka eða hringmunna, sæsteinsuga og slímáll. Sumar þessara tegunda eru mjög sjaldgæfar á Íslandsmiðum og hafa aðeins veiðst einu sinni. Þá eru 40-50 tegundir greini- lega flækingar hér frá öðrum hafsvæðum, komnar hingað í ævintýraleit eða villtar af leið. Þegar hin merka bók Bjarna Sæmunds- sonar, „Fiskarnir“, kom út árið 1926 voru að- eins þekktar 130 tegundir við landið og var þá miðað við 400 m dýptarlínuna. Næsta „fiska- bókin“ kom út 1983. Það var bók Gunnars Jónssonar, Íslenskir fiskar, og hafði þekktum tegundum við Ísland þá fjölgað í 231 en eru nú orðnar 360 eins og áður sagði. Segja má að þetta séu ekki margar tegundir ef haft er í huga að í heimshöfunum þekkjast 24-25 þúsund fisktegundir. Jakob Jakobsson, prófessor í fiskifræði við HÍ. ER ÆTIHVÖNN GÓÐ LÆKNINGAJURT? Í vikunni sem er að líða fjallaði Vísindavefurinn meðal annars um hvort hugsanlega megi stöðva öldrun, hvað kynlíf sé og hvað jafnan E = mc2 þýðir. Einnig var fjallað um það hvort hægt sé að vera fyrir austan sól og sunnan mána og hvort vísindin geti afsannað trúarbrögð svo fátt eitt sé nefnt. VÍSINDI Ætihvönn.O LOF Lagercrantz sem nú er háaldraður og var lengi ritstjóri Da- gens nyheter og er þekkt skáld hefur auk minningabóka samið bækur um skáld af ýmsu þjóðerni. Nefna má verk um Dante, Nelly Sachs, James Joyce, August Strindberg, Marcel Proust og Gunnar Ekelöf. Síðastnefnda bókin, Jag bor i en annan värld men du bor ju i samma, Gunnar Ekelöf betraktad av Olof Lagercrantz, útg. Wa- hlström & Widstrand, er ein hin persónuleg- asta. Ekelöf og Lagercrantz voru nánir vinir frá því um miðjan fjórða áratug og skrifaði Lag- ercrantz oft um fundi þeirra í dagbók sína. Bókin um Ekelöf hefur komið út í nýjum og nýjum útgáfum og er nú meðal metsölu- bóka í Svíþjóð. Það hlýtur að segja mikið um bókina því að Gunnar Ekelöf var löngum meðal hinna torráðnu skálda og að mestu laus við alþýðuhylli. Ekelöf var ekki auðveldur í umgengni. Hann gat gert sér það að leik að særa fólk eða ganga fram af því með hegðun sinni. Líka átti hann það til að vera hinn ljúfasti og sýna sem mesta tillitssemi og vingjarnleik. Lagercrantz kunni á hann. Þeir áttu vit- anlega margt sameiginlegt, m.a. að alast upp í efnuðum fjölskyldum þar sem veikindi settu sitt mót á daglegt líf. Ekelöf átti geð- veikan föður, Lagercrantz geðveika móður. Skáldskapurinn var þeim allt. Kreppan sem kennd er við hrun Kreuger- veldisins 1932 breytti í skyndingu fjárhags- legu öryggi Ekelöf-fjölskyldunnar. Skáldið sem taldi sig geta sinnt skáldskap og æðri menntun áhyggjulaust þurfti nú að heyja sitt stríð til að lifa af. Honum tókst það með að leggja hart að sér og sinnti eingöngu skáld- skap, greinaskrifum og þýðingum. Hann var nýorðinn sextugur þegar hann lést 1968. Á ári hrunsins kom fyrsta ljóðabók Eke- löfs út, Seint á jörðu. Bókin er mjög mótuð af franska súrrealismanum sem Ekelöf þekkti vel. Hann þýddi ljóð eftir helstu súrr- ealistana og fyrirrennara þeirra með ágæt- um. Þótt Ekelöf sé löngu orðinn klassískur og verk hans sígildur módernismi er það ekki síst andskáldskapur hans sem vakti athygli. Hann storkaði reglubundnu formi og hefð- bundnu lífsmati og var alla tíð uppreisn- argjarn. Ekelöf var valinn í sænsku akademíuna en þrjóskaðist við. Loksins tókst honum að mæta á fund með því að drekka í sig kjark. Það kom í hlut