Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2001, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. OKTÓBER 2001 13
B
LÍÐFINNUR stundar garðinn
sinn og ræktar þar af alúð tré og
rósir. Spekingurinn situr uppi í
tré og Smælkið er á ferðinni allt
um kring. Umhverfis er skógur-
inn sem Blíðfinnur óttast og hef-
ur aldrei hætt sér inn í. Þá birtist
Barnið og Spekingurinn hefur þá
visku að færa að Barnið muni birtast og dvelja í
garðinum þar til það hverfur. Síðan ekki söguna
meir. Þetta gengur eftir en Blíðfinnur getur ekki
hugsað sér þessi sögulok og ást hans á Barninu
er slík að hann tekst á við óttann og hefur leit að
barninu ásamt Smælkinu og ýmsu gagnlegu dóti
í gamalli tösku.
Á leið þeirra verða margar skrýtnar verur, s.s.
dvergarnir Vöðull, Söðull og Engumlíkur. Einnig
Gúbbarnir, Klóbítarnir, Akademónarnir, Hlunk-
urinn, Drullumalli, Bókavarðan, og fallega stúlk-
an hún Merla.
„Þetta er stórkostlegt ævintýri um kærleikann
og bernskuna, ástina og mildina sem býr í hjart-
anu,“ segir leikstjórinn og höfundur leikgerðar-
innar, Harpa Arnardóttir. Hún segir bókina hafa
heillað sig strax í upphafi en hún hafi kynnst
henni í tjaldi uppi í sveit fjarri heimsins glaumi.
„Gíó (Guðjón Pedersen leikhússtjóri) og Hafliði
(Arngrímsson leiklistarráðunautur) báðu mig að
lesa bækurnar. Ég fór með þær upp í sveit og
tjaldaði yfir okkur. Það var mjög skemmtileg úti-
lega. Síðan leið nokkur tími þar til þeir spurðu
mig hvort ég vildi gera úr þessu leiksýningu. Ég
var til í það en aftur leið nokkur tími þar til leik-
Sýningin er afskapleg litrík og myndræn og
heiðurinn af því á Snorri Freyr Hilmarsson leik-
myndahönnuður. „Við unnum samhliða að leik-
gerðinni og útliti sýningarinnar svo hugmynd-
irnar fylgdust að. Hilmar Örn Hilmarsson var
svo strax tilbúinn að semja tónlist við sýninguna
þegar talað var við hann svo þetta hefur verið af-
skaplega skemmtilegt og gefandi samstarf. “
Harpa er að leikstýra í fyrsta sinn hjá Leik-
félagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu en hún
hefur rekið leikhópinn Augnablik ásamt fleirum
og tekið þátt í rómuðum barnasýningum, s.s.
Dimmalimm og Júlíu og Mánafólkinu. Fyrir
tveimur árum leikstýrði hún Leikfélagi Mennta-
skólans við Hamrahlíð í Náttúruóperunni eftir
Andra Snæ Magnason. Sú sýning vakti mikla at-
hygli, ekki síst á hæfileikum Hörpu sem leik-
stjóra. Hún leikstýrði einnig sýningunni Tristan
og Ísól sem sýnt var á Stóra sviði Borgarleik-
hússins sumarið 1997 svo hún hefur reynslu af
því. „Stóra sviðið hérna er skapað fyrir ævintýra-
sýningar. Hér er hægt að gera svo margt og við
höfum nýtt okkur tæknimöguleika sviðsins út í
æsar. Það er einmitt svo gaman að gera æv-
intýrasýningar fyrir börn sem þekkja ekki tækni
sviðsins og verða alveg gagntekin af þeim göldr-
um sem þeim finnst eiga sér stað. Börnin eru líka
svo tilbúin að taka þátt í ævintýrunum og láta
segja sér svona sögur.“
Harpa segir að eitt af meginþemum sögunnar
um Blíðfinn sé óttinn við hið óþekkta sem búi í
okkur öllum. „Þetta er saga um að takast á við
óttann með kærleikann að vopni. Ég heyrði svo
fallega líkingu eitt sinn þar sem sagði að óttinn
bankaði á dyrnar og kærleikurinn opnar og þá er
enginn í gættinni.“
Reynsla Hörpu af leiklistarkennslu barna á
ýmsum aldri skilar sér vafalaust einnig í vinnu
hennar núna en hún kenndi börnum leiklist á
námskeiðum í Kramhúsinu í nokkur ár. „Ég hef
lært svo margt af börnunum um sköpunargleð-
ina og hversu mikilvægt er að halda leiðinni að
hjartanu opinni. Sem fullorðnir listamenn erum
við oft svo upptekin af fullkomnunaráráttu en
það getur heft sköpunargleðina ef ekki er gætt
að.“
Hún segir að leikhópurinn hafi nálgast verk-
efnið af opnum hug og hjarta en þó hefði verið
gaman að hafa meiri tíma til þess að velta fyrir
sér heimspekilegu inntaki verksins. „Tíminn er
naumur og þetta er kapphlaup við að klára sýn-
inguna á tilsettum tíma. Maður vildi auðvitað
óska þess að hafa meiri tíma til þess að fínpússa
smáatriði en barnið verður einhvern tímann að fá
að fara eitt út í skóginn og horfast í augu við
heiminn,“ segir Harpa að lokum.
gerðin fór að verða til. Þetta hefur því allt átt sér
nokkuð langan aðdraganda en í fyrravor var svo
komið að ég hitti leikhópinn vikulega og kynnti
fyrir þeim hugmyndir mínar og við unnum útfrá
þeim. Í sumar skrifaði ég svo leikgerðina end-
anlega og byggði hana aðallega á fyrri bókinni en
þó langaði mig að hafa dvergana úr seinni bók-
inni með. Þorvaldur (Þorsteinsson) brást vel við
beiðni minni um að skrifa sérstakan leikþátt í
bundnu máli fyrir dvergana inn í sýninguna. Að
öðru leyti hefur hann gefið mér og leikhópnum
frjálsar hendur með þetta,“ segir Harpa.
Ævintýri um ástina og mildina
havar@mbl.is
Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir barnaleikritið
Blíðfinn eftir Þorvald
Þorsteinsson á stóra
sviðinu í dag kl. 14.
HÁVAR SIGURJÓNSSON
fylgdist með æfingu og
ræddi við höfund leikgerð-
arinnar og leikstjórann,
Hörpu Arnardóttur.
Morgunblaðið/Þorkell
Gúbbarnir eru matglaðir og vinalegir og gæðastúlkan Merla er perlan þeirra.
Barnið unir sér í boltaleik í garðinum.
STJÓRN Bandaríska dans-
flokksins tilkynnti nú í vikunni
að Wallace Chappell hefði verið
valinn nýr fram-
kvæmdastjóri
dansflokksins.
Ráðning Chap-
pells kemur í
kjölfar storma-
sams tímabils
hjá ballettinum
sem einkennst
hefur af deilum
baksviðs og
uppsögnum bæði starfsmanna
og stjórnar.
Chappell, sem áður hefur far-
ið fyrir Forum leikhúsinu í Los
Angeles, Alliance leikhúsinu í
Atlanta og Repertory leikhúsinu
í St. Louis, tekur við af núver-
andi framkvæmdastjóra, Louis
G. Spisto, sem sagði af sér eftir
tveggja ára starf hjá dans-
flokknum.
Hinn nýi framkvæmdastjóri
lýsti því síðan yfir í viðtali við
bandaríska dagblaðið New York
Times að hann hefði mikinn hug
á að auka ráðstöfunarfé dans-
flokksins, auk þess sem hann
vildi koma á samstarfi við nýja
danshöfunda sem sett gætu upp
áhugaverð ný dansverk sem sér-
staklega höfðuðu til yngri
áhorfenda.
Galway
verðlaunaður
WILHELM Hansen sjóðurinn
mun í lok októbermánaðar af-
henda listaverðlaun þessa árs
og koma heiðursverðlaunin að
þessu sinni í hlut írska flautu-
leikarans James Galway. Verð-
launin nema rúmum þremur
milljónum íslenskra króna og
eru veitt Galway fyrir framlag
hans til heimstónlistar.
Galway, sem hefur sent frá
sér yfir 50 metsöluplötur og
komið fram á tónleikum víðs-
vegar í heiminum, á að baki fjöl-
breytta verkaskrá en hann hef-
ur sinnt jafnt klassískri tónlist,
kammermúsík og írskum þjóð-
lögum, auk þess að bjóða upp á
námskeið í flautuleik fyrir
flautuleikara í fjölmörgum lönd-
um.
Alls munu verða veittar 43
viðurkenningar að þessu sinni
og falla þær að venju í skaut
listamönnum sem með starfi
sínu hafa vakið athygli á leiklist,
dansi eða tónlist. En á síðasta
ári var bætt við verðlaunaflokki
til að unnt væri að styðja við
bakið á ungum og upprennandi
listamönnum ekki síður en þeim
sem þegar hafa hlotið við-
urkenningu fyrir list sína.
Útgáfu Lingua
Franca hætt
AKADEMÍSKA tímaritið Ling-
ua Franca, sem notið hefur vin-
sælda meðal fræðimanna í há-
skólum víðsvegar, hefur verið
hætt í kjölfar þess að stuðnings-
aðili tímaritsins hefur hætt fjár-
stuðningi sínum. Lingua Franca
hefur aldrei skilað hagnaði en
blaðið hefur til þessa verið gefið
út í um 15.000 eintökum. Tíma-
ritið var stofnað 1990 af Jeffrey
Kittay, fyrrum prófessor við
Yale háskólann, sem sá þar vett-
vang fyrir líflegar frásagnir af
hinum akademíska vettvangi og
ekki hvað síst af skoðanaskipt-
um fræðimanna.
Að sögn dagblaðsins Int-
ernational Herald Tribune
vöktu fréttirnar af andláti Ling-
ua Franca mikla óánægju meðal
fræðimanna og hefur Kittay
fullan hug á að leita nýrra
stuðningsaðila.
Chappell fram-
kvæmdastjóri
ERLENT
Wallace
Chappell
eftir Þorvald Þorsteinsson.
Leikgerð: Harpa Arnadóttir.
Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson, Ásta
Sighvats Ólafsdóttir, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Gunnar
Hansson, Jón Hjartarson, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir og Jón Hjartarson.
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr
Hilmarsson.
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson.
Lýsing: Kári Gíslason.
Blíðfinnur