Lesbók Morgunblaðsins - 15.12.2001, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 15.12.2001, Blaðsíða 15
skyldi. Kom minna að sök hvað mig snerti sem hafði séð margar aðalmyndirnar áður og blaða- passinn kom í góðar þarfir hvað biðröðina snerti. Safnið stendur við Museumpark, Safna- garðinn, sem er réttnefni meður því að við hann standa fleiri söfn til að mynda Listahöll borg- arinnar, Náttúrusögusafnið, Arkitektasafnið svo og Barnasafn. Í nágrenninu eru svo fleiri söfn eins og Borgarlistasafnið, sem er í afar fal- legu húsi frá stórveldistíma Hollands á 17 öld, og Sjóminjasafnið sem er hvorutveggja inni sem útisafn, heilu skipin til sýnis. Ekki er nema um það bil þriggja mínútna gangur frá Roc- hussenstraat þar sem ég bjó hjá listakonunni Ingu Hlöðversdóttur og manni hennar, blaða- manninum Jan Gerrritsen, sem skrifar í virt- asta blað Hollands NRC handelsblatt, eins kon- ar Frankfurter Allgemeine Zeitung þeirra Hollendinga. Útsýni úr herbergi mínu var beint á volduga nýbyggingu Erasmusháskólans sem hýsir læknadeildina og mun yfir 20 hæðir, hinn hluti háskólans er í austurbænum. Við hlið Erasmusháskólans er jafnhár menntaskóli sem mikið orð fer af og 14.000 nemendur stunda nám við. Gerritsen hefur nokkrum sinnum kom- ið til Íslands, en upprunalega var hann sendur hingað sem fréttamaður í sambandi við Gorb- atsjoff-Reagan fundinn og hitti þá Ingu er hann leit inn á Þórskaffi og síðan hafa þau verið límd saman. Ýmislegt gott leiddi þessi fundur þannig af sér í heimsmálunum, eins og þau orða það kímileit. Hann hefur skrifað margar vænar og mjög menningarlegar greinar um Ísland. Hafnar-, verslunar- og iðnaðarborgin Rotter- dam, er hin næststærsta í Hollandi, aðeins Amsterdam stærri. Þróunarsaga hennar í mjög knöppu máli, er að um 1220 fóru fiskimenn að setjast að kringum stíflu við ármynnið Rott. Ár- ið 1340 öðlaðist þéttbýlið borgarréttindi þannig að staðarbúar héldu upp á 660 ára afmæli Rott- erdam á síðasta ári, og hlýtur mikið að hafa ver- ið um dýrðir því borgarbúar virðast, ef marka má ferðapésa, með afbrigðum skemmtanaglað- ir, einkum um sumartímann. Á sextándu og sautjándu öld þróaðist Rotterdam í blómlega verslunarmiðstöð, upp risu skipasmíðastöðvar og vörugeymslur, þar áttu ýmsir annálaðir sæ- farendur heimahöfn eins og Piet Heyn, er sigr- aði spánska silfurflotann, og Austur-Asíufélagið hafði þar aðsetur. Það var þó ekki fyrr en um miðja nítjándu öld, er íbúatalan var 100.000, að borgin tók að þenjast út fyrir alvöru og fá á sig mynd alþjóðlegrar samgöngumiðstöðvar. Árið 1910 voru íbúarnir orðnir 487.000, en síðan hef- ur þetta rokkað til og frá, trúlega allt í senn vegna heimsstyrjaldarinnar, breyttra lífshátta og tæknibyltingarinar, er þúsundir hafnar- verkamanna misstu vinnuna við tilkomu gám- anna og gámaskipanna. Árið 1951 taldi borgin þannig 684.600 íbúa, en 1986 571.000 og við síð- usta manntal 592.597. Skip Holland-Ameríku línunnar sigldu reglu- bundið með evrópska landnema fram á sjötta áratuginn er flugið mun að mestu hafa tekið við. Á líkum tíma tóku innflytjendur frá Miðjarð- arhafslöndunum og víðar að streyma að og nú er Rotterdam fjölþjóðastaður og býr þar fólk frá 125 löndum. Að vissu marki er Rotterdam erfið borg og því eins gott fyrir ókunnuga að hafa allan varann á, en allar stórborgir hafa raunar sín varasömu hverfi. Sjónvarpsvélar fylgjast víða með fólki við hraðabanka utan dyra og ekki að ástæðulausu, hefur oft komið fyrir að viðskiptavinurinn finnur fyrir hníf við bak sér og heyrir rödd sem segir eitthvað á þá leið: þú átt peninga, viltu ekki deila þeim með mér! Þótt Rotterdam standi í skugga Amsterdam með öll sín stóru söfn þróast drjúg listastarf- semi innan marka hennar og samkeppni mikil milli borganna. Þannig var mér var tjáð að íbúar Amsterdam líti niður á Rotterdam, finnist borg- in hálfgert sveitaþorp. Því von að menningar- borgarárið auki ris Rotterdam enn frekar. Hótel New York, þar sem áður var aðsetur Hollands-Ameríkulínunnar. Æskustíllinn prýðir skreytingu forhliðarinnar. Delftska borgarhliðið, hannað af C. Kraat og reist 1988– 90. Arkitektinn tók mið af upprunalega hliðinu, hannað af Pieter de Zwart og reist 1772. Tekið niður í upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar og komið fyrir í geymslu en var sprengt upp í loftárás í síðari heimsstyrjöldinni. Við hlið teningahúsanna og aðalbókasafnsins stendur Svarti turninn, öðru nafni blýanturinn, byggður 1984 og 64 metrar hár. Hægt er að fá leyfi til að skoða þessar sérstæðu íbúðir, sem eru í forgrunni, eins og kúbismi í byggingarlist. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 15. DESEMBER 2001 15 MYNDLIST Árnastofnun: Árnagarði: Handritasýn- ing opin þri.–fös. kl. 14–16. Til 15.5. Galleri@hlemmur.is: Gjörningaklúbb- urinn. Til 6.1. Gallerí Reykjavík: Jónína Guðnadóttir. Til 17. des. Benedikt F. Lafleur. Til 30. des. Gallerí Skuggi: Jón Sæmundur Auð- arson og Páll Banine. Til 23. des. Gerðarsafn: Fjórir listamenn. Til 20. des. Gerðuberg: Þórunn Sveinsdóttir. Til 16. des. Hallgrímskirkja: Þórður Hall. Til 20.2. Handverk og hönnun, Aðalstræti 12: Jóla- og sölusýning. Til 19. des. i8, Klapparstíg 33: Roni Horn. Til 12.1. Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Sýning félagsmanna. Til 16. des. Listasafn Akureyrar: Óli G. Jóhannsson og Kristján Davíðsson. Til 16. des. Listasafn ASÍ: Jólakort Hrings Jóhann- essonar og Þorra Hringssonar. Til 16. des. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14–17. Listasafn Rvíkur – Ásmundarsafn: Svipir lands og sagna. Til 10.2. Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Erró. Til 1.1. Guðmundur R. Lúðvíksson. Til 20.1. Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir: Tékknesk glerlist. Til 13.1. Jóhannes S. Kjarval. Til 31.5. Listhús Ófeigs: Hústaka Meistara Jak- obs. Til 31.1. Norræna húsið: Veflistarmaðurinn Anne-Mette Holm. Til 13.1. Skálholtskirkja: Anna Torfad. og Þor- gerður Sigurðard. Til 31. des. Slunkaríki, Ísafirði: Hlynur Hallsson. Til 6. jan. Þjóðarbókhlaða: Bækur og myndir 35 erlendra höfunda. Til 31.1. Björg C. Þor- láksson. Til 1.1. Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og ragnarök. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Háskólabíó: SÍ. Einleikari: Eva Guðný Þórarinsdóttir. Stj.: Bernharður Wilk- inson. Jólatónleikar. Kl. 15. Háteigskirkja: Hljómeyki. Kl. 20. Sunnudagur Áskirkja: Kammarsveit Reykjavíkur og fiðluleikararnir Hrafnhildur Atladóttir, Una Sveinbjarnardóttir, Sigurbjörn Bernharðsson og Sif Tulinius. Kl. 17. Hallgrímskirkja: Lára Bryndís Egg- ertsdóttir. Kl. 17. Seltjarnarneskirkja: Selkórinn, Bubbi Morthens Jóhann Helgason og hljóm- sveit. Kl. 20:30. Hjallakirkja: Aðventusöngvar. Kamm- erkórinn Vox Gaudiae og Hrafnhildur Björnsdóttir. Kl. 20.30. Mánudagur Kópavogskirkja: Skólakór Kársness. Kl. 20:30. Þriðjudagur Fríkirkjan í Reykjavík: Sigurður Hall- dórsson sellóleikari. Kl. 21. Seltjarnarneskirkja: Sönghópurinn Pallíettur og píanó og Lögreglukórinn. Kl. 20. Kristskirkja: Vox academica. Kl. 20. Miðvikudagur Hafnarfjarðarkirkja: Mozart við kerta- ljós. Camerarctica. Kl. 21. Fimmtudagur Salurinn, Kópavogi: Íslenska tríóið: Nína Margrét Grímsdóttir, píanó, Sig- urbjörn Bernharðsson, fiðla, og Sig- urður Bjarki Gunnarsson, selló. Kl. 20. Föstudagur Kópavogskirkja: Mozart við kertaljós. Camerarctica. Kl. 21. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, 15., 16. des. Karíus og Baktus, 15., 16. des. Leikfélag Akureyrar: Blessað barnalán, 15. des. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvu- pósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt- ar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.