Lagercrantz að flytja hann á fundarstað. Ekelöf var orðinn vel ölvaður en það mun ekki hafa komið að sök á þessari samkomu ef marka má lýsingu Lagercrantz á ástandinu í akademíunni. Dæmi voru um að menn ættu í mestu erfiðleikum með að standa í fæturna. Það eru margar drykkjusögur í bókinni, flestar dapurlegar en nokkrar fyndnar. Carl- Olov Sommar sem ritað hefur ævisögu skáldsins (rúmlega 600 síður) getur þess að hann hafi orðað áfengisneyslu Ekelöfs við Ingrid, konu hans. Hún hlustaði þolinmóð en lét síðan eftirfarandi orð falla um óhóflega drykkju hans. „Já, en það er þá sem engl- arnir heimsækja hann.“ Ingrid taldi greinilega að skáldskapargáf- an nærðist af drykkjunni. Olof Lagercrantz hefur sótt nafn bókar- innar í erindi eftir Ekelöf: „Spyrjirðu mig hvar ég bý/ þá bý ég hér bak við fjöllin./ Langt frá en ég er nærri. / Minn heimur er annar/ en þú býrð í hinum sama.“ Dulúð var alltaf Gunnari Ekelöf hugleikin, hluti af skáldskap hans. Olof Lagercrantz nefnir dulúð Swedenborgs sem fyrirmynd. Swedenborg taldi alheiminn hafa sál, dauða hluti lifandi, draumana hluta af raunveru- leikanum og talaði um heilagan samruna alls. Trúarlega reynslu Swedenborgs gat Eke- löf einnig játað, að mati Lagercrantz, sem nefnir skyldleika við rómantískan skáldskap. Ekelöf þakkaði Swedenborg með því að yrkja um hann í bókinni Mölna-elegi. Lokatímabil skáldskapar Ekelöfs hófst með Diwan över Fursten av Emgión (1966) og hélt áfram með Sagan om Fatumeh (1966) og Vägvisare till underjorden (1967). Með þessum bókum tók við hið svokallaða býs- anska tímabil hjá Ekelöf en hann var altek- inn af Býsans og ferðaðist m.a. til Tyrklands ásamt konu sinni og dóttur. Í Istanbúl varð hann fyrir þeirri reynslu að „englarnir“ komu til hans með sérstökum hætti. Eftir töluvert ljóðahlé streymdu ljóðin beinlínis frá honum. Afköstin voru ótrúleg eins og fyrrnefndar bækur vitna um, allar langar. Þrátt fyrir að hann væri orðinn veik- ur af krabbameini var hugurinn sístarfandi og auk ferðarinnar til Istanbúl fór hann til Ítalíu og Grikklands. Ljóðin í býsanska þríleiknum eru meðal hátinda í sænskri ljóðlist tuttugustu aldar. Það má einnig segja um fyrri bækur Ekelöfs þótt þær séu misjafnar eins og vænta má af svo afkastamiklu skáldi. Ekelöf er sjálfur fursti í þessum ljóðum, í senn háfleygur og afar jarðbundinn. Móð- urþemað er áberandi, einnig jómfrúin. Í Vägvisare till underjorden biður hann: „Gef mér eitur svo að ég deyi eða drauma til að lifa.“ Önnur gagnleg bók um skáldið er Gunnar Ekelöf eftir Anders Olsson, útg. Natur och Kultur. Viðamikil og afar fróðleg er áður- nefnd bók: Gunnar Ekelöf, en biografi eftir Carl Olov Sommar, útg. Bonniers. Ljóð Ekelöfs, Dikter, hafa komið í kilju auk venjulegrar útgáfu en heildarútgáfa verka hans nefnist Skrifter 1–8, ritstjóri Reidar Ekner, útg. Bonniers. Þegar ég síðast vissi höfðu Dikter selst í 54.000 eintökum en búast má við að þetta „erfiða“ skáld hafi náð til enn fleiri. HEIMUR SKÁLDSINS ER ANNAR Olof Lagercrantz hefur samið fjölda bóka um skáld frá ýmsum löndum. JÓHANN HJÁLMARS- SON gerir hér grein fyrir einni þeirra sem þykir mjög persónuleg og hefur orðið metsölubók en í henni er fjallað um landa Lagercrantz, sænska skáldið Gunnar Ekelöf. Ljósmynd/Bertil Danielsson Gunnar Ekelöf.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